Morgunblaðið - 18.09.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.09.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985 23 un Krists, fullkomna merkingu brotthlaupsins af Egyptalandi. Prestar skulu prédika um ná- unganskærleik af stólnum með vélbyssu undir hempunni. Eftir messu taki þeir sig til við að plaffa niður þau sóknarbörn sem hafa auðvaldssvip á andlitinu. Þannig er ráðin bót á eymd, volæði, niður- lægingu og synd, á öllu fráhvarfi frá vilja guðs. Byltingin er vilji guðs. Undarlegt er, að sömu menn og prédika þessa ömurlegu þvælu, vitna gjarnan í þýzka lúterana, sem vilja telja Vesturlandabúa á að Vesturlönd leggi niður allar varnir. En fólk í Suður-Ameríku á að steypa sér út í byltingu og blóð- ug átök. Þetta virðist stangast á. En þegar að er gáð býr sama hugsuninaðbaki. Réttur til ofbeldis Setjum sem svo, að sá sem verð- ur fyrir ofbeldi öðlist rétt til of- beldis. Setjum sem svo, að sá sem ræðst inn á heimili og tekur heim- ilisföður og -móður í dauðabúðir, sé sjálfur réttdræpur. Er þá ekki sama, hvar voðaverkið er unnið? Ef það er fordæmanlegt, þegar það er unnið í Chile, er það þá ekki jafnfordæmanlegt þegar það er unnið í Suður-Afríku, Kína eða Sovétríkjunum? Einhverra hluta vegna hef ég ekki orðið var við að guðsfrelsararnir hafi tekið upp hanzkann fyrir Andréj Sakharoff, mann, sem berst af einlægni og hugrekki fyrir mannréttindum. Réttlæti guðs virðist fara eftir sérkennilegum landfræðilegum línum. Ekkert er hræðilegra í lífi þjóðar en borgarastyrjöld, þegar bræður berast á banaspjót. Sá sem hvetur til borgarastyrjaldar hlýtur að vera fullur grimmdar. Sjálfsagt þarf grimmd til að framfylgja vilja guðs. Óréttlátt yfirvald óttast þegnana. Sá sem fer með hernaði gegn því og finnst hann þurfa að myrða bróður sinn til að stofna (guðlegt) réttlæti, gerir sjálfan sig að hræddum kúgara. Réttur til varnar Það er mikill og stór munur á því, hvort menn halda því fram, að þeir hafi rétt til að vaða uppi gegn náunganum og drepa hann ef hann hagar sér ekki að vilja Flokksins, eða hvort menn halda því fram að þeir hafi rétt til að halda fast við grundvallarmann- réttindi, rétt til lífs og sjálfsvirð- ingar, rétt til að verja sig gegn yfirgangi og árás. Það er mikill munur á því, hvort menn stefna vitandi vits að of- beldisþjóðfélagi (gúlagþjóðfélagi), eða hvort menn halda fram rétti einstaklingsins til frelsis og verja hann, hvað sem á dynur. Það er mikill munur, hvort menn halda fram rétti til árásar og yfirgangs, eða hvort menn forðast slíkt, en áskilja sér rétt til andspyrnu, ef ráðist er á þeirra helgustu vé. Það skýtur nokkuð skökku við, að þeir sem láta hæst um „frið“ styðja hvað fastast ofbeldisöflin í heimin- um, berjast jafnvel af hörku í þeirra þágu. Vestræn ríki hafa neyðst til að lýsa yfir vilja til að verja þann grunn, er menning þessara ríkja byggir á. Hvenær sem sá vilji hvikar, er mannréttindalaust of- beldisþjóðfélag á næsta leiti. Er það það, sem „friðarsinnar" og guðsfrelsarar miða að? Stefna, sem boðar ofbeldi, er ekki þess virði að lifa fyrir, því að hún niðurlægir manninn. Hugsjón hlýtur að vera eitthvað sem er þess virði að lifa fyrir — og þá einnig að deyja fyrir. Höfundur er dósent við Heimspeki- deild Háskóla íslands. ímyndir og sjón- færðar ljóðmyndir IMAGES - kver með Ijóðum eftir Thor Vilhjálmsson og myndum eftir Örn Þorsteinsson kom út síðastliðinn föstudag. Bókin kemur út í tengslum við norrænu Ijóðlistarhátíðina sem nýlokið er í Norræna húsinu og eru Ijóðin á ensku. „Bókagerðarmennirnir hafa ábyggilega sett heimsmet í út- gáfuhraða," sagði Thor á blaða- mannafundi sem þeir félagar efndu til vegna útkomu bókar- innar. „Þeir brugðust svo fljótt og vel við og sýndu verkinu svo mikinn áhuga. Síðustu prófark- irnar voru lesnar daginn áður en bókin kom út.“ Fyrir þremur árum kom .út samskonar bók eftir örn og Thor sem bar nafnið Ljóðmyndir. Segja má að Images sé ensk út- gáfa hennar, því mörg ljóðanna eru hin sömu „endurort á ensku“ eins og Thor komst að orði. Einnig er bætt við nýjum ljóðum og myndum. Ljóðmyndir var gefin út sam- tímis sýningu Arnar. „Örn sendi mér margar arkir með þessum teikningum og ég ætlaði að yrkja við, en einhvern veginn gerðist ekki neitt, mér fannst myndirnar fallegar, ekki vantaði það, en samt höfðu þær ekki nóg áhrif. En örn var alltaf að ýta á eftir þessu, svo þar kom að, sennilega fyrir hans tilstilli, að flóðgáttirn- ar opnuðust og ljóðin urðu til. Svo raðaði hann saman myndum og ljóðum." Thor og örn hafa nýlega lokið gerð sjónvarpsþáttar með ljóðum úr bókinni. Nefnist sá þáttur Ljóðmynd en auk þeirra félaga unnu Kolbrún Jarlsdóttir og Karl Sigtryggsson að gerð hans. „Við sjónfærðum ljóðin," sagði Thor, „taktu eftir því, þetta er nýyrði." Þátturinn verður sýndur í sjónvarpinu á miðvikudags- kvöld. „Okkur dauðlangar að gera meira, það er ótrúlegt hvað hægt er gera margt með mynd- bandi, möguleikarnir eru óend- anlegir. Þar notum við líka lit- myndir eftir örn, svo myndmálið er mun fjölbreyttara." í þættin- um les Thor ljóð sín, meðan myndavélin syndir gegnum myndverk Arnar. „Það spillir ekki heldur að Kolbrún er göldr- ótt, hún getur látið tækin gera hvað sem er.“ Images verður til sölu í Gallerí Grjót við Skólavörðustíg og Gall- erí Borg. 250 tölusett eintök voru gefin út. Þorsteinsson með bókina nýju. MorgunblaAiA/ól.K.Magn. Thor Vilhjálmsson og öm Dansskólarnir eru margir en aöeins einn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.