Morgunblaðið - 11.08.1985, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. ÁGtJST 1985
44
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Atvinna óskast
Ungur maöur nýkominn úr tölvuforritunarnámi
í Danmörku óskar eftir starfi. Tilboö óskast send
augl.deild Mbl. merkt: „Tölvuforritun — 8969“.
Veitingastörf
Hressingarskálinn hf. óskar eftir aö ráöa
starfsfólk til almennra veitingastarfa. Lyst-
hafendur þurfa aö geta hafiö störf sem allra
fyrst. Upplýsingar á skrifstofu.
Hressingarskálinn.
Tískuverslun
Leitum eftir líflegu starfsfólki til afgreiöslu í
verslunum okkar á Laugavegi 12 og nýrri
verslun í Garðabæ. Viökomandi þarf aö hafa
góöa framkomu og vera reglusamur og
áhugasamur um tískufatnaö.
Uppl. í versluninni á mánudag eftir kl. 16.00.
Uiktoria
Laugavegi 12 Reykjavik - Simi 14160
Sölumaður
— prósentur
Óskum eftir aö ráða ungan og frískan sölu-
mann í skammtímaverkefni. Hlutastarf kemur
til greina. Góöir tekjumöguleikar fyrir dugleg-
an aöila.
Umsóknir sendist augld. Mbl. merkt: „Frísk-
leiki — 8531“.
Mosfellssveit at-
vinna
Starfskrafta vantar til afgreiöslu og pökkunar-
starfa hálfan daginn bæöi fyrir og eftir hádegi.
Þarf aö geta byrjað strax. Einnig vantar aö-
stoöarmann viö bakstur.
Upplýsingar á staönum fyrir hádegi.
Mosfellsbakari.
Atvinna/matvæla-
iönaður
Óskum aö ráöa starfsfólk i snyrtingu og pökkun.
í boöi er:
• Starf í undirstöðuatvinnugrein landsmanna.
• Dvöl á Höfn, snyrtilegum bæ í fögru umhverfi.
• Vistlegur vinnustaður.
• Afkastahvetjandi launakerfi.
• Nýlegar verbúöir.
• Gott mötuneyti.
Upplýsingar veittar í símum 97 - 8200 og 97 -
8116.
Fiskiöjuver KASK, Hornafiröi.
Óskum eftir að ráða
Starfsfólk óskast í eldhús og afgreiðslu.
Stundvísi og reglusemi áskilin. Framtíöar--
störf.
Á sama staö óskast starfsmaður meö reynslu
í bókhaldi og helst erlendum bréfaskriftum.
AMERICAN
STYLE
SKIPHOLTI 70 SlMI 686838
MYNDAMÓT HF.
AOALSTRÆTI 6
Offsetljósmyndun -
skeyting
Óskum aö ráöa mann vanan offsetljósmyndun
og skeytingu.
Uppl. gefur Ólafur Brynjólfsson.
1. vélstjóra
vantar á mb. Tjald SH 270.
Upplýsingar í síma 93-6646 og 93-6695.
Rafvirki
eöa maöur kunnur raflagnaefni óskast nú
þegar til afgreiðslu- og lagerstarfa.
Söluumboö LÍR,
Hólatorgi2.
Kennarar
Kennara vantar aö grunnskóla Hólmavikur.
Æskilegar kennslugreinar: Almenn kennsla á
barnastigi, raungreinar og fleira á unglinga-
stigi. Frítt húsnæöi.
Nánari uppl. gefur formaöur skólanefndar í
síma 95-3155 og sveitarstjóri í síma 95-3193.
Skólanefnd.
Setjarar
Viljum ráöa setjara til aö taka aö sér verk-
stjórn i undirbúningsdeild (setningu og filmu-
vinnu). Möguleiki á námi í skeytingu. Þeir sem
áhuga hafa á frekari upplýsingum leggi nafn
og símanúmer inn á augl.deild Mbl. fyrir 16.
ágúst merkt: „S — 8866“. Meö allar umsóknir
veröur fariö meö sem trúnaöarmál.
Atvinna
Óskum aö ráöa:
1. Konur eöa stúlkur til starfa á saumavélar,
hálfan eöa allan daginn.
2. Stúlkur á bræösluvélar, allan daginn.
3. Stúlkur og mann í vettlingaframleiöslu all-
an daginn.
Unniö eftir bónuskerfi sem gefur góöa tekju-
möguleika. Góöur vinnuandi.
Upplýsingar í síma 12200 eöa á vinnustaö.
ÍNl
SEXTÍU OG SEX NORÐUR
Sjóklæöagerðin hf.,
Skúlagötu 51, Reykjavík.
Kennarar
Viö grunnskólana á Höfn vantar kennara í
eftirfarandi stööur:
1. Myndmennt.
2. Stuöningskennslu.
3. Almenna kennslu.
4. Kennslu í 7.-9. bekk.
5. íþróttakennslu.
Góö vinnuaöstaöa, góöar íbúöir á lágu veröi,
greiddur flutningsstyrkur.
Kynntu þér staöinn.
Upplýsingar gefa skólastjórar í síma 97-8321
og 97-8148.
Skólastjórar.
Raddir
Viö vorum aö opna hljóðstúdíó sem framleiöir
auglýsingar og útvarpsþætti og okkur vantar
alls konar raddir (djúpar og skrækar, karl-
manns sem kvenmanns) sem geta lesiö inna
auglýsingar og fleira í þeim dúr. Haföu sam-
band í síma 83880 í dag og næstu daga.
HLJOÐVINNSLA MYNDBANDAGERÐ AUGLYSINGAR
SIGTUNI 7 105 REYKJAVIK SIMI 8 3880
Lagermaður óskast
Viö óskum eftir aö ráöa mann til aö annast
lager og tengd störf sem fyrst. Góö laun fyrir
góöan mann.
Nemendur frá
Verzlunarskóla
íslands
Vegna mikillar eftirspurnar vantar okkur
leikna ritara á skrá til framtíöarstarfa. Ðæöi
er um heils- og hálfsdagsstörf aö ræöa.
Einkum leitum viö aö riturum meö verzlunar-
skólapróf eöa sambærilega menntun. Skilyröi
er aö viðkomandi hafi góöa vélritunar- og
tungumálakunnáttu.
í mörgum tilfellum munu starfsmenn einnig
vinna viö tölvu. Æskilegt er aö viökomandi
geti hafiö störf sem fyrst. Fyrirtæki bjóöa upp
á góö laun ásamt þægilegri vinnuaöstööu.
Skrifstofustörf
Höfum veriö beðin um að útvega nú þegar
eftirfarandi starfsmenn til þjónustustarfa:
a) Einkaritara meö leikni í vélritun og góöa
kunnáttu í ensku og einu Noröurlandamáii.
Um heilsdagsstarf er aö ræöa.
b) Fulltrúa. Þarf aö geta annast almenn gjald-
kerastörf. Viö leitum aö töluglöggum, ábyrg-
um starfsmanni. Um fullt starf er aö ræöa.
Vinnustaður er í miöborg Reykjavíkur.
c) Fulltrúa. Þarf aö geta sinnt almennum skrif-
stofustörfum. Viö leitum aö starfsmanni meö
góöa vélritunar- og tungumálakunnáttu. Um
heilsdagsstarf er aö ræöa og viökomandi þarf
aö geta unniö sjálfstætt.
d) Launafulltrúa. Mun sjá um launamál fyrir-
tækis, launabókhald sem unniö er í tölvu,
uppáskrift reikninga ásamt eftirlit meö inn-
kaupum og útgjöldum. Hér er einnig um heils-
dagsstarf aö ræða.
e) Ritara. Mun annast vélritun, símavörslu og
almenn skrifstofustörf. Vinnutími er frá kl.
13.00-17.00. Vinnustaöur er í þægilegri leiö
fyrir Breiöholtsbúa.
Ekki er gert aö skilyrði aö umsækjendur hafi
reynslu af ofangreindum störfum, en þekking
á almennum skrifstofustörfum er æskileg.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni frá kl. 9-15.
Afleysinga- og ráðningaþjónusta
Lidsauki hf. W
Skólavördustig la - 101 fíeykjavik - Sími 621355