Morgunblaðið - 23.07.1985, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985
15
Árshraði
bygginga-
vísitölunn-
ar 22,6 %
HAGSTOFAN hefur reiknað vísitölu
byggingarkostnaðar eftir verðlagi í
júlí 1985. Reyndist hún vera 219,95
stig. Samsvarandi vísitala miðuð við
eldri grunn er 3.259 stig.
Frá því vísitala byggingarkostn-
aðar var síðast reiknuð í júní 1985,
hefur hún hækkað úr 216,25 stig-
um í 219,95 stig eða um 1,71%,
sem jafngildir 22,6% árshækkun.
Undangengna þrjá mánuði hefur
vísitalan hækkað um 9,8%, sem
svarar til um 45% árshækkunar.
Frá júlí 1984 til jafnlengdar á
þessu ári hefur vísitalan hins veg-
ar hækkað um 33,6%.
Af hækkun vísitölunnar um
1,71% frá júní til júlí stafa 0,5 af
nær 7% verðhækkun steinssteypu
í byrjun júlí, 0,3% stafa af hækk-
un á verði innihurða, 0,2% af
verðhækkun á teppum en aðrir
efnisliðir ullu 0,7% hækkun vísi-
tölunnar. Gngin hækkun varð á
launaliðum. Breytingu efnisliða
vísitölunnar má að nokkru rekja
til hækkunar söluskatts um 1 stig
í júlíbyrjun, en áætlað er að sú
hækkun hafi í för með sér um
0,4% hækkun á vísitölunni, þegar
hún er komin fram að fullu.
Tekið skal fram að við uppgjör
verðbóta á fjárskuldbindingar
samkvæmt samningum þar sem
kveðið er á um, að þær skuli fylgja
vísitölu byggingarkostnaðar, gilda
hinar lögformlegu vísitölur, sem
reiknaðar eru fjórum sinnum á ári
eftir verðlagi í júní, september,
desember og mars, og taka gildi
fyrsta dag næsta mánaðar. Vísi-
tölur fyrir aðrar mánuði en hina
lögboðnu útreikningsmánuði
skipta hér ekki máli.
gott verð.
h
u
Ju
ii
i
HIH
IW1
Bláskógar
Ármúla 8.
Sími 68-60-80.
Húsgögn, gjafavörur.
NYRIADA STATION
KYNNINGARVERÐ
VÉL:l300cm3-72HÖ.4GIRA
252800:
KYNNINGARVERÐ
VEL 1500cm-77 HO. 5GIRA
277800:
BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEELD: 31236