Morgunblaðið - 18.09.1985, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
27
Opinber heimsókn forseta íslands á Spáni:
Fékk afhentan gull-
lykil að Madrid-borg
Madríd 17. september. Frá Önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgunbladsins.
Enrique Tierno Galvan, borgarstjóri Madrid, afhenti forseta íslands
gulllykil að Madrid við hátíðlega athöfn í ráðhúsi borgarinnar í morgun.
Vigdís Finnbogadóttir forseti sagði í stuttri ræðu að nú þætti henni hlið
Madrid standa fslendingum enn opnari en áður og minnti á mikinn
ferðahug íslendinga, þeir færu víða og öfluðu sér visku og þekkingar
en sneru langflestir aftur heim þjóðinni til gagns og framdráttar.
Riddaralið hins konunglega
lífvarðar reið á undan bifreið
forseta, en hún kom til ráðhúss-
ins frá konunglegu höllinni í
mjög virðulegum, svörtum, göml-
um Rolls Royce. Riddarasveitir
með bleikar blaktandi fjaðrir á
hjálmunum og lúðrasveit lög-
regluliðs borgarinnar biðu henn-
ar þar og borgarstjóri tók á móti
henni.
Forseti færði borgarstjóra
ljósritað eintak af Helgastaðar-
bók, en hún hefur að geyma sögu
Heilags Nikulásar, sem var þýdd
á íslensku á 13. öld. Borgarstjór-
inn bauð Vigdísi forseta vel-
komna í ræðu og sagði að borgar-
búar fögnuðu komu hennar inni-
lega. Hann sagðist vona að borg-
arstjóri Reykjavíkur sæi sér
einhvern tíma fært að heim-
sækja Madrid og að samskipti
höfuðborga Spánar og fslands
myndu aukast í framtíðinni.
Forseti fslands og fylgdarlið
hennar hélt í þinghúsið úr ráð-
húsinu. Forsetar beggja deilda
þingsins tóku á móti gestunum á
tröppunum og lúðrasveit lék
þjóðsöngva landanna.
Skipst var á gjöfum, forseti
fékk gullpening þingsins og ljós-
rit af þingbók og stjórnarskrá
landsins. Hún gaf þinginu eintak
af Skarðsbók en í henni er Jóns-
bók. Gestunum var sýndur þing-
salur fulltrúadeildarinnar og
bent á för eftir byssukúlur síðan
þjóðvarnarliðar hófu skothríð og
tóku þingið 23. febrúar 1981.
Forseti fulltrúadeildarinnar
flutti ræðu í sal allsherjarnefnd-
ar þingsins og talaði um mikil-
Geir Hallgrímsson, utanrík-
isráðherra, vildi ekki gera
mikið úr mótmælaaðgerðun-
um. „Þær virtust ósköp sak-
lausar," sagði hann, „mótmæl-
endurnir með bros á vör og
klöppuðu forseta lof í lófa. Það
hvíslaði einhver að mér á leið-
inni heim að við ættum
kannski að mótmæla nautaati
Spánverja," bætti Geir við.
Hann taldi mótmæli sem þessi
engin áhrif eiga að hafa á
stefnu íslendinga í hvalveiði-
málum, „við förum með öllu
eftir reglum alþjóðahvalveiði-
ráðsins og samþykktum þess
og þess vegna er ekki ástæða
til að breyta stefnu stjórn-
valda hvað þetta varðar,"
sagði Geir.
Grænfriðungar sögðust
vilja vekja athygli forseta á
andstöðu hreyfingarinnar
gegn hvalveiðunum. Þeir
sögðu mótmælunum ekki
beint gegn forseta eða ís-
lensku þjóðinni, heldur rangri
ákvörðun stjórnvalda í þess-
um málum.
Mótmælendurnir stóðu á
stétt fyrir utan safnið áður en
forseti ók í hlað en voru beðnir
að færa sig út á grasflöt vegna
ótta við sprengju sem lögregl-
an hélt að hún hefði fundið.
Hvítum bíl var ýtt inn á göt-
una fyrir framan safnið og
leitað að sprengjunni í honum
og forseti og fylgdarlið hennar
varð að aka aukahring í ná-
grenni safnsins á meðan geng-
ið var úr skugga um að
sprengjuóttinn væri óþarfur.
. Forseti skoðaði Pradosafnið
í fylgd forstjóra þess. Safnið
er eitt hið glæsilegasta í heimi
og þar má sjá stórkostleg
listaverk allra spönsku meist-
aranna.
vægi samvinnu Evrópuþjóða,
minnti á einhuga vilja Spánverja
að ganga í Evrópubandalagið og
sagði að það væri skylda íslend-
inga og Spánverja að standa
saman vörð um lýðræði og mann-
réttindi. Vigdís forseti talaði um
sögu íslenska þingsins og lagði
áherslu á að ekki mætti taka
frelsi og lýðræði sem sjálfsagða
hluti, heldur yrði stöðugt að
minna á mikilvægi þeirra.
AP/símamynd
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, ræðir við Juan Carlos Spánarkon-
ung í kvöldverðarboði í Konunglegu höllinni í Madrid í gærkvöldi.
Utanríkisráðherra Spánar
andvígur saltfisktollum
Madrid, 17. september. Frá frétUritara Morgunblatoins, Önnu Bjarnadóttur.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Spánar, Fernandez Bordonez, hét því á fundi
með Geir Hallgrímssyni, utanríkisráðherra ísiands, í Madrid { morgun,
að stuðla að því að Spánverjar styðji málstað íslendinga gegn 13 prósenta
tolli Evrópubandalagsins á saltfiski þegar þeir ganga í bandalagið um
áramótin. Tollurinn tók gildi 1. júlí, en mun ekki hafa mikla þýðingu
fyrr en Spánn og Portúgal ganga f Evrópubandalagið. Geir sagði að ósk
lslendinga væri sú að fá tollinn annaðhvort niðurfelldan eða tollfrjálsan
innflutningskvóta á salfiski stækkaðan.
. AP-slmamynd
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hlustar á útlistanir forstjóra
Prado-safnsins og skoðar listaverk spönsku meistaranna.
Mótmæli og sprengju-
ótti við Pradosafnið
Madríd, 17. september. Frá fréttaritara Morgunblaðsins, Önnu Bjarnadóttur.
SAMTÖK Grænfriðunga á Spáni efndur til mótmælaaðgerða gegn
hvalveiðum íslendinga fyrir utan Prado-listasafnið í Madríd þegar
forseti íslands og fylgdarlið hennar komu þangað í eftirmiðdag. Um
tuttugu unglingar voru saman komnir klæddir í boli samtakanna
með uppblásinn stóran bláan hval og dreifðu blöðum um hvalveiðar
okkar. Þeir klöppuðu og lyftu mótmælaspjöldum þegar Vigdís for-
seti gekk inn í safnið. Hún brosti til þeirra og hneigði sig.
Utanríkisráðherrarnir ræddu
einnig viðhorf landanna til Atl-
antshafsbandalagsins. Geir
sagði að stefna spönsku stjórnar-
innar væri að halda áfram aðild
að varnarbandalaginu. Sósialist-
ar hafa lofað þjóðaratkvæða-
greiðslu um málið en enn er ekki
útséð um hvort af henni verður.
Borgaraflokkarnir eru andvígir
henni og hafa hótað að hvetja
fólk til að taka ekki þátt í henni,
svo ekki verði hægt að taka fullt
mark á atkvæðagreiðslunni ef af
henni verður.
Geir sagði að fyrirkomulag
Bandaríkjanna og Spánar um
rekstur fjögurra herstöðva á
Spáni hefði einnig verið rætt.
Bandarikjamenn kosta þær að
mestu leyti og tólf til þrettán
þúsund bandarískir hermenn eru
staðsettir í landinu. Geir sagði
að Bordonez hefði spurt margs
um varnarsamning íslendinga
við Bandaríkin og hvernig hann
tengdist aðild okkar að NATO.
Viðskiptamál þjóðanna voru
einnig rædd og Bordonez minnt-
ist á að íslendingar seldu mun
meira til Spánar en Spánverjar
til íslands. Við flytjum aðallega
út saltfisk til þeirra en kaupum
mjög takmarkað magn af vörum,
helst vín og niðursuðuvörur, af
þeim. Þó jafnar ferðamanna-
straumurinn frá f slandi til Spán-
ar viðskiptahalla landanna að
nokkru leyti. Bordonez lýsti yfir
áhuga á auknum viðskiptum við
okkur og mæltist til þess við
Geir að tilboðum Spánverja í
virkjunarframkvæmdir á íslandi
yrði sýnd full sanngirni.
Hann greindi Geir einnig frá
nýyfirstaðinni ferð sinni til Kína
og Japan í fylgd forsætisráð-
herra. Viðtökurnar í Kína hefðu
verið mjög eftirtektarverðar og
hann vakti séstaka athygli á
vaxandi samstarfi Japan og Kína
en bæði löndin, annað kapítalískt
og hitt sósíalískt, væru að reyna
nýjar leiðir, hvort á sinni braut.
AP-símamynd
Forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, og utanrfkisráðherra Spánar,
Felipe Gonzalez, að loknum fundi í Madrid.
Frelsið dýrmætur fjársjóður
„Spánn og ísland hafa hvort
um sig komist að raun um að
ekkert er þýðingarmeira en að
lifa við frelsi. Frelsið er annað
og meira en önnur réttindi, það
er dýrmætur fjársjóður fyrir alla
í hciminum.“ Á þessa leið mælti
forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, í ræðu á spænska
þinginu í gær. Hún vitnaði til
sögu íslands sem hún sagði
hafa haft þing síðan á 10. öld,
og hefði því lengstu þinghefð
allra þjóða heims. Forseti neðri
deildar spænska þingsins, Oreg-
orio Peces Barba, sagði við
sama tækifæri að ísland og
Spánn ættu sem Evrópuþjóðir
að sýna „samstöðu og berjast
fyrir frelsi,
þróun“.
lýðræði og fram-
Fyrr um daginn ók Vigdís
forseti til ráðhúss borgarinn-
ar þar sem borgarstjórinn,
Enrique Tierno Galvan, af-
henti henni borgarlykil Madr-
íd úr skíragulli. Forsetinn
heimsótti einnig hið fræga
Prado-listasafn í Madríd. í
gærkvöldi bauð forseti ís-
lands til kvöldverðar í Prado-
höllinni til heiðurs Juan Carl-
os Spánarkonungi og Soffíu
drottningu. Prado-höllinn er
opinbert aðsetur forseta Is-
lands meðan á heimsókninni
stendur, en henni lýkur í dag.
Vigdís
lands.
Finnbogadóttir, forseti