Morgunblaðið - 12.07.1985, Blaðsíða 20
_20_____
Indland:
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ1985
Union Carbide
lokar verksmiðju
niuu..! I.UÍUHIÍ ti m.; a ■> ”
Bbopal, IndUndi, 11. júní. AP.
TALSMAÐIJR bandaríska stórfyr-
irtækisins Union Carbide skýrði frá
því í dag að ákveðið hefði verið að
hætta rekstri gasverksmiðju fyrir-
tækisins í Bhopal á Indlandi. Þar
fórust um 2 þúsund manns í des-
ember í fyrra af völdum eiturgass,
sem lak frá verksmiðjunni.
Ákveðið var að loka verksmiðj-
unni eftir að stjórnvöld í Bhopal
Reagan í skoðun
Washington, 11. júlí. AP.
TILKYNNT var í dag að Ronald
Reagan, forseti Bandaríkjanna færi
í reglulega læknisskoðun á morgun,
fostudag, á sjúkrahúsi flotans í
Washington.
Sagt var að fjarlægt yrði æxli,
sem myndast hefði í ristli, en það
væri ekki illkynja.
Læknar sögðu að ekkert væri að
óttast um heilsu forsetans, en
hann mundi þó gangast undir
nákvæma læknisskoðun. Reagan
verður einn dag í sjúkrahúsinu.
neituðu að framlengja fram-
leiðsluleyfi hennar. Um 600 manns
munu missa atvinnuna vegna lok-
unar verksmiðjunnar.
Hafa starfsmennirnir krafist
þess að verksmiðjan verði starf-
ræk ífram. Stóðu þeir fyrir mót-
mælaaðgerðum fyrir framan verk-
smiðjuna í dag til að vekja athygli
á kröfum sínum, en þeir hafa
einnig heimtað launabætur vegna
lokunarinnar. Að sögn formanns
starfsmannafélags gasverksmiðj-
unnar hafa forsvarsmenn Union
Carbide í Bhopal hafnað þessari
kröfu starfsmannanna.
Réttarhöldin yfir tilræðismönnum páfa:
Búlgarinn kveðst
saklaus af ákæru
Rómaborg, 11. júH. AP.
BÚLGARINN, Sergei Anatov, sem ákærður hefur verið fyrir aðild að bana-
tilræðinu við Jóhannes Pál páfa II, sagði fyrir rétti í dag að hann hefði aldrei
hitt tilræðismanninn, Ali Acca.
Kom þetta fram þegar Anatov
og Acca voru samprófaðir við rétt-
arhöldin. Bætti Búlgarinn því við
að hann vissi ekkert um undirbún-
ing tilræðisins við páfa: „Ég hef
hvorki séð né hitt þennan mann
[Acca].“
Þegar Acca var beðinn um að
láta í ljósi álit sitt á ummælum
Anatovs sagði hann: „Ég hef ekk-
ert á móti Anatov eða búlgörsku
þjóðinni, en hann er sekur.“
Anatov er sakaður um að hafa
ekið Acca á Péturstorgið, þar sem
páfa var sýnt banatilræðið 13. maí
1981.
Apar og mýs í geimflug
Moflkvu, ll.júlí. AP.
TVEIR apakettir, nokkrar hvítar
mýs og salamöndrur eru um borð í
Cosmos 1667 geimfari, líður vel og
una sér ágætlega í geimnum, að því
er sagði í útvarpsfréttum frá
Moskvu í dag.
Tilgangurinn er að kanna áhrif
geimveru á dýrin. Geimfarinu var
skotið á loft á miðvikudag og verð-
ur það viku úti í geimnum. Sov-
étmenn sendu sfðast dýr út í geim-
inn fyrir tveimur árum, og var það
þá í samvinnu við franska og
bandaríska geimvísindamenn.
AP/Símamynd
Sovésk orrustuþota af gerðinni SU 15 hrapaði í Eystrasalt á sunnudag. Myndin sýnir vél af sömu gerð á fhigi.
Sovésk orrustuþota
hrapaði í Eystrasalt
Flaug á eftir sænskri könnunarflugvél
Stokkhólmi. 11. júlf. AP.
TALIÐ er að sovéskur flugmaður
hafi látið lífið er orrustuþota af
gerðinni SU-15 hrapaði í Eystrasalt
á sunnudag.
Sovéska þotan var að fljúga á
eftir sænskri orrustuþotu af
Viggen-gerð, sem var að fylgjast
með æfingum herskipa frá ríkj-
um Varsjárbandalagsins fyrir
sunnan Gotland. Það var Jan
Tuninger, blaðafulltrúi sænska
hersins, sem staðfesti þetta í dag,
en í morgun voru óstaðfestar
fréttir um atburðinn forsíðuefni
allra sænsku dagblaðanna.
í fyrirsögn Aftonbladet í dag
sagði: „Sovéskur flugmaður eltir
Viggen“, en Tuninger sagði í við-
tali við AP, að báðar herþoturnar
hefðu fylgt venjulegum flugsögu-
reglum. Jan Eliasson, talsmaður
sænska utanríkisráðuneytisins,
sagði, að ekki væri við því búist
að atvik þetta hefði nein eftirmál
í för með sér. „Þetta virðist hafa
verið slys,“ sagði hann, „og ætti
ekki að hafa nein áhrif á sam-
band ríkjanna." Hann sagði, að
stjórnvöld í Svíþjóð og Sovétríkj-
unum hefðu ekkert fjallað um
slysið sín á milli.
Jan Tuninger sagði, að ekki
væri vitað um orsök þess að sov-
éska orrustuþotan hrapaði. Hún
hefði flogið á eftir sænsku könn-
unarvélinni og hrapað svo
skyndilega, að flugmanninum
hefði ekki gefist ráðrúm til að
kasta sér út í fallhlíf. Sovésk skip
hefðu fljótlega komið á vettvang,
en þau hefðu ekki farið fram á
aðstoð Svía.
Tuninger var spurður að því
hvers vegna stjórnvöld í Svíþjóð
hefðu ekki greint frá slysinu fyrr
en eftir að hinar óstaðfestu
fregnir sænsku blaðanna birtust í
dag. Hann sagði, að það væri eng-
in ástæða til þess að Svíar skýrðu
frá annarra þjóða flugslysum.
f ágúst í fyrra elti sovésk
orrustuþota af gerðinni SU-15,
sem tók þátt í heræfingum í
Eystrasalti, sænska orrustuþotu,
sem var i eftirlitsflugi yfir æf-
ingasvæðinu fyrir sunnan Got-
land. Sovéska þotan neyddi
sænsku vélina til að fljúga inn
fyrir sænska lofthelgi, og i fram-
haldi af þvi sagði Anders Thun-
borg, varnarmálaráðherra Sví-
þjóðar, að um væri að ræða al-
varlegasta lofthelgisbrot gagn-
vart Svíum um árabil. Formleg
mótmæli voru þá borin fram við
stjórnvöld í Moskvu.
ísrael:
Shamir fer fram á
náðun gyðinganna
Jerúulem. ll.júlL AP.
ÚTANRÍKISRÁÐHERRA ísraels, Yitzak Shamir sagðist í dag ætla að
beita sér fyrir náðun 25 ísraela, sem fundnir hafa verið sekir um hryðju-
verk gegn Palestínumönnum á vesturbakka Jórdanar.
Dómur yfir 15 ísraelanna, sem ísraelanna.
heyra til hryðjuverkasamtökum
öfgafullra gyðinga, verður kveð-
inn upp innan skamms, en hinir
10 höfðu áður verið dæmdir. Um-
mæli Shamirs voru fyrstu við-
brögð ráðherra í ríkisstjórn
Shímons Peres við sakfellingu
Þrír þeirra voru sakfelldir fyrir
morð. ísraelsku hryðjuverka-
mennirnir tóku þátt í skotárás á
almenningsvagna við íslamska
háskólann í Hebron 1983. Þrír
palestínskir námsmenn létu lífið
í árásinni, og 33 særðust.
Nýjar uppgötvanir varðandi ónæmistæringu:
Veiran eyðileggur hæfi-
leika hjálparfrumanna
til að snúast gegn sýklum
VEIRAN, sem veldur onæmistæringu (AIDS), eyðileggur óæmiskerfi lík-
amans með því að gera óvirkar gæzlufrumur í blóðinu, svo að þær ná ekki
að grcina eggjahvítubyggingu, sem venjulega er merki um tilvist sýkla í
blóðinu. Kemur þetta fram í nýrri
Bandaríkjanna.
Veiran sem veldur ónæmis-
tæringu, ræðst á og eyðileggur
að lokum hvít blóðkorn sem
venjulega ganga undir nafninu
T-hjálparfrumur. Þessar frumur
stjórna ónæmiskerfinu og eitt
mikilvægasta hlutverk þeirra er
að uppgötva óboðna fjandsam-
lega gesti og gefa þá hættu-
merki.
í skýrslunni segir að þessar
frumur séu hættar að starfa,
löngu áður en þær hafa eyðst. Á
einhvern hátt eyðileggur veiran
hæfileika hjálparfrumanna til
að greina og snúast gegn mót-
efnisvaka.
Mótefnisvakar eru það sem
sýkiar þekkjast á, það er efni
sem kunngera, að einhver sýkill
er framandi. Fyrsta skrefið til
að setja ónæmiskerfi líkamans
skýrslu frá heilbrigðismálastofnun
af stað, er að greina þessa mót-
efnisvaka. Án þessarar inn-
byggðu ratsjár, getur ónæmis-
kerfið ekki greint sýkla og þvi
ekki eytt þeim. Þegar ónæmis-
tæringu ber að, geta fórnar-
lömbin ekki komizt hjá sýkingu
og lúta þá i lægra haldi fyrir
sjúkdómum er sýklar valda sem
nær aldrei angra heilbrigt fólk.
„Ég tel,' að þetta skýri, hvers
vegna allt ónæmiskerfið hryn-
ur,“ sagði dr. H. Clifford Lane,
sem stjórnaði rannsókn banda-
rísku heilbrigðismálastofnunar-
innar. Rannsókn hans var byggð
á blóðsýnum, sem tekin voru úr
12 mönnum, er sýkzt höfðu af
ónæmistæringu. Skýrði lækna-
ritið New England Journal of
Medicine frá þessari rannsókn I
dag.
Til þessa hafa sumir sérfræð-
ingar haldið þeirri kenningu
fram að hjálparfrumurnar væru
óvirkar, sökum þess að fjöldi
þeirra hefði minnkað af völdum
veirunnar. Þessi nýja rannsókn
leiðir í ljós að hinar sýktu frum-
ur geta eftir sem áður fram-
kvæmt sum af verkefnum sínum.
Þær eru aðeins ófærar um að
gegna því mikilvæga hlutverki
að greina sýkla.
„Það er svipað því og að hafa
hjarta, sem ekki getur slegið,"
var haft eftir Lane. „Vefirnir í
hjartanu geta verið lifandi, en ef
það slær ekki, þá er það gagns-
laust. ónæmiskerfi, sem ekki
getur greint framandi eggja-
hvítuefni, er gagnslaust ónæm-
iskerfi.”
Lane sagði, að þessi nýja upp-
götvun myndi ekki vekja nýjar
vonir um hvernig koma mætti í
veg fyrir ónæmistæringu, en
gæti samt orðið til þess að opna
Læknar að störfum gegn ónæmistæringu. Ein kenningin er sú að skordýr
kunni að bera veiruna á milli manna.
leiðir til að segja fyrir um, hvað
sennilega ætti eftir að gerast hjá
fólki, sem sýkzt hefði af ónæm-
istæringarsýklinum.
Margir af þeim mönnum, sem
sýkzt hefðu, væru enn við góða
heilsu. Sumir þeirra hefðu hjálp-
arfrumur, sem brygðust rétti-
lega við mótefnisvökum, en aðrir
hefðu þær ekki. Með frekari
rannsóknum mætti kanna hvort
þeir sem hefðu óvirkar hjálpar-
frumur, væru líklegri til þess að
fá ónæmistæringu en aðrir.
Fylgzt yrði einnig með þessari
starfsemi hjálparfrumanna i
sjuklingum með ónæmistæringu.
Takmarkið væri að sjá, hvort
unnt væri með tilraunameðferð
aó endurvekja viðbragðshæfni
frumanna gagnvart sýklum.
Eftir að hafa fundið sýkla með
því að greina mótefnisvaka
þeirra, framkvæma heilbrigðar
hjálparfrumur margs konar
önnur verkefni. Þær hvetja aðr-
ar blóðfrumur til þess að fram-
leiða mótefni, gera drápsfrumur
virkar, búa til interferon og önn-
ur efni, sem vinna gegn sýklum
og segja öðrum frumum fyrir
um, hvenær allri þessari starf-
semi skuli hætt, eftir að hættan
er gengin yfir. „Þetta kemur vel
og heim saman við það, sem
margir hafa séð hjá sjúklingum,
sem eru bæði með forstigsein-
kenni og sjálft lokastig þessa
sjúkdóms,“ sagði dr. Haraldur
Briem læknir, er Morgunblaðið
bar þessa frétt undir hann.
„Sjúklingarnir geta verið með
eðlilegan fjölda þessar fruma,
enda þótt þær vinni greinilega
ekki starf sitt eðlilega," sagði dr.
Haraldur.