Morgunblaðið - 23.07.1985, Síða 40

Morgunblaðið - 23.07.1985, Síða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLl 1985 t Móðir okkar, tengdamóöir og amma, MARTA PÉTURSDÓTTIR, Eskihlíð 18. andaöist i Borgarspítalanum 21. Júlí. Jóhann Pétur Sigurósson, Jón Ármann Sigurösson, Ingibjörg ölvisdóttir og barnabörn. t Sonur minn, HALLDÓR V. GUDNASON, læknir, andaöist í sjúkrahúsi í Bandaríkjunum þann 15. júli. Jaröarförin hefur farið fram. Fyrir hönd barna og systur hins látna. Kristín Ingibjartar. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, HJÖRTUR SIGURDUR JÓHANNSSON, Laugaskaröi, Hvaragaröi, lést 21. júlf. Jaröarförin auglýst síöar. Margrét Þorsteinsdóttir, Ester Hjartardóttir, Jóhanna Hjartardóttir, Þorstainn Hjartarson, Erna Ingvarsdóttir, Álfhildur Þorstainsdóttir. t Maöurinn minn, faöir og tengdafaöir, JASON SIGURÐSSON, sem andaöist á Hrafnistu í Reykjavík aöfararnótt 15. júlí, veröur jarösunginn frá Neskirkju, þriöjudaginn 23. júlí kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er vinsamlegast bent á Gídeon-samtökin og Samband íslenskra kristniboösfélaga. Ingibjörg V. Benjamfnsdóttir, Benedikt Jasonarson, Margrét Hróbjartsdóttir. Eiginmaöur minn, t MAGNÚS S. JÓNSSON, bókbindari, Sólheimum 35, Reykjavík, lést 22. júlí. Oddrún Einarsdóttir. t Bróðir minn, RÚTURHANSSON, fæddur é Hóli, Köldukinn, Suöur Þingeyjarsýslu, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju í dag, þriöjudaginn 23. júli, kl. 15.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö en þeir sem vildu minnast hins látna eru beönir aö láta Fólag heyrnarskertra, Klapparstíg 28, njóta þess. Þórlaug Hansdóttir, Hverfisgötu 43. Viö þökkum af einlægni alla þá samúö og vináttu sem okkur var sýnd við andlát eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa, MAGNÚSAR SNÆBERG SNÆBJÖRNSSONAR, Löngufit 14, Garöabæ Aðalheiöur Siguröardóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir, Guömundur Sigmarsson, Snæbjörg Magnúsdóttir, Brandur Hauksson, Aöalheiöur Magnúsdóttir, Guómundur Valur Sigurösson, Bryndís Magnúsdóttir og barnabðrn. t Alúöarþakkir færum viö öllum þeim er auösýndu okkur samúö og vinsemd vegna fráfalls og útfarar STEFÁNS ÞÓRARINSSONAR, Vallargötu 1, Siglufíröi. Sérstakar þakkir til lækna og starfsliös Sjúkrahúss Siglufjaröar. Guörún Agústsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Arnlin Petrea Árna dóttir - Minning Fædd 20. júní 1905 Dáin 15. júlí 1985 Það var nú ekki hávaðinn í kringuum hana Öddu mína, en svo var hún jafnan nefnd, þessi dá- samlega kona, sem bjó fyrir neðan veg þegar við bjuggum fyrir ofan veg með allt okkar brambolt, öll níu systkinin og mamma og pabbi, syngjandi, spilandi og kveðandi. Hún og hann Óli okkar fyrir neðar veg með sín fjögur prúðu og fal- legu börn og þetta ægifagra heim- ili sem öllum var opið, gestum og gangandi. Það er nú svo með börn að ekki líkar þeim alltaf kjötsúpan heima eða baunirnar. Þegar svo stóð á var bara hoppað niður brekkuna og Adda skildi það vel og var ekki sein að gefa í svang- inn. Alltaf fengum við að hringja hjá öddu og Ola, þvi enginn var síminn á okkar bæ. Þegar vond voru veður og ekkert rafmagn eld- aði Adda mín á prímusnum sinum, því engan áttum við, pulsur, það var nú meiri herramanns matur- inn i þá tíð og kakóið hennar var sko ekkert slor. Mikið lifandis ósköp var þetta dásamlegt fólk og allt sem því fylgdi. Við vorum nánast ein fjölskylda þessar tvær. Það var svo skrítið þó við værum svona mörg, þá var aldrei nein fá- tækt, ég held að fátækt sé afar huglægt hugtak. Obba systir var alltaf eins og prinsessa þegar hún var komin í föt sem voru orðin of lítil á Elínu, allt var svo fallegt og vel með farið hjá þessari myndar- konu. Það var enginn smáatburður þegar Óli (í Skó eins og hann var alltaf kallaður) fór með allar prinsessurnar niður í búð áður en nýjar sendingar voru teknar upp og gaf öllum skó. Minnisstæðastir eru hvítir skór með kínahæl og rósum, reimaðir, úr taui (algert æði). Jólagjöf frá Öddu minni gleymi ég aldrei, ægifallegur tref- ill í uppáhalds litunum mjúkur og hlýr, mér hefur aldrei þótt eins vænt um nokkra jólagjöf. Það er eins og ein dóttir mín sagði um daginn þegar gjafir bárust í tal, það er ekki magnið og stærðin sem skipta máli heldur hugurinn að baki. Henni var nefnilega gefin perla frá Hawai í skel og að taka hana úr og sjá hvað út kemur er meiriháttar eins og hún sagði. Mér þótti alltaf svo einkennilegt hvað hún Adda mín gat alltaf haft fínt, það var alltaf skrúbbað út úr dyrum enda vann hún mikið og taldi ekki eftir sér. Heimilið var hlýtt og höfðinglegt alla tíð. Ég man aldrei eftir að hafa séð kusk né drasl. Móðir sína, sem lent hafði i Keflavíkurbrunanum, hafði hún hjá sér, þar til hún andaðist i hárri elli, og gaf hún heimilinu virðulegan sess. Einnig var móðir óla þar löngum og var þá ennþá virðulegra. Við börnin bárum lotningu fyrir þessum sæmdar- konum. Adda mín kom frá Vest- mannaeyjum enda söng hún mikið af þeirra söngvum og vísum, t.d. Örn Arnar, Út við ystu kletta, Út við ystu kletta álfkonan býr. Þetta söng hún svo fallega. Oft var glatt á hjalla á Laugarásvegi 24 og óli kenndi mér hvernig átti að fara að. Hann sagði þú átt að gefa þessum svona og svona í glasið og svo smá smá án þess nokkur verði þess vísari þynna lítið eitt. Og ég var alveg á grænni grein með þetta allt þó ég hefði aldrei smakkað neitt né gerði þó 10 ár liðu. Þetta hefur komið sér vel fyrir mig í öllum stórum veislum, enda sést mjög lítið á fólki og það er kúnstin. Adda og óli voru alger séní, einu sinni á ári buðu þau öll- um ekkjum vina sinna út að borða, þá voru þau eins og kóngur og drottning í ríki sínu, enda dönsuðu þjónarnir í kringum þau stundum 5—6 í einu eins og eitt sinn á Hót- el Borg, þá fékk ég að fljóta með því ég var ógift. Þær voru lifandi góðar vinkonur móðir mín og Adda, báðar fæddar 1905, Adda 20. júní og móðir mín 21. júní, svo þær urðu báðar 80 ára um daginn. Það var þungbært að taka veikindi Öddu svo nærri sér sem móðir mín gerði. Hún gat aldrei á heilli sér tekið og var beinlínis sjúk þegar hún hafði heimsótt hana þessa lífsglöðu og kátu konu sem gat bara brosað og nikkað höfðinu. En vonandi kom- ast læknavisindin að hvað gerist þegar fólk fellur í dá langan tíma og hvernig við hin getum brugðist við til að létta því tilvistina. öllu því dásamlega fólki sem annast hefur hana öll þessi ár, óska ég guðs blessunar fyrir sitt göfuga starf. Nú er þetta stríð hennar á enda runnið svo ég vona að góður guð styrki og styðji börnin henn- ar, barnabörnin og langömmu- börnin, systur hennar, mága og alla vinina. Blessuð sé minning um góða konu. Bryndís frá Tómasarhaga Nú er komið að því að kveðja elskulega ömmu mína í síðasta sinn og þó það sé kærkomin hvíld eftir langa og stranga sjúkdóms- legu er erfitt að orða þessa hinztu kveðju. Það er þó huggun til þess að vita að um hana var annast eins vel og hugsast gat af hjúkrunar- og starfsfólki Hafnarbúða hér í Reykjavík og ekki síður að vel verður tekið á móti henni á næsta áfangastað. Þar verða góðir endurfundir við hann afa minn heitinn, óla Jón Ólason, því ég veit að hann var afar þakklátur samfylgdinni við sína konu. í mínum huga var hún amma mín stórglæsileg kona alla tíö og ekki var innrætið síðra og öll hennar framkoma. Verk hennar öll á lífsleiðinni voru unnin með miklum myndarbrag og þá aðal- lega húsmóðurstarfið og barna- uppeldið. En þá stóð hún sig ekki síður vel sem dyggur félagi mannsins síns, þegar þau nutu lífsins saman og ferðuðust utan- lands sem innan, veiddu lax og tóku spil og sungu í góðra vina hópi. Eg minnist hennar ömmu minn- ar sem var alúðleg við alla. Hún var góð systir systra sinna, góð kona mannsins síns, góð móðir barna sinna og það sem ég þakka mest, góð amma mín og allra barnabarna sinna. Og börnin mín tvö sem komu stundum með mér til hennar í Hafnarbúðir fengu blíðustu og fallegustu brosin hennar, því það var allt sem hún gat gefið þeim. Blessuð sé minning hennar. Guðrún Björnsdóttir Þann 15. júlí sl. barst okkur sú fregn, að Arnlín (Adda) Árnadótt- ir hefði andast í Hafnarbúðum þá um hádegisbilið, eftir langa og stranga sjúkdómslegu, því að í 7V4 ár hafði hún legið rúmföst og all- an þann tíma gat hún ekki tjáð sig og var, að því er virtist, oft milli heims og helju, svo að hver dagur gat orðið hennar síðasti. Lengi vel gat hún tjáð tilfinningar sínar með því að brosa til ástvina sinna og vina, sem heimsóttu hana og til hjúkrunarfólksins, sem hjúkraði henni og alltaf var hún ljúf í lund og þakklát fyrir allt, sem fyrir hana var gert. Lífið reynist mörg- um harður skóli, og þótt sjúkdóm- ar eigi sínar eðlilegu orsakir frá líffræðilegu sjónarmiði og þótt tekist hafi að vinna bug á mörgum þeirra eru enn margar gátur óráðnar og mörgum leyndardóm- um ennþá óupplokið, sem varða líf og dauða. Þegar okkur barst fregnin um andlát Óddu, eins og hún var jafn- an kölluð innan fjölskyldu sinnar og meðal vina sinna, flaug mér ósjálfrátt í hug þetta upphafsvers úr sálmi V. Briem: Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. í þeim skilningi er dauðinn hlið himinsins, þar sem allir verða inn að ganga, lögmál sem ekki verður rofið. En þótt mannsævin sé oft mikill leyndardómur, þá sleppum við aldrei þeirri hugsun, að líf og dauði séu í Drottins hendi og þeim, sem elska hann, samverki allt til góðs. Arnlín Petrea fæddist í Gerða- koti í Miðnesi 20. júní 1905 og voru foreldrar hennar þau hjónin Árni Eiríksson, útvegsbóndi í Gerða- koti, ættaður úr Landeyjum, og Elin Ólafsdóttir frá Efri-Hömrum í Holtum. Þegar hún var á þriðja ári missti hún föður sinn, en hann fórst 14. marz 1908, með sexær- ingi, sem gerður var út frá heimil- inu, með sex mönnum, skammt undan landi frá Gerðakoti. Þetta var þung sorgarreynsla fyrir heimilið. Elín stóð þarna ein uppi með 7 dætur ungar. Það segir þó nokkuð til um hug móður þeirra, að hún lét sig ekki muna um það t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför fööur okkar og tengdafööur, GUNNARS NJÁLSSONAR frá Suöur-Bár, Grundarfiröi. Sérstaklega þökkum viö læknum, systrum og starfsfólki St. Frans- iskuspitalans í Stykkishólmi góöa hjúkrun í veikindum hans. Margréf Gunnarsdóttir, Sesselja Gunnarsdóttir, Njáll Gunnarsson, Kjartan Gunnarsson, Þórdís Gunnarsdóttir, Tryggvi Gunnarsson, Ólafur Jónsson, Magnús Gestsson, Helga Gunnarsdóttir, Árdís Sveinsdóttir, Ragnar Kristjánsson, Kristín Nóadóttir. Lokað Lokaö í dag, þriöjudag 23. júlí, kl. 9-12, vegna jaröarfarar Ketils Guðmundssonar. Forlagió, Frakkastíg 6a.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.