Morgunblaðið - 23.07.1985, Side 52
ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1985
STAÐRST UNSIRAUST
OPINN 10.00-00.30
VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR.
MorRunblaðið/Július
Morgunbladið/Bjarni
BLÍÐSKAPARVEÐUR var sunnanlands í gær,
kærkomin tilbreyting frá hryssingslegri veðr-
áttu undanfarna daga. Víða var gefið frí í vinnu
„vegna veðurs“.
Stærri myndin var tekin í Laugardalslaug-
inni í gærdag og það er ekki út í hött að ætla
að þarna sé pabbinn á ferð að kenna börnum
sínum sundtökin. Á litlu myndinni sjást tvær
kappaksturshetjur í Smáíbúðahverfinu á
fullri ferð í góða veðrinu.
Spáð er fremur hægri norðlægri átt í dag,
skýjuðu og dálítilli súld á annesjum um norð-
anvert landið, en þurrt verður og víða létt-
skýjað syðra. Hitinn verður á bilinu 6—10
stig fyrir norðan en 10—15 stig sunnanlands.
Túlkun Verzlunarráðsms á kjamfóðurgjaldinu:
Greiða ber allt
sérstaka fóður-
gjaldið til baka
BIRGIR ísleifur Gunnarsson alþing
ismaður segir að tvímælalaust hafi
það verið ætlunin við samningu lag-
anna um framleiðslu, verðlagningu
og sölu á búvörum að endurgreiðslur
i hinu sérstaka fóðurgjaldi
(80%-gjaldinu) yrðu miðaðar við
hverja búgrein sem heild, og væri það
í andstöðu við meiningu laganna að
nota endurgreiðslureglurnar til að
koma i einhvers konar búmarki.
Verslunarrið íslands hefur skrifað
landbúnaðarriðherra bréf þar sem
sami skilningur kemur fram, auk
þess sem þar kemur fram sú túlkun
Verslunarriðsins að ekki sé heimild
til annars en að endurgreiða allt sér-
staka gjaldið, að minnsta kosti þar til
sett hafa verið framieiðslutakmörk i
viðkomandi búgreinar.
Steingrímur Ari Arason hag-
fræðingur hjá Verslunarráði ís-
lands segir að Verslunarráðið fari í
bréfinu fram á að reglugerðin verði
afturkölluð vegna ýmissa ann-
marka sem á henni væru. Þá væru
einnig gerðar tillögur að endur-
greiðslureglum í nýrri reglugerð,
verði hún gefin út. Þar er gert ráð
fyrir að hið sérstaka fóðurgjald
skuli endurgreiða vegna fóður-
kaupa til framleiðslu á búvöru, ef
framleiðslumagn hennar er ekki
umfram það magn sem ákveðið er i
samningum bænda og ríkisins og
bændum er tryggt fullt verð fyrir.
Hins vegar verði ekkert endur-
greitt vegna fóðurkaupa til fram-
leiðslu á búvöru umfram það fram-
leiðsiumagn sem þannig er ákveðið.
Sagði Steingrímur að þar sem
enn hefði ekki verið komið á nein-
um framleiðslutakmörkunum sam-
kvæmt nýju lögunum bæri að
endurgreiða öllum sérstaka fóður-
gjaldið að fullu. Þegar búið yrði,
með samningum Stéttarsambands-
ins og ríkisstjórnarinnar, að
ákveða hámark mjólkur- og sauð-
fjárframleiðslu, bæri að endur-
greiða gjaldið að fullu fyrir fram-
leiðsiu innan þeirra takmarkana
sem þar væri ákveðið. Þá ætti að
endurgreiða allt gjaldið til annarra
búgreina, þar til og ef framleiðslá
þeirra yrði takmörkuð og þá áfram
fyrir framleiðslu innan hinna
ákveðnu takmarkana. Hins vegar
mætti ekkert fóðurgjald endur-
greiða fyrir framleiðslu umfram
slík framleiðslutakmörk.
Tóku ekki við afla
sovésks rækjuskips
Hlutabréf rikisins í Flugleiðum, Eimskip og Rafha til sölu:
Bréfin boðin á um
tífoldu nafnverði
FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Albert Guðmundsson, hefur ikveðið að bjóða til
söhi hlutabréf ríkisins í þremur fyrirtækjum, Flugleiðum, Eimskip og Rafha
i matsverði sem er er i bilinu 9 til 10,9-falt nafnverð bréfanna. Bréf hvers
félags verða aðeins seld í einum „pakka“, að sögn Alberts. Fjirfestingarfé-
lag Islands mun annast söluna, sem hefst i fimmtudag og stendur til 30.
september. Fjirfestingarfélagið vann útreikningana sem mat bréfanna er
byggta.
Ríkissjóður á 20% í Flugleiðum
og er nafnverð þeirra bréfa um 7
milljónir króna, en söluverðið um
63 miUjónir (nífalt nafnverð).
Eignarhlutdeild ríkisins í
Eimskipafélagi tslands er 5%,
nafnverð bréfanna 4,4 milljónir en
söluverðið tæpar 48 milljónir (10,9
falt nafnverð). í Rafha á ríkið
30,05%, sem er 900 þúsund á nafn-
verði en á að seljast 9,5 falt, eða á
8,55 milljónir.
Að sögn Þorsteins Guðnasonar
hjá Fjárfestingarfélaginu lögðu
þeir á borð fyrir fjármálaráðherra
það sem kallað er lágmarkstilvik,
líklegasta tilvik og hámarkstilvik,
sem í tilfelli Flugleiða var 4-, 6- og
9-fait nafnverð. Fjármálaráðherra
kaus að selja bréf Flugleiða á há-
marksverði, eða níföldu nafnverði.
Albert var spurður að því hvort
hann teldi að nokkur myndi kaupa
bréfin við þessu verði:
„Ég veit það ekki, það verður
bara að koma í ljós. En ég tel mig
ekki hafa heimild til að selja nokk-
uð sem mér hefur verið trúað fyrir
og tilheyrir ríkinu fyrir minna en
sannvirði," sagði Albert, og bætti
því við að hann teldi brýnt að fólk
skildi að hlutabréf fyrirtækja sem
vel gengju hlytu að vaxa að verð-
gildi.
— En hvað með samræður þínar
við Starfsmannafélag Flugleiða.
Eru þær úr sögunni?
„Þeir vildu kaup bréfin á nafn-
virði, sem kemur ekki til greina."
— Hvað gerist ef bréfin seljast
ekki á umræddum tíma?
„Þau verða til sölu hjá mér svo
lengi sem ég gegni embætti fjár-
málaráðherra."
— En hvers vegna gerirðu það
að skilyrði að bréfin séu keypt í
einu lagi?
„Vegna þess að bréfin missa
mátt sinn ef þau eru brytjuð niður.
Það getur hver sem er keypt fáein
hlutabréf á nafnverði, en slík bréf
hafa ekkert áhrifavald og eru ekki
annað en aðgöngumiði á aðalfund."
Helgi Thorvaldsson formaður
Starfsmannafélags Flugleiða, sagði
að auðvitað ætti Starfsmannafé-
lagið enga möguleika á að kaupa
bréfin á þessu verði.
„Annars veit ég ekkert hver við-
brögð okkar verða, því ég var að
frétta af þessari sölu fyrst nú í
kvöld. Albert lofaði okkur því að fá
að fylgjast með framvindu málsins,
en hann hefur ekki gert það enn
mér vitanlega. Við vildum fá að
njóta forkaupsréttar á bréfunum á
sínum tíma, en hann vildi láta
meta bréfin og síðan höfum við
ekkert frétt," sagði Magnús.
LIÐLEGA tvítug kona kærði í gær
tvo menn fyrir nauðgun og hafi ann-
ar þeirra ógnað henni með hnífi á
meóan þeir frömdu ofbeldisverkið.
I.iðlega þrítugur maður var í gær úr-
skurðaður í gæzluvarðhald til 7.
ágúst vegna rannsókn Rannsóknar-
lögreglu ríkisins á kærunni og er
hins mannsins leitað.
Atburðurinn átti sér stað í íbúð
SOVÉSKT frystiskip sem kom til
Siglufjarðar sl. fimmtudag með 263
tonn af rækju sem vinna átti hjá
Sigló hf. fór aftur út í gær, þar sem
rækjan reyndist lélegri og smærri en
til var ætlast
Skipið kom með afla úr þremur
skipum sem eru á rækjuveiðum á
Barentshafi. Kaupandi rækjunnar
er enskt fyrirtæki sem lætur Sigló
hf. vinna hana fyrir sig og selur
síðan til fyrirtækis í Banda-
ríkjunum. Hálfu öðru tonni af
rækju var skipað upp en að mati
fulltrúa enska fyrirtækisins var
það ekki nógu gott hréfni, og ekki
í samræmi við það sem til var ætl-
ast og fór skipið þá aftur frá
Siglufirði.
Guðmundur Skarphéðinsson,
verkstjóri hjá Sigó hf., sagði að
annað skip kæmi fljótlega. Hann
sagði að þetta atvik raskaði ekki
starfsemi fyrirtækisins því þeir
væru með talsvert af hráefni fyrir
enska fyrirtækið, auk þess sem
þeir tækju við afla 7 rækjubáta.
Hann sagði að helmingur afkasta-
í Norðurmýri og var lögreglan í
Reykjavík kvödd á vettvang laust
upp úr miðnætti aðfaranótt mánu-
dagsins. Nágrannar leituðu að-
stoðar lögreglu vegna háreystis í
íbúð. Maðurinn, sem situr inni,
hafði kastað munum fram á gang
og neitaði að opna þegar lögregla
kom á vettvang og varð lögregla
að ryðja sér leið inn í íbúðina.
getu fyrirtækisins færi I að vinna
rækju fyrir Englendingana og
hefði svo verið i 2 mánuði. Ef
vinnslan gengi vel gæti orðið
framhald á þessari vinnslu og
samningurinn veruleg búbót fyrir
Sigló hf.
Dreng bjargað
úr höfninni
MENN úr Björgunarsveitinni í
Grindavík björguðu átta ára
dreng úr vesturhöfninni í Reykja-
vík sl. laugardag. Drengurinn
hafði verið með félögum sínum að
veiðaá bryggjunni og dottið í sjó-
inn. Er Grindvíkingarnir voru að
leggja bát sínum að bryggju sáu
þeir nokkra drengi veifa þeim. Er
þeir könnuðu hvað var að gerast
fundu þeir dreng hangandi í
dekkjunum utan á bryggjunni og
hafði hann þá synt eina 30 metra
Honum mun ekki hafa orðið meint
af volkinu.
Maðurinn var handtekinn, en fé-
lagi hans var þá á bak og burt.
Maðurinn sem situr inni hefur
áður verið kærður fyrir nauðgun.
Rannsókn málsins er stutt á veg
komin. Konan er með áverka á öxl.
RLR leitaði í gær hins mannsins,
en ekki hafði tekist að hafa hend-
ur í hári hans í gærkvöldi.
Kærðir fyrir nauðgun
og að ógna með hnífí