Morgunblaðið - 25.07.1985, Qupperneq 37
Hafbeitartilraunir
hófust í fyrrasumar
Svíarnir voru mikið með hug-
ann við hafbeitina í upphafi,
vegna einstæðra aðstæðna hér á
landi. Júlíus sagði hins vegar að
ekki væri búið að taka ákvarðanir
um áframhaidandi eldi eða haf-
beit í stórum stíl, en reynt yrði við
hafbeitina á tilraunastigi á næstu
árum.
Silfurlax hefur í samvinnu við
aðrar stöðvar verið með hafbeit-
artilraunir síðan í fyrrasumar.
Keyptu þeir 10 þúsund sjógöngu-
seiði í Kollafirði og var þeim
sleppt þar eftir ákveðnum reglum
sem sænsku ráðgjafarnir lögðu
fyrir. Seiðin eru merkt og árangur
kemur í ljós í sumar og næsta
sumar. Áttu þeir laxar sem endur-
heimtast jafnvel að verða vísir að
stofni fyrir seiðaeldisstöðina en
nýrnaveikin sem kom upp í Kolla-
firði í vetur gerir það að verkum
að hætt hefur verið við þá fyrir-
ætlun. Nýrnaveikin varð einnig til
þess að forgörðum fór ein milljón
augnhrogna sem Silfurlax keypti i
Kollafirði. Þá keyptu þeir í fyrra 4
þúsund sérstaklega stór (120 gr.)
sjógönguseiði hjá Eldi hf. í
Grindavík og var helmingnum
sleppt í hafbeit i Lárósi og helm-
ingnum hjá Eldi. „Við erum með
þessu að reyna að flýta tilraunum
okkar um eitt ár,“ sagði Júlíus.
Stefnt að framleiðslu
stórlax til kaldreykingar
Jón sagði að Silfurlax stefndi að
framleiðslu á laxi í 1. gæðaflokki,
þ.e. laxi yfir 5 kg að stærð. Ætlun-
in væri að kaldreykja hann og
flytja þannig á erlenda markaði.
Þannig tilreiddur væri hann helm-
ingi verðmætari en venjulegur
matfiskur, en þetta væri háð þeim
annmarka að laxinn yrði að vera
stór, þ.e. 2ja ára fiskur í sjó.
Júlíus sagði að hafbeitartil-
raunirnar miðuðu annars vegar að
því að auka endurheimturnar og
hins vegar að auka hlutfall þess
fisks sem er 2 ár í sjónum. „Þó
hafbeitin sé ef til vill ekki hag-
kvæm eins og er, þá eru möguleik-
arnir til endurbóta þar gífurlega
miklir. Sem dæmi má nefna að ef
við getum fengið Vb hluta þeirra
90 prósenta sem venjulega skila
sér ekki úr hafi, til að skila sér, þá
eykst arðsemin um helming. Við
þetta myndi hafbeitin verða virki-
lega arðsöm. { nýlegum rannsókn-
um í Svíþjóð kom í ljós að hægt er
að margfalda lífslíkur seiðanna
með mismunandi sleppingum.
Þetta er þó ekki algilt, frekar en
annað, því í Noregi skilaði sams-
konar tilraun þveröfugum niður-
stöðum,“ sagði Júlíus Birgir.
— HBj
Sýning á
ljósmyndum
Strindbergs
Sýning á Ijósmyndum eftir
sænska skáldið August Strindberg
verður opnuð í anddyri Norræna
hússins fímmtudaginn 25. júlí
kl. 17:30.
{ fréttatilkynningu frá Norræna
húsinu segir að þó svo Strindberg
hafi verið öllu þekktari sem rithöf-
undur en ljósmyndari, liggi engu að
síður einnig eftir hann myndverk,
bæði ljósmyndir og málverk.
Dr. Göran Söderström, sérfræð-
ingur um myndlist Strindbergs,
kom hingað frá Strindbergsafninu
í Stokkhólmi og setti sýninguna í
Norræna húsinu upp. Hann mun
einnig flyta erindi um Strindberg
og myndlist hans og sýna lit-
skyggnur af málverkum hans í
Norræna húsinu kl. 20:30 sunnu-
dagskvöldið 28. júlí.
Eins og fyrr segir verður sýning-
in opnuð kl. 17:30 fimmtudaginn 25.
júlí. Verður hún síðan opin á venju-
legum opnunartíma Norræna húss-
ins fram til 8. ágúst nk.
(Úr fréttatilkynningu)
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUK 25. JULl 1985
----------m--:----------------------
Úr grínmyndinni „Að vera eóa ekki að vera“, sem Nýja Bíó sýnir um þessar
mundir.
Nýja bíó:
,,Að vera eða ekki að vera“
NÝJA BÍÓ í Reykjavík sýnir um þessar mundir grínmyndina „Að vera eða ekki að
vera“ (To Be or Not to Be). í aðalhlutverkum eru Mel Brooks, Anne Bancroft, Tim
Matheson, Charles Durning og Jose l'errer. Leikstjóri er Alan Johnson. Handrit
sömdu þeir Thomas Meehon og Konny Graham og tónlist er eflir John Morris.
Söguþráður myndarinnar snýst úr Hamlet“ á sviðinu.
um að Frederick Bornski, yfirmaður
Bornski-leikfélagsins í Varsjá,
dreymir um að verða þekktur Shake-
spear-leikari. Aöalleikkona leikfé-
lagsins, Anna, sem jafnframt er eig-
inkona Bronski, á sér mikinn að-
dáanda, Andre Sobinski, liösforingja,
en hann er flugmaður f flugher Pól-
verja. Sobinski hittir frú Bronski
reglulega i búningsherbergi hennar
meðan eiginmaðurinn flytur „Atriði
Skyndilega berst frétt um að Hitl-
er sé væntanlegur í skyndiheimsókn
til Varsjár og er Bronski-leikfélaginu
fyrirskipað að setja upp sérstaka
sýningu fyrir Foringjann. Bronski og
félagar nota sér þá ofurvirðingu, sem
Gestapo-menn bera fyrir Foringjan-
um og gera heldur djarfa áætlun um
að flýja land ásamt nokkrum gyðing-
um, sem þeir hafa skotið skjólshúsi
yfir.
Stuðmenn á Vestfjörðum:
Halda Gunnars vöku
Þórðarsonar í Hólmavík
STUÐMENN halda áfram yfirferð
sinni um norðyesturhluta landsins
næstu daga. Á fimmtudagskvöld
leikur hljómsveitin í Stykkishólmi,
þaöan verður haldið á Patreksfjörð á
föstudag, þá í Hnífsdal laugar-
dagskvöld og loks til Hólmavíkur á
sunnudag.
Það hefur lengi staðið til hjá
hljómsveitinni að heimsækja þann
merka bæ, en af því verður nú í
fyrsta sinn. Hólmavík er sem
kunnugt er fæðingarbær tón-
skáldsins Gunnars Þórðarsonar og
munu Stuðmenn við þetta tæki-
færi flytja sérstaka dagskrá til-
einkaða honum. Gunnar, sem nú
er staddur á Bermuda, mun verða
sérstakur gestur Stuðmanna þetta
kvöld og m.a. flytja með þeim
nokkur lög. Verður ferli Gunnars
síðan lýst í myndum, tali og tón-
um. Dagskrá þessi nefnist „Gunn-
ars vaka Þórðarsonar" og hefst í
félagsheimilinu Sævangi klukkan
21.
Gunnar Þórðarson verður heiðurs-
gestur á hátíðinni í Hólmavík.
Ætiarþú tti útianda í sumar?
Einn íslenskra banka býður Búnaðarbankinn Visa ferðatékka í
portúgölskum escudos frá Banco Pinto & Sotto Mayor í Portúgal
og ferðatékka í ítölskum lírum frá Banco di Roma.
Við bjóðum einnig:
Visa ferðatékka í Bandaríkjadollurum,
sterlingspundum, frönskum frönkum
og spönskum pesetum.
Ferðatékka í vestur-þýskum mörkum
frá Bank of America og ferðatékka í
Bandaríkjadollurum frá American Express.
VISA greiðslukort til afnota innanlands og utan.
Verið velkomin í bankann. Starfsfólk gerir sitt ýtrasta til að
veita skjóta og örugga þjónustu í öllum viðskiptum.
BÚNAÐARBANKIÍSLANDS
TRAUSTUR BANKI