Morgunblaðið - 25.07.1985, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÍJLÍ 1985
23
Fræðsluþættir Fósturfélags íslands:
Orð um uppeldi
— eftir Sigríði K.
Gísladóttur
Margt hefur verið rætt og
ritað um uppeldismál, en þvi
fer þó fjarri, að þessum undir-
stöðuþætti mannlegrar velferð-
ar séu gerð viðunandi skil.
Þetta á jafnt við um fjölmiðla,
sem og almenna umræðu. Fyrir
þessu liggja án efa margar
ástæður, en sú allra stærsta er
ef til vill sprottin úr gamla
kyrrstöðuþjóðfélaginu.
Þá var uppeldi barna með
talsvert öðrum hætti en nú er.
Börnin voru alin upp til að feta
í fótspor foreldranna og höfðu
strax við fæðingu tækifæri til
að tileinka sér þekkingu hinna
fullorðnu. Vinnan fór að miklu
leyti fram á heimilunum og í
næsta nágrenni við þau, þannig
að börnin voru í beinum tengsl-
um við atvinnulífið.
Nú er öldin önnur; íslenska
þjóðfélagið hefur tekið miklum
breytingum, en þrátt fyrir allar
þær stórstígu framfarir, sem
orðið hafa á tiltölulega skömm-
um tíma, hefur ýmislegt orðið
útundan. Nægir að taka sem
dæmi, að enn í dag er litið á
barnauppeldi sem einkamál
fjölskyldunnar, þar til börnin
fara i skóla. Þetta er að visu
ekki alveg einhlítt, en skamm-
arlega lítið er gert til að koma
til móts við þarfir foreldra í
sambandi við aðstoð og leið-
beiningu við uppeldið.
Uppeldisfrömuðum hefur lit-
ið orðið ágengt við að koma
kenningum sínum á framfæri,
nema til mjög afmarkaðs hóps.
Þetta er ef til vill vegna þess,
að almenningur gerir sér ekki
grein fyrir mikilvægi almennr-
ar þekkingar á uppeldisfræði.
Auk þess er lítið gert til að ýta
undir áhuga og umræður um
þessi mál.
Uppeldi barna er ábyrgðar-
hlutverk, sem við viljum öll að
okkur takist að leysa sem best
af hendi. Það eru því ótal tilvik
á degi hverjum, sem reyna á
þolrifin, auk þess að við erum
misjafnlega vel upplögð. Þar
eru ýmsir þættir sem hafa
áhrif, og þá ekki síst óheyrilegt
vinnuálag og þreytustress.
Undir slíkri pressu stjórnast
uppeldið of oft af „skyndi-
lausnum"; við ýtum vandanum
á undan okkur, við kaupum okk-
ur frið með óhóflegri undanláts-
semi. Börnin fá að leika lausum
hala i orðsins fyllstu merkingu.
Svo þegar hegðun þeirra hefur
keyrt útyfir öll velsæmismörk
sláum við í borðið og krefjumst
skilyrðislausrar hlýðni. Þegar
við hegðum okkur þannig eins
og logn aðra stundina en felli-
bylur hina, verður erfitt fyrir
barnið að læra hvaða reglur
gilda og hvenær! Það gæti fest í
því að ganga stanslaust eins
langt og það getur; og helst ör-
lítið lengra.
Öll börn verða að hafa ákveð-
in mörk. Þau verða að læra
hvað má gera og hvað ekki. Til
þess að þetta verði sem auð-
veldast er nauðsynlegt að setja
ákveðnar reglur. Þannig getum
við komist hjá mörgum óþarfa
árekstrum og um leið gert sam-
skiptin ánægjulegri. Reglur
þessar verða að vera fáar og
auðskiljanlegar þegar um ung
börn er að ræða, bæði til að
barn geti greint tilgang þeirra
og ekki síður til þess að við hin-
ir fullorðnu getum framfylgt
þeim. Reglur, sem ekki er farið
eftir, eru oft verri en engar.
Með skýrum reglum má oft
koma í veg fyrir leiðindi, sem
vilja verða þegar sífellt er verið
að jagast um þætti eins og
svefntímat tannburstun, sjón-
varpsgláp, tiltekt og fleira. Allt
eru þetta þættir í daglegu lífi,
sem við höfum átt erfitt með að
leysa.
Þá er ég komin að stóru
spurningunni: Hvernig getum
við kennt börnum okkar að fara
eftir þessum reglum, þannig að
þeim finnist þau ekki ofurliði
borin af valdi okkar?
Svarið við þessum vangavelt-
um felst ekki neinni „Hókus
Pókus" aðferð. Slíkt er ekki til
hér, fremur en í öðru sem lýtur
að uppeldi. Sem betur fer erum
við ekki vélmenni, sem hægt er
að mata á ákveðnum upplýsing-
um í eitt skipti fyrir öll. Hinsv-
egar er ýmislegt hægt að gera
til að létta róðurinn. Ein leið að
settu marki er að við lítum á
börn okkar sem sjálfsagða
þátttakendur í lífi og starfi
hversdagsins, en ekki sem réttl-
ausar aðskotaverur. Með þessu
gerum við bðrnin smám saman
ábyrg fyrir eigin lífi. Til að
framkvæma þetta getum við
haft börnin með í ráðum þegar
umgengnisreglur eru mótaðar.
Þetta er hægt um leið og börnin
eru 4—6 ára gömul. Hafi þau
átt þátt í að setja ákveðna
reglu, getum við höfðað til þess
aftur, er barnið hefur „gleymt"
reglunni. Ef þau axla þannig
ábyrgð smám saman er líklegt
að barnið læri gildi reglna. Það
læri að meta reglur og nota
þær, sér og öðrum til hagsbóta.
Með þessu móti gerum við
börnin hæfari til að lifa og
starfa í þjóðfélagi, sem er í
stöðugri þróun. Við hinir full-
orðnu verðum að vera leiðandi
stoð og stytta, ef vel á að far-
nast.
Höíundur er fósíra í Vesturborg.
Glæsilegur
Salatbar
í Mjóddinni U
AÐEINS
Drangeyjarlundi ^ ^V,00
glænýr
Hamflettur %*/ ^^pr.stk.
Spennandi grillpinnar
ódýrusw
ínttkolm
& ibænum - Hamborgarar
m/brauði AÐEINS
GlæsOeg fiskborð
með úrvali af nýjum
ferskum fiski.
Heitur tilbúinn matur til að taka með sér
Glænýr LAX - lækkað verð.
Opið til kl.20 í Mjóddinni-
en kl.18 í Starmýri
og Austurstræti
VÍÐIR
AUSTURSTRÆTI 17 - STARMÝRI 2
MJÓDDINNI
snjóbræðslurör
- þar sem írostþolið skiptir öllu móli.
BÖRKUR hf.
HJALLAHRAUNI 2 SÍMI 53755 PÓSTHÓLF 239 • 220 HAFNARFIRÐI