Morgunblaðið - 25.07.1985, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÖIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ1985
„Friðar- og frelsissigling“ um Eystrasalt:
Minnast innlimun-
ar Eystrasaltsland-
anna í Sovétríkin
AP/Símamynd
Flotaœfingum að Ijúka
Hinum viðamiklu flotaæfíngum sovéska hersins í
Norður-Atlantshafi og Noregshafi er nú að mestu
lokið, að því er formælendur Atlantshafsbandalags-
ins í Nortowood á Englandi telja, en skip og flugvél-
ar NATO hafa fylgst gaumgæfílega með æfíngunum.
Norðurfíoti Sovétmanna er nú á leið til heimahafna
á Kólaskaga, en hluti Eystrasaltsflotans siglir einnig
í norðausturátt og er talið að hugmyndin sé sú að
æfa landgöngu í Motovskiy-flóa, skammt frá Mur-
mansk. Fleiri en 100 skip og kafbátar hafa tekið þátt
í æfíngunum og er myndin af sovéskum kafbáti af
Foxtrot-gerð, sem þar kom við sögu.
Deilt um launahækkun breskra embættismanna:
Stjórn Thatchers varð fyrir
áfalli í Neðri málstofunni
Moskvu, Stokkhólmi, 24. júlí. AP.
SOVÉSKA fréttastofan TASS árétt-
aði í gær gagnrýni á vitnaleiðslur
þær um ástand mannréttinda í Sov-
étríkjunum, sem nú eru hafnar í
Kaupmannahöfn. Sagði fréttastofan,
sem túlkar sjónarmið Sovétstjórnar-
innar, að þær væru and-sovéskur
sjónleikur, sem bandaríska leyni-
þjónustan hefði sett á svið.
TASS sagði, að hugmyndin væri
sú að sverta Sovétríkin og stefnu
stjórnvalda þar á sama tima og
tólfta „Heimsmót æskunnar" færi
fram í Moskvu og þess væri
minnst að áratugur er liðinn frá
Réttarhöld yfir
herforingjum:
Fangar störfuðu
við skjalafals
í Argentínu
Buenos Aires, 24. júlí. AP.
VITNI við réttarhöldin yfír herfor-
ingjunum, sem á sínum tíma fóru
með völd í Argentínu, segja að sjó-
her landsins hafí rekið Tólsunarstofu
í illræmdri pyntingarstöð. Þar hafí
m.a. verið falsað vegabréf fyrir Licio
Gelli, ítalska fjármálamanninn úr
P-2-leynistúkunni.
Herforingjarnir eru sakaðir um
stórfellt skjalafals, auk þess sem
þeir hafa verið kærðir fyrir morð,
pyntingar og mannrán í sambandi
við herferð gegn vinstrimönnum í
kjölfar valdatöku hersins.
Victor Basterra, herskár
vinstrimaður úr flokki Perónista,
bar vitni í gær og lýsti handtöku
sinni, eiginkonu og tveggja mán-
aða gamallar dóttur þeirra í ágúst
1979. Voru þau flutt í vélskóla sjó-
hersins, en þar voru þúsundir
manna pyntaðar eða líflátnar í tíð
herforingjastjórnanna, að sögn
mannréttindasamtaka.
Basterra segir þau hjónin hafa
sætt illri meðferð og verið pyntuð
með rafmagni. Konan og dóttirin
voru látnar lausar eftir fjóra
daga, en Basterra haldið þar til í
nóvember 1983 er þjóðkjörin
stjórn tók við af herforingjunum.
Um síðir var Basterra settur til
starfa í fölsunardeildinni. Þar
vann hann að fölsun vegabréfa,
persónuskilríkja, ökuskírteina og
bílnúmera. Kveðst hann hafa m.a.
falsað vegabréf fyrir Gelli, italska
leynistúkumanninn sem flýði úr
fangelsi í Sviss 1983, en hann er
eftirlýstur fyrir fjársvik. Fjöldi
yfirmanna i Argentínuher reynd-
ust félagar í P2-stúkunni eða
tengdir henni á einn eða annan
hátt.
því Helsinki-sáttmálinn var und-
irritaður.
Skipuleggjendur svonefndrar
„Friðar- og frelsissiglingar" um
Eystrasalt, sem hefst á föstudag,
vísuðu í gær á bug þeim ásökunum
TASS í vikunni sem ieið, að sigl-
ingin væri á vegum bandarisku
leyniþjónustunnar.
Juris Kaza, formælandi flótta-
manna þeirra frá Eystrasaltsríkj-
unum, sem standa á bak við „Frið-
ar- og frelsissiglinguna", sagði að
augljóslega væru Sovétmenn ugg-
andi vegna hennar. Hann sagði að
siglingin, sem standa á í þrjá
daga, væri til þess að minnast þess
að fjörutíu ár eru liðin frá því að
Sovétmenn innlimuðu Eystra-
saltsríkin þrjú, Eistland, Lettland
og Litháen. Hann sagði að 360
fyrrum íbúar þaðan tækju þátt í
siglingunni.
Kaza sagði, að nefndin sem und-
irbýr siglinguna væri að íhuga
hvort ástæða væri til að stefna
TASS-fréttastofunni fyrir æru-
meiðandi ummæli.
London, 24. júlí. AP.
MARGIR flokksbræður Margrétar
Thatcher á breska þinginu létu í gær
í Ijós andúö sína á ákvörðun hennar,
að hækka verulega laun nokkurra
háttsettra embættismanna, með því
að greiða atkvæði gegn launahækk-
un forseta lávarðadeildarinnar til
handa eða með því að sitja hjá við
atkvæðagreiðsluna.
Stjórnin lagði til, að laun Hails-
ham lávarðar yrðu hækkuð um 11
þúsund pund á ári og yrðu 77 þús-
und pund (jafnvirði tæplega 4,5
millj. ísl. króna). Ákvörðun um
hina umdeildu launahækkun til
embættismanna í vikunni sem leið
þurfti ekki að bera undir þingið,
en litið er svo á að með afstöðu
sinni til tillögunnar um launa-
hækkun forseta lávarðadeildar-
innar hafi þingmenn verið að lýsa
skoðun sinni á hækkun þeirri sem
embættismennirnir fengu. Tillag-
an var samþykkt naumlega með 17
atkvæða meirihluta (249:232). 48
íhaldsþingmenn greiddu atkvæði
gegn henni og 50 sátu hjá. íhalds-
flokkurinn hefur 140 þingsæta
meirihluta í Neðri málstofunni,
þar sem sitja 650 þingmenn.
Ríkisstjórn Thatchers hefur
réttlætt launahækkanir til hátt-
settra embættismanna, sem nema
allt að 46%, með þeim orðum, að
hætta sé á að hæfileikamenn fáist
ekki til starfa fyrir ríkið ef laun
þar eru lægri en á frjálsum mark-
aði.
Frækilegt afrek:
Tveir Frakkar sigldu á
seglbretti yfir Atlantshaf
Palmouth, Englandi, 24. júlí. AP.
TVEIR Fransarar sigldu á seglbretti
í nótt til hafnar á suövesturströnd
Englands eftir 41 dags siglingu frá
New York. Urðu þeir þar með fyrstir
til að sigla á seglbretti yfír Atl-
antshafíð.
Frakkarnir kváðust þreyttir en
glaðir í lok ferðarinnar. Þeir heita
Frederick Beauchene og Thierry
Caroni. Nöfn þeirra verða skráð í
metabók Guinness. Voru þeir 11
dögum lengur en upphaflega var
ætlað, en vegalengdin, sem þeir
sigldu, er um 5.000 kílómetrar.
Seglbrettið var sérsmíðað til
siglingarinnar. Er það 6,7 metrar
á lengd og 1,9 á breidd, tvímastra.
Á því var komið fyrir lítilli káetu,
þar sem sæfararnir hvíldust til
skiptis.
Fransararnir fengu oft illviðri,
en einnig koppalogn svo þeir
tommuðu ekki. Farkosti þeirra
hvolfdi nokkrum sinnum. Komust
þeir eitt sinn í hann krappann er
annar þeirra féll fyrir borð meðan
hinn steinsvaf í káetunni. Enginn
fylgdarbátur fylgdi Frönsurunum
eftir og vissi enginn um afdrif
þeirra fyrr en til þeirra sást und-
an Englandsströndum.
Brjota allt upp?
Nei, það vill enginn eiga yíir höfði sér
þegar búið er að leggja snjóbrœðslurör í bílastœðið, heimkeyrsluna eða gangstéttina.
'#B0RKUR hf.
I ®HJALLAHRAUNI 2 SÍMI 53755 PÓSTHÓLF 2Í
Þess vegna notar þú PB snjóbrœðslurör.
t- 1 je i 1 i W——
Þau bregðast ekki.
239 220 HAFNARFIRÐI
f >>