Morgunblaðið - 18.09.1985, Side 63

Morgunblaðið - 18.09.1985, Side 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985 63 Frábær Valssigur — Guömundur Þorbjörnsson skoraöi bæöi mörkin í sætum sigri Vals NÝKRÝNDIR íslandsmeistarar Vals sigruöu Nantes frá Frakk- landi í fyrri leik liöanna í evrópu- keppni félagsliöa á Laugardals- velli í gærkvöldi. Guðmundur Þorbjörnsson skoraöi tvívegis í síðari hálfleik, sigurmarkiö skömmu fyrir leikslok en Frakk- arnir jöfnuöu í millitíöinni. Nantes voru betri aöilinn á vellinum en þaö eru jú mörkin sem telja í Evrópuleikjum sem og öörum knattspyrnuleikjum. Valsmenn léku þó ágætlega á köflum og af mikilli skynsemi. Þeir létu Frakk- ana um aö hafa knöttinn og eltu þá ekki upp aö vítateignum hjá þeim þegar þeir voru að leika knettinum á milli sín þar. Þetta var skynsamleg leíkaöferö sem gaf góöa raun en áhorfendur vildu þó aö Valsmenn pressuöu meira á þá frammi en sem betur fer haföi þaö ekki áhrif á leik Valsmanna sem náöu frábærum árangri meö þessari leikaöferö. Laugardalsvöllurinn var mjög blautur eftir rigningar aö undan- förnu og því var erfitt aö leika á vellinum. Jafnræöi var meö liöun- um fyrstu mínúturnar en á 6. mín- útu fengu Frakkarnir óþarfa auka- spyrnu. Amisse átti þá mjög fast skot neöst í bláhorn Valsmanna en Stefán Arnarson varöi frábærlega vel. Hann renndi knettinum til Sævars sem renndi honum aftur til Stefáns, nokkuð sem tiökast hefur í knattspyrnunni hér heima. Sam- kvæmt nýjum knattspyrnureglum sem tóku gildi i Evrópu 1. ágúst, er þetta óleyfileg. Markvöröur má ekki fá knöttinn frá varnarmanni sem hann hefur sent knöttin til nema sá hinn sami hafi fariö meö boltann út fyrir vítateig. Stefán geröi sér greinilega grein fyrir því og reyndi í iengstu lög aö komast hjá því aö taka knöttinn aftur en varö aö lokum aö snerta hann og óbein aukaspyrna var dæmd. Valsmenn komu allir á marklínu sína til aö verjast og þaö varö aö tvítaka spyrnuna því þeir fóru of snemma út á móti. i seinna skiptiö sem aukaspyrnan var framkvæmd tókst Stefáni aö verja í tvigang áö- ur er Þorgrímur Þráinsson náöi aö spyrna knettinum frá marki. Smá misskilningur sem nærri kostaöi mark. Eftir þessa aukaspyrnu náöu Frakkarnir undirtökunum í leiknum og sýndu þá oft og tíöum frábæra leikni meö knöttinn og mjög mikill hraöi var í leik þeirra. Valsmönnum gekk illa aö ráöa viö þá en mark- tækifæri fengu þeir ekki mörg og þegar þeir náöu skoti aö marki þá varöi Stefán vel. Vörn Vals virkaði frekar óörugg framan af fyrri hálfleiknum, nema Grímur sem lék mjög vel allan tím- ann. Ungu strákarnir í liöinu voru lengi að komast yfir taugaspenn- inginn yfir því aö vera aö leika sinn fyrsta evrópuleik fyrir félagiö en þegar þeir komust yfir þaö þá stóöu þeir sig mjög vel. Eins og fyrr segir léku Valsmenn þennan leik mjög skynsamlega. Þeir eltu Frakkana ekki upp aö eigin vítateig heldur létu þá sækja og beittu síöan skyndisóknum sem gáfust vel og voru stórhættulegar á stundum. Eftir eina slíka sókn munaöi minnstu aö Magni Pétursson skor- aöi mark. Valur Valsson komst upp aö endamörkum og gaf fyrir markiö. Markvörður og fyrirliöi Nantes, Demanes, missti knöttinn og Hilmar Haröarsson náöi aö renna út til Magna sem skaut góöu skoti en rétt framhjá. Þegar ieikiö haföi veriö í tæpa hálfa klukkustund skall á úrhellis- rigning og Valsmenn geröust rausnarlegir og buöu öllum aö Valur — Nantes 2:1 koma sér fyrir í stúkunni á meöan plássiö leiföi. Á sama tíma sóttu leikmenn Vals í sig veöriö og áttu mun meira í leiknum það sem eftir var fyrri hálfleiks. Heimir var óheppinn aö skora ekki eftir góöan undirbúning Þorgríms og Guö- mundar Þorbjörnssonar. Skot hans fór rétt framhjá. Ingvar Guömundsson átti einnig gott færi eftir mjög skemmtilega útfæröa sóknarlotu Vals. Guö- mundur Þorbjörnsson gaf þá á Grím Sæmundsen sem gaf góöa sendingu fyrir markiö á Hilmar Haröarson. Hilmar skallaöi út til Ingvars sem kom á fleygiferö og skaut góöu skoti utan viö vítateig en rétt framhjá markinu. Valsmenn fegnu enn eitt færiö rétt fyrir leikhlé. Heimir Karlsson skaut þá aö marki í sæmilegu færi en markvöröur Frakkanna var vel á veröi og varöi. Þannig lauk skemmtilegum fyrri hálfleik og hljóðiö var gott í áhorfendum í leikhléi því Valsmenn höföu svo sannarlega leikiö stórvel og voru i mikilli sókn þegar líða tók á hálf- leikinn og því bjart framundan. Síöari hálfleikurinn var ekki eins góöur af hálfu Valsmanna og sá fyrri þó svo öll mörkin væru skoruö í þessum hálfleik. Þaö var strax á 49. mínútu sem Guömundur átti góöa sendingu á Heimi sem var alveg viö þaö aö komast i gegn en varnarmanni tókst aö bjarga i horn á síöustu stundu. Hilmar Haröar- son tók hornspyrnuna og sendi lágan bolta fyrir markiö. Guð- m Texti: ^ Skúli Sveinsson Myndir: Júlíus Sigurjónsson mundur náöi knettinum fyrstur á móts viö stöngina nær og skallaöi fallega í fjærhorniö án þess aö markveröi Nantes tækist aö koma nokkrum vörnum viö. Fallegt mark hjá Guömundi og mikill fögnuöur hjá áhorfendum og leikmönnum. En Adam var ekki lengi í Para- dís. Eins og svo oft áöur í evrópu- leikjum hér á landi jöfnuöu and- stæöingarnir strax. Bracigialano lék upp í vinstra horniö og gaf fyrir. Toure stökk hæst og skallaöi fal- lega neöst í bláhorniö án þess aö Stefáni tækist aö verja þrátt fyrir góöa tilraun. Nú sótti Nantes meira en án þess þó aö skapa sér hættuleg færi. Varnarmenn Vals voru þéttir fyrir og þegar þeim brást bogalist- inn þá var Stefán alltaf á réttum staö og varöi vel. Sérstaklega varöi hann vel skot frá þeim Am- isse og Le Roux. Frakkarnir virtust sætta sig viö jafntefli og tóku sér góöan tíma i markspyrnur og innköst en þetta heföu þeir ekki átt aö gera því þaö voru Valsmenn sem skoruöu sigur- markiö aöeins tveimur mínútum fyrir leikslok. Grímur Sæmundsen tók aukaspyrnu á miöju vallarins alveg út viö hliöarlinu. Hann gaf háan bolta á vítateigshorniö fjær þar sem Hilmar Harðarson ætlaöi aö skjóta viöstööulaust. Skot hans var á leiöinni framhjá en Guö- mundur Þorbjörnsson náöi til knattarins og þrumaöi honum viöstööulaust upp í þaknetiö á marki Frakkanna og sigurinn var í höfn. Svo virtist sem þetta hafi verið ósjálfráö viöbrögö hjá Guö- mundi en markiö var stórglæsilegt og skemmtilegt fyrir besta leik- mann á islandi aö skora tvö mörk svo stuttu eftir aö hann var kjörinn sá besti. Eftir markiö sóttu Frakkar mikiö en nú voru Valsmenn ákveönari en nokkru sinni áöur og þjöppuöu sér þétt saman t vörninni og voru Guðmundur Þorbjörnsson horfir hér ákveöinn á eftir knettinum í mark Frakkanna þegar hann skoraöi fyrra mark Vals í leiknum í gærkvöldi. Guðmundur bætti síöan um betur og skoraöi sigur- markið skömmu fyrir leikslok og Valsmenn hafa því gott veganesti í síöari leik liöanna sem verður í Frakklandí. reyndar í sókn þegar flautaö var til leiksloka. Valsmenn léku þennan leik mjög skynsamlega eins og áöur segir. Stefán var góöur í markinu og vörnin fyrir framan hann var góö mest allan tímann en í henni var Grímur bestur. Magni lék vel á miðjunni og einnig þeir Valur og Hilmar og Ingvar þó svo sá síöast- nefndi hafi oft leikið betur. Frammi léku þeir Guömundur og Heimir mjög vei og þaö var ekki síst þeim aö þakka aö leikaöferöin heppn- aöist svona vel. Þeir létu Frakkana ekki plata sig of framarlega heldur héldu sig frekar aftarlega og voru svo tilbúnir í sóknina um leiö og færi gafst. Kristinn Björnsson kom inná fyrir Heimi á 63. minútu en Heimir meiddist. Kristinn stóö sig þokkalega en eflaust hefur veriö mjög erfitt aö koma inná sem varamaöur i leikinn á þessum tíma. Hjá Nantes voru þeir Toure, Amisse og Yvan Le Roux bestir i annars jöfnu og léttleikandi liöi þeirra. Dómarinn var frá Noregi og dæmdi vel. Áhorfendur voru 1951. „Slæm danska dómarans“ Stefán Arnarson lék mjög vel í marki Vals. í fyrri hálfleiknum var dæmd óbein aukaspyrna á Val á vítateig liösins skv. nýjum reglum sem tóku gildi 1. ágúst — en voru þó ekki notaöar í íslandsmótinu í sumar. Nánar er greint frá þess- ari reglu í frásögn af leiknum í gærkvöldi, en Stefán markvöröur sagöi í samtali viö Morgunblaðíö eftir leikinn aö um misskilning heföi verið aö ræöa. „Þetta er sennilega lélegri dönsku dómar- ans að kennal Hann skýröi þetta ekki nógu vel út fyrir okkur fyrir leikinn, þó hann hafi reynt þaö.“ Stefán sagöi að annars heföi leikurinn veriö „mjög skemmti- legur. En þaö er sá seinni sem verður enn erfiöari. Þá verður leikið á breiöari velli." „Það var helv ... gaman aö þessu. Ég átti varla von á þessum úrslitum,“ sagöi Valur Valsson. „Við fórum meö því hugarfari aö hafa gaman af leiknum — aö spila góðan fótbolta og þaö tókst.“ „Þeir gáfu okkur alltaf tíma til aö athafna okkur eins og Frakkar leika alltaf. Þeir voru nú ekkert of án- ægöir meö aöstæöurnar hérna, voru farnir aö kvarta um þaö fyrir leikinn hve kalt væri, þaö er kannski einhver afsökun fyrir þá. En þetta var meiriháttar skemmtilegt," sagöi Valur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.