Morgunblaðið - 12.07.1985, Qupperneq 27
2. Vaxtakostnaður
Afturvirkni sú sem 'viðskipta-
bankarnir settu á gengistryggingu
viðbótarlána fiskvinnslunnar í
fyrrahaust verði gerð ógild og
viðskiptabankarnir verði látnir
endurgreiða fiskvinnslunni þann
gengishagnað sem þeir fengu við
þá aðgerð. Vaxtaálag viðskipta-
bankanna vegna endurlánavið-
skipta þeirra með afurðalánin
verði lækkað. Fiskvinnslan fái að
ráða í hvaða myntum afurðalánin
eru tekin að svo miklu leyti sem
þau eru erlend.
Lokasýn-
ing fim-
leikahátíðar
LOKASÝNING norrænnar fimleika-
hátíðar hefst kl. 19.00 á fóstudag í
Laugardalshöll, segir í frétt frá Fim-
leikasambandi íslands. Valdir sýn-
ingarhópar frá öllum sýningum leik-
anna koma fram.
Hópatriði 250 barna sem vakti
mikla athygli á opnunarhátíð
verður endursýnt og í lokin koma
allir þátttakendur námskeiða sem
eru alls 800 fram á gólfið og
syngja og sýna atriði undir stjórn
Gunnel Thorberg og Rune Deltner
frá Svíþjóð.
Hljómsveit undir stjórn Guð-
jóns Vilhjálmssonar sér um tón-
Gistane „engill dauöans"
Gistane „feit og pattaraleg"
Sagan um
Gistane:
Enginn hugði Gistane líf þegar hún, 7 ára gömul,
kom fyrst til hjálparstöðva Rauða krossins í Eþíópíu. Þess
vegna var hún kölluð „engill dauðans". Nokkrum vikum síðar
var hún orðin „feit og pattaraleg“ þar sem hún naut lífsins
í félagsskap sendifulltrúa Rauða kross íslands, Sigríðar
Guðmundsdóttur.
Vilt þú veita svöngu barni í Afriku sams konar hjálp
og þá sem Rauði krossinn lét Gistane í té?
Framlög til Hjálparsjóðs Rauða krossins tryggja aðstoð
til hungraðra barna í Afríku.
Gíróreikningur Hjálparsjóðs
Rauða kross islands _ l/rOSS"' Jafl
op»n ö ^piöp'U
er 90000-1
Aota
SW'tS’
er °pVaö
h\á\P!
ira\óA4
ogSó^-
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚLÍ 1985
Forystumenn Sambands fískvinnslustöðva:
Gengu á fund ráð-
herra og áréttuðu
hagsmunamál
fiskvinnslunnar
Að undanförnu hafa forráða-
menn fiskvinnslufyrirtækja innan
Sambands fiskvinnslustöðvanna
fundað sjálfir og með þingmönn-
um í öllum kjördæmum. Á þessum
fundum hefur verið rætt um mál-
efni fiskvinnslufyrirtækja, stöðu
þeirra og framtíðarhorfur. Sam-
band fiskvinnslustöðvanna vill í
framhaldi af þessum fundum
árétta við stjórnvöld eftirfarandi
hagsmunamál fiskvinnslunnar og
óskar eftir samvinnu og fulltingi
um úrlausn þeirra.
1. Almenn efnahagsstjórn
Stjórnvöld verða að beita
ströngu aðhaldi í peningamálum á
þessu ári til þess að draga úr um-
frameftirspurn eftir vinnuafli,
þenslu og launaskriði. t því skyni
ber að leggja sérstaka áherslu á:
— Að heimildir til erlendra vöru-
kaupalána verði ekki rýmkaðar
og vandlega fylgst með því að
núverandi heimildir verði ekki
misnotaðar.
— Að séð verði til þess að .banka-
kerfið auki ekki erlendar lán-
tökur að öðru leyti en sem
samsvarar afurðalánaviðskipt-
unum og að tryggt verði að
nettóskuldastaða þjóðarbúsins
breytist ekki við kerfisbreyt-
ingu afurðalánaviðskiptanna.
— Að staðið verði við lánsfjárlög
og að lántökur ríkissjóðs,
opinberra fyrirtækja og ríkis-
stofnana aukist ekki frá því
sem þau mæla fyrir um.
— Að stefnt verði að því að helm-
ingur lánsfjármagns í sjávar-
útvegi verði innlendur á hag-
kvæmum kjörum.
Við gerð efnahagsáætlana fyrir
árið 1986 — ár útflutningsins —
verði þess gætt að utanríkisvið-
skipti verði hallalaus og að
skuldasöfnun erlendis verði stöðv-
uð. Lántökur opinberra aðila verði
lækkaðar eftir þörfum til þess að
ná þessum markmiðum. Komið
verði á frjálsri verðmyndun á
gjaldeyri.
3. Skreiðarbirgðir
Verðjöfnunarsjóði verði gert
kleift að greiða 250 milljónir
króna vegna vaxtakostnaðar af
skreiðarbirgðum.
4. Kýmri heimildir Verðlagsráðs
Heimildir Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins verði rýmkaðar til að
ákveða að fiskverð verði frjálst.
Til þessa skuli þurfa aukinn
meirihluta en ekki allsherjar sam-
komulag. Kannað verði sérstak-
lega hvort unnt sé tímabundið til
reynslu að koma á uppboðsmark-
aði á afmörkuðum svæðum. Könn-
uð verði sú leið að stjórnvöld skipi
ekki oddamann í yfirnefnd Verð-
lagsráðs.
5. Fiskmat
Matsreglum verði breytt til þess
að endurspegla nýtingu og ástand
þess hráefnis sem berst til vinnsl-
unnar s.s. eftir ormafjölda, inn-
volsi og geymsluþoli. Sjávarút-
I
Morgunblaðid/Bjarni
Forystumenn Sambands fiskvinnslustöðva á fundinum hjá forsætis- og sjávarútvegsráðherra í Ráðherrabústaðnum
við Tjarnargötu síðdegis í gær.
vegsráðherra skipi starfshóp sem
kanni mál þetta og skili áliti fyrir
næstu fiskverðsákvörðun. Skilyrð-
islaust verði farið eftir matsregl-
6. Málefni fiskvinnslufólks
Samstarf verði um málefni fisk-
vinnslufólks og þær lagabreyt-
ingar, sem kunna að verða nauð-
synlegar í því skyni að bæta stöðu
þess. I því skyni má nefna:
— Breytingar á tilhögun atvinnu-
leysistrygginga og kauptrygg-
ingar til þess að stuðla að
fisk-
auknu atvinnuöryggi
vinnslufólks.
— Aðgerðir í menntunar- og
þjálfunarmálum til þess að
auka starfshæfni fiskvinnslu-
fólks.
— Skattfrelsi tekna fyrir fisk-
vinnu umfram 1700 tíma á ári.
7. Hringormavandi
Lögum um selveiðar verði
breytt og samstarf verði milli
stjórnvalda og sjávarútvegsins um
stórfækkun sela.
8. Nýsköpun
Tryggja verður að eðlilegur
hluti af því fjármagni sem varið
er til nýsköpunar í atvinnulífinu
renni til sjávarútvegsins, sérstak-
lega til vinnusparandi aðgerða.
9. Annað
Tryggður verði framgangur
þeirra tillagna um lagabreytingar,
sem samkomulag kann að verða
um að gera milli hagsmunaaðila i
sjávarútvegi.
Þetta er hægt
með þinni hjálp.
list.
V
4
*