Morgunblaðið - 23.07.1985, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 23.07.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLl 1985 37 Minning: Rútur Hansson verkamaður Fæddur 12. júlí 1899 Dáinn 14. júlí 1985 I dag er kvaddur hinstu kveðju frá Fossvogskirkju í Reykjavík Rútur Hansson, fyrrum verka- maður, sem lést að Elliheimilinu Grund að kvöldi 14. júlí. Lengst af hafði heilsa hans verið góð, en síð- ustu árin farið hingnandi enda aldurinn orðinn hár, en andlegri heilsu fékk hann að halda þar til yfir lauk. Rútur Hansson var fæddur á Hóli, Köldukinn í Ljósavatns- hreppi í Suður-Þingeyjarsýslu þann 12. júlí árið 1899. Foreldrar hans voru hjónin Hans Frímann Kristjánsson, fæddur 11. október 1851, dáinn 22. desember 1928, bóndi á Hóli í Köldukinn 1882—1920 og átti þar heima síðan til æviloka, og Pálína Arnfríður, fædd 26. mars 1852, dáin 16. sept- ember 1936, Guðmundsdóttir bónda í Birtu í Kræklingshlið f. 1916, Halldórssonar. í bókinni „Sigurður á Ystafelli og samtíðarmenn“, sem Jón Sig- urðsson skrifaði fyrir áeggjan vina sinna og þá sérstaklega Jón- asar frá Hriflu, er foreldra Rúts nokkuð getið. En þar segir: „Hann var lágur og grannvaxinn en fríð- ur og snyrtimenni, hæglátur, hygginn og hnyttinn í orði, hagur vel en þróttlítill til verka. Kona hans var Pálína Guðmundsdóttir, fósturdóttir Þorsteins Daníelsson- ar á Skipalóni við Eyjafjörð. Eng- an hlut fékk hún frá fóstra sínum þótt ríkur væri. Hans var stórhuga og átti sterka framkvæmdaþrá. Hann var forgöngumaður um jarðrækt, áveitur og marga nýbreytni. Bú- skapur hans var oft eins og til- raunabú. Hann kom með fyrsta plóginn og fyrsta hestvagninn, fyrstu sláttuvélina og fyrstu skil- vinduna í sveitina. Heimili hans var stórt og þungt. Hann var sjálf- ur vinnulítill og skuldir jafnan miklar, svo fjárgetu skorti til þess að nýbreytni hans gæti borið árangur. Mörgum hans fram- kvæmdum var ekki viðhaldið." Rútur var yngstur sinna systk- ina, er voru 12 að tölu. Eitt systk- ina Rúts er eftirlifandi, er það Þórlaug sem verður níræð á þessu ári, en hún dvelur nú í Hátúni 10 og á ekki heimangengt til að vera við útför bróður síns. Systkini Rúts eru talin eftir aldri: 1. Steinunn Margrét Hans- dóttir, f. 15. mars 1875, d. 24. sept- ember 1955. Maki: Jón bóndi, Fagranesi, f. 30. júlí 1871, d. 29. apríl 1938. 2. Snjólaug Kristín Hansdóttir, f. 1877, d. 17. júní 1883. 3. Kristján Þórir Hansson, f. 1879, d. 13. júní 1883. 4. Jóhann Hansson, f. 14. september 1880, d. 1938 í Noregi, átti þar heima til æviloka. 5. Stefanía Anna Hans- dóttir, f. 29. október 1882, átti heima í Noregi. 6. Kristján Hans- son, f. 4. desember 1883, bóndi í Noregi. K. Justei, norsk að ætt. 7. Jónas Hansson, f. 28. maí 1885, d. 1934 í Noregi. 8. Kristinn Hans- son, f. 6. júní 1888, d. 13. júní 1888. 9. Þorvaldur Hansson, f. 13. sept- ember 1889, d. 28. október 1895.10. Steingrímur Hansson, f. 17. ágúst 1892, bóndi, Hóli, 1920-1926, flutti til Akureyrar, hefur átt þar heima síðan. K. 1923: Kristbjörgu, f. 15. apríl 1901, Pálsdóttur bónda, Borgargerði, Höfðahverfi. 11. Þór- laug Hansdóttir, sem áður er get- ið, f. 20. nóvember 1895. M. 10. ág- úst 1919: Helgi, f. 16. desember 1883, d. 25. apríl 1923, bóndi, Hóli, 1919—1923, Jakobssonar bónda, Skriðulandi, Aðaldal. Þau Helgi og Þórlaug áttu eina dóttur barna, sem skírð var Gerður. Hún var fyrri kona Kára Borgfjörð, en hún lést löngu fyrir aldur fram. Með Kára og Rút tókst þá góð vinátta, sem hélst fram á hans dag. Tveggja ára gamall veiktist Rútur af heilahimnubólgu, sem orsakaði heyrnarleysi. Ellefu ára gamall var hann sendur suður til náms í Málleysingjaskólanum, eins og skólinn hét þá. Námið var ekki samfellt því kirtlaveiki bag- aði hann fyrstu þroskaárin. Þótt dvölin í skólanum væri ekki löng varð handleiðsta skólastjórans, Margrétar Rasmus, honum gott veganesti á langri lífsleið. Á þessum árum var talkennsla ekki reynd í skólanum, en fingra- mál lærði hann og skrift og auð- veldaði það honum að ná sam- bandi við ókunnuga og vini sína, sem höfðu lært fingramál. Eins og segir fyrr voru systkin- in tólf og var Rútur yngstur. Heimilið var stórt og útheimti mikla vinnu og ráðdeild húsmóð- ur. Þegar skólanum lauk á vorin kom hann heim á sumrin og vann heimilinu gagn, eins og siður var á þessum árum. Þegar Rútur hafði aldur til yfir- gaf hann æskustöðvarnar og flutti suður til Reykjavíkur, en hér átti hann heima alla tíð síðan. Lengst af var hann starfsmaður við höfn- ina og vann í fjölda ára hjá Eim- skipafélaginu, sem verkamaður við afgreiðslu skipa. Rútur hafði mikla ánægju af dansi og tónlistar naut hann með öðru móti en við heyrandi, því titringurinn frá hljóðfærunum sem berst eftir gólfinu auðveldaði honum að halda réttu spori í dansinum. Rút- ur bjó á ýmsum stöðum í borginni, en oft þurfti hann að hafa vista- skipti, lengst af leigði hann á Lokastíg 9 hjá Ársæli skipstjóra og konu hans, en þau hjón reynd- ust honum afburða vel. Rútur átti nokkra einlæga vini meðal heyrnarlausra. Má þar nefna ólaf Guðmundsson sjó- mann, sem nú er látinn, og hjónin Sigríði Kolbeinsdóttur og Jón heitinn Ólafsson bakara. A þessi heimili átti hann mörg sporin og var ávallt auðfúsugestur. I viðtali sem ég átti við vin minn í tilefni áttræðisafmælis hans seg- ir hann. „Ég hef aldrei eignast heimili í þeim skilningi sem lagt er í það orð. Það er að segja ég hef aldrei gifst. Þó hef ég kynnst kon- um og félagsskap þeirra, en það leiddi ekki til hjónabands. Ég hef eignast vini gegnum árin, sem hafa komið eins og sólargeislar inn í líf mitt. Þeir hafa stoppað mislengi, flestir hafa verið að flýta sér en einstaka situr eftir í minningunni." Þegar Rútur hætti að geta stundað erfiðisvinnu fékk hann litla íbúð í Hátúni 10, þar sem hann bjó í nokkur ár. En þegar heilsan brast vistaðist hann að Elliheimilinu Grund, þar sem hann naut góðrar hjúkrunar og var heimsóttur af vinum sínum. Eftirlifandi systur og öðrum ættingjum sendum við hjónin samúðarkveðj ur. Guðm. Kgilsson Vorum aö taka upp: sængur # kodda # teygjulök # handklæói # þvottapoka___ Ótrúlegt verð Ennfremur fatnaöur af ýmsu tagi. Ódýra horniö hefur veriö opnaö aftur, verð frá kr. 10. Vöruloftið, Sigtúni 3, sími 83075. V/SA Opnunartími: mánud.—miðvikud. kl. 10—18 fimmtud.—föstud. kl. 10—20 laugard. kl. 10—14. St&jnar a Hummel íþróttagöllum Flestar stærðir Verö Hljómplötur Yfir 400 titlar. Verð frá 49 kr. Kvenjoggingbuxur Verö 590.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.