Morgunblaðið - 23.07.1985, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985
13
Varanlegt hús úr stráum
Bókmenntir
Jóhann Hjálmarsson
í dag eru áttatiu ár liðin síðan
Kári Tryggvason skáld fæddist að
Víðikeri í Bárðardal í Suður-
Þingeyjarsýslu. Kári var lengi
bóndi að Víðikeri, en stundaði
jafnframt kennslu í Bárðdæla-
skólahéraði. Hann fluttist til
Hveragerðis 1954 og gerðist
stundakennari og umsjónarmaður
við barna- og miðskólann þar til
ársins 1970. Eftir það kenndi Kári
nokkur ár í Reykjavík, en hætti að
mestu kennslu 1973. Hann kvænt-
ist 1930 Margréti Björnsdóttur frá
Vopnafirði og eiga þau fjórar dæt-
ur: Hildi, Sigrúnu, Rannveigu og
Áslaugu.
Kári Tryggvason hefur sinnt fé-
lagsmálum nokkuð, einkum á
heimaslóðum, en kennslan hefur
verið aðalstarf hans. Mér er kunn-
ugt um að hann hefur verið far-
sæll kennari, ekki síst þegar í hlut
áttu nemendur sem þurfa á sér-
stakri þolinmæði og skilningi að
halda. Mannskilningur Kára
Tryggvasonar og jákvætt lífsvið-
horf hafa hjálpað mörgum. Hann
hefur þá eiginleika góðs kennara
að vera í senn félagi og fyrirmynd
nemenda sinna og hefur tekist að
koma fram við þá sem jafningja.
Það var mjög í anda Kára
Tryggvasonar að fyrsta ljóðabók
hans var barnaljóð: Fuglinn fljúg-
andi (1943), glettin bók og
skemmtileg. Kári samdi fjölda
bóka handa börnum, einkum eru
kunnar Dísubækur hans, en mesta
athygli vakti bók sem hann skrif-
aði um dótturdóttur sína: Úlla
horfir á heiminn (1982). Fyrir
hana fékk hann verðlaun Fræðslu-
ráðs Reykjavíkur.
Ekki ber að vanmeta framlag
Kára Tryggvasonar sem barna-
bókahöfundar, en ljóðið hefur
löngum átt hug hans og hjarta.
Hann sendi frá sér ljóðabækurnar
Yfir Ódáðahraun (1948) og Hörpur
þar sungu (1951). Einnig gerði
hann dálitla, en ekki ómerka til-
raun með Skólarími, vísum eftir
Kára og nemendur hans (1948).
{ ljóðabókinni Sunnan jökla
(1968) kveður við nýjan tn í
skáldskap Kára Tryggvasonar.
Nýrómantískur tónn er að vísu
enn áberandi í þessari bók, meira
að segja ort um svarta svani með
brennandi hjörtu í blökkum
brjóstum, en einnig gerð tilraun
til að yrkja í stíl breyttra tíma.
Það er ljóst að ferðalög skáldsins
til framandi landa hafa átt sinn
þátt í að hann gerist frjálslegri í
túlkun sinni.
Þetta kemur enn betur í ljós og
með umtalsverðum árangri í Til
uppsprettunnar (1972). Það eru
mörg athyglisverð ljóð i þeirri
bók, ljóð sem minna á að skáld
getur endurfæðst í skáldskap sín-
um. Árið 1975 komu svo frá Kára:
Sjötíu ljóð.
Kynni Kára af nútímaskáld-
skap, ekki síst lestur ljóða og
ljóðaþýðinga yngri skálda, orkuðu
á hann og freistuðu til endurmats.
í Til uppsprettunnar yrkir Kári
Kári Tryggvason
Tryggvason ljóð sem nefnist Hug-
leiðingar um brunna. í því ljóði
stendur að skáld yrki um brunna,
en hann hræðist brunna og ætli
aldrei að yrkja um þá. Hann láti
sér á sama standa þótt sagt sé að
hann sé huglaus og að hann sé
ekki skáld. En einmitt það sem
Kári Tryggvason gerir í Til upp-
sprettunnar er að yrkja um
brunna. Hann leitar til hinna
djúpu, myrku brunna lífsins og
finnur ljóð. Maður freistast til að
kalia ljóðið Hús úr stráum örlaga-
ljóð; í þvi er að finna svar skálds
sem alltaf hefur metið lífið meira
en hin háskalegu ævintýri, en er
engu að síður ævintýramaður
þrátt fyrir hið kyrrláta yfirborð:
Þú byggir hús
úr steinsteypu,
dýr hús,
varanleg
— stolt
kómandi kynslóða.
Ég byggi hús
úr stráum
— örmjóum stráum
sprottnum
í sandi.
Stormurinn
hrifsar þau
frá mér
ogégbyggi
á ný.
Það er hægt
að byggja
úrengu
— svo til engu.
Jóhann Hjálmarsson
fltotgmiftlðftift
Áskriftarsíminn er 83033
Byltingin í
fjarskiptum
— og áhrif hennar —
Dr. Wisse Dekker, aöalforstjóri Philips, heldur
fyrirlestur um BYLTINGUNA í FJARSKIPTUM Á
MORGUNVERÐARFUNDI Landsnefndar Alþjóöa
verzlunarráösins í Átthagasal Hótel Sögu fimmtu-
daginn 25. júlí kl. 8:30.
Dagskrá:
8:30—8:45 Mæting og morgunveröur
8:45—9:15 ERINDI DR. WISSE DEKKER
„BYLTINGIN í FJARSKIPTUM OG
ÁHRIF HENNAR“
• hvernig er skipulag fjarskiptamála
hjá þjóöum almennt?
• hvernig er samkeppnisstaöa Evr-
ópu gagnvart Bandaríkjunum og
Japan?
• er fjarskiptatæknin aö ryðja úr
vegi lögum og reglum sem takmarka
útsendingar á ákveönu efni?
• veldur einokun í fjarskipta- og
póstþjónustu einangrun þjóöa?
• hefur einokun áhrif á upplýsinga-
flæöi á milli landa?
9:15—10:00 Umræöur og fyrirspurnir.
Allir velkomnir.
Morgunverður kostar kr. 300.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma
83088.
LANDSNEFND
ALÞJCÐA VERZLUNARRAÐSINS
Icelamd National Committee oi the ICC
0 Mm
ÞEKKING - REYNSLA - ÞJÓNUSTA
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 - REYKJAVIK SIMI 91-84670