Morgunblaðið - 18.09.1985, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985
49
Norsk timburhús
— eftir Eyjólf
Guðmundsson
Hér veröur í stuttu máli vikið
að húsagerð í Noregi, en stiklað
mjög á stóru, og eingöngu minnst
á timburhús. Þess er þó vænst að
þeir er þessa grein lesa verði
nokkru fróðari.
Mikill meirihluti allra íbúðar-
húsa í Noregi er byggður úr timbri,
gagnstætt því sem verið hefur á
Tslandi, en íslendingar nota sem
kunnugt er aðallega steinsteypu í
hús sín. Með ólíkum byggingarefn-
um verður byggingarstíll oft ólík-
ur, og stíll norskra timburhúsa og
íslenzkra steinhúsa er ekki hinn
sami.
Allt fram á síðustu öld tíðkuðust
í Noregi bjálkahús, og voru þá
bæði veggir og burðarásir í þaki
(langásar) úr trjábolum, sem
höggnir voru til, og börkur hreins-
aður af. Þök voru yfirleitt brött,
lögð stórum blágrýtishellum, skör-
uðum þannig að vatn rann frá
einni hellu á aðra. Höggvin voru
göt á hellurnar, og þær festar með
járnfleyg í langás eða aðra þakviði.
Með tilkomu sögunarmilla varð
auðveldara að fá borðvið og bein-
skorna „battinga". Hafði það mikil
áhrif á húsakost fólks, en í því
fólst bæði efnis- og vinnusparnað-
ur. I stað veggbjálkanna, komu nú
um 3“ þykk borð, en að breidd
8-12“, og voru þau felld hvert ofaná
annað, en á hornum útveggja
„splittuð" saman. Á löngum veggj-
um voru trénaglar (duflungar)
reknir inn í borðin, til að gera þau
stöðugri.
% x 2“ láréttar renglur, sem
naglhald fyrir klæðningu.
Veggpappi.
Olíubornar masonit-plötur, 12
mm þykkar.
2x6“ uppistöður, með 55 cm
millibili.
15 cm einangrun, milli uppistað-
anna.
Spónaplötur, eða viðarþiljur.
Spónaplöturnar eru ýmist mál-
aðar eða lagðar veggfóðri.
Síðustu árin hafa einingahús,
framleidd í verksmiðjum, rutt sér
mjög til rúms, en verksmiðjur
þessar leggja mikið kapp á fljóta
afgreiðslu og stuttan byggingar-
tíma.
Aksel Bruvik er eitt þeirra fyrir-
tækja, sem framleiða verksmiðju-
hús (einingahús), en nú eru meira
en 60 ár síðan fyrirtækið var stofn-
að, og þá sem trésmíðaverkstæði.
Þar hafa unnið um 200 manns, og
ársframleiðslan er u.þ.b. 500 hús.
Markaðssvæði er Noregur, en hús
hafa verið send til Svalbarða og
reynst vel í veðráttu sem er síst
betri en á íslandi.
Brödrene Hetland A.S. er annar
einingahúsaframleiðandi, sem
m.a. hefir selt hús til íslands.
Systemhús er tiltölulega ungt
fyrirtæki, sem selur hús sín gegn-
um norsku samvinnufélögin.
Asbjörn Buen Aií. er fyrirtæki
sem selur sumarbústaði með forn-
um og nýjum útskurði og útflúri.
Sumarhús þessi eru mjög vinsæl
þótt útbreiðsla þeirra sé takmörk-
uð.
Sumarbústaðir Norðmanna eru
nú yfirleitt heilsárshús, og hafa
tekið talsverðum stakkaskiptum
síðustu árin. Þeir eru nú stærri
og nýtískulegri og oft með útskurði
og súlum, svo sem var til forna á
byggingum konunga og efnaðra
bænda. í sumum byggðarlögum
má sjá þennan útskurð, á bæði
gömlum og nýjum húsum, t.d. í
uppsveitum Guðbrandsdals. Er
skemmtilegt að aka um þessi héruð
og virða fyrir sér þessi hús. Að
lokum skal því bætt við, að Norð-
menn eiga um 30 stafkirkjur, sem
byggðar eru á tímabilinu
1030-1300. Margt í húsagerðarlist
þeirra kemur fram í húsum síðari
tíma.
Höfundur er búsettur í Noregi og
hefur skrifað greinar þaðan í Morg-
unbiaðið um írabil.
Votyidrasamt í Öxarfirði:
Hús frá Asbjern Buen AJS. Útskurður á vindskeiðum. Súlur á yfirbyggðum
svalagangi.
I stað blágrýtishellanna komu
síðar „shifferhellur", sem eru í
notkun allt fram til þessa. Með
tilkomu þeirra urðu þökin mun
léttari, og þarafleiðandi hægt að
notast við veikari burðarviði. Það
er reyndar ekki fyrr en eftir
heimsstyrjöldina síðari, að það
verður bylting í húsagerð Norð-
manna. Allt fram til þess tíma
voru hús byggð án haldgóðrar
einangrunar, og varð því upphitun-
arkostnaður mikill. Nú eru íbúðar-
hús byggð eftir ströngu eftirliti
hins opinbera og m.a. krafist góðr-
ar einangrunar, vegghæðar inni
minnst 240 cm, og að gluggar séu
það stórir að glerflöturinn sé ekki
minni en sem svarar 10% af gólf-
fleti.
Hvað snertir glugga, þá hefur
þar orðið mikil breyting síðustu
15 árin. Fyrir þann tíma voru
gluggar með einföldu gleri, rúður
margar í hverjum glugga, og
misjafnlega vel frá þeim gengið.
Nú eru gluggar yfirleitt úr tvö-
földu eða þreföldu gleri, og oftast
ein rúða allur glugginn.
Þök hinna nýrri húsa eru ýmist
með léttum þaksteini, rauðum, eða
svörtum, eða með álklæðningu,
rauðri eða grænni. Þakpappi með
munstri er einnig notaður, en
ending hans er sjaldan meiri en
10 ár.
„Standard" útveggur í venjulegu
norsku íbúðarhúsi er eitthvað á
þessa leið, talið fyrst utanfrá:
% x 6“ lóðrétt klæðning (borð úr
furu eða greni.
Heyskap er ekki
enn lokið að fullu
SkinnasUð, Öxarfirdi, 12. september.
TÍÐARFARIÐ var votviðrasamt í
byggðunum við Öxarfjörð nyrðra allt
frá hvítasunuhretinu í maí og þar til
nú er komið er að göngum. Gras-
spretta var sæmileg, en heyskapur
gekk stirðlega og er ekki enn að
fullu lokið á sumum bæjum. Margir
hafa þó alhirt. Að sögn Sigurðar
Jónssonar veðurathugunarmanns í
Garði voru 26 þurrir dagar frá og
mcð júní til ágústloka auk nokkurra
er úrkoma var ekki mælanleg. Slíkt
sumar hefur ekki komið hér síðan
1979.
Ferðamannastraumur var með
minnsta móti og mest útlend-
ingar. Einkennilegrar gróður-
skemmdar hefur orðið vart á
Kelduhverfisheiðum. Aðallega á
um 5 km breiðu belti á að giska
1—200 m yfir sjó og nær beltið
þvert verstur yfir sveitina ofan
byggðar. Þar eru lyngmóar gráir
og svartir af eyðileggingu. Virðist
fjalldrapi og berjalyng hafa orðið
verst úti en birki sloppið betur.
Skemmdirnar eru raktar til
óskaplegrar mergðar af fiðrildum,
sem sást á þessum slóðum bæði
þetta sumar og í sumar sem leið.
Ekki mun þetta þó visindalega
rannsakað. Sigurvin
Rowenta
Sælkeraofnlnn
er alveg ótrú-
lega fjölhæfur
Verö aöeins
kr. 3-490--
Vorumarkaðurinn ht
J Ármúla 1a,
s. 686117.
ve'b*> !
ciJBT’l’
vids
Hiptavinir^akiega
w'-hLodui*1 a Ifutaverð-
Víð S var* J'SS kauP-
9
Uo«*iurl: .....
Ga*ant
Lanc«r •■;....••
Cott • Ll' '84 •
Godl^er —
Bang«R0
Smur»'urf:.....
Galan* • ......
Lancer • • ....
Cod ...........
GOlt ••""..••
Je«» /"...••
pa»»at “
Colt ..........
Lancej ••;’....
Galan* • .....
paier° "verfr-
Verbg,
•■•• 299
• " 299
• • " 299
"" 160
Vef® kr‘J
195
195
••" 195
••" 195
•" 195
*
Höggdeytet'-
GoK,r- ""..•••
jett»,r- ........
Pa|er°.,r- ....•••
1.3001*- •*......
Col,,r"".........
Gaian‘ 1*- .....
Galan* a«- _
BangeB°ver
V»tn»K*lL .
g°',1,1?6O0’77"
Ga'cer 1600 '77 "
B8angeR0Ver::::
Min' ••"
'2*3*2* ■■
íaod*°',e
>lu r l;
G°lf ■••
jett* ,• •
pa»sa* '
CoK •' ‘
L»ncer
Gaian* •
[
SAMA VERÐ UM LAND ALLT!
]
w
RAINIGE ROVER
ta
HEKIAHF
Laugavegi 170-172 Sími 21240