Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 58

Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ1985 mnmm M Ég get eicki sctt C99 ofan á ristOub bfaub- ba& rbllar alLiaf úfaf." Ég skil ekki orðið til fulln- ustu en virðist það sé rassskelling? HÖGNI HREKKVÍSI Austurstræti eftir breytinguna. Umbætur í Austurstræti Reykvíkingur skrifar: Ég vil koma á framfæri kæru þakklæti til borgaryfirvalda í Reykjavik fyrir þær umbætur sem nú hafa verið gerðar í Austur- stræti. Það hafði nefnilega komið áþreifanlega í ljós að það voru mistök á sínum tíma að setja þess- ar upphækkanir með grasinu í götuna. Bæði var það að þær tóku mikið pláss frá hinum gangandi vegfarendum sem fjölmenna í strætið einkum á góðviðrisdögum og juku þannig á þrengsli og ör- tröð. Og í annan stað kom það í ljós að vegna átroðnings náði gróður ekki að dafna í þeim og þær voru bara moldarflag en ekki gróðurvinjar. Nú hefur verið bætt úr þessu með því að setja í staðinn smekklegar hellur. Þetta held ég að verði til bóta og ýti undir þá þróun sem stefnt var að, að í Aust- urstræti megi þrífast skemmtilegt mannlíf, eins og víða þekkist á göngugötum erlendis. Indverji óskar eftir pennavinum Velvakanda barst fyrir nokkru bréf frá ungum Indverja sem óskar eftir að komast í bréfasamband við Þessir hringdu . . . Þakkir fyrir skilvísi Bryndís Óskarsdóttir hringdi: Fyrir nokkrum dögum varð ég fyrir því að tapa verðlauna- peningi fyrir ökuleikni, sem var mér mjög kær. Ég auglýsti eftir honum og tilkynnti lög- reglunni hvarf hans en hvort tveggja án árangurs. Ég óttað- ist því að hann væri mér glat- aður. En í fyrradag gerðist það að lögreglan hafði samband við mig og sagði að hann væri kominn fram. Lögreglan sagði að barn hefði fundið hann og skilað honum til lögreglunnar. Lögreglumennirnir sögðu mér hins vegar ekki nafnið á þessu barni og ekki heldur hvort það var strákur eða stelpa. Mér þykir miður að geta ekki þakk- að þessum skilvísa finnanda persónulega fyrir skilvísina og vil því biðja Velvakanda að koma á framfæri kæru þakk- læti til hans fyrir mig. Megi skilvísi þessarar ungu mann- eskju verða öðrum til fyrir- myndar. íslendinga sem frætt gætu hann um land og þjóð. Bréfið hljóðar svo í lauslegri þýðingu: „Með bréfi þessu sendi ég öllum fslendingum hlýjar kveðjur, þó ég búi í fjarlægu landi hef ég fengið mikinn áhuga á að vita meira um land ykkar. Ég er 25 ára og hef lokið prófi í rafmagnsverkfræði og starfa nú í rafeindafyrirtæki í eigu indverska ríkisins. Meðal helstu áhugamála minna eru ferðalög, Ijósmyndun og pennavinskapur. f kjölfar leið- angurs sem Indverjar sendu ný- lega til Suðurskautslandsins hef ég fengið mikinn áhuga á heim- skautasvæðum, þjóðum sem þar búa, siðum þeirra, lífsháttum o.s.frv. Vegna þess hversu loftslag, þjóðfélagshættir og efnahags- ástand er gjörólíkt erum við Ind- GIM skrifar: Þegar forráðamenn listahátiðar ætla að velja tónlistarmenn á há- tíðina þá finnst mér að eitthvað mætti gera fyrir unglingana. Þá ég ég ekki við 11 til 12 ára krakka eða fólk um eða yfir tvítugt heldur u.þ.b. 14 til 16 ára. Siðast þegar eitthvað almennilegt var gert fyrir þennan hóp var að mig minn- ir árið 1982 þegar Human Legue komu hingað. Það komu alltaf jassarar og sinfóníu- og óperu- gaurar, en engin popphljómsveit, svo okkur finnst kominn tími til að fá hingað góða og vinsæla hljómsveit. Varðandi þá hugmynd af fá Dire Straits til landsins vil ég segja að þeir eru ekki hljóm- sveit fyrir unglina. Meirihlutinn verjar fáfróðir um þessi fjarlægu lönd. Vonandi getið þig hjálpað mér að finna pennavin á íslandi með því að birta þessa bón mína í blaði ykkar. Ég er þess albúinn að eiga bréfaskipti við hvern þann sem áhuga hefur á að skrifa mér og segja mér frá einhverju sem hann eða hún telur frásagnarvert. Með von um góðar undirtektir, Yðar einlægur N.C. Mishra Fyrir þá sem hafa áhuga á að svara þessu bréfi, fylgir hér utan- áskrift Indverjans en hann skrifar á ensku. Mr. Naba Kumar Mishra Engineer (design) Bharat Heavy Electricals Ltd. Mysore Road, Bangalore — 560026, India. af þeim sem hlustar á þá getur varla flokkast undir það að vera unglingar. Flestir unglingar reyna að fylgjast með og hlusta því á vinsælustu hljómsveitirnar, svo sem Frankie Goes to Hollywood og U2. Ef þið viljið unglingunum vel fáið þá vinsælustu hljómsveit- irnar. Skrifið eða hringið til Velvakanda Hljómsveit fyrir ungl- ingana á Listahátíð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.