Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 41
FIMMTUDAGW 25- JÚl4 l9S5
Þorsteinn Benedikt
Helgason - Minning
Fsddur 2. maí 1911
Dáinn 19. júlí 1985
Mig langar aö minnast frænda
míns, Þorsteins B. Helgasonar,
nokkrum orðum.
Þorsteinn var fæddur 2. maí
1911 á Herríðarhóli í Holtum,
Rangárvallasýslu, sonur hjónanna
Ingveldar Andrésdóttur og Helga
Skúlasonar, cand. phil. og bónda.
Hann var næstyngstur sjö systk-
ina. Systur hans, sem allar eru á
lífi nema sú elsta, Pálfríður, sem
lést 1976 eru: Guðrún, Elín,
Andrea, Sigríður og Anna María.
Þorsteinn átti heima á Herríð-
arhóli til 13 ára aldurs, en fluttist
þá til Reykjavíkur með foreldrum
sínum og systrum. Hann byrjaði
snemma að vinna í Pípuverk-
smiðjunni og vann þar í allmörg
ár. Síðan réðist hann til P.
Stefánssonar í kringum 1938, og
síðar Heklu hf. og vann þar uns
hann lét af störfum sökum las-
leika 1979.
Hann bjó allan sinn aldur í
Reykjavík á heimili foreldra
sinna, lengst af á Grettisgötu 6a,
ásamt systrum sínum, þeim Elínu,
Sigríði og Andreu, sem hjúkruðu
honum frábærlega vel í veikindum
hans.
Áberandi þættir í skapgerð
Þorsteins voru áreiðanleiki og
samviskusemi, hann var maður,
sem ekki mátti vamm sitt vita.
Við systurdætur hans eigum
góðar minningar um hann. Guð
blessi hann að eilífu.
Asta Konráðsdóttir
í dag fer fram útför frænda
míns og vinar, drengskapar-
mannsins Þorsteins Benedikts
Helgasonar, sem andaðist á
sjötugasta og fimmta aldursári á
Landakotsspítala 19. þessa mán-
aðar eftir langvarandi veikindi.
Þorsteinn var sonur hjónanna
Ingveldar Andrésdóttur, Ás-
grímssonar verslunarmanns á
Eyrarbakka og Helga Skúlasonar,
Gíslasonar prófasts á Breiða-
bólsstað í Fljótshlíð.
Þorsteinn, eða Steini eins og
hann var kallaður af vinum sín-
um, var fæddur á Herríðarhóli í
Holtum og ólst þar upp til þrettán
ára aldurs ásamt systrum sínum
sex, en þá flutti fjölskyldan til
Reykjavíkur.
Þegar Steini var enn ungur að
árum réðst hann til starfa hjá
Pípugeröinni við Rauðarárstíg í
Reykjavík, en árið 1936 hóf hann
að vinna við afgreiðslustörf hjá
Páli Stefánssyni frá Þverá, en Páll
var þá umboðsmaður fyrir Ford
bifreiðar og rak jafnframt bif-
reiðaverkstæði í Hafnarstræti,
þar sem nú er hluti Útvegsbank-
ans við Lækjartorg, en fluttist síð-
an að Hverfisgötu 103. Þegar Páll
var orðinn háaldraður seldi hann
fyrirtæki sitt, en Steini hélt áfram
starfi sínu hjá fyrirtækinu P.
Stefánsson og svo einnig hjá fyrir-
tækinu eftir að það var selt í ann-
að sinn og þá fyrirtækinu Heklu
hf. og sýnir það hversu vel Steini
var liðinn hjá húsbændum sínum.
Ég held að allir sem kynntust
Steina hafi dáðst að áreiðanleika,
tryggð og drengskap hans. Steini
var vel greindur maður, hæglátur,
fastur fyrir í skoðunum, átti auð-
velt með að sjá skoplegu hliðar
lífsins og jafnframt vel hagmælt-
ur.
Nú þegar Steini er horfinn yfir
móðuna miklu er margs að minn-
ast sem of langt yrði upp að telja,
en ég og fjölskylda mín viljum
þakka Steina fyrir margar og góð-
ar samverustundir. Við biðjum
Guð að blessa eftirlifandi systur
hans, en það verður eflaust tóm-
legt að Grettisgötu 6a, nú þegar
Steina nýtur ekki lengur við.
Minningin um góðan dreng mun
lengi lifa.
Bjami Pálmarsson
Minning:
Bjarni Jónsson
frá Dalsmynni
Fæddur 27. nóvember 1892
Dáinn 16. júlí 1985
Þegar okkur barst fréttin um að
Bjarni væri dáinn urðum við
undrandi þrátt fyrir að hann væri
á nítugasta og þriðja aldursári
þegar hann lést þann 16. júlí, eftir
skamma sjúkrahúslegu. Það var
næstum eins og okkur fyndist að
hann yrði eilífur. Hann var eins og
klettur sem alltaf er á sama stað,
ávallt traustur og fastur fyrir og
sagði aldrei neitt vanhugsað og ef
eitthvað hafði fallið í gleymsku
frá liðnum árum gat Bjarni ávallt
rifjað það upp. Hann fylgdist það
vel með öllu að manni fannst aldr-
ei vera hægt að koma honum á
óvart og óhætt er að fullyrða að
hans andlega atgervi brást aldrei
þótt heyrnin væri farin að dofna
undir það síðasta.
Við systkinin ætlum ekki að
fjölyrða um uppvaxtarár eða ævi-
feril Bjarna, það myndu aðrir eiga
auðveldara með en við, enda sá
ferill það mikill að vöxtum að efni
væri í veglega bók. Við erum börn
síðari konu Bjarna, sem er Jensía
Guðlaugsdóttir frá Steinstúni við
Norðurfjörð. Við áttum hluta
okkar bernskuára sem fósturbörn
Bjarna og viljum með þessum
skrifum þakka honum fyrir þá
góðu og traustu handleiðslu, sem
hann 'veitti okkur. Það er
skemmtilegt að hugsa til baka
þegar við komum í Dalsmynni
1952, þá eru tímamót í búskapar-
háttum, ennþá er hesturinn við
völd í sambandi við heyvinnu, en
skömmu seinna leysti dráttarvélin
hestana af hólmi að mestu. Eftir á
að hyggja finnur maður hve
þroskandi tími þetta var, maður
kynntist hestinum í vinnu og leik
og var Bjarni ólatur að veita
manni tilsögn um hestinn og bera
virðingu fyrir honum.
Nú líður tíminn og við sjálf eld-
umst og eignumst börn og minni
tími gefst til samfunda. Það var
því notalegt að koma á heimili
fóstra og móður okkar með börnin
og rifja upp gamlar minningar.
Enda reyndist hann þeim góður
afi.
Þó þessi skrif séu fátækleg eru
minningarnar það ekki og er
okkur ljúft að eiga þær.
Á sólríkum júlídegi var Bjarni
lagður til hinstu hvílu í Saurbæj-
arkirkjugarði, þá skartaði Kjal-
arnesið sínu fegursta.
Við og fjölskyldur okkar minn-
umst hans með hlýhug, samúð-
arkveðjur til aðstandenda.
Hilmar Hjartarson,
Sigríður Matthíasdóttir.
Húsbyggjandinn ’85
HÚSBYGGJANDINN ’85 — árleg
handbók húsbyggjenda — er komin
ÚL Húsbyggjandinn er nú stærri og
viðameiri en fyrr eða 218 blaðsíður,
að miklu leyti í lit Upplag ritsins er
tíu þúsund eintök. Húsbyggjandan-
um ’85 er dreift ókeypis til allra, sem
fengið hafa úthlutað lóð undanfarin
þrjú ár. Ritið er einnig sent á teikni
stofur og til fyrirtækja, sem tengjast
ðyggingariðnaðinum.
Efni þessa árgangs er fjöl-
breytt. Má til dæmis nefna grein-
ar, þar sem sérfróðir menn fjalla
ítarlega um fjármál í sambandi
við húsbyggingar og fasteigna-
markað. Margar greinar eru í
blaðinu um ýmis konar nýjungar,
rækilega er fjallað um margvísleg
atriði í sambandi við lóðir, skipu-
lag þeirra og ýmislegt sem að þvi
lýtur; eldhús, gufuböð; glugga-
tjöld; húsnæði handa öldruðum og
fötluðum; nýjungar í orkusparnaði
við lýsingu og verndun viðar gegn
veðrun og fúa — svo að nokkuð sé
nefnt.
Útgefandi Húsbyggjandans ’85
er Húsbyggjandinn sf. Bolholti 6 í
Reykjavík. Ritstjóri og ábyrgðar-
maður er Gísli G. Gunnarsson.
t
Konan mín,
HALLA MAGNÚSDÓTTIR,
Sólvangi,
áður Hverfisgötu 21b,
Hafnarfirói,
veröur jarösungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfiröi föstudaginn 26. júlí
kl. 15.00.
Fyrir hönd vandamanna
Jón Helgason.
t
Móöir okkar, tengdamóöir og amma,
MARTA PÉTURSDÓTTIR,
Eskihliö 18,
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. júlí kl. 10.30.
Jóhann Pótur Sigurösson,
Jón Ármann Sigurösson,
Ingibjörg Ölvisdóttir
og barnabörn.
t
Minningarathöfn og útför konu minnar,
ÁSDÍSAR ásmundsdóttur,
Vesturgötu 43,
Akranesi,
fer fram í Akraneskirkju á morgun, föstudag, kl. 11.15.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á sjúkrahús Akraness og
Krabbameinsfélag islands.
Fyrir hönd fjölskyldunnar.
Július Þóröarson.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir,
GUDMUNDUR GARÐAR HAFLIÐASON,
írabakka 2,
er lést 17. júli veröur jarösunginn föstudaginn 26. júlí kl. 1.30 frá
Fossvogsklrkju.
Sigríöur Sólveig Ágústsdóttir og börn.
t
Minningarathöfn um móöir okkar og fóstru,
SIGRÍÐIGUÐJÓNSDÓTTUR .
frá Bæ,
veröur í Langholtskirkju föstudaginn 26. júlí kl. 10.30 fyrir hádegi.
Jarösett veröur aö Reykhólum laugardaginn 27. júlí kl. 14.00.
Ólafur Magnússon,
Gunnlaugur Magnússon
og fósturbörn.
t
Eiginmaöur minn, faöir okkar og tengdafaöir,
HERVAR SIGURVIN ÞÓRÐARSON
frá Súöavík,
Suöurgötu 122,
Akranosi,
veröur jarösunginn frá Akraneskírkju föstudaginn 26. júlí kl. 14.30.
Guömunda Eirfksdóttir, böm og tengdabörn.
t
Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir,
SIGTRYGGUR EIRÍKSSON,
Eskihlíö 5.
Reykjavlk,
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 26. júlí kl. 3
siödegis.
Jarösett veröur i Gufuneskirkjugaröi.
Vilhelmfna Þórdís Vilhjálmsdóttir,
Vilhjálmur Sigtryggsson, Herdfs Guömundsdóttir,
Halla Sigtryggsdóttir, Baldur Bjarnasen,
Þórdís Sigtryggsdóttir, Höröur Halldórsson.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
REYNIS BREIÐFJÖRD VIGFÚSSONAR
frá Flatey á Breíóafiröi.
Guölaug Hulda Valdimarsdóttir,
Bára Reynisdóttir, Smári Einarsson,
Þórunn Ingibjörg Reynisdóttir, Gisli Magnússon,
Eysteinn H. Nikulásson, Laufey Jónsdóttir,
barnabörn og aörir aöstandendur.