Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 47
47
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1985
Franskur leið-
angur á íslandi
Hér á landi er staddur franski
leiðangurinn „ísland 85“. Þetta er
ekki vísindaleidangur í hefð-
bundnum stíl, frekar leidangur
sem setur sér það mark að flétta
saman vísindi og lístir í myndum.
Leiðangurinn er skipaður ungu
frönsku fólki, sem fékk styrk frá
franska ríkissjónvarpinu og m*li-
tæki frá rannsóknarmiðstöð
franska ríkisins, og einnig tóku
franskar ferðaskrifstofur þátt í
kostnaði ferðarinnar.
Tíu manns eru í hópnum, upp-
rennandi landfraeðingar, kvik-
myndatökumenn og aðstoðar-
menn.
Hin vísindalega hlið leiðang-
ursins er mest í myndatöku
jarðmótunarfyrirbæra á Islandi.
Kannanir á jökulrofi, frostverk-
un, sapamyndun í sjó og jöklum,
strandflötum, sandgræðslu,
uppblástri, sjávarrofi og margt
fleira. Hópurinn hefur öll til-
skyld leyfi til slíkra rannsókna
frá rannsóknarráði ríkisins.
Leiðangurinn er mjög vel út-
búinn, hefur meðal annars létt-
vængju, sem nota á við loft-
myndatöku m.a. í innrauðu ljósi.
Áætlunin er að bera saman
loftmyndir við gervitungla-
myndir af íslandi. Með þessu
hyggjast leiðangursmenn nálg-
ast nýja tækni í túlkun gervi-
tunglamynda yfirleitt, og er það
vissulega stórkostlegt að ísland
skuli vera valið til slíkra rann-
sókna og tilrauna.
íslenska vísindastofnunin fær
eintak af öllum myndum. Gerð-
ar verða tvær vísindakvik-
myndir og ein ævintýramynd.
Verða þær kvikmyndir sýndar í
franska sjónvarpinu, en sjón-
varpsstöðin A2 hefur þegar
keypt ævintýramyndina í mjög
þekktan og vinsælan sjónvarps-
þátt sem nefnist „Les carnets de
Laveture".
íslensk tónlist verður notuð í
kvikmyndirnar, en hvaða tónlist
er ennþá óákveðið. Tvímæla-
laust verður þetta góð land-
kynning fyrir ísland á erlendum
vettvangi. Fyrirtækin Álafoss
og Sjóklæðagerðin hafa gefið
hópnum fatnað til að verjast
kulda og rigningu. Þá er ekki
annað en að óska þessum
franska leiðangurshóp velgengi
og vonandi eigum við eftir að
heyra frá honum að lokinni ferð.
— A.T.
Gabriel
HÖGGDEYFAR
Amerísk
úrvalsvara
Þú velur þá gerð sem hentar
Við eigum allar geröir
★ Venjulega
★ Styrkta
★ Extra styrkta
★ Stillanlega
★ Gasfyllta
★ Stýrisdempara
Póstsendum
^ HÁBERGHF.
Skcifunnl Sa — Simi 8*47*88
Ungt fólk á aldrinum 2-26 ára fær
65% afslátt af fullu fargjaldi til Norður-
landanna og Luxemborgsir, aðra leiðina
eða báðar. Bóka má 24 tímum fyrir
brottför og greiða verður farseðilinn að
fullu um leið og bókað er.
Hringdu ísíma 25100 eða komdu við
á næstu sölusluifstofu okkar
FLUGLEIÐIR jm*