Morgunblaðið - 25.07.1985, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 25.07.1985, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 25. JÚLl 1985 63 VALSMENN yfirspiluðu Þróttara gjörsamlega þegar liöin mœttust á Laugardalsvelli í gærkvöldi. Úr- slitin uröu 3:0 og heföu allt eins getaó veriö mun meira skorað í leíknum en Guðmundur Erlings- son markvörður Þróttar sá til þess aö mörkin uróu ekki fleiri. Þróttarar hafa aöeins fengiö eitt stig úr síðustu fimm leikjum sín- um og virðist ástandið nú dökkt hjá liöinu. Valsmenn skora nú i fyrsta sinn þrjú mörk í leik síðan í fjórðu umferð deildarinnar. Liöin skiptust á um aö sækja framan af leiknum i gærkvöldi og Atli Helgason átti tvö þokkaleg marktækifæri snemma í leiknum en brást bogalistin í báöum tilvik- um. Þegar leikiö haföi veriö í rúm- an stundarfjóröung tóku Valsmenn öll völd á vellinum og eftir þaö átti Þróttur ekki möguleika. Fyrsta markiö skoraöí Heimir Karlsson á 36. mínútu og var þetta jafnframt fyrsta mark Heimis með Val. Allur aödragandi aö markinu var mjög góöur svo og markið sjálft. Valur Valsson gaf mjög góöa sendingu á Guömund Þorbjörns- son sem lék upp í horniö hægra megin. Hann gaf góöan bolta fyrir markiö þar sem Heimir var aleinn rétt utan markteigs og skallaöi fal- lega í netið. Valsmenn áttu nokkur mark- tækifæri eftir þetta en allt kom fyrir ekki, inn fyrir línuna vildi knötturinn alis ekki. Strax á þriöju mínútu síöari hálf- leiks skoruðu Valsmenn sitt annaö mark og var undirbúningur þess síst lakari en viö fyrsta markiö. Heimir gaf á Þorgrím Þráinsson sem hljóp fallega meö knöttinn upp í horniö hægra megin og gaf • Heimir Karlsson skallar hór í mark Þróttara. Heimir var aleinn og óvaldaöur eins og myndin ber með sér. Fyrsta mark Heimis með Val. Yfirburðir Valsmanna fyrir á fjærstöngina þar sem Ingvar Guömundsson var illa valdaöur og skallaöi í hliöarnetiö viö fjær- stöngina, algjörlega óverjandi fyrir Guömund í markinu. Síöasta markiö í leiknum kom ekki fyrr en rétt undir lokin en í millitíöinni áttu Valsmenn um þaö bil tug marktækifæra sem ekki nýttust sem skildi. Guömundur markvörður Þróttar varöi mjög vel í leiknum og einu sinni hreint ótrú- lega. Þaö var þegar Ingvar fékk sendingu rétt utan markteigs, skaut mjög föstu skoti viöstööu- laust aö marki en Guömundur kastaöi sér fyrir knöttinn og á ótrúlegan hátt tókst honum aö verja í hornspyrnu. Frábær mark- varsla. Þaö var síöan á 87. mínútu sem Guöni Bergsson skoraöi þriöja og síöasta mark þessa leiks. Boltinn barst inn í vítateiginn þar sem aö minnsta kosti þrír Valsmenn Þróttur — Valur 0:3 reyndu skot en alltaf í varnarmenn. Loks barst boltinn til Guöna sem lagöi hann yfirvegaö fyrir fætur séi og skoraöi meö góöu ckoti í hliö- arnetiö. Laglega gert hjá Guöna sem haföi aöeins brugöiö sér i sóknina. Eins og áöur segir voru yfirburö- ir Vals miklir í þessum leik. Liöiö lék vel en hefði mátt nýta sér þau fjölmörgu marktækifæri sem þeir fengu aöeins betur. Guöni Bergs- son og Guömundur Kjartansson léku best í gær og allar sóknartil- raunir Þróttar voru örugglega brotnar á bak aftur af þeim og bakvöröunum tveimur, Þorgrími og Grími. Magni Pétursson skilaöi hlutverki sínu á miöjunni vel þó svo hann væri ekki mjög áberandi í leiknum og þaö sama má segja um alla leikmenn Vals. Guömundur Þorbjörnsson þyrfti aö nýta tæki- færin betur en hann átti þó mikinn þátt í flestum tækifæra Vals. Þaö er eitthvað meira en lítiö aö hjá Þrótturum. Þaö stóð varla steinn yfir steini í leiknum, nema fyrstu 15 mínúturnar. Guömundur var aö vísu mjög góöur í markinu og nýliöinn Benedikt Sigurösson skilaöi hlutverki sinu sem hægri bakvöröur vei. Aörir leikmenn liös- ins eiga aö geta gert mun betur. I STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 1. deild. Þróttur — Valur 0:3 (0:1) MÖRK VALS: Heimir Karlsson á 36. mínútu, Ingvar Guömundsson á 48. mín. og Guóni Ðergsson á 87. min. GUL SPJÖLD: Kristján Jónsson, Þrótti. DÓMARLBaldur Scheving og komst hann vei frá hlutverki sinu. AHORFENDUR: 560 EINKUNNAGJÖFIN: ÞRÓTTUR: Guómundur Erlingsson 4, Kristján ÞRÍR leikir voru í 4. deild, F-riöli, í gærkvöldi. A Djúpavogi skildu efstu liðin, Neisti og Sindri, jöfn, bæöi liðin skoruðu eitt mark. Þorbjörn Björnsson fyrir Neistann en Þórhallur Jónasson fyrir Sindra með gullfallegu langskoti. Höttur tapaöi fyrir Hrafnkatli á Jónsson 2, Loftur Ólafsson 2, Ársæll Krlst- jánsson 2. Pétur Arnþórsson 2, Daði Harðar- son 2, Atli Helgason 2, Sigurjón Kristlnsson 1. Julius Júlíusson t, Benedlkt Sigurösson 3. Ásmundur Helgason 2, Theodór Jóhannsson (vm. á 67. min.) 2. VALUR: Stefán Arnarson 3, Þorgrimur Þrá- insson 3, Guðfnundur Kjartansson 4, Guðni Bergsson 4. Sævar Jónsson 3. Guðmundur Þorbjörnsson 3, Valur Valsson 3, Ingvar Guð- mundsson 3. Grímur Sæmundsen 3, Magnl Pétursson 3. Heimir Karlsson 3. Egilsstöðum, 2:0, og á Neskaup- staö tapaöi Egill fyrir Súlunni, 2:1. Albert Jensson skoraöi annaö mark Súlunnar, en hitt var sjálfs- mark heimamanna. Aöalsteinn Þóröarson skoraöi mark Egils. Sindri er enn efstur í F-riðlinum, en Neisti fylgir fast á eftir. 4 deild, F-riðill: Sindri enn á toppnum Drengjalandsliðið fer til Noregs DRENGJALANDSLIÐ islands, skipað leikmönnum 15 ára og yngri, heldur til Noregs laugar- daginn 27. júlí nk. þar sem þaö tekur þátt í Noröurlandamótinu sem hefst 29. júlí og stendur til 3. ágúst. Fyrsti leikur liösins veröur gegn Svíum 29.7, þá Dönum 30.7., þann 31.7. verður leikið gegn Englend- ingum, sem eru gestir á mótinu, 1.8. gegn gestgjöfunum, Norö- mönnum, 2.8. verður gefið frí en 3.8. veröur síöasti leikur liösins, gegn Finnum. Skömmu eftir leikinn gegn Finn- um veröur flogiö heim frá Bergen en þar fer mótiö fram. Þjálfari liösins, Lárus Loftsson, hefur nú valiö 16 leikmenn til bátt- töku í mótinu og skipa þann hóp eftirtaldir piltar: Markveröir: Karl Jónsson, Þrótti R. Orri Ýrar Smárason, Selfossi Aðrír leikmenn: Gísli Björnsson, Selfossi Haraldur Ingólfsson, ÍA Tryggvi Tryggvason, ÍA Bjarni Benediktsson, Stjörnunni Siguröur Bjarnason, Stjörnunni Árni Þ. Árnason, Þór Ak. Páll V. Gíslason, Þór Ak. Steinar Adolfsson, Víkingi Ól. Rúnar Kristinsson, KR Þormóöur Egilsson, KR Haraldur Haraldsson, Víkingi R. Egill Örn Einarsson, Þrótti R. Gunnlaugur Einarsson, Val Ólafur Viggósson, Þrótti N. Bjarni Sveinbjörns- son skorinn upp í dag við meiðslunum — sem hann hlaut á Akranesi — Leik- ur ekki meira með Þórsurum í sumar • Bjarni Sveinbjörnuon í bar- áttu viö Jón Sveinsson í Fram. ÞAÐ ER nú Ijóst aö Bjarni Sveinbjörnsson, sem verið hef- ur einn besti maður Þórsliðsins, mun ekki leika meira með liðinu í knattspyrnunni í sumar. Bjarni meiddist í leiknum gegn ÍA á Akranesi á laugardag. i fyrstu voru meiösli hans ekki tal- in mjög alvarieg, en viö rannsókn kom hiö gagnstæöa í Ijós. Bjarni veröur skorinn upp í dag vegna meiösla þeirra er hann hiaut á hné á Akranesi og er nú Ijóst aö hann leikur ekki meira á þessu keppnistímabili. Hann veröur í gipsi í þrjár vikur eftir uppskurö- inn. Þaö þarf ekki aö taka fram hversu mikil blóötaka þaö er fyrir Þórsliöiö aö missa Bjarna. Hann er markahæsti leikmaöur liösins í sumar — haföi skoraö sjö mörk, og veriö hættulegasti sóknar- maöur liösins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.