Morgunblaðið - 18.09.1985, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
45
Tónlistarskóli Gerðahrepps settur:
Engir nemendur í
gítar- eða fíðlunámi
Garói, 16. september.
Tónlistorskólinn í Garði var settur
sl. sunnudag í húsi tónlistarskólans
ad Eyjaholti 2. Það var Jónína Guð-
mundsdóttir yfirkennari sem setti
skólann.
Nemendafjöldi verður um 60 í
vetur en það er svipaður fjöldi og
var í fyrra. Ákveðið hefir verið að
vera með lúðrasveit og barnakór í
vetur auk hins þekkta bjöllukórs
sem lét mikið að sér kveða í fyrra
og spilaði m.a. fyrir landsmenn
alla í sjónvarpinu.
Flestir nemendur verða í píanó-
námi. Þá eru klarinett og þver-
flauta einnig mjög vinsæl. Aftur á
móti eru það svo fáir sem vilja
læra á gítar að ekki reyndist hægt
að halda uppi kennslu í þeirri grein
og enginn óskaði eftir því að læra
á fiðlu svo ótrúlegt sem það nú er.
Fjórir kennarar verða við skólann
í vetur en voru sex í fyrra.
Tónlistarskóli Gerðahrepps hef-
ir undanfarin ár verið útibú frá
Tónlistarskólanum í Keflavík og
er það reyndar enn en nú einungis
að nafninu til. Sótt hefir verið um
að skólinn verði sjálfstæður en
frá því hefir enn, ekki verið gengið
formlega.
Arnór.
Húsavík, 17. september.
SÍLDVEIÐI í lagnet hefur verið
stunduð á smábátum frá Húsavík
undanfarin haust með góðum ár-
angri. Veiðar mátti hefja síðastlið-
in mánaðamót, en veiðin verið lítil
sem engin. Þó hefur hún aðeins
glæðst síðustu dagana. Síldin sem
veiðist er falleg, en virðist síðar á
ferðinni en undanfarin ár, eða sú
vona menn að sé skýringin á
dræmri veiði.
Fréttaritari
Húsavík:
Dræm veiði
í lagnetin
Innilegustu þakkir sendi ég sonum mínum, tengdadætr—
um, ættingjum og sveitungum, svo og öllum þeim sem
glöddu mig og konu mína meö heimsóknum, gjöfum og
góöum kveðjum á sjötíu ára afmæli mínu þann 4. ágúst.
Sigurður Magnússon,
Hnjúki.
getrmma -
VINNINGAR!
* ^
4. leikvika — leikir 14. sept. 1985
Vinningsröö: 1X1 — 12 2— 12X—1X1
1. vinningur 12 réttir
61341 37976 (4/11) 44165 (4/11) 101941 (6/11)
13680 (2/11H- 43725 (4/11K 87582 (6/11) 103659 (6/11)
36123 (4/11H 43976 (4/11) 100471 (6/11)+ 104165 (6/11)
36819 (4/11)
2. vinningur: 11 róttir
239 13411 38989 47710 86259 100935 103890
614 13484 39037 47801 86264 101106 104001
1668 13473 40094 47859+ 86400 101208+ 104037+
2097 13650+ 40307+ 48023 86606 101261 104041+
2232 13660+ 40444 48283 87103 101573 104166
2541 13672+ 40447 49896+ 87173 101680 104260+
2897 13677+ 40462 49061 87331+ 101722 166487
2914 13678+ 41097+ 49382 87422+ 101944 36712*
4213 13679+ 41239 49767 87423+ 102149 47795*
5078+ 13760+ 42097 50672+ 88016 102209 48014*
6305 35227 42272+ 51082 88087 102223 52950*+
6370 35328 42430 51860+ 88229+ 102370 87890*
6409+ 35578 42867+ 52332 90181 102553 101215*+
6534 36122+ 43189+ 52629 90284 102566 102525*+
8232 36124+ 44196 52631 90585+ 102570 104022*
8563 36126+ 45567 52665+ 90621+ 102689 Úr 3. vtku:
8820 36129+ 45774 52705+ 90624+ 102799+ 5789
9260 36132+ 45817 52822 90652+ 102951 47740
9786 36141+ 45997+ 85611 92347 102966
10867 36895+ 46201 85647 92409+ 103535+
10868 37500 46296 85691 100139 103539
11219 38058 46685+ 85774+ 100563 103662
11439+ 38143 47396 85873 100582 103693
12408+ 38154 43721+ 86097 100932 103725
íslenskar Getraunir, íþróttamiðstödinni vlSigtún, Reykjavík
Kærufrestur er til 7. okt. 1985 kl. 12 k hádegi.
Kæruf skulu vera skritlegar Kænjeyöublöó fást hjé umboösmönnum og á sknfstotunm i
Reykjavík Vinningsupphæöir geta lækkað. et kærur veröa teknar til greina
Handhafar natnlausra seðla (+) veröa aö framvísa stofni eöa senda stotninn og tullar
upptýsingar um nafn og heimilistang til Islenskra Getrauna tyrir lok kærutrests
Hans Georg afsalar sér Evrópumeistaratitilinum í hendur landa sínum Wolfgang Berg, sem nú keppti í fyrsta sinn á
Evrópumóti.
Hreggviður Eyvindsson á Fróða frá Kolkuósi.
isgleðin í fyrirrúmi. Eiríkur Guð-
mundsson og Hildingur voru þeir
einu af íslenska liðinu sem ein-
hverjar vonir voru bundnar við.
Helstu keppinautarnir voru þeir
Prati, Fjölnir og Blossi frá End-
rup. Farnir voru alls fjórir sprett-
ir, tveir á föstudag og tveir á
sunnudag. Eftir fyrri daginn var
Dorte Rasmussen á Blossa með
besta tímann, 23,3 sek. en Eiríkur
kom næstur með 24,5 sek. Aðal-
steinn á Rúbín náði 25,0 sek. og
Hoyos á Fjölni með 25,1 sek. A
sunnudeginum tryggði Dorte
Rasmussen sér sigur í skeiðinu er
Blossi skeiðaði á 22,7 sek. sem er
9/10 úr sekúndu betri tími en
danska metið var. Þess má geta að
Dorte er aðeins 18 ára gömul og
ættu þessar fréttir að vera ís-
lensku kvenfólki hvatning til frek-
ari þátttöku í skeiðkeppnum hér
heima. Annar í skeiðinu varð Dan-
inn Stefan Langvad sem keppti á
Sörla frá Húsafelli og tíminn 24,0
sek. Sem sagt, tvöfalt hjá Dönum í
skeiðinu. Eiríkur varð svo þriðji á
24,5 sek. en Hildingur lá aðeins
þennan eina sprett af fjórum sem
farnir voru.
Allt á suöupunkti í
gæðingaskeiðinu
Gæðingaskeiðið fór fram á laug-
ardageftirmiðdegi og töldu tslend-
ingar sig eiga þar nokkra mögu-
leika á sigri, í versta falli ein-
hverjum verðlaunum. Kom það
reyndar á daginn að svo var þótt
allt yrði það tekið af okkar
mönnum. Ballið byrjaði með því
að Eiríkur Guðmundsson fór fyrri
sprettinn án þess að nota hjálm en
skylt var að nota hjálm. Því má
reyndar skjóta hér inn að f Sví-
þjóð er lögboðið að nota hjálm í
öllum opinberum keppnum og sýn-
ingum á hestum en þar sem slíkt
hefur ekki tíðkast á Evrópumótum
var veitt undanþága frá því á
þessu móti en þó ekki í skeiðgrein-
unum. Seinna var Eiríkur kærður
fyrir þetta og verður vikið að því
seinna. Fljótlega eftir að keppnin
hófst í gæðingaskeiðinu varð ís-
lendingum ljóst að svissneski
dómarinn sem dæmdi niðurhæg-
ingu túlkaði reglurnar þvert ofan f
það sem gert er hér heima og gert
var á siðasta Evrópumóti. Eftir að
tímatöku lýkur kemur þessi niður-
hægingarkafli og á þá að hægja
hestinn mjúklega niður á skeiði,
tölti eða brokki og talið gott ef
hesturinn er kominn á fet áður en
keppandinn er kominn úr dóm.
Þannig var niðurhægingin hjá
bæði Benedikt og Aðalsteini en sá
svissneski gaf þeim 5 i einkunn
(hæst gefið 15). Hildingur fór hins
vegar á fullri ferð með Eirík gegn-
um allan þennan kafla og fékk
fyrir það 12. Voru fleiri slíkar
uppákomur með aðra keppendur
svo þeir Benedikt og Aðalsteinn
vissu ekki hvaðan á sig stóð veðrið
og fóru þeir ásamt Ragnari liðs-
stjóra til Schabosar sem er forseti
íþróttamála FEIF og gerðu
athugasemd við það sem þarna
var að gerast og fóru fram á að
stutt hlé yrði gert á keppninni.
Ekki kvaðst Schabos geta veitt
það. Ákváðu þá Benedikt og Aðal-
steinn að hætta keppni en nú
skrast í leikinn Stefan Purrucker
þulur keppninnar og sagði hann
að þeir Benedikt og Aðalsteinn
hefðu sanngjarnan möguleika á að
fá leiðréttingu eftir keppnina og
Schabos tók undir það. Skoruðu
þeir á þá félaga að halda áfram
keppni og í trausti þess halda þeir
áfram. Tók þessi rekistefna nokk-
urn tíma og varð til þess að Aðal-
steinn mætti of seint en fékk að
fara síðastur seinni sprettinn.
Eftir keppnina var þetta reynd-
ar tekið fyrir en ekki á þann hátt
sem íslendingarnir áttu von á því
Aðalsteinn var dæmdur úr leik
fyrir að mæta of seint ( keppnina
og Eiríkur fyrir aö nota ekki
hjálm í öðrum sprettinum. Meðal
þeirra sem stóðu að þessari ákvörð-
un var Schabots, Hággberg móts-
stjóri og Marlisa Grimm yfirdóm-
ari. Var ekki verið að hafa fyrir
því að tilkynna Eiríki og Ragnari
liðsstjóra að Eiríkur væri dæmdur
úr leik og stóðu allir íslendingarn-
ir í þeirri trú að hann hlyti önnur
verðlaun i mótslok. Þótti þessi
málsmeðferð hreint fáránleg og
má nefna að íslensku dómararnir
sem dæmdu gæðingaskeiðið fengu
ekki að vita neitt um það sem var
að gerast og hvorki Aðalsteini né
Eiríki gefinn kostur á að skýra
sína hlið á málinu. Áttu þeir með
réttu annað og þriðja sætið í þess-
ari keppnisgrein því hvergi stend-
ur í keppnisreglum FEIF að nota
beri hjálm og varðandi Aðalstein
má segja að hann hafi verið órétti
beittur. Sigurvegari varð Vera
Reber Þýskalandi á Frosta frá
Fáskrúðarbakka en sæti Eiríks og
Aðalsteins skipuðu Johannes Hoy-
os á Fjölni og Martin Helles Sviss!
á Hrafni frá Bjóluhjáleigu. Þökk
sé svissneska dómaranum!
Kristján dæmdur úr
leik í víðavangnum
Víðavangshlaupið sem fram fór
á föstudagskvöldið var eiginlega
forsmekkurinn að því sem koma
skyldi i gæðingaskeiðinu, en þar
var Kristján Birgisson dæmdur úr
leik þar sem hann fór af baki hesti
sínum við eina hindrunina. Eftir
því sem Ragnar liðsstjóri tjáði
blaðamanni þá er ekki getið um
það í keppnsireglunum að kepp-
andi skuli dæmdur úr leik þótt
hann falli af baki heldur fái hann
aðeins +stig fyrir það. Fékkst eng-
in leiðrétting á þessu frekar en i
gæðingaskeiðinu.
Hreggviður Eyvindsson á Fróða
varð í 4. sæti en sigurvegari varð
Line Haugslin Noregi á Snækolli
frá Eyvindarmúla, Els van der
Meulen á Eldir frá Groot Lankum
2. og Mariyke van de Graaf Sviss á
Heru frá Neudorf 3.
Hér hefur verið stiklað á stóru
um gang mála í hvérri keppnis-
grein fyrir sig í þeirri von að þeir
sem ekki höfðu tækifæri til að
heiðra mótið með nærveru sinni
og þá um leið að fylgjast með at-
burðarásinni í nærmynd, fái ein-
hverja innsýn í það sem þarna fór
fram. Síðar verður kynbótasýn-
ingunni gerð skil auk þess sem
fjallað verður um aðstöðuna,
framkvæmd og mótsbraginn.