Morgunblaðið - 18.09.1985, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
Morgunblaðid/Valdimqr
Að lokinni verðlaunaafhendingu í fjórgangi. Frá vinstri Daniela Schmitz á Seif, Unn Kroghen á Strák frá Kirkjubæ,
Michela Uferbach á Hæng, Morten Lund á Víkingi, Krisján Birgisson á Hálegg, Viola Hallmann á Garra og Hans
Georg Gundlach á Skolla.
Evrópumótið í Vargarda:
Tvenn verðlaun
dæmd af íslendingum
Hestar
Valdimar Kristinsson
Fjórgangskeppnin hefur lengi
verið erfið fyrir okkur íslendinga,
höfum náð í B-úrslitin og lítið
lengra. Aðalsteinn komst í A-úr-
slit ’79 og Reynir ’75. Nú fóru þrír
fjórgangshestar utan en hafa yfir-
leitt verið tveir. Töldu margir að
þeir ættu meiri möguleika fyrir
keppnina og jafnvel að við kæm-
um hesti í A-úrslitin. Hreggviður
á Fróða var tólfti keppandi í
hringinn og eftir að hafa fengið
sinn dóm var hann í 3. sæti.
Kristján var 20. inn og lenti í 2.
sæti en þegar hér var komið hafði
Hreggviður færst niður í fimmta
sæti og margir sterkir keppendur
eftir. Daniela Schnitz var komin í
efsta sæti á Seif frá Kirkjubæ.
Mátti því ljóst vera að hann félli
út úr A-úrslitum en spurning stóð
um Kristján sem var mað 52,02
stig. Skömmu seinna nær Morten
Lund Noregi sömu stigatölu á Vík-
ing frá Grímstungu og Kristján og
er nú leikur tekinn að æsast. Næst
er það EM-meistarinn Hans
Georg Gundlach á Skolla sem
skýst í efsta sætið og á eftir hon-
um kemur Viola Hallmann, Hol-
landi, á Garra frá Miðhúsum og
skipar hún sér á bekk með Krist-
jáni og þeim norska. Fjórði síðasti
keppandinn er svo Lárus Sig-
mundsson á Herði frá Bjóluhjá-
leigu og var nú staðan þannig að
færi hann yfir þríeykið að stiga-
tölu voru tveir íslendingar komnir
í A-úrslitin. Ekki tókst það heldur.
Voru það norska stúlkan Unn
Kroghen á nýjum hesti, Strák frá
Kirkjubæ, sem fór í þriðja sætið
og Michela Uferbach Austurríki á
Hæng frá Reykjavík varð fjórða.
Voru nú sjö hestar komnir í
A-úrslitin í stað fimm eins og gert
er ráð fyrir. Voru þau jöfn í
fimmta sæti Kristján, Morten
Lund og Hallmann.
í B-úrslitunum, þar sem voru
þrír keppendur vegna þessarar
uppákomu, vann Lárus sig upp í 8.
sæti, Cecilie Clausen Noregi á
hryssunni Heklu frá Vikingstad 9.
og Preben Troels-Smith Dan-
mörku á Væng frá Höjberg varð
10.
í A-úrslitunum var dómurum
vandi á höndum að dæma sjö
hesta samtímis enda tók frekar
langan tíma að afgreiða þessi úr-
slit. Þegar búið var að dæma öll
atriði nema yfirferðartölt virtist
allt stefna í öruggan sigur Hans
Georgs Gundlachs en hann varð
fyrir því óhappi að missa Skolla út
af brautinni á yfirferðinni og fékk
hann því 0 fyrir það atriði og þar
með fauk EM-titillinn út í veður
og vind. Það varð því hlutskipti
Danielu Schmitz Þýskalandi að
hreppa sigurinn að þessu sinni en
það er í fyrsta skipti sem hún
vinnur EM-titil þótt hún hafi ver-
ið í úrslitum fjórgangs á öllum
Evrópumótum síðan ’79 í Holl-
andi. Unn Kroghen varð önnur,
Michela Uferbach á Hæng frá
Reykjavík þriðja, Morten Lund
fjórði, Kristján fimmti og Viola
Hallmann sjötta. Lestina rak svo
Gundlach sem átti samúð allra
sem fylgdust með.
Sigurbjörn á Neista
í úrslit töltsins!
Eftir forkeppni í töltinu kom
upp sama staða og i fjórgangi, það
er að þrír keppendur voru jafnir í
5.-7. sæti og þar af leiðandi sjö í
A-úrslitum og aðeins þrír í B-úr-
slitunum.
Mikið hefur verið rætt og hugs-
að um hvernig við íslendingar
gætum komið hesti í A-úrslit
töltsins. Hefur helst verið talað
um að senda þyrfti einhvern
glæsilegan klárhest með tölti. En
öllum á óvart náði einn íslending-
ur þeim merka áfanga að komast í
þessi eftirsóttu úrslit. Var það
Sigurbjörn Bárðarson á alhliða-
hestinum Neista. Fullvíst má telja
að sá sem hefði spáð þessu fyrir
keppina hefði af flestum verið tal-
inn kjáni. Lykillinn að þessari
velgengni Sigurbjörns var sú að
hann vissi að engu var að tapa og
hann vissi líka að hægt var að ná
Neista góðum með því að ríða hon-
um glannalega í gegnum pró-
grammið þó á kostnað öryggisins.
Eftir forkeppnina var hann í
5.-7. sæti ásamt Morten Lund og
Unn Kroghen. í úrslitunum hafn-
aði hann í 6. sæti, Unn Kroghen 7.,
Morten Lund 5. Keppnin um
fyrsta sætið stóð á milli Gund-
lachs og annars Þjóðverja, Wolf-
gangs Berg, sem nú keppti í fyrsta
sinni á Evrópumóti. Hestur hans
heitir Funi og er fæddur í Þýska-
landi undan Verði frá Kýrholti.
Skemmst er frá því að segja að
Gundlach varð að láta í minni
pokann fyrir þessum prúða landa
sínum eftir jafna keppni. Má í
raun segja að smekksatriði sé
hvor keppandinn hafi átt sigur
skilinn. Hestur Gundlachs, Skolli,
er óneitanlega fegurri og mýkri en
hins vegar mátti á öllu sjá að
Gundlach átti í erfiðleikum með
hann í keppninni að þessu sinni.
Funi var aftur öryggið uppmálað
og skóp það sigur hans og knap-
ans. Bernd Vith, sem varð á sínum
tíma Evrópumeistari í bæði tölti
og fjórgangi á hinum fræga
Fagra-Blakk, kom nú fram með
nýjan hest, Órvar frá Kálfhóli, og
lentu þeir í 3. sæti og nýbakaður
Evrópumeistari í fjórgangi, Dani-
ela Schmitz og Seifur í fjórða sæti.
Af þessu má sjá að Þjóðverjar
hafa enn forystu í töltinu þótt yf-
irburðir þeirra í fjórganginum séu
minni en áður.
Framkvæmd skeið-
keppninnar
í molum
Glögglega kom í ljós þegar hefja
átti keppni í 250 metra skeiði að
þeir sem sjá áttu um framkvæmd
skeiðsins kunnu lítt til verka og
var mikil raun að þurfa að hanga
allan tímann yfir skeiðinu svo
stirðlega sem þetta gekk. Varð
manni hugsað að af þessum 300
íslendingum sem þarna voru hefði
vafalaust mátt finna nógu marga
reynda menn til að annst fram-
kvæmd skeiðsins svo vel færi. Er
greinilegt að í þessum efnum
standa íslendingar nokkrum fet-
um framar en félagar okkar í Evr-
ópu. Hefur raunin yfirleitt verið
sú á Evrópumótum að íslend-
ingarnir hafa þurft að láta breyta
einhverju varðandi framkvæmd
skeiðsins í samræmi við það sem
er hér heima. Nú átti til dæmis að
láta hestana starta aftast í rás-
básunum sem voru um fimm
metra langir. Eftir beiðni frá Is-
lendingunum var þessu breytt
enda bauð þetta upp á mikla slysa-
hættu.
Keppnin sjálf bauð upp á
nokkra góða spretti og var keppn-
Hjálmleysið varð Eiríki dýrkeypt f gæðingaskeiðinu en fyrir það var hann
dæmdur úr leik. Meðfylgjandi mynd er tekin í fimmganginum en þar máttu
menn vera hjálmlausir og hesturinn er að sjálfsögðu Hildingur frá
Hofsstaðaseli.
Einhvern tímann hefði það þðtt fréttnæmt að kona skyldi ríða hesti til sigurs
í skeiði en það gerði Dorte Rasmussen Danmörku á Blossa frá Endrup og
voru yfirburðir þeirra ótvíræðir.
Eftir að hafa verið í úrslitum fjórgangs síðustu þrjú Evrópumótin sigraði
Daniela Schmitz loks á Seif frá Kirkjubæ.
Glæsilegasti hestur mótsins var án efa Skolli frá Þýskalandi þótt ekki gengi
eigandanum, Hans Georg, sem best í keppninni.