Morgunblaðið - 18.09.1985, Side 29
gaoi itsaMaTqaa gi guoAauar/fáiM.viiaAjawaíMiOM
MÖRGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
29
AP/Símamynd.
Thatcher f Egyptalandi
Margaret Thatcher, forsætisriðherra Breta, er nú á ferðalagi um miðaust-
urlönd. í gær átti hún fund með Hosni Mubarak, Egyptalandsforseta,
og var myndin tekin í upphafi fundarins.
Moskva:
Sjöttu skák-
inni frestað
Kínversk stjórnvöld:
Hafa litla trú á af-
vopnunarviðræðunum
Hong Kong, 17. neptember. AP.
KÍNVERSK stjórnvöld vænta ekki
mikils árangurs af fundi stórveld-
anna um afvopnunarmál í Genf í
nóvember í haust. Deng Xiaoping,
leiðtogi kínversku stjórnarinnar,
sagði í vitali við kínverskt vikurit,
sem gefið er út á ensku, að ekki sé
mikils árangurs að vænta, nema stór-
veldin séu tilbúin til að eyðileggja
allar kjarnorkuvopnabirgðir sínar.
Kínverjar eru einnig andvígir því að
vopnakapphlaup stórveldana færist
Eþíópískar orrustuþot-
ur halda áfram árásum
— að sögn Sómala
Moskvu, 17. september. AP.
SJÖTTU skákinni í heimsmeistara-
einvíginu var í dag frestað að beiðni
áskorandans, Garri Kasparov.
Karpov hefur nú forystu í ein-
víginu, er með þrjá vinninga gegn
tveimur Kasparovs. Sá sigrar, sem
fyrri verður til að vinna sex skákir
eða fá 12% vinning úr 24 skákum.
Ef jafnt verður heldur Karpov
titlinum. Hvor keppendanna hefur
nú frestað einni skák.
Mogadisha, Sómalíu, 17. september. AP.
Varnarmalaraðuneytið í Sómalíu
hefur tilkynnt að orrustuflugvélar
frá Eþíópíu hafí gert árásir inn í
landið annan daginn í röð — 17
manns hafí látið lífíð í árásunum og
35 hús eyðilagst í norðurhluta lands-
ins. Þá gerði eþíópískt fótgöngulið
einnig árás á þorpið Alabaday í
norðvesturhluta landsins, að sögn
ráðuneytisins, en ekki var greint
nánar frá atburðum.
f tilkynningunni sagði að fjórar
orrustuflugvélar frá Eþíópíu hefðu
varpað sprengjum á Abud-Waq—
hérað skömmu eftir hádegi á
mánudag og 17 manns látið lífið í
árásunum, 15 slasast og dælustöð
vatnsveitu héraðsins eyðilagst. í
fyrri tilkynningunum frá Sómalíu
sagði að í árásum Eþíópíumanna
á sunnudag hefðu 6 Sómalir farist
og 21 særst. Ríkisstjórn Eþiópíu
hefur ekki gefið út neina tilkynn-
ingu varðandi ásakanir Sómalíu,
en sómalskir skæruliðar sem berj-
ast gegn stjórninni þar segjast
hafa gert árásir á sunnudag. Eþí-
ópía og Sómalía hafa átt í erjum
öldum saman og styrkja ríkin
hvort um sig skæruliðahreyfingar
í hinu.
Handsprengju kastað á eitt
vinsælasta kaffihús Rómar
38 manns slösuðust, þar af 5 alvarlega - Palestínumaður sakaður um tilræðið
Rómaborg, 17. œptember. AP.
ÍTALSKA lögreglan handtók 27 ára
gamlan Palestínumann og hefur
hann verið sakaður um að hafa
kastað handsprengju á eitt vinsæl-
asta útikaffíhús Rómar Cafe de Paris
við Via Veneto á mánudagskvöldið
með þeim afleiðingum að 38 manns
slösuðust, þar af 5 alvarlega. Palest-
ínumaðurinn náðist eftir mikinn elt-
ingarleik um götur Rómar. Hann
sást hlaupa á brott frá kaffíhúsinu
eftir tilræðið og náðist hann eftir
eltingarleik um götur borgarinnar.
Við handtökuna hrópaði Palest-
ínumaðurinn, Ahmad A1 Hossein,
til fréttamanns og lýsti sakleysi
sínu: „Ég er Palestínumaður og
berst fyrir þjóð mína, en ég er
Jarðskjálfti
í Skotlandi
Glasgow, 17. september. AP.
JARÐSKJÁLFTI, sem mældist
2,5 á Richter-kvarða, fannst við
vesturströnd Skotlands í gær-
kveldi. Á þessu svæði eru stöðvar
fyrir kjarnorkukafbáta Breta og
Bandaríkjamanna. Sögusagnir
voru uppi að jarðskjálftinn hefði
stafað af sprengingu, en breska
varnarmálaráðuneytið bar þær til
baka.
Jarðskjálftinn varði í 10-20
sekúndur og er rétt yfir þeim
mörkum að menn verði varir
við hann. Jarðskjálftafræðing-
ur við bresku jarðfræðistofn-
unina sagði, að fyrr en frekari
upplýsingar lægju fyrir væri
ekki hægt að segja til um hvort
jarðskjálftinn stafaði af
sprengingu eða ekki. Hann
sagði að um tylft lítilla skjálfta
fyndist árlega 1 Bretlandi. Sá
síðasti sem vart varð við í
Skotlandi var 1 febrúar.
saklaus." En ítölsk lögregluyfir-
völd lýstu því yfir í dag, að Palest-
ínumaðurinn væri sekur, vitni
hefðu verið að því þegar maðurinn
hefði kastað tveimur handsprengj-
um, en aðeins önnur hefði sprung-
ið. Þykir mikil mildi að síðari
sprengjan skuli ekki hafa sprung-
ið, því hún lenti inn í miðjum hópi
ferðamanna. Sprengjurnar, sem
kastað var, voru smíðaðar í Sovét-
ríkjunum.
Áð sögn lögreglu, kom tilræðis-
maðurinn til Rómar á sunnudag
og dvaldi á hóteli skammt frá
kaffihúsinu. í fórum hans fannst
farseðill frá Damaskus til Rómar
og síðan Vínarborgar og aftur til
Damaskus. Að undanförnu hafa
nokkur samtök Palestínumanna
hótað hefndaraðgerðum ef ítölsk
yfirvöld láta ekki úr haldi sjö
Palestínumenn, sem handteknir
voru í nóvember síðastliðnum.
Haraldsdóttír
einstaklifíS '
furirtækt • Ká sem ú‘Ud-
lengra ^.^Xidskennsj^
Ssskss5
0IWSLVSTAÐIK
sssfiSisr
Qerðuberg r.
S5S35?**-1-'
sbw*ss^«* sr"
17 tímanamSK
BSSISSSII ___________________
1 Ske,?2l «p' kL 'L‘,7
taugard. 21- V kL ^17.
sunnud. 22. s P -
I
[augard. ^ kL t4_l7.
út í geiminn og sagði Deng að að
því gæti komið að það myndi auka
Ííkurnar á styrjöld í stað þess að
minnka þær.
Kínverski leiðtoginn sagði þrjú
meginverkefni Kínverja á þessum
áratug vera: að berjast gegn út-
þenslustefnu stórveldanna í þágu
heimsfriðar, nýsköpun landsins og
sameiningu við Hong Kong og
Taiwan á nýjan leik. Samkvæmt
samningi við Breta, sem undirrit-
aður var í Peking í desember á
síðasta ári, fá Kínverjar yfirráð
yfir Hong Kong árið 1997, en hafa
gengist inn á að núverandi kerfi
fái að vera þar við lýði í 50 ár þar
ífrá.
Þá sagði Deng að Kínverjar
vildu leysa deiluna um Taiwan með
friðsamlegum hætti.
Gengi
gjaldmiðla
London, 17. september. AP.
DOLLARINN féll nokkuð í dag á
gjaldeyrismörkuðum í Evrópu og er
ástæðan sú, að mörgum þykir ólík-
legt, að efnahagslífíð í Bandaríkjun-
um eigi eftir að ná sér verulega á
strik eftir að hafa verið heldur reik-
ult í rásinni þaö sem af er árinu.
Gengi dollarans ýmist hækkaði
eða lækkaði fram eftir degi en
þegar komið var að kvöldi hafði
það fallið gagnvart öllum helstu
gjaldmiðlum nema kanadíska doll-
arnum. Þá fengust fyrir pundið
1,3422 dollarar én 1,3320 á föstu-
dag. í Tókýó féll dollarinn niður í
241,25 jen en var í 243,35 á föstu-
dag. Fyrir dollarann fást nú:
2,8735 vestur-þýsk mörk (2,9085),
2,3740 svissneskir frankar (2,3978),
8,7750 franskir frankar (8,8705),
1.933,50 ítalskar lírur (1.947,63) og
1,3770 kanadískir dollarar (1,3737).
Gullið féll nokkuð í dag. Fyrir
únsuna fengust í kvöld 317 dollarar
en 320 á föstudag.