Morgunblaðið - 23.07.1985, Side 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ1986
Bessi seldi
154 tonn
KITT skip seldi í Englandi í gær.
Bessi fS seldi í Grimsby Uep 154
tonn, mestmegnis þorsk, fyrir 7
milljónir króna, meðalverð 45,60
krónur.
Þá var einnig seldur fiskur úr 24
gámum, samtals 242,2 tonn fyrir
10,6 milljónir, meðalverð krónur
43,93. Annars var verðið fyrir
gámana mjög mismunandi.
Lægsta meðalverð fyrir fisk úr
gám var 30,60 krónur og það
hæsta 59,80. Stafaði þessi verð-
mismunur af því fyrst og fremst
hversu hátt hlutfall kola var í
gámunum, en einnig eftir frágangi
og hve vel var ísað í gámana.
í dag selur Ottó Wathne í
Grimsby og Sigurður Þorleifsson
GK i Hull.
Eldur í gámi við
Fischersund
ELDUR kom upp í ruslagámi milli
tveKRja bárujárnsklæddra timb-
urhúsa við Fischersund laust fyrir
tíu á sunnudagskvöldið. Siökkvi-
liðið var kvatt á vettvang og hafði
eldur náð að læsa sig í annað hús-
ið þegar slökkviliðsmenn bar að
garði. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn og varð tjón lítið, en grunur
leikur á að eldur hafi verið borinn
að gáminum.
Akureyri:
Bifreið lenti
í Eyjafjarðará
Fólksbifreið lenti út í Eyja-
fjarðará skammt frá Akureyri
laust fyrir miðnætti aðfaranótt
mánudags. Þrennt var í bílnum en
engan sakaði og að sögn Iögregl-
unnar á Akureyri var helgin í ró-
legra lagi, utan nokkrir smá-
árekstrar.
Breytingar hjá
sjónvarpinu
Þ/ER breytingar hafa verið gerðar á
deildaskipan í sjónvarpinu, að báðar
dagskrárdeildir þess, frétta- og
fræðsludeild og lista- og skemmti-
deild, hafa verið lagðar niður. í
þeirra stað hafa verið settar upp
þrjár deildir, fréttadeild, deild inn-
lendrar dagskrárgerðar og inn-
kaupa- og markaðsdeild.
í frétt frá Ríkisútvarpinu-
Sjónvarpi kemur fram að Hinrik
Bjarnason, sem áður var
dagskrárstjóri lista- og skemmti-
deildar, verður nú deildarstjóri
innkaupa- og markaðsdeildar.
Emil Björnsson, sem verið hefur
dagskrárstjóri frétta- og fræðslu-
deildar frá upphafi sjónvarpsins,
lætur af störfum hinn 1. nóvember
næstkomandi vegna aldurs. Hafa
því verið auglýstar til umsóknar
stöður fréttastjóra og deildar-
stjóra innlendrar dagskrárdeildar.
NIJ ER lokið opinberri heimsókn
Vigdísar Finnbogadóttur forseta
og fylgdarliðs um Austurland. Um
hádegisbilið í gær var flogið áleiðis
til Reykjavíkur frá Höfn í Horna-
firðL
„Ég er auðugri að vinum og þá
um leið mikilli þekkingu og
reynslu ríkari," sagði Vigdís
Finnbogadóttir eftir heimsókn-
ina. „Það var gott að kynnast
Austfirðingum — eins og reynd-
ar öllum öðrum traustum og
góðum íslendingum."
„Minnisstæðast er mér vinnu-
semi fólksins, þjóðerniskenndin
og síðast en ekki síst börnin. Af-
staða barnanna, sem verið er að
ala upp til að halda áfram
rekstri sameignar okkar, sem er
þjóðarbúið allt, segir margt um
hvernig við fullorðnir lítum á líf-'
ið og hverja stund sem líður, er-
um að undirbúa morgundaginn
og afkomu okkar um ómælda
framtíð. Það sem fyrir er haft,
að þessu sinni þjóðarsamkennd
eins og svo oft og víðar áður,
orkar sterkt á ómótaðan barns-
Á Djúpavogi gróðursetti Vigdís birkihríslur í nágrenni við félagsaðstöðuna. Yngri bæjarbúar aðstoðuðu hana
dyggilega.
„Mikilli þekkingu
og reynslu ríkari“
— sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands,
að lokinni heimsókn sinni til Austfjarða
hugann. Börn skynja vel hver við
erum og hvert við stefnum."
Áfangastaðirnir voru tveir á
síðasta heila degi heimsóknar-
innar, sunnudaginn. Áður en
haldið var til messu í Heydala-
kirkju heilsaði hreppsnefnd
Breiðdalshrepps og sýslunefnd-
armenn forseta og fylgdarliði í
sólskini og austangjólu . í guðs-
þjónustunni þjónaöi sr. Kristinn
Hóseasson prófastur og kór
prestakallsins söng. Á höfuðból-
inu Heydölum hefur verið kirkja
frá fyrstu kristni en hennar er
fyrst getið í máldögum árið 1179.
Frá Heydölum var haldið til
Breiðdalsvíkur þar sem bæj-
arbúar tóku á móti gestunum
með viðhöfn. Undirbúningur
hafði staðið yfir í marga daga og
fréttabréf borin í öll hús bæjar-
ins þar sem skýrt var í smáatrið-
um hvernig heimsóknin færi
fram. íbúar Breiðdalsvíkur tala
gjarnan um að þaðan sjáist í fal-
legasta fjallahring landsins en
því miður voru fjöllin hulin skýj-
um meðan forseti staldraði við á
útsýnisstaðnum Hellum fyrir
ofan þorpið. Á leikvellinum að-
stoðuðu yngstu Breiðdælingarn-
ir við gróðursetningu og hádeg-
isverður var snæddur á hótel
Bláfelli í boði hreppsins.
JAFNINGI í
DAGSINS ÖNN
I opnu húsi í Staðaborg hélt
Guðjón Sveinsson tölu og tíund-
aði hvaða kostum forseti íslands
skal vera búinn. „Forsetinn þarf
að sýna íslenska reisn á erlendri
grund en jafnframt vera þannig
að öll þjóðin vilji bjóða honum
upp á kaffi í eldhúshorninu. Ég
efast þó um að nokkur íslending-
ur hafi svo sterkan maga að þola
kaffidrykkju á 70 þúsund heimil-
um landsmanna en Vigdís hefur
sýnt að þótt hún drekki ekki
kaffið getur þjóðin litið á hana
sem jafningja í dagsins önn.“ Að
gjöf fékk forsetinn borðfána með
merki Breiðdalshrepps. Hann
stóð á steini úr jaspis sem hjónin
Björgúlfur Jónsson og Valborg
Guðmundsdóttir á Tungufelli
gáfu.
Frá Breiðdalsvík var haldið til
Djúpavogs. Á leiðinni var stans-
að í Gautavík í Beruneshreppi og
buðu íbúar gestina velkomna
með hagablómum. Kvenfélag
Vigdís tók upphafsspyrnuna að maraþonfótboltaleik sem börn í ung-
mennafélaginu Súlunni á Stöðvarfirði léku í sólarhring.
hreppsins gaf Vigdísi möppu
með örnefnum sveitarinnar utan
nokkurra úr Fossárdal sem enn
er verið að safna. Á Djúpavogi
var bókasafnið skoðað og snædd-
ur kvöldverður í boði Búlands-,
Berunes- og Geithellnahrepps.
Til minningar um komu sína
þangað fékk Vigdís forláta vík-
ingaskip sem Jón Sigurðsson frá
Rjóðri smíðaði. Bæjarbúar
heilsuðu forseta á opnu húsi í
félagsaðstöðu hreppsins sem er
ekki fullbúin og enn óskírð.
Aðfaranótt laugardagsins var
gist í gömlu símstöðinni á Búð-
areyri en haldið þaðan í býtið
um morguninn. Á Vattarnesi
tóku fulltrúar Fáskrúðsfjarð-
arhrepps og Búðahrepps á móti
forseta en síðan haldið að Kol-
freyjustað, kirkjan þar skoðuð
og rakti séra Þorleifur Kjartan
Kristmundsson sóknarprestur
sögu staðarins. Á Búðum gróð-
ursetti Vigdís birkihríslur með
aðstoð barnanna í skólagörðum
þorpsins en síðan var ekið um
bæinn.
í FÓTBOLTA Á
STÖÐVARFIRÐI
Á hreppamörkunum tóku full-
trúar hreppsins á móti forseta í
sólskini og ekið var til bæjarins
sem var fánum prýddur. Þar
tóku börn úr ungmennafélaginu
Súlunni á móti forseta og fyrir
utan grunnskólann voru gróð-
ursettar hríslur. Petra Sveins-
dóttir, sem að líkindum á
stærsta steinasafn á íslandi,
sýndi forsetanum safnið. Stein-
arnir skipta tugþúsundum og er
haganlega komið fyrir í garði
Petru ásamt fjölda plantna og
inn á heimili hennar. Petra hef-
ur safnað steinum í rúm 30 ár og
eru þeir flestir ofan úr fjöllunum
við Stöðvarfjörð þó einnig sé þar
af finna gersemar af öllu land-
inu.
í kvöldverði í grunnskólanum
fékk forseti að gjöf eyrnalokka
og hálsmen úr glerhalli sem
Petra hafði slípað og smíðað og
þótti Vigdísi vænt um að fá að
hafa með sér austurlenskt grjót
suður til Bessastaða.
Síðasti liður heimsóknarinnar
til Búða hófst síðla kvölds á
íþróttavellinum fyrir framan
grunnskólann. Þar ætluðu börn
úr ungmennafélaginu að halda
maraþonfótboltaleik . Vigdís tók
fyrsta sparkið og hóf þar með
leikinn sem stóð í sólarhring.
— ÁHM.
Komið úr messu
í Heydalakirkju
Frá vinstri: Halldór Reynisson,
forsetaritari, Anna Þorsteins-
dóttir prestfrú, Herdís Þor-
steinsdóttir, aðstoðarkona for-
setans, Vigdís Finnbogadóttir,
Bogi Nilsson, sýslumaður Suð-
ur-Múlasýslu, sr. Kristinn
Höseasson, prófastur í Heydöl-
um.