Morgunblaðið - 11.08.1985, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR11. ÁGÚST 1985
Morgunblaðið/Júlíus
Það þarf lagni til að komast upp og niður gangstéttarbrúnir en Viðar segir að í þessu sem öðru skapi æfingin
meistarann.
FEGINN AÐ ENGINN
BAUÐ MER FAR
— segir Viðar H. Guönason sem fer allra sinna ferða í hjólastól
VIÐAR H. Guðnason, sem starfar
hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra lagði af stað til læknis á mið-
vikudaginn. Flestir fara einhvern
tíma til læknis en líklega velja
fæstir sama ferðamáta og Viðar.
Hann hefur verið fatlaður frá
16 ára aldri og fer ferða sinna í
hjólastól. Þannig hélt hann af
stað frá heimili sínu á Kópa-
vogsbrautinni, upp Urðarbraut-
ina, síðan Kársnesbraut,
Kringlumýrarbraut og Sléttuveg
til Borgarspítalans. „Mér datt í
hug að reyna þennan ferðamáta
og þetta gekk mjög vel,“ sagði
Viðar í samtali við Morgunblað-
ið. „Á leiðinni upp á spítalann
hafði ég austangjóluna í fangið
og var þess vegna svolítið dasað-
ur. Ferðin tók 35 mínútur og all-
ir í umferðinni voru mjög til-
litssamir. Sem betur fór bauð
mér enginn far því ég vildi
Viðar fór i BorgarspíUlann til að
láU líU á eyrað og tók Einar
Thoroddsen læknir á móti honum.
kanna hvort ég gæti þetta en ég
er handviss um að hefði ég látið
sem ég vildi far hefði ekki staðið
á liðveislu ökumannanna.
Viðar sagðist fara víða á
hjólastólnum en hann mundi
ekki eftir að hafa farið þessa
vegalengd áður. „Ég hef keppt
fjórum sinnum á heimsmeist-
arakeppni fatlaðra og þar kynnt-
ist ég því hvernig hægt er að
bjarga sér þótt maður sé bund-
inn í hjólastól. Ég get nefnt sem
dæmi að á keppninni sem haldin
var í Stoke Mandeville í Bret-
landi árið 1977 ætlaði ég að
skreppa með nokkrum kanadísk-
um félögum mínum sem einnig
voru í hjólastólum niður í bæ að
kaupa mér samloku. Þegar við
vorum komnir dágóðan spöl
spurði ég hvort við værum ekki
að komast á leiðarenda. Þá kom
í ljós að ég þurfti að ferðast sex
mílur til að kaupa samlokuna!
Ég vildi frekar fá mér brauð-
sneið á keppnisstaðnum og snéri
við en þessi saga sýnir vel að það
er hægt að komast allt ef viljinn
og æfingin er fyrir hendi.
Samvinna norrænna hjúkrunarfræðinga:
/T
Arlegur fundur
haldinn á íslandi
Fulltrúafundur Samvinnu nor-
rænna hjúkrunarfræðinga (SSN)
verður haldinn hér á landi 10. 11. og
12. september nk., en slíkir fundir
eru haldnir einu sinni á ári, til skipt-
is á Norðurlöndunum.
Rætt verður um menntun
hjúkrunarfræðinga, stöðu og
ábyrgð með tilliti til þróunar heil-
brigðismála á Norðurlöndum, en
kröfur varðandi menntun hjúkr-
unarfræðinga eru nokkuð mis-
jafnar í löndunum.
Ákveðnum aðila er falið að ann-
ast undirbúning þess efnis sem
lagt er til grundvallar umræðun-
um og er það danskur hjúkrunar-
fræðingur, sem annast efnisöflun
að þessu sinni og hlaut hún til
þess styrk SSN, 10.000 krónur
norskar, sem úthlutað er árlega.
Fundinn munu sækja um 100
manns.
Samvinna norrænna hjúkrunar-
fræðinga (SSN) var stofnað árið
1920. Félagsmenn eru um 200.000
hjúkrunarfræðingar. Stjórn sam-
takanna skipa formenn hlutaðeig-
andi hjúkrunarfélaga. Formaður
Hjúkrunarfélags íslands er Sig-
þrúður Ingimundardóttir.
Húsin verða tilbúin 30. nóvember.
Húsavík:
Sjö sjálfseignarhús
í byggingu fyrir aldraða
SJÖ sjálfseignarhús eru í byggingu á
vegura Hvamms, dvalarbeimilis
aldraðra á Húsavík, og á að afhenda
þau tilbúin 30. nóvember nk. Hvert
hús er 88 fermetrar að stærð, þriggja
herbergja.
Aðalpósthúsið, R-l:
Ný pósthólf
tekin í notkun
NÝ PÓSTHÓLF hafa verið tekin í
notkun í pósthúsinu R-1 í Pósthús-
stræti 5 í Reykjavík. Pósthólfin eru í
kjallara hússins, en gömlu hólfin á
fyrstu hæðinni, sem gegnt hafa hlut-
verki sínu frá árinu 1958, verða nú
senn rifin.
í fréttatilkynningu frá Póst- og
símamálastofnuninni segir að
pósthólf hafi fyrst verið tekin í
notkun í Reykjavík skömmu fyrir
aldamót, í tíð Sigurðar Briem
póstmeistara, sem sjálfur fjár-
magnaði framtakið. Hin nýja
pósthólfadeild er hönnuð af Jósef.
S. Reynis, arkitekt, og eru hólfin
gerð fyrir blöð af stærðinni A4.
Einnig verða leigð hólf, sem eru
þrefalt stærri og henta vel stórum
fyrirtækjum og stofnunum. Fljót-
lega er ætlunin að afhending
krossbands- og ábyrgðasendinga
með pósthólfsáritunum fari einnig
fram í pósthólfadeildinni.
Samkvæmt þeim upplýsingum,
sem fengust hjá Jóhanni Hjálm-
arssyni, blaðafulltrúa stofnunar-
innar, bætast nú við 448 hólf,
verða þau 1.785 talsins í stað 1.337
áður. „Leigunni hefur verið stillt
mjög í hóf“ sagði Jóhann, „en árs-
leiga er nú 230 krónur fyrir minni
hólfin, en 280 krónur fyrir þau
stærri." Einnig vildi Jóhann
Séð yfir pósthólfasalinn.
benda á að því miður væru brögð
að því að fólk merkti ekki póst-
sendingar sínar nægilega vel.
„Nauðsynlegt er að árita póst-
sendingar með fullri póstáritun,“
sagði hann. „Sending sem á að
fara í pósthólf i pósthúsinu R-l,
þarf að vera merkt með númeri
hólfsins og 121 Reykjavík, en ekki
101 Reykjavík, eins og oft vill
verða,“ bætti hann við. „Röng árit-
un getur seinkað pósti verulega."
„Aætlaður kostnaður við heild-
arbreytingu þá, sem fram fer á
stofnuninni um þessar mundir var
áætlaður 13—14 milljónir króna,"
upplýsti Þorgeir K. Þorgeirsson,
forstjóri Umsýsludeildar Póst- og
símamálastofnunarinnar, er hann
var inntur eftir kostnaðarhlið
framkvæmdanna. „Einnig var
Björn Björnsson, póstmeistari í
Reykjavík, og Garðar Einarsson, úti-
bússtjóri á R-l, í hinum nýju húsa-
kynnum pósthólfadeildarinnar.
áætlað að verkinu lyki í septem-
ber, en nú þykir ljóst að það mun
dragast fram í október á þessu ári,
og getur það aukið útgjöldin eitt-
hvað,“ bætti hann við. „Kostn-
aðurinn við sjálf pósthólfin, sem
eru úr stáli, nam 1,7 milljónum
króna.“
í pósthólfadeildinni í pósthús-
inu R-1 vinna átta menn á tveimur
vöktum og verður opnunartími
deildarinnar frá kl. 7:30—20:00
virka daga og á laugardögum frá
kl. 7:30-14:00.
Innan skamms mun svo af-
greiðsla pósthússins R-1 færast í
Hafnarhvol við Tryggvagötu, með-
an á viðgerð og endurnýjun húss-
ins við Pósthússtræti stendur. Ný
afgreiðsla verður svo væntanlega
opnuð aftur í október, á sínum
gamla stað.
Að sögn Harðar Arnórssonar,
forstöðumanns dvalarheimilisins,
eru sex húsanna nú þegar seld og
hafa ýmsir verið að velta því
sjöunda fyrir sér. Hvert hús kost-
ar 2,1 milljón miðað við verðlag í
apríl sl. „Á dagskránni er að
byggja fjögur svona hús í viðbót
seinna meir og síðan kemur til
greina að önnur hús, t.d. raðhús,
rísi á lóðinni, en ekki er farið að
hanna neitt ennþá og verður lík-
lega nokkur bið á. Húsin verða af-
hent tilbúin að utan sem innan, en
með grófjafnaðri lóð.
Fólkið, sem keypt hefur húsin,
er Húsvíkingar, sem eiga fyrir
stærri eignir og vilja losa sig við
þau og fara í minna. Einnig njóta
eigendur húsanna allrar þeirrar
þjónustu sem þeir óska frá dval-
arheimilinu, bæði hvað varðar
læknisþjónustu svo og með þvott,
mat og annað slíkt. Gert er ráð
fyrir fjarskiptasambandi frá hús-
unum inn á elliheimilið."
Hörður sagði að á dvalarheimil-
inu sjálfu væru 48 vistmenn, en 80
manns væru á biðlista. „Aldurs-
takmörkin hafa verið miðuð við
ellilífeyrisaldurinn, en meðalaid-
urinn hjá okkur er 81 ár,“ sagði
Hörður.
Mýyatnssveit:
Loksins
þurrkur
Bjork, MýnlnnKveil, 8. áfpixt.
EFTIR nálega þriggja vikna
óþurrkakafla brá til betra veðurs í
síðustu viku. Voru þá samfelldir
þurrkar frá sunnudegi til föstu-
dags. Mjög hlýtt var suma dagana,
eða milli 15 og 20 stig. Þessa daga
náðist inn mikið af heyi á ágætis
verkun.
Kristján