Morgunblaðið - 18.09.1985, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 18.09.1985, Qupperneq 37
MORGUNBLADIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985 37 Vísnasöngvar- ar í hringferö því þeir hafa tryggt sér húsnæði í Hagkaupshúsinu, sem verið er að reisa í nýja miðbænum. Þar hyggjast þeir reka veitingastað undir nafninu „Hard Rock Café" í umboði alþjóðlegrar veitingahúsa- keðju með sama nafni. „Við stefn- um að því að opna þann stað 4. júlí 1987,“ sagði Tómas. „Þessi staður verður í amerískum anda og því vel við hæfi að opna hann á þjóð- hátíðardegi Bandaríkjanna." Vísnasöngvararnir Bergþóra Árna- dóttir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, Ola Nordskar frá Noregi og Mecki Knif frá Finnlandi eru lögð af stað í landsreisur sínar, sem spanna nsstu þrjár vikurnar. Bergþóra og Ola munu ferðast saman og halda austur á bóg- inn og síðan norður, en þeir Aðalsteinn og Mecki fara vestur um land og síðan norður. Dúettarnir munu mætast á Kópaskeri og halda þar sameiginlega tónleika. Hér birtist listi yfir viðkomustaði þeirra á ferðunum: Aðalsteinn og Mecki 17. sept. Olafsvík, 18. sept. Grund- arfjörður, 19. sept. Búðardalur, 20. sept. Sauðárkrókur, 21. sept. Blönduós, 22. sept. Akureyri, 24. sept. Húsavík, 25. sept. Kópasker, 26. sept. Þórshöfn, 27. Vopnafjörður, 28. sept. Borgarfj. eystra, 29. sept. Egilsstaðir, 30. sept. Seyðisfjörður, 1. okt. Eskifjörður, 2. okt. Fáskrúðs- fjörður, 3. okt. Stöðvarfjörður, 4. okt. Höfn, Hornafirði, 5. okt. Vík í Mýrdal. Bergþóra og Ola 17. sept. Stöðvarfjörður, 18. sept. Fáskrúðsfjörður, 19. sept. Eski- fjörður, 20. sept. Seyðisfjörður, 21. sept. Egilsstaðir, 22. sept. Borgarfj. eystra, 23. sept. Vopnafjörður, 24. sept. Þórshöfn, 25. sept. Kópasker, 26. sept. Húsavík, 27. sept. Akureyri, 28. sept. Grímsey, 30. sept. Sauðár- krókur, 1. okt. Búðardalur, 2. okt. Grundarfjörður, 3. okt. Ólafsvík, 4. okt. Borgarnes. Frétutiikvnning. Vísnasöngvararnir Mecki, Bergþóra, Ola og Aðalsteinn. MorKunblaöiö/Bjarni f þcssari nýbyggingu á horni Bústaðavegar og Reykjanesbrautar mun veit- ingastaðurinn „Sprengisandur" væntanlega verða opnaður laugardaginn 2. nóvember nk. „Sprengisandur“ verður opnaður 2. nóvember nk. „SPRENGISANDUR," hið nýja veitingahús fjórmenninganna Tóm- asar Tómassonar, Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar, Úlfars Eysteinssonar og Sverris Hermannssonar á horni Bústaðavegar og Reykjanesbrautar, verður væntanlega opnað mcð pompi og prakt hinn 2. nóvember nk. Að sögn Tómasar Tómassonar hafa framkvæmdir við bygging- una gengið vel og eru þær nú viku á undan áætlun. Lokið er við að reisa sperrur og var „reisugilli" haldið á laugardaginn var. „Þetta verður hefðbundinn skyndibitastaður, þar sem verður boðið upp á hamborgara, kjúkl- inga, fiskrétti og fleira ásamt venjulegu meðlæti," sagði Tómas Tómasson. „Við munum leggja áherslu á lágt verð, góðan mat og huggulegt umhverfi," sagði Tómas ennfremur. Þess má geta að þeir fjórmenn- ingarnir hafa fleiri járn í eldinum, Morgunblaöiö/J.S. Séð yfir innviðí Kökuhússins. Ljósakrónur og veggskreytingar eru sérbakað- ar. Þetta minnir óneitanlega á söguna um Hans og Grétu. Brauðgerðin Krútt opnar Kökuhús á Blönduósi Blönduósi, 15. september. BAUÐGERÐIN Krútt opnaði köku- hús í Aðalgötu 8 eða Helgafelli eins og Biöndósingar venjulega kalla húsið, sunnudaginn 15. september. Það er Húnfjörð hf. sem á og rekur þetta nýja og glæsilega kökuhús. Höfuðið og herðarnar á þessu fyrir- tæki eru þeir feðgarnir Þorsteinn og Óskar Húnfjörð. Auk þess aö reka þetta nýja kökuhús reka þeir stóra brauðgerð og framleiða hin lands- þekktu Krútt-brauð og Krútt- kringlur. Brauðgerðin Krútt tók til starfa 15. september 1968 í 60 fer- metra skúr en á 17. afmælisdeginum starfar fyrirtækið á um 750 fermetr- um. Þetta nýja kökuhús er í því hús- næði sem áður var verslunin Gimli og Apótek Blönduóss og Helgi Helgason starfrækti frá ár- inu 1949. Fr.á því Húnfjörð hf. festi kaup á húsnæði þessu og þar til kökuhúsið opnaði eru liðnar 6 vikur. Til gamans má geta þess að síðast smiðurinn yfirgaf vinnu sína við innréttingar kökuhússins hálfri stundu áður en fyrstu við- skiptavinirnir birtust. Kökuhúsið er ákaflega skemmtilega innrétt- að, ekki íburðarmikið en hlýlegt og öllu haganlega fyrirkomið. Þarna getur fólk komið og keypt ný sérbökuð brauð, kökur og allt milli himins og jarðar sem að bakstri lýtur. Fólk getur hvort heldur sem er haft mér sér kök- urnar heim eða snætt þær á stað- num, hvar sem sérbakaðir ljósa- skermar hanga vinalega yfir borð- um gesta. Það má segja að nokkuð danskt yfirbragð sé á fyrirtæki þessu og kannski ekki að undra. Danskur bakari, Poul Nielsen að nafni, sem hefur nafnbótina „besti bakari Danmerkur 1985“, hefur sl. hálfan mánuð aðstoðað við að gera þetta kökuhús að veruleika. Með þessu framtaki hefur Húnfjörð hf. lífgað verulega upp á gamla bæinn og tilveru Héraðsbúa. JX Nýtt skuldabréfaútboð 3. flokkur 1985 VeÓdeild Iðnaðarbanka íslands hf. Krónur 100.000.000 til lántöku handa einstaklingum og fyrirtækjum á verðbréfa- markaði, fyrir milligöngu banka. Verðgildi hvers bréfs er kr. 100.000,00 og eru bréfin 1000 talsins. Skuldabréfin eru til fimm ára, með jöfnum árlegum afborgunum, og bera 2% fasta vexti p.a. auk verðtryggingar. Til tryggingar bréfum þessum eru eignir og tekjur Veðdeildar Iðnaðarbanka íslands hf., auk ábyrgðar Iðnaðarbankans sbr. 36. gr. reglugerðar fyrir bankann nr. 62/1982. Reykjavík, 10. september 1985, IðnaðarbanM íslands hff
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.