Morgunblaðið - 25.07.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 25.07.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ1985 17 5) Munur á gæðaeftirliti 0,4 6) Munur á starfi við hreinlæti 0,3 7) Gegnumlýsing 3,0 Afköst í Danmörku á greidda klst. 20,0 1) Tímanýting er betri í Dan- mörku vegna þess að það fer minna af greiddum tíma í kaffi- tíma og matartíma, engar „pásur" eru á milli mála og unnið er nær hættutíma. Nýting vinnutíma er yfirleitt heldur slæm hér á landi. Þegar kom fram á áttunda áratug- inn var nýting vinnutíma í frysti- húsunum orðin býsna góð og betri en annars staðar í atvinnulífinu. En nú síðustu árin hefur hún versnað til muna. 2) Gjarnan er unnið á tveim vökt- um í Danmörku og við það nýtast ýmsir verkþættir betur, aðallega í upphafi vinnutíma og við verka- lok. Miklu munar að jafnmikil hreingernig er hvort sem vinnu- tíminn er lengri eða skemmri. 3) Tæknistig er hærra í Dan- mörku eins og áður hefur komið fram. Þar munar þó ekki eins miklu í 5 punda framleiðslu eins og t.d. í framleiðslu fyrir smásölu- markað. 4) Vinnubrögð í snyrtingu eru öðruvísi hér á landi en í Dan- mörku, þar sem meiri áhersla er lögð á nýtingu hráefnis, enda hef- ur nýting batnað mjög á undan- förnum árum. Nokkuð starf fer einnig í að vigta og hafa eftirlit með nýtingunni, en það starf fær- ist nú í átt til sjálfvirkni. 5) Að sjálfsögðu er gæðaeftirlit í Danmörku, en meira er lagt í gæðaeftirlit hér á landi, ekki síst vegna fjölbreyttari framleiðslu. 6) Hér á landi er gert meira af því að þvo bakka og önnur verkfæri meðan á vinnslu stendur. Þá er þvottur á fiski áður en hann fer í vinnslu betri, a.m.k. sums staðar í Danmörku er fiskur ekki þveginn áður en hann er tekinn til vinnslu. Þetta hreinlæti teljum við nauð- synlegt að viðhafa til þess að halda stöðu okkar á mörkuðunum. Rétt er svo að taka það fram að sú umgengni sem ekki er borgað fyrir er miklu betri í Danmörku. 7) Hér á landi er gegnumlýsing nauðsynleg til þess að tryggja að framleiðslugailar séu í lágmarki. Sérstaklega er nauðsynlegt að tryggja að ekki séu sníkjudýr í framleiðslunni. Ekki kemur til greina að gera neina breytingu á þessum þætti vinnslunnar, nema þá ef kröfurnar verða hertar enn meira. Hærri vinnulaun í Danmörku Því hefur verið haldið fram að vinnulaun í fiskiðnaði væru 70% hærri í Danmörku en hér á landi. Fleiri tölur hafa verið nefndar og meiri munur. Erfitt er að bera saman af nákvæmni hver raun- verulegur launamunur er vegna þess hve miklu munar um upp- byggingu launataxta og hve ólíkt vinnuskipulagið er. Sá sem þetta ritar getur því ekki nefnt neinar tölur, sem hægt er að fullyrða að séu þær einu réttu. Hins vegar hefur hann í höndum einstök dæmi sem benda til að munurinn sé miklu minni en almennt er talið. Þau dæmi eru um 8% hærri laun á virkan vinnu- tima í Danmörku, 12% og 20% hærri laun í Danmörku og 5% lægri laun í Danmörku miðað við virkan vinnutíma. í öllum þessum tölum er miðað við alla álags- greiðslu og launatengd gjöld. Eðlilegt væri að láta hlutlausa opinbera stofnun gera eins ná- kvæman samanburð á þessu og unnt er, en nákvæmur saman- burður á launum í mismunandi löndum verður þó aldrei gerður. En mér sýnist að margt bendi til að raunverulegur launamunur fiskvinnslufólks hér og í Dan- mörku sé á bilinu 10—15% Dönum í vil. En að svo komnu máli verður ekkert um það fullyrt. Höfundur er framkvæmdastjóri ráðgjafarfyrirtækisins Framleiðni sf. og starfsmaður Félags Sam- bandstískframleiðenda. NM unglinga f bridge: Landinn vermdi eitt af botn sætunum eftir góða byrjun ÍSLENZKA unglingalandsliðið í bridge varð að láta sér lynda 7.-8. sætið á Norðurlandamót- inu sem lauk í Óðinsvéum sl. föstudag. ísland sendi sveit í efri aldursflokkinn í mótinu, en hin Norðurlöndin sendu í báða flokkana. íslenzka sveitin spilaði mjög vel fyrri hluta mótsins en þá var eins og hendi væri veifað og allir leik- irnir töpuðust með nokkrum mun eftir það. Danska A-sveitin sigraði, hlaut 162 stig. Fast á hæla þeim komu B-sveit Dana með 157 og Finn- land-A með 152 stig. ísland hlaut 113 stig. Leikjaröð og árangur Islands, fremri talan er stig landans.: Umferðir: Stigj. 1. ísland yfirseta 18 2. ísland - Svíþjóð A 17-13 3. ísland — Danmörk B 17—13 4. ísland — Noregur A 16—14 5. ísland — Finnland B 17—13 6. ísland — Finnland A 9—21 7. ísland — Noregur B 8—22 8. ísland — Danmörk A 5—25 9. ísland — Svíþjóð B 6—24 Furðuleg umskipti, sérstaklega þegar borinn er saman árangur gegn t.d. A-sveitum Noregs og Sví- þjóðar, sem voru ógnvekjandi á „pappírunum" og hrun gegn B-sveitum Noregs og Svíþjóðar sem vermdu botnsætin. íslensku sveitina skipuðu: Ant- on Gunnarsson og Guðmundur Auðunsson, Karl Logason og Svavar Björnsson, Ragnar Magn- ússon og Valgarð Blöndal. Fyrir- liði og fararstjóri var ólafur Lár- usson. (Úr rréttatilkynningu) Fer inn á lang flest heimili landsins! SVONA EKUR ÞÚ HONUM SVONA LÍTUR HANN ÚT HINN NÝI HONDA CIVIC BRÝTUR SVO SANNARL.EGA HEFDBUNPNAR LEIOIR I HÖNNUN. HÉR NÝTIR HONDA FENGNA REYNSLU I FORMÚLU í KAPPAKSTRI OG ÚTFÆRIR SNERPU OG AKSTURSEIGINLEIKA í ÞENNAN FRÁBÆRA BÍL. TÆKNILEGAR UPPLÝSINGAR: Vél: 4 cyl, OHC, 12 ventla, þverstæð. Sprengirými: 1500 cc. Hestöfl: 85 DIN/6000 RPM. Gírar: 5. Snerpa 0 — 100 km/k. 9,7 sek. Sóilúga. Sport — Bólstruö sæti. Margstillanleg aftursæti. Veltistýri. Litaöar rúöur o.m. fleira. VERÐ AÐEINS KR. 422.500.- 2-door Hatchback SPORT Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, SlMI 38772, 39460. Aðeins örfáum bílum óráöstafaö.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.