Morgunblaðið - 18.09.1985, Side 64
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Morgunblaðið/Sigurgetr
Sverrir Guðmundsson og Egill Þór Valgarðsson í Friðarhöfn í Vest-
mannaeyjum.
„Allt f einu sá ég í
hárið á drengnum"
— Fimmtán ára Vestmanneyingur
bjargar tveimur börnum frá drukknun
SVERRIR GuAmundsson, 15 ára Vestmannaeyingur, fimur í fjöllum
og sundi hefur átt því láni að fagna að bjarga tveimur börnum frá
drukknun í haust. Sagt hefur verið frá því er hann bjargaði eftir
ábendingu 9 ára stúlku meðvitundarlausri af botni sundlaugarinnar
í Eyjum. Stúlkan, Kolbrún Ólafsdóttir, er á batavegi og er hætt að
nota öndunarvél, en hún er ekki komin til meðvitundar ennþá. Um
leið og Sverrir kom með hana úr kafinu sinntu starfsmenn sundlaug-
arinnar henni af öryggi þar til læknar komu á vettyang. Viku áður
hafði Sverrir bjargað 9 ára dreng, Agli Þór Valgarðssyni, frá drukkn-
un í Friðarhöfn í Eyjum og varð drengnum ekkert meint af volkinu,
en Egill Þór er nýfluttur til Eyja frá Hvolsvelli og er ósyndur.
Morgunblaðið/Friðþjófur
og Gísli Elíasson, verksmiðjustjóri. í
baksýn sést í nýju soðstöðina.
Orkusparnaður
vegna endur-
bóta allt að 24
milljónir á ári
VINNSLA hófst í Sfldarverk-
smiðjum ríkisins á Siglufirði í
upphafi vikunnar eftir gagngerar
endurbætur. Áætlaður kostnaður
við þær er um 140 milljónir
króna og miöa þær fyrst og
fremst að bættri orkunýtingu og
mengunarvörnum. Ákvörðun um
endurbæturnar var tekin 27.
nóvember í fyrra og þá stefnt
** að því að ljúka þeim fyrir vertíð.
Ekki er komin full reynsla á
orkusparnaðinn, en talið er að
miðað við vinnslu á 100.000
tonnum af loðnu geti sparnað-
urinn numið 18 til 24 milljón-
um króna árlega. Geir Zoéga,
framkvæmdastjóri SR, sagði
meðal annars i samtali við
Morgunblaðið, að endurbætur
á verksmiðjunni hefðu verið
nauðsynleg forsenda áfram-
haldandi rekstrar og orku-
sparnaðurinn gæti skilað til
baka um einum þriðja hluta
kostnaðar.
» Heimamenn og tæknideild
SR hafa að mestu séð um
endurbæturnar og hönnum á
nýrri soðstöð, sem er stærsti
hluti verksins, ásamt nýrri
tölvuvæddri stjórnstöð og
mengunarvarnabúnaði. A
verktímanum hefur því verið í
mörgu að snúast og sem dæmi
um umfang verksins þurfti að
tengja um 60.000 rafmagns-
leiðslur og leggja 2,6 kílómetra
af ryðfríum stálrörum.
„Þetta gerðist milli kl. 11 og
12 um kvöldið," sagði Sverrir í
samtali við Morgunblaðið, „á
pysjutímanum. Ég var að leita
að lundapysjum og gekk þá fram
á nokkra gutta sem einnig voru
í pysjuleit á bryggjunni í Friðar-
höfn. Ég var kominn fram hjá
þeim og lít við, en þá sá ég aftur-
hjólið á hjóli Egils Þórs hverfa
út af bryggjunni og um leið
heyrðist mikið skvamp. Ég þaut
í myrkrinu niður bryggjustiga
sem var þarna hjá, en sá ekkert
nema loftbólur fyrst í sjónum og
gruflaði niður í sjóinn og allt i
einu sá ég í hárið á drengnum
þar sem hann maraði í kafi. Ég
náði taki á öxl hans og dró hann
að stiganum. Hann var vankað-
ur, hefur líklega fengið hjólið í
höfuðið, en fallið í sjó var 3—4
metrar.
ÞINGFLOKKUR Framsóknar
flokksins samþykkti tillögur ríkis-
stjórnarinnar að fjárlögum á fundi
síðdegis í gær. Meiri óvissa ríkti
fyrir þingflokksfund sjálfstæð-
ismanna, sem komu saman til fund-
ar klukkan 21. Samkvæmt heimild-
um blaðsins var það talið grundvall-
aratriði að samstaða yrði í stjórnar-
flokkunum um afgreiðslu málsins.
Ég náði einhvernveginn að
drösla honum upp stigann, en
þegar ég var að nálgast bryggju-
brún var hann að ranka við sér
og hann hjálpaði til með því að
halda í stigarim á meðan ég
teygði lausu höndina upp fyrir
bryggjubrún í festu og svo náði
ég á einhvern óskiljanlegan hátt
að vippa honum upp á bryggjuna.
Síðan lét ég hina strákaguttana
sem voru þarna hjá fylgja honum
heim.
Nei, ég fann ekki mikið fyrir
þessu, það var svo mikill æsingur
í mér, en það var hálf erfitt að
ná honum upp úr ollubrákinni
sem var þarna í höfninni, og svo
var það slæmt að úrið mitt eyði-
lagðist, en það er nú annað mál,
við skulum ekki tala um það. Ég
fór síðan að leita að járni, sem
Þrír ráðherrar ríkisstjórnarinnar
voru fjarstaddir ríkisstjórnarfund-
ina í gær, en á hinum síðari voru
fyrrnefnd drög samþykkt.
„Við náðum samkomulagi um
mjög ákveðnar tillögur til þing-
flokkanna, en þær verða ekki frek-
ar kynntar fyrr en þingflokkarnir
hafa fjallað um þær á sínum fund-
um,“ sagði Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra að af-
loknum síðari ríkisstjórnarfund-
inum í gær. Hann hélt rakleiðis á
þingflokksfund Framsóknar-
flokksins, þar sem tillögur ríkis-
stjórnarinnar voru svo samþykkt-
ar.
Forsætisráðherra sagði í samtali
við blaðamann í gær að útgjöld
fjárlaganna ykjust ekkert á milli
ára, þ.e.a.s. sem hlutfall af þjóðar-
framleiðslu. Fjárlögin yrðu 28,2%
af þjóðarframleiðslu og jafngilti
það 32,2 milljörðum króna. „Menn
verða að gæta að því,“ sagði for-
sætisráðherra, „að í þessu eru 500
milljón krónum meiri vaxtagreiðsl-
ur ríkissjóðs, heldur en vaxta-
greiðslurnar eru í ár. Það er hvorki
meira né minna en 0,5% af þjóðar-
framleiðslu."
Forsætisráðherra sagði jafn-
framt: „Eini liðurinn í fram-
kvæmdum ríkissjóðs sem vex eru
vegamálin.“
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er nú ráðgert að verja 2
milljörðum til vegamála á næsta
ári, en á sl. ári var varið 1,6 millj-
örðum króna í vegamál. Þá hefur
ég gerði krók úr, festi band í og
bjó til slóða. Dýpið í höfninni
hefur líklega verið 6—7 metrar
og eftir nokkra stund náði ég að
kraka hjólið upp og skömmu eftir
Morgunbiaðið heimildir fyrir því
að ríkisstjórnin geri tillögur um að
upphæð sú sem átti að lækka tekju-
skatt um á næsta ári, verði skorin
niður um 200 milljónir króna. Ráð-
gert er að lækkun tekjuskatts á
næsta ári nemi samtals 400 millj-
ónum króna, en stefnt hafði verið
að því að tekjuskattur yrði lækkað-
ur um 600 milljónir króna.
Eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu var það til umræðu
í ríkisstjórn að afla um tveggja
milljarða á næsta ári með auknum
FIMM tryggingafélög gerðu tilboð í
brunatryggingu fasteigna { Hafnar-
firði, sem Hafnarfjarðarkaupstaður
bauð út fyrir næstu fimm árin í kjölfar
uppsagnar kaupstaðarins á saraningi
við Brunabótafélag íslands sl. vetur.
Tilboðin voru opnuð í gær. Að sögn
Einars Inga Halldórssonar bæjar-
stjóra virðast öll tilboðin hljóða upp á
lægra iðgjald en það sem Hafnfirðing-
ar greiða Brunabótafélaginu nú.
Þau tryggingafélög sem tilboð
gerðu eru Almennar tryggingar,
Brunabót, Samvinnutryggingar,
miðnætti skilaði ég því heim til
stráksins. Mamma hans var hálf
miður sín, horfði dolfallin á mig
og sagði aðeins: „Náðirðu hjólinu
líka?“
óbeinum sköttum. Forsætisráð-
herra upplýsti blaðamann í gær að
þessi tala væri nú komin niður í 1,7
milljarða króna. Þvertók forsætis-
ráðherra fyrir að aðaltekjuliðurinn
þar yrði aukin söluskattsheimta,
en vildi ekki að öðru leyti tjá sig
um sundurliðun þeirrar tekjuöflun-
ar.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins er þó um verulega útvíkk-
un á söluskattsheimtu að ræða, þó
ekki á matvöru. Auk þess mun vera
gert ráð fyrir verulegum tekjum af
bensíngjaldi.
Sjóvá og Tryggingamiðstöðin. Einar
Ingi sagði að of snemmt væri að
segja til um það hvaða tilboð væri
lægst, fyrst þyrfti að reikna þau út
frá sambærilegum forsendum og
yrði það gert fljótlega.
Á yfirstandandi tryggingaári
greiðir Hafnarfjarðarkaupstaður
Brunabótafélaginu 5 milljónir 785
þúsund í iðgjald, en heildar bruna-
bótamatsverðmæti fasteigna í
Hafnarfirði er 10 milljarðar 713
milljónir 634 þúsund. Samningurinn
við Brunabót rennur út þann 15.
október nk.
Valur
vann
Nantes
Valsmennirnir
Guðmundur Þor-
björnssonogVal-
ur Valsson fagna
marki í leik Vals
ogNantesfrá
Frakklandi í Evr-
ópukeppni félags-
liða. Valur sigraði
í leiknum með
tveimur mörkum
gegn einu og skor-
aði Guðmundur
Þorbjörnsson
bæði mörk Vals. I
kvöld leika Akur-
nesingar gegn
Aberdeen á Laug-
ardalsvelli í Evr-
ópukeppni meist-
araliða.
Sjá nánar á
bls. 60 og 63.
Samkomulag á ríkisstjórnarfundi um drög að fjárlögum:
Óbeinir skattar auknir
um 1,7 milljarða króna
Brunatryggingar fasteigna í Hafnarfirði:
5 tilboð bárust —
öll lægri en áður