Morgunblaðið - 18.09.1985, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
Danuta Walesa:
Hvetur til baráttu
fyrir málstað fang-
elsaðrar konu
DANUTA Walesa, eiginkona Lech
Wales, leiðtoga SamstöAu, hefur
kvatt kvennasamtök um allan heim
til að krefjast þess að pólsk stjórn-
völd láti lausa úr haldi Miroslawa
Grabowska, sem hneppt var í fang-
elsi í júní síðastliðnum sökuð um
undirróður með útgáfu tímaritsins
Krytyka.
Grabowska er kunnur félags-
fræðingur í Póllandi, komin fjóra
mánuði á leið og á við vanheilsu
að stríða. „Henni er haldið í dimm-
um loftlausum klefa. Hana skortir
heilsusamlegan mat og hreyfingu
— hvort tveggja lífsnauðsyn van-
færri konu,“ segir meðal annars í
áskorun Danuta Walesa og fjög-
urra annarra þekktra kvenna í
Póllandi.
Pólsku konurnar segja, að til-
raunir lögfræðings Miroslawa til
að fá hana lausa úr haldi hafi
brugðist. „Tilraunir okkar til að
telja pólsk yfirvöld á að láta konu
— móður, samviskufanga, úr haldi
hafa brugðist. Þetta gerist í landi
þar sem yfirvöld státa sig af að
búa vel að konum," segir meðal
annars í hvatningu kvennanna
fimm. Talsmaður pólsku stjórnar-
innar sagði við erlenda fréttamenn
í Varsjá í dag, að ríkissaksóknari
Póllands hefði lengt gæzluvarð-
hald Miroslawa Grabowska til 31.
október.
Símamynd AP.
Æviráðningin afnumin
Félagar í 12. miðstjórn kínverska kommúnistaflokksins rétta upp hönd til marks um, að þeir séu samþykkir
því, að margir aldraðir forystumenn flokksins víki sæti fyrir yngra fólki. Myndin var tekin á fundi miðstjórnar-
innar í Alþýðuhöllinni í Peking í gær, mánudag. Þessar breytingar, sem þýða í raun, að æviráðning kínverskra
embettismanna hefur verið afnumin, eru runnar undan rifjum Deng Xiaopings, leiðtoga Kínverja, og eru gerðar
til að flýta fyrir og festa í sessi þær umbætur, sem hann hefur beitt sér fyrír.
Treholt segir frá
fangelsisdvöl sinni
0816, 17. aeptenber. Frá Jan Erik Laure, WUariUra MorKunblaAsina.
ARNE Treholt, sem ákærður er
fyrir njósnir fyrir Sovétmenn í
Noregi, hefur unnið til bók-
menntaverðlauna að upphæð 25
þúsund norskar krónur, fyrir
bók sína „Einn“, sem fjallar um
tímabiliö í ævi hans frá því hann
var handtekinn og þar til rétt-
arhöldin vegna njósnanna hóf-
ust yfir honum. Lögfræðingur
hans hefur viðurkennt að hafa
smyglað hluta af handriti bókar-
Veður
víða um heim
LagM Haust
Akunyri 7 •úld
Amuturdsm 14 20 ukýiaó
Aþsna 1« 29 « n®H/Wii r
Pwrrioni 20 bsióuklrt
Bsrtm 10 15 ukýjaö
nrtlntil 15 U ukýjat
CMcago t 25 *ýi»o
Oubtin 0 17 ufcýjaí
Fsnsjrjar 21 þokumóóa
Frankfurt 12 17 ukýlað
Qsnt 7 19 ukýiaó
Halumkl 10 14
Hong Kong 27 31 halóakfrl
Jarúualum 1« 29 hatóukírt
Kaopmannah. 10 14 •kíiuó
Lau Paimau 20 Mttakýiaó
Ltusabon « 33 haióukírt
London W 24 ukýiaó
LáM jUlQOlH 18 31 akýjaó
Lúxsmborg 15 siakýiað
ppVugU 25 •býfaó
bUborca 27 lótukýjaó
Wami 24 29 rignbtg
Montrsat S 23 haió>klrt
Moafcva 10 1S rignbig
Naw Vorfc 13 25 haWskfrt
Oaló 2 10 •býiaó
Parrá 15 18 •kýfaö
Pakktg 12 23 afcýfaO
Raykjavík 7 lirk. igr.
Rió da Janairo 15 33 hsiðakirt
Rómaborg 15 30 hsióskfrt
Stokkhótmur 10 15 heióukirl
Sydnoy 11 19 haMuklrt
Tókýó 10 26 •ký|að
Vinarborg 12 15 •kýlaé
hj . .L porsnorn 9 rigmng
innar út úr fangelsinu í trássi við
norsku öryggislögregluna.
Mikil samkeppni var meðal
norskra bókaforlaga um hand-
ritið að bókinni og hafði eitt
þeirra boðið allt að 1 milljón
norskra króna fyrir það. Treholt
valdi hins vegar þá leið að senda
það í samkeppni, sem Cappel-
an-forlagið efndi til um heimild-
arskáldsögu. Handrit Treholts
vann þó ekki fyrstu verðlaun að
3,5 milljarða
gervihnöttur
sendir ekki
GERVIHNÖTTUR, sem komið var
á braut umhverfis jörðu frá geim-
ferjunni Discovery í síðastliðnum
mánuði, er bilaður og eru vísinda-
menn vondaufir um að takist að
lagfæra bilunina. Gervihnöttur-
inn, Syncom IV, kostaði 3,5 millj-
arða króna og átti að vera hluti
af fjarskiptakerfi bandaríska sjó-
hersins.
Frakkland:
Flug leggst
niður í 2 daga
París, 17. september. AP.
GERT er ráð fyrir að öll flugumferð
til og frá Frakklandi, sem og innan-
lands, leggist niður í dag og á morgun
vegna aðgerða flugumferðastjóra,
sem boðað hafa verkfall til að leggja
áherslu á þá kröfu sína að kaupauki
launa þeirra, sem numið getur allt
að 40%, verði einnig reiknaður þeim
til eftirlauna. -
Stærsta innanlandsflugfélagið,
Air Inter, hefur aflýst flugi á öll-
um flugleiðum sínum, nema til og
frá Korsíku og talsmenn Air
France hafa lýst því yfir að félagið
muni einbeita sér að því að halda
uppi flugi á lengri flugleiðum.
upphæð 100 þúsund norskar
krónur, heldur fékk sérstök
aukaverðlaun, handriti annars
rithöfundar.
Lögfræðingur Treholts, Ulf
Underland, segist hafa haldið að
bókin yrði ekki gefin út fyrr en
að réttarhöldunum yfir Treholt
loknum. Hann telur sig hafa
verið svikinn hvað þetta snertir,
en hann er nú aðstoðarmaður
tveggja lögfræðinga Treholts,
sem munu flytja málið fyrir
Hæstarétti. Saksóknari í Tre-
holt-málinu útilokar ekki að
Underland hafi gert sig sekan
um lögbrot, með því að misnota
aðstöðu sína, en heimsóknir og
bréfaskipti við Treholt voru
bönnuð á þessum tíma.
í bókinni setur Treholt meðal
annars fram ásakanir á hendur
norsku öryggislögreglunni varð-
andi yfirheyrsluaðferðir hennar.
Cappelan-forlagið hefur fengið
lögfræðinga til að meta hvort
handritið geti haft áhrif á ör-
yggishagsmuni Noregs.
ERLENT
Danuta Walesa
E1 Salvador:
Krefjast lausnar níu
fanga í skiptum fyr-
ir forsetadótturina
Sin Salvador, El Salvador, 17. sepL AP.
HÓPUR manna, sem kveóst hafa In-
es Duarte Duran, dóttur Napóleons
Duartes forseta, í haldi, hefur kraf-
ist þess, að níu skæruliðar, sem sitja
í fangelsum í El Salvador, verði látn-
ir lausir í skiptum fyrir forsetadótt-
urina, að því er háttsettur embættis-
maður í San Salvador sagði í gær,
mánudag.
Embættismaðurinn kvað full-
trúa stjórnvalda hafa farið til
Mexíkó á sunnudag í þvi skyni að
ræða við leiðtoga skæruliðaflokk-
anna fimm, sem mynda FMLN-
hreyfinguna í E1 Salvador.
„Hópur sem kallar sig Pedro
Pablo Castillo-fylkinguna kveðst
hafa konuna í haldi,“ sagði emb-
ættismaðurinn.
Hann greindi þó ekki frá því,
hvenær eða með hvaða hætti hóp-
urinn hefði lagt fram kröfur sínar.
„Það er ómögulegt að segja til
um, hvaða skæruliðaflokki Cast-
illo-hópurinn heyrir til, því að í
fangelsum í E1 Salvador eru fang-
ar frá öllum mögulegum flokks-
brotum skæruliða," sagði embætt-
ismaðurinn.
Hann kvað Ines Duarte Duran
hafa haft símasamband við föður
sinn og sagt honum, að henni
hefði ekki verið gert neitt mein.
Barnið var á lífi þremur
dögum eftir dánarúrskurð
Coœuia, Italíu, 17. aepL AP.
FIMM daga gamalt barn, sem úrskurðað var látið og flutt I líkhús sl.
laugardag, var við sæmilega heilsu í dag, þriðjudag, að þvf er starfsfólk á
Annunziata-spítalanum í bænum Cosenza á Suður-ítalfu sagði frétta-
mönnum.
Barnið, sem er drengur og var
skírður Mario, fæddist á
fimmtudaginn var, tveimur
mánuðum fyrir tfmann, og vó
aðeins fjórar merkur. Var
drengurinn þegar f stað látinn f
hitakassa og töldu læknar lffs-
ur hans um 10%.
Tveimur dögum seinna hætti
hjarta Marios að slá. Og þar sem
ekkert lífsmark sást með
yhlt
lík
drengnum, var hann úrskurðað-
ur látinn og fluttur f lfkhúsið.
En faðir hans var ekki á að
gefast upp. Hann neitaði að yfir-
gefa drenginn, var hjá honum f
lfkhúsinu alla nóttina og „baðst
fyrir og grét“ að sögn starfs-
fólksins.
Á sunnudagsmorguninn sýnd-
ust honum fætur drengsins bif-
ast aðeins og gerði hann læknun-
um þegar f stað viðvart. Var
Mario litli þá samstundis drifinn
í hitakassann á nýjan leik.
Spitalayfirvöldin gátu enga
skýringu gefið á því, hvernig
þetta hafði atvikast.
„Þetta er sannkallað krafta-
verk, þökk sé heilögum Francis
af Paolo,“ sagði faðir drengsins,
31 árs gamall bóndi, Vincenzo
Arena að nafni. „Eg lofaði hon-
um að láta drenginn læra til
prests, ef hann fengi að lifa.“