Morgunblaðið - 12.07.1985, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÖLÍ 1985
• Jóhann Ingi Gunnarsson
Jóhann
kenndi í
Danmörku
JÓHANN Ingi Gunnarsson, hand-
knattleiksþjálfarinn kunni,
kenndi um síöustu helgi viö
danska handboltaskólann sem
danska sambandiö gengst fyrir.
Jóhann kenndi ó föstudag og
laugardag og síöan á sunnudag
og mánudag tók danski lands-
liósþjálfarinn Leif Mikkelsen viö
og kenndi. Á skólanum voru allir
bestu þjálfarar Dana, Norömanna
og Svía. Þetta er í annaó skiptiö
sem Jóhanni Inga hefur verió
boöió aö kenna á skólanum.
Atli til
Uerdingen
— gengur til liðs við Lárus
Guðmundsson og félaga.
Skrifaði undir
tveggja ára samning
ATLI Eóvaldsson, landsliös-
maðurinn kunni í knattspyrnu,
hefur skipt um félag í Vestur-
Þýskalandi, þar sem hann leikur
sem atvinnumaóur. Atli skrifaöi
í fyrradag undir tveggja ára
samning viö bikarmeistara Bay-
er Uerdingen — en Lárus Guö-
mundsson leikur einmitt meö
því liði.
Atli hefur undanfarin ár leikiö
meö Fortuna Diisseldorf. Honum
gekk mjög vel til aö byrja meö en
í vetur var hann óánægöur. Liöiö
hefur átt í fjárhagsvandræöum
og stjórn þess ekki veriö sem
skildi.
Þess má geta aö einn besti
leikmaöur Dusseldorf undanfarin
ár, landsliösmaöurinn Rudi
Bommer, var fyrir stuttu seldur til
Uerdingen þannig aö Atli veröur í
góöum félagsskap. Bommer er
mjög snjall leikmaöur sem lék
meö Dusseldorf í mörg ár.
Atli átti aö mæta á sína fyrstu
æfingu hjá sínu nýja liöi í gær.
Uerdingen er mjög sterkt fjár-
hagslega — en stuöningsaöili
liðsins er hiö risastóra lyfjafyrir-
tæki Bayer sem meöal annars
stendur á bak viö Bayer Lever-
kusen, sem einnig leikur í 1.
deildinni í Vestur-Þýskalandi.
Uerdingen er þriöja liöiö sem
Atli leikur meö í Vestur-Þýska-
landi. hann var fyrst hjá Borussia
Dortmund og síðan Fortuna
Dusseldorf.
• Víkingurinn í fullum •krúóa. Nú leikur Atli við hlið Lárusar hjá
Uerdingen.
Morgunblaöiö/Friöþjófur
• Sveinbjörn Hákonarson skorar hér meö lúmsku langskoti af vítateigslínu í landsleiknum við Færeyinga á
fimmtudaginn. Þetta var fyrsta landsliósmark Sveinbjarnar.
Fyrsti lands-
leikurínn
á Akranesi
— ísland mætir Færeyjum kl. 18.30
ÍSLENDINGAR og Færeyingar
mætast tvívegis á knattspyrnu-
vellinum í dag, A-lióió og
drengjalandsliöiö. A-lióió leikur á
Akranesi og hefst sú viöureign kl.
18. Drengirnir leika hinsvegar á
KR-vellinum og byrjar leikur
þeirra kl. 18.
Leikurinn í kvöld veröur fyrsti
landsleikurinn sem fr?m fer í þeim
mikla knattspyrnubæ, Akranesi.
Nokkrar breytingar hafa veriö
geröar á landsliöshópnum frá þvi í
9:0-sigrinum í fyrrakvöld. Inn í
hópinn í kvöld koma Bjarni
Sveinbjörnsson og Halldór Ás-
kelsson. báöir í Þór á Akureyri,
Ársæll Kristjánsson, Þrótti, Pétur
Pétursson og Skagamennirnir
Guöjón Þóröarson og Höröur Jó-
hannesson.
Þórsarar hafa notað
fæsta, Vfldngar flesta
NÚ þegar íslandsmót 1. deildar
er hálfnaó er ekki úr vegi að
skoöa nokkrar tölulegar staö-
reyndir um þau lió sem leika í 1.
deild. Byrjum á leikmannafjölda
liöanna.
Það er Akureyrarliöiö Þór sem
hefur notaö fæsta leikmenn til
þessa, aöeins hafa 13 leikmenn
leikiö fyrir félagiö í 1. deild á
þessu keppnistímabiii og þaö
veröur aö segjast eins og er aö
þaö er mjög góö nýting, ef hægt
er aö nota þaö orö í þessu tilviki.
Skagamenn og Framarar hafa
notaö 15 leikmenn hvorir í sumar
og hjá báöum liöum eru niu
leikmenn sem leikiö hafa alla
leiki félaga sinna í deildinni.
Þetta er sama og hjá Þór, þar
hafa einnig níu leikmenn leikiö
alla leiki félagsins.
FH, Víöir og KR hafa hvert um
sig notaö 16 leikmenn i leikjum
sumarsins. Hjá FH eru fimm
leikmenn sem leikið hafa alla
leiki félagsins auk þess sem Ingi
Björn hefur leikið alla leikina
nema hvaö hann varö aö fara út-
af vegna meiðsla snemma í siö-
asta leik. Hjá Víöi eru sjö leik-
menn sem leikiö hafa alla leiki
auk Gísla Eyjólfssonar sem varö
aö yfirgefa leikvöllinn meiddur
snemma í einum leiknum. Hjá
KR-ingum eru sex leikmenn sem
leikiö hafa alla leikina auk þess
sem Gunnar Gíslason hefur leikið
þá alla, kom inná sem varamaöur
í fyrsta leik liösins í sumar.
Valsmenn hafa notaö 18 leik-
menn til þessa og þar af eru
fimm sem leikiö hafa alla leiki
liðsins. ðrn Guömundsson hefur
leikiö átta leiki og komiö inná
sem varamaöur i einum leik.
Keflvíkingar hafa notaö einum
leikmanni meira en Valur, eöa
19, og sex leikmenn hafa leikiö
alla leikina auk þess sem Helgi
Bentsson kom einu sinni inná
sem varamaöur en hefur annars
veriö í byrjunarliöinu.
Þróttarar hafa notaö næst
flesta leikmenn í 1. deildinni, alls
20. Hjá Þrótti hafa aðeins fjórir
leikmenn veriö alltaf í byrjunar-
liöinu en tveir leikmenn aö auki
hafa veriö meö í öllum leikjum
liösins, komiö inná sem vara-
menn.
Víkingar hafa notaö flesta
menn til þessa eins og algengt er
meö liö sem á í erfiöleikum. Vík-
ingar hafa notaö 21 leikmann og
aöeins tveir hafa alltaf veriö i
byrjunarliöinu, þeir Andri
Marteinsson og Atli Einarsson.
Af þessari upptalningu sést aö
þaö eru alls 169 leikmenn sem
komiö hafa inn á leikvöllinn til aö
leika fyrir liö sitt i þessu is-
landsmóti þaö sem af er og þaö
er ekki svo lítill fjöldi.
Úr hópnum fara þeir Guömund-
ur Torfason, Fram, Guömundur
Þorbjörnsson, Val, Kristján Jóns-
son, Þrótti, Pétur Arnþórsson,
Þrótti, Siguröur Björgvinsson, ÍBK,
og Þorgrímur Þráinsson, Val.
Dómari leiksins veröur Óli
Ólsen, línuveröir Þorvaröur
Björnsson og Magnús Theódórs-
son.
Á KR-vellinum leika eins og áö-
ur sagöi drengjalandsliöin. ís-
lensku strákarnir lóku mjög vel
gegn Færeyingum í fyrrí leiknum
og unnu, 15:0, eins og áöur hefur
komiö fram.
Þaö var ekki rótt sem kom fram
í gær aö flestir færeysku strákarnir
væru fæddir 1972. Aöeins tveir
leikmanna liösins eru fæddir þaö
ár, en þorri þeirra eru fæddir 1970
og 1971. íslensku strákarnir eru
allir fæddir eftir 1. ágúst 1969 —
sem sagt 1969 og 1970.
í íslenska liöinu eru margir stór-
skemmtilegir strákar og þaö er vel
þess viröi aö fylgjast meö þeim í
kvöld. Þetta eru leikmenn framtíö-
arinnar og margir þeirra eiga ef-
laust eftir aö klæöast landsliös-
búningnum mörgum sinnum í
framtíöinni.