Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 64

Morgunblaðið - 25.07.1985, Síða 64
 OSKJUHLID KEILUSALUWIWW OPIWW 1000-00.30 HlfKKUR í HBMSKEÐJU FIMMTUDAGUR 25. JÚLÍ 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 30 KR. Geri ráð fyrir að skila útgerðinni tvöföldu verði — segir forstjóri íslenskra matvæla hf., sem flutti út ópillaða rækju í gær ÍSLENSK matvæli hf. í Hafnarfirði eni nú að gera tilraunir með útflutn- ing á rækju í skel. Sigurður Björns- son, framkvæmdastjóri fyrirtækis- ins, sagði í samtali við Morgunblað- ið, að hann hefði flutt út eitt og hálft tonn af ópillaðri rækju til Svíþjóðar í gær, miðvikudag, með áætlunarflugi Flugleiða. „Ég veit ekki til þess að neinn hérlendis hafi reynt útflutning á rækju á þennan hátt fyrr og er þetta algjör tilraunastarfsemi hjá mér. Ég reikna þó með að geta skil- að útgerðarfélögunum, sem tilbúin eru í samvinnu, tvöföldu því verði sem þau fá með því að leggja hana upp hér á landi,“ sagði Sigurður. „Við erum að gera þetta í sam- vinnu við Húsvíkinga. Við settum suðupotta um borð í annan togar- ann þeirra, Júlíus Havsteen, til þess að sjóða rækjuna. A síðasta sólarhring veiðiferðar er stærri rækjan tekin úr og snöggsoðin um borð og kæld niður. Rækjan kem- ur í höfn á Húsavík á þriðju- dagsmorgnum. Þar býður flutn- ingabíll, sem flytur rækjuna til Keflavíkur, vel ísaða og í 20 kílóa pakkningum. Síðan fer hún um borð í flugvél Flugleiða, sem flýg- ur beint til Svíþjóðar. Rækjan fer að mestu til Gautaborgarsvæðis- ins, væntanlega í kæliborð versl- ana,“ sagði Sigurður. Sigurður sagði að mjög stór rækjumarkaður væri fyrir hendi í Svíþjóð. „Flestir sænskir frysti- togarar, sem eru á rækjuveiðum, frysta rækjuna í skel sinni. Lítið framboð hefði hins vegar verið á frosinni rækju svo íslensk mat- væli væru eingöngu að þessu til að reyna að fullnægja eftirspurninni sem til staðar er. Neitandinn fær rækjuna inn á borð til sín í skel- inni og sér hann síðan um að plokka skelina utan af um leið og hann borðar rækjuna." Þjóðskrá: Breyting kostar tvær milljónir HAFINN ER undirbúningur að umfangsmiklum skipulagsbreytingum á þjóð- skrá. Fela þær meðal annars í sér forritun og aukna tölvuvæðingu, breyt- ingar á meðferð þjóðskrár í vélum og aðrar skipulagsbreytingar á vinnu- brögðum varðandi þjóðskrárhaldið. Liður í þessum breytingum er að færa þjóðskrána úr nafnnúmerum í fæðingardagsnúmer. Heildarkostnaður við þessar skipulagsbreytingar er áætlaður um 2 milljónir króna. „Það er verið að vinna undir- búningsvinnu að ýmsum breyting- um á þjóðskránni, sem nauðsyn- legar eru áður en hægt verður að breyta nafnnúmerum í fæðingar- dagsnúmer", sagði Hallgrímur Snorrason, Hagstofustjóri, í sam- tali við Morgunblaðið. Sagði Hall- grímur að helsta breytingin væri fólgin í að raða skránni í staf- rófsröð eftir bókstöfum, en ekki tölustöfum eins og nafnnúmera- kerfið fæli í sér og til að sú breyt- ing gæti orðið þyrfti að lagfæra nafnritunina sjálfa í skránni. Skráin hefði byggst upp á löngum tíma með misjafnri tækni og því þyrfti að samræma nafnritunina áður en hægt er að raða skránni í stafrófsröð eftir bókstöfum. Hall- grímur sagði að ekki lægi fyrir hvenær þessari undirbúnings- vinnu yrði lokið og breytingin úr nafnnúmerum í fæðingardags- númer kæmi til framkvæmda. Sú breyting væri aðeins hluti af heildarbreytingu á meðferð þjóð- skrár í vélum og ýmsum skipu- lagsbreytingum á vinnubrögðum í sambandi við þjóðskrárhaldið, meðal annars umfangsmikillar forritunar. Þær breytingar væru mjög dýrar, en áætlaður heildar- kostnaður væri um 2 milljónir króna. MorgunblaðiA/Bjarni Þessi mynd var tekin f gær niður Hvítá ofan brúar og er Hvítár- skálinn vinstra megin. Handan klapparinnar hægra megin sér f þakið á Ferjukoti. Kristinn Fjeldsted f Ferjukoti sagði að allar sandeyrar í ánni væru nú óvenjustórar miðað við árstíma og hann hefði ekki í fjölda ára séð undirstöðu brúarstólpans jafn vel og sést á innfelldu myndinni. Hvftá í Borgarfirði óvenju vatnslítil: Klappir og eyrar sem ekki hafa sést í 20 til 30 ár standa upp úr segir Kristján Fjeldsted, bóndi í Ferjukoti „ÞAÐ ER óvenju Iftið vatn í ánni og víða standa upp úr henni klapp- ir og eyrar sem hafa ekki sést í 20 til 30 ár,“ sagði Kristján Fjeldsted, bóndi í Ferjukoti í Borgarhreppi, um ástand Hvítár í Borgarfirði. Sagði Kristján að þetta stafaði fyrst og fremst af því að þurrkar hafa verið miklir að undanförnu og eins væri lítill snjór í fjöllum eftir fremur snjóléttan vetur. „Laxinn hreyfir sig auðvitað lítið við svona aðstæður og því hefur stangaveiðin í þveránum verið léleg," sagði Kristján ennfremur. „Hins vegar hefur netaveiðin í Hvítá sjálfri verið góð að sama skapi. Laxinn held- ur mest kyrru fyrir í hyljunum og fer lítið í þverárnar. Þegar svona lítið er í ánni verður vatn- ið of heitt og laxinn tregur. Hérna fyrir framan bæinn er allt þurrt, en slíkt hefur ekki sést í háa herrans tíð“ ,sagði Kristján Fjeldsted. Samkvæmt heimildum Morg- unblaðsins er svipaða sögu að segja af öðrum ám á Vestur- og Suðurlandi, sem eru flestar óvenju vatnslitlar um þessar mundir. Áfengisvarnanefnd Reykjavíkur: Gegn endurnýjun v ínv eitingaley fa Áfengisvarnanefnd Reykjavíkur hefur lagst gegn endurnýjun vínveit- ingaleyfa til þriggja veitingahúsa. Á fundi borgarráðs á þriðjudag var mælt með endurnýjun, en nefndin hafði leitað eftir stuðningi borgarráðs um synjun leyfanna. Til vara leggur áfengisvarnanefnd til aö sala á bjór- líki verði bönnuð í veitingahúsunum. Veitingahúsin sem sækja um Stærsta seiðaeldisstöðin hér á landi byggð í Ölfusinu Stefnt að framleiðslu stórlaxa til kaldreykingar fyrir erlenda markaði í ÖLFIJSINU er þessa dagana verið að bora eftir heitu vatni fyrir íslensk- sænska fiskeldisfyrirtækið Silfurlax hf. Ef heitt vatn fæst, sem allar líkur eru taldar á, verður stærsta laxeldis- stöð landsins byggð í landi Núpa III í Ölfusi á þessu og næsta ári. Eigendur Silfurlax eru þrír ís- lenskir aðilar og þrír Svíar, og er sænski viðskiptajöfurinn Curt Nic- olin, stjórnarformaður ASEA AS, einn þeirra. Að Núpum verður byggð klak- og seiðaeldisstöð og verður byrjað á því að byggja klakhús fyrir haustið og síðan haf- ist handa við að byggja eldishús, sem þurfa að vera til á næsta ári til að taka við seiðum úr klakinu í haust. f stöðinni verða framleidd allt að einni milljón sjógönguseiða, og er stöðin því 5 sinnum stærri en Kollafjarðarstöðin, sem undanfarin ár hefur verið stærsta seiðaeldis- stöð landsins. Eigendur fyrirtækisins hyggja á framhaldseldi hluta seiðanna í strand- og sjókvíum og hafbeit. Hófu þeir hafbeitartilraunir á síð- asta ári í samvinnu við þrjár aðrar laxeldisstöðvar. Er ákveðið stefnt að framleiðslu stórlaxa til kald- reykingar fyrir erlenda markaði. Hafbeitartilraunirnar miða því að því að auka hlutfall stórlaxins, þ.e. þess hluta laxins sem dvelur 2 ár í sjó, auk þess sem reynt er að auka lífslíkur hafbeitarlaxins. Sjá: „Upphanð rakið til laxveiöi- ferðar í Norðurá“, á bls. 36. endurnýjun leyfa og áfengisvarna- nefnd mælir gegn eru Sælkerinn, Hellirinn og Við sjávarsíðuna. í fréttatilkynningu dómsmálaráð- herra 10. júní síðastliðinn er kveðið á um, að farið verði að tiilögum áfengisvarnanefndar um úthlutun nýrra vínveitingaleyfa. f samtali við Morgunblaðið eftir fund borg- arráðs, kvaðst Jón Helgason, dómsmálaráðherra, ekki hafa tekið afstöðu til umsóknanna, en lagði áherslu á að ráðuneytið væri aðeins bundið af umsögn áfengisvarna- nefnda um úthlutun nýrra vínveit- ingaleyfa. Sex veitingahús sækja um þessar mundir um endurnýjun vínveit- ingaleyfa. Auk fyrrtaldra eru það Bixið á Laugavegi, Góðborgarinn og óðinsvé. Áfengisvarnanefnd Reykjavíkur mælti með umsókn Óðinsvéa á þeim forsendum að veit- ingasalan sé í tengslum við hótelið. Fyrir nokkru var umsókn veit- ingastaðar á Laugavegi hafnað eftir að áfengisvarnanefnd hafði mælt gegn henni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.