Morgunblaðið - 23.07.1985, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ1985
Rafmagnslaust í Reykjavík:
Vararafstöð ekki í
gang og neyðarsími
lögreglu óvirkur
RAFMAGNSLAUST var í stórum
hluta Keykjavíkur í um tvær klukku-
stundir á sunnudagsmorgun eftir að
skammhlaup varð í eldingavara í
tengivirki Rafmagnsveitu Reykjavík-
ur við Korpu. Eldingavarinn er að 130
kflóvatta streng í aðveitustöðu 3 í
Reykjavík og varð rafmagnslaust í
Reykjavík vestan Iiáaleitisbrautar og
á Seitjarnarnesi.
„Líklegt er að skammhlaup hafi
orðið vegna einangrunargalla,"
sagði Kristján Jónsson, verkstjóri
Millisvæöamótió f Biel:
Mikið að gera
hjá Margeiri
Frá Braga KrLstjánssyni, frétta-
ritara Morgunblaðsins í Biel.
MARGEIR Fétursson lauk um helg-
ina 4 skákum og hafði því nóg að
gera. I 14. umferð tapaði hann fyrir
Torre, í 15. gerði hann jafntefli við
Sokolov og loks lauk hann tveimur
biðskákum, vann Li sannfærandi og
náði jafntefli í maraþonskák við Lju-
bojevic, en hún var í 127 leikjum.
Mótið er nú opið í allar áttir og
baráttan um 4 efstu sætin orðin gíf-
urlega hörð, en eins og menn vita
gefa þau rétt til áframhaldandi
keppni í baráttunni um heims-
meistaratitilinn.
Staða efstu manna er nú þessi:
1.—2. Vaganjan og Seirawan 10lÆ
vinning af 15 mögulegum, 3.-5.
Torre, Van der Wiel og Sokolov 10
v., 6.-7. Short og Ljubojevió 9 v.
Margeir hefur nú 6 vinninga og er í
13.—14. sæti ásamt Quinteros.
hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, í
samtali við Morgunblaðið. „Undir
venjulegum kringumstæðum hefði
tekið aðeins 15—20 mínútur að
koma rafmagni á ný, en skamm-
hlaup varð í tölvu og viðgerð dróst
því. Skammhlaupið varð klukkan
sex mínútur yfir níu og stóð til
laust eftir klukkan ellefu, en víða
var rafmagn komið á klukkustund
eftir bilun," sagði Kristján.
Ekki var hægt að ná í neyðarsíma
lögreglunnar í Reykjavík, 11166,
vegna bilunar í vararafstöð. „Þetta
er í fyrsta sinn, sem vararafstöðin
bregst, en hún er gangsett mánað-
arlega til reynslu," sagði Bjarki Elí-
asson, yfirlögregluþjónn í Reykja-
vík. Hann sagði að fyrirtæki fylgd-
ist með vararafstöðinni. Bjarki
sagði að hægt hefði verið að ná til
lögreglunnar í síma 10200 og hjá
varðstjóra og hefðu þeir símar ver-
ið auglýstir í útvarpi.
Sláturtíð hjá ISNO
MorganbUM/SVP
Á DÖGUNUM var slátrað talsverðu magni af laxi hjá ISNO, laxeldisstöðinni að Lóni í Kelduhverfi. Á
myndinni sjást nokkrir myndarlegir komnir í ker á bryggjunni. Þar er laxinn deyfður með því að setja
kolsýru í vatnið áður en fiskurinn er blóðgaður.
Þessi málflutningur þjónar ekki
hagsmunum Suðurnesjamanna
Elsti borgari
Sauðárkróks
100 ára
Sauðárkróki, 22. júlí.
ELSTI borgari Sauðárkróks,
Hólmfríður Sigfúsdóttir, er 100
ára í dag. Hún fæddist á Kraka-
stöðum í Flókadal, 22. júlí 1885.
Eiginmaður hennar var Steinn
Sölvason. Þau bjuggu fyrst á
Siglunesi, en síðan á Læk og í
Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit.
Steinn lést 1912. Til Sauðár-
króks fluttist Hólmfríður 1947
og hefur búið þar síðan ásamt
syni sínum, Marteini Steins-
syni kennara, að Freyjugötu
48. Hólmfríður dvelur nú f
Sjúkrahúsi Skagfirðinga.
Kári
— segir Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskips um Rainbowgrein Víkurfrétta
„Þær fullyrðingar sem settar eru fram í þessari grein eru úr lausu lofti
gripnar," sagði Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, um úttekt Víkur-
frétta á „Rainbowmálinu", sem greint var frá í Morgunblaðinu á sunnudag-
inn. „Mig grunar að þessi skrif í Víkurfréttum séu til komin til að vernda
ímyndaða hagsmuni Suðurnesjamanna vegna lestunar og losunar á þessari
•’öru á Suðurncsjum," sagði Hörður ennfremur.
„Ég held að þeir fari offari í
þessum málflutningi og það séu
ekki hagsmunir Suðurnesjamanna
að svona sé haldið á málum. Skip
eiga að losa og lesta þar seni hag-
kvæmast er. Þátttakendur í flutn-
ingum á þessari vöru frá Reykja-
vík til Keflavíkur hafa að verulega
leyti verið Suðurnesjamenn. í
þessu sambandi má geta þess, að
umboðsmenn Rainbow Navigation
hafa komið til okkar og þreifað
fyrir sér um hvort við værum
reiðubúnir til að losa þetta skip í
Reykjavík. Þetta bandaríska
fyrirtæki kom inn í þessa flutn-
inga eingöngu i skjóli verndarlag-
anna frá 1904. Flutningsgjöldin
hjá því eru hin sömu og áður giltu,
þannig að Bandaríkjamenn hafa
ekkert sparað við þetta fyrir-
komulag nema síður sé. Þetta
fyrirtæki siglir einu sinni í mán-
uði, en við buðum þó upp á ferðir á
um það bil tveggja vikna fresti. 1
þessum skrifum kemur ekkert það
fram, sem breytir okkar afstöðu
til þessara siglinga hins banda-
ríska skipafélags, sem siglir í
skjóli einokunarlaga," sagði Hörð-
ur.
Aðspurður um þá fullyrðingu í
greininni í Víkurfréttum, að
græðgi íslensku skipafélaganna
hefðu valdið mikilli óánægju hjá
sjóflutningadeild flotans sagði
Hörður meðal annars: „Við höfum
átt mjög góð samskipti við sjó-
flutningadeild bandaríska flotans
í gegnum tiðina. Eimskip hefur
verið þátttakandi í þessum sigl-
ingum síðan 1968, þegar félagið
tók þessar siglingar yfir. Þá var
samið um flutningsgjöld við sjó-
flutningadeildina og farmgjöld frá
Bandaríkjunum lækkuð um 14%
frá því sem þá gilti hjá „Moore-
McCormack." Síðan þegar sjó-
flutningadeildin óskaði eftir því
að það yrðu teknir upp gámaflutn-
ingar 1976 var líka samið um upp-
byggingu flutningsgjalda. Sjó-
flutningadeildin hefur ekki gert
athugasemdir við okkur, hvorki
varðandi þjónustu eða flutn-
ingsgjöld í þessum flutningum.
Þessar fullyrðingar eru því al-
gjörlega úr lausu lofti gripnar,"
sagði Hörður Sigurgestsson, for-
stjóri Eimskips.
Tilkoma Rainbow Navigation:
Verri þjónusta án þess
að farmgjöld hafi lækkað
— segir Ragnar Kjartansson, stjórnarformaður Hafskips
„ÉG SÉ enga ástæðu til að
svara svona nafnlausum grein-
um, en vek adeins athygli á því,
að tilkoma Rainbow Naviga-
„Ég græt ekki vélina,
hún er dauður hlutur,“
— Segir Valdimar Jónsson, ökumaður hjólaskóflunnar sem fór út af á Óshlíðarveg-
inum á sunnudaginn. Valdimar slapp lítt meiddur, en vélin er talin ónýt.
„MAÐUR hefur það svona sæmi-
legt, krambúleraður hér og þar,
marinn á baki og nokkur spor
þurfti að sauma í hausinn á mér,
en að öðru leyti er ég brattur,"
sagði Valdimar Jónsson, ökumað-
ur hjólaskóflunnar, sem fór út af á
Óshlíðarveginum skammt frá
Hnífsdal á sunnudaginn og valt
um 60 metra niður snarbratta hlíð-
ina. Valdimar tókst með naumind-
um að komast út úr vélarhúsinu,
en hékk utan í vélinni nokkurn
spotta og rúllaði samsíða henni þar
til hann stöðvaðist á stórgrýti um
25 metrum fyrir neðan vegarbrún.
„Þetta vildi þannig til,“ lýsti
Valdimar aðdragandanum að
óhappinu, „að ég færði mig út á
kantinn til að hleypa bílum fram
hjá sem komu á móti, sleppti
oliugjöfinni og lét vélina renna.
En þegar ég ætlaði að stíga aftur
á olíugjöfina var stýrið fast og á
sama augnabliki lenti ég í
sprungu í vegarkantinum. Þetta
gerðist allt á einni örskotsstund
og ég gerði mér varla grein fyrir
hvað var að gerast fyrr en ég var
kominn um 10 metra niður hlíð-
ina.“
Valdimar fékk höfuðhögg við
veltinginn og missti meðvitund
um stund, hlaut ekki alvarlegan
skaða af og var leyft að fara
heim af sjúkrahúsinu á ísafirði
fljótlega eftir að gert var að sár-
um hans. Hann segist ætla að
hvíla sig í 2—3 daga áður
hann fari til vinnu aftur.
Hjólaskóflan, sem er af Yale
gerð, árgerð 1973, er talin gjör
en
ónýt. Hún er í eigu fyrirtækisins
Græðir sf., sem Valdimar er
annar eigandi að. Vélin er
ótryggð fyrir óhappi af þessu
tagi.
„Þetta er auðvitað fjárhags-
legt kjaftshögg," sagði Valdi-
mar, „tjón upp á milljón til 1200
þúsund, en það þýðir ekkert að
ergja sig um of út af því. Maður
má þakka fyrir að halda lífi og
limum og ég græt ekki vélina,
hún er dauður hlutur.“
tion hefur ekki haft nein áhrif
á farmgjöld á þessari siglinga-
leið, þau hafa ekki lækkað,“
sagði Ragnar Kjartansson,
stjórnarformaður Hafskips, er
hann var spurður álits á úttekt
Víkurfrétta á „Rainbowmál-
inu“ svokallaða, þar sem segir
meðal annars að tilkomu Rain-
bow Navigation megi rekja til
„óstjórnlegrar græðgi og vafa-
samra viðskiptahátta“ íslensku
útgerðarinnar.
Ragnar sagðist ennfremur
vilja vekja athygli á því, að til-
koma Rainbow Navigation hefði
orðið til að þess að varnarliðið
byggi nú við verri þjónustu en
áður. Stærsti hlutinn af þessum
flutningum væri nú með þessu
tiltekna skipi, sem kæmi á um
það bil fjögurra vikna fresti, á
meðan betri áætlun og tíðari
ferðir voru tryggðar þegar ís-
lensku skipafélögin önnuðust
þessa flutninga. Farmgjöld á
þessari leið hefðu hins vegar
ekkert lækkað og kvaðst Ragnar
því ekki skilja hvað höfund-
ur greinarinnar í Víkurfrétt-
um væri að fara með þessum
skrifum.