Morgunblaðið - 09.07.1985, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1985
59
Árni Garðar Kristinsson rið eitt verka sinna. Morgunbiaftií/Bjami
Hef haldið mig mest
við sjóinn og sólskinið
— segir Árni Garöar Kristinsson, sem sýnir verk sín
í Listamannaskálanum í Eden um þessar mundir
„Þetta eru eitthvað um fimmtíu til sextíu verk, landslag frá ýmsum
stöðum á landinu, enda hef ég haldið mig mest við sjóinn og sólskinið í
mínum myndum," sagði Árni Garðar Kristinsson er blaðamaður átti við
hann stutt spjall í vikunni.
I gær, mánudag, var opnuð sýn-
ing á verkum Arna Garðars f
Listamannaskála Eden í Hvera-
gerði og stendur hún til 22. júlí
nk.
Árni Garðar hefur haldið
nokkrar einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum með Mynd-
íistarklúbbi Seltjarnarness, m.a. í
Herlev í Danmörku, en hann er
einnig formaður klúbbsins.
„Ég lærði fyrst að mála upp úr
1940 í Handíðaskólanum, sem Fé-
lag íslenskra frfstundamálara
kom á fót,“ sagði Árni Garðar.
„Svo hætti ég í þrjátíu ár og byrj-
aði ekki aftur fyrr en Myndlist-
arklúbbur Seltjarnarness kom til
sögunnar fyrir tólf árum. Þar
hafa kennarar okkar m.a. verið
Rudolf Weissauer, Jóhannes
Geir, Hringur Jóhannesson og
Einar Baldvinsson.“
Árni Garðar kvaðst vera nokk-
uð afkastamikill við listsköpun-
ina þó að hann hefði ekki tfma til
að mála nema um helgar. „Svo
ferðast ég um landið og geri
skissur sem ég mála eftir þegar
heim er komið,“ sagði hann. „Á
þessari sýningu í Eden er mest
um vatnslita- og pastelmyndir.
Það er ekki pláss fyrir olíumál-
verkin þarna svo ég verð bara
með litlar myndir í þetta skipti,
ætli megi ekki kalla sumar þeirra
smámyndir.”
Landslagsmyndir Árna Garð-
ars eru m.a. úr Borgarfirðinum,
frá Langanesi og Snæfellsnesi og
sfðan eru að sjálfsögðu nokkrar
frá Seltjarnarnesi, þar sem lista-
maðurinn er búsettur.
Blindrafélagshappdrættið:
Grunur um 1,5 mill-
jóna króna misferli
Óskað eftir lögreglurannsókn
STJÓRN Blindrafélags íslands hef-
ur ákveðið að óska eftir lög-
reglurannsókn á fjárreiðum happ-
drættis félagsins, sem um langa hríð
hefur verið ein helsta tekjulind
Blindrafélagsins. Framkvæmda-
stjóra félagsins hefur verið vikið frá
störfum vegna þessa máls.
Halldór Rafnar, formaður fé-
lagsins, sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins að stjórnin hefði
ekki fengið fullnægjandi skýr-
ingar á útgáfu sex ávísana, sem
gefnar voru út til greiðslu happ-
drættisvinninga á þriggja ára
tímabili. „Þetta er samtals um
hálf önnur milljón króna,“ sagði
hann. „Ávísanirnar voru gefnar út
á handhafa og framseldar af
framkvæmdastjóranum. Við
treystum okkur ekki til að leysa
þetta mál sjálf og teljum nauð-
synlegt, vegna okkar sjálfra, Ör-
yrkjabandalagsins og annarra ör-
yrkjafélaga, að láta fara fram ít-
arlega rannsókn á málinu. En ég
vil taka fram, að enginn hefur ver-
ið kærður í þessu máli. Það er
annarra að taka ákvörðun um
slíkt.“
Tundurdufl
á reki?
TALIÐ er að tundurdufl sé á reki
um 200 sjómflur suður af Vest-
mannaeyjum. íslenskt skip taldi sig
verða vart við duflið þar og varaði
Landhelgisgæslan við því um helg-
ina.
„Það er ekki vitað með vissu
hvað þarna var á ferðinni,” sagði
Gunnar Ólafsson hjá Landhelgis-
gæslunni, „en okkur þótti örugg-
ara að láta vita af þessu. Alls kon-
ar duflum hefur fjölgað mjög mik-
ið, meðal annars stórum rekdufl-
um, á síðustu árum og þvi gæti
þetta verið hvað sem er.“
Brotlenti svif-
dreka og rotaðist
MAÐUR á svifdreka rotaðist og
slasaðist lítillega sl. laugardags-
kvöld þegar hann brotlenti i fjallinu
Reykjaborg við Hafravatn skammt
austan við Reykjavík. Hann var þar
við æfingar á dreka sínum og náði
ekki beygju með fjallinu með fyrr-
greindum afleiðingum.
Maður þessi, sem er hálffimm- •
tugur, mun vera byrjandi í íþrótt-
inni. Hann var í flugi með nokkr-
um félögum sínum úr Svifdrekafé-
lagi Reykjavíkur þegar óhappið
varð. Maðurinn var meðvitundar-
laus í um hálfa klukkustund og
var fenginn læknir frá Reykja-
lundi til að líta á hann. Reyndist
hann rifbeinsbrotinn og dálítið
marinn. Drekinn er hinsvegar
meira skemmdur.
Listamaöurinn Karl Lagcrfdd hefur í samvinnu við CHLOÉ-safnið i Paris hannað þessi
gullfallegu matar- og kan'istell „Kalablómið' sem Hutschenreuther framleiðir úrpostulini
af bestu gerð.
? SILFURBÚÐIN
Laugavegi 55, Reykjavík Sími 11066