Morgunblaðið - 25.07.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ1985
51
Bömmero
Myndbönd
Árni Þórarinsson.
„Stærsta erótíska kvikmynd
aldarinnar" var slagorð auglýs-
ingaherferðarinnar fyrir nýjustu
mynd hjónanna John og Bo Derek,
Bolero. Vafalaust hefur markmið
þeirra hjóna einmitt verið að
skapa slíkt tímamótaverk. En
árangurinn varð einhver mesti
bömmer aldarinnar í bíómyndum.
Bolero var sýnd hér í Austur-
bæjarbíó í prentaraverkfallinu í
fyrra og fór því sjálfsagt fram hjá
mörgum. Þeim má nú bæta það
upp á myndbandi. f Bolero gefst
kostur á að sjá englakroppinn á
frú Derek frá hinum ýmsu sjónar-
hornum, gjarnan í mjúkum slæðu-
sveipuðum fókus, hægagangi
(slow-motion) og þegar hápunkt-
um er náð, frystum myndrömmum
(freeze-frame). Allt er það voða
intressant, svona álíka merkileg
lífsreynsla og að fletta einum ár-
gangi af Playboy. Með þessum
listrænu samfarastellingum frú-
arinnar, er sögð ofurlítil saga,
Bo í gufubaði í Bolero
skrifuð af herra Derek, um unga
enska hefðarfrauku með því heill-
andi nafni Ayre McGillivray sem
kveður skólann sinn á þann hátt
að taka niður um sig fyrir framan
kennarana og leggur upp í lang-
ferð með Catalínu, vinkonu sinni
og þjóninum dygga, Cotton (aum-
ingja George Kennedy í mestu
niðurlægingu ferils síns), til að
missa meydóminn. Fyrst verður á
vegi hennar arabískur sheik sem
ekki stendur sig sem skyldi, en á
Spáni fer hagur meyjarinnar að
vænkast í örmum myndarlegs
nautabana. Og þar finnur Ayre
McGillivray eftir nokkur skakka-
föll kynferðislega sælu.
Þessa þroskasögu túlkar frú
Derek af þeirri dýpt og tilfinningu
sem unnt er að ætlast til af vel
tálguðu sápustykki. Og hún er
kvikmynduð og klippt af herra
Derek eins og um uppstillingu
fyrir karlatímarit sé að ræða. Það
er svo sem við hæfi.
Bolero er ekki listræn klám-
mynd, heldur aðeins rándýrt
heimilisföndur tveggja kjafta-
dálkapersóna frá Hollywood sem
fengið hafa nokkrar ranghug-
myndir um eigið ágæti.
Stjörnugjöf:
Bolero *
Fislétt
Myndbönd
Árrti Þórarinsson
Eitt af því sem tilfinnanlega
vantar á myndbandaleigurnar hér
lendis eru sýnishorn af eldra
Hollywoodgríni af fáguðu sort-
inni, myndir leikstjóra eins og
Billy Wilder, Frank Capra og leik-
ara eins og Cary Grant, James
Stewart. Miklu algengara er að
slíkar myndir reki á fjörur ís-
lenska sjónvarpsins. Þetta er af-
slöppuð, fislétt afþreying sem
notalegt er að eiga aðgang að.
Gamanmyndin That Touch of
Mink er af þessu tagi og hún fæst
allvíða hér á leigunum. Hún er að
vísu ekki í úrvalsdeildinni, gerð
1962 af minni háttar spámanni,
Delbert Mann, en er prýdd
hnyttnu handriti eftir Stanley
Shapiro og Nate Monaster, og um-
fram allt sérlega skemmtilegum
og þjálfuðum leikhópi, þar sem
eru Cary Grant, sá óviðjafnanlegi
sjarmör og snillingur í skopleik,
Doris Day og í aukahlutverkum
Gig Young, Audrey Meadows og
John Astin. Grant er forríkur,
ókvæntur viðskipajöfur sem einn
vondan veðurdag ekur framhjá
Day, ungri atvinnulausri stúlku,
þar sem hún er á gangstétt og
skvettir yfir hana úr stórum rign-
ingarpolli. Grant er séntilmaður
og býður Day skaðabætur, en fær í
staðinn á sig hnapphelduna áður
en yfir lýkur og eftir mikinn mis-
skilning, mörg ferðalög til Ber-
muda, farsakenndar uppákomur,
eltingarleik og pilsaþyt. Day og
Grant eiga þarna í höggi við
teprulegan kynferðismóral og tog-
streitu peninga- og tilfinninga-
gengis. Leikararnir fara á kostum
í dellunni sem er óvenju geindar-
lega skrifuð. Sem dæmi má taka
þessi ummæli um árangur kven-
frelsisbaráttunnar í hnotskurn:
„Karlar hafa komið ár sinni vel
fyrir borð. { tvö þúsund ár höfum
við eldað matinn þeirra, alið upp
börnin þeirra, þvegið fötin þeirra
og húsakynni. Og hvað höfum við
fengið í staðinn? Leyfi til að
reykja á almannafæri."
That Touch of Mink er því mið-
ur ekki markaðssett hér með sér-
gaman
Grant — millinn
Day — atvinnuleysinginn
staklega vönduðum hætti. Látum
vera þótt myndin heiti Allt fyrir
minkinn á umbúðunum, en Líf í
loðfeldi á spólunni sjálfri. Verra
er að myndgæðin eru lítil, kópían
rispuð og slitin, og svokallaðir
Eastmanlitir hafa hreinlega vask-
ast út í yfirfærslu á myndband.
Myndin er því í grá-bleiku. En það
er samt gaman að henni.
Stjörnugjöf:
That Touch of Mink *★ 'A
MetsöluHad á hvetjum degi!
VÖRULOFTIÐ, Sigtúni 3, sími 83075.
z,***X*'*
Stór útsala
Hummel íþróttagaliar — verð frá 990 kr.
Ódýra hornið hefur opnað aftur. Verð frá kr. 10.
Heitt kaffi á könnunni
VISA