Morgunblaðið - 18.09.1985, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 18.09.1985, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1985 fclK í fréttum Það krefst mikillar einbeitingar að halda jafnvægi á sjóskíðunum eins og sést á svip þessarar dönsku stúlku. N orðurlandameistarar í pokahiaupi Sjónskert ungmenni frá Noregi, fslandi, Danmörku og Finn- landi, hittust i sumar á móti i Noregi. Slík mót hafa verið árviss viðburður síðastliðin tíu til fimmt- án ár og verið haldin víðsvegar um Norðurlönd, þó ekki hér á Islandi. Sex íslendingar sóttu mót þetta, fjórir sjónskertir og tveir fylgd- armenn. Tilgangurinn með mótshaldinu er að sjónskertir hittist og ræði mál sín, auk þess að taka þátt í ýmsum íþróttum og leikjum. Meðal Islendinganna sem fóru var Gísli Helgason og sagði hann mótið hafa heppnast geysivel og greinilegt að samstarf af þessu tagi þyrfti að efla. Meðal þess sem menn tóku sér fyrir hendur var að þeytast um Einafjörð, en þar var mótið haldið, á sjóskíðum. Norðmenn hafa hann- að sjóskíði, sem eru þeim kostum búin að fatlaðir, jafnvel þeir sem eru lamaðir fyrir neðan mitti geta auðveldlega látið draga sig á þeim. Einn íslendinganna, Sigurður Sig- urðsson, sem auk blindunnar er lamaður, stundaði þessa íþrótt til dæmis af kappi, með góðum árangri. Efnt var til Norðurlandakeppni í ýmsum íþróttagreinum, meðal annars í blöðrublæstri, öldrykkju, skotfimi og pokahlaupi. íslending- arnir sigruðu með miklum glæsi- brag í pokahlaupinu og eru þar með Norðurlandameistarar í þeirri grein. Þótti honum að vonum súrt í broti að tapa og fengu íslending- arnir viðurnefnið skítsekkir fyrir vikið. Ekki fer neinum sögum af frammistöðu íslendinganna í öl- drykkjunni, enda lítil aðstaða til æfinga í þeirri grein hérlendis. Sumum kann að virðast skrítið að sjónskertir geti keppt í skotfimi, en Norðmenn hafa hannað sérstaka byssu til notkunar í þeirri keppni sem búin er ljósmæli í stað sjón- auka. Miðpunkturinn á skotskíf- unni gefur frá sér ljós af tiðni stilltri þannig að þegar ljósmælir- inn nemur hana gefur hann frá sér hljóðmerki. Þannig má miða nokk- uð nákvæmlega án þess að sjá skif- una. íslendingar ætla að reyna að taka þátt í mótum þessum af fullum krafti framvegis og er meðal annars í undirbúningi að halda það á ís- landi sumarið 1987. Flugmenn og flugvirkjar Arnarflugs höfðu rétt tíma til að líta upp úr vinnu sinni fyrir Ijósmyndara Morgunblaðsins. Vélin sem þeir máluðu er í baksýn. FLUGMENN OG FLUGVIRKJAR ARNARFLUGS: Laura Ingalls orðin tvftug Þeir drifu sig í galla og fóru að skrapa og mála Islenska sjónvarpið hefur sýnt „Húsið á sléttunni" undanfarin ár en hún Laura Ingalls, réttu nafni Melissa Gilbert, er ekki lengur freknótta stelpan með síðu flétturnar. Nú er Melissa orðin tvítug gjafvaxta stúlka. Hún hefur leikið í sjónvarpsþáttunum sl. ellefu ár en fyrir þremur árum hitti hún sinn heittelskaða, Rob Lowe, við umferð- arljós í miðri Los Angeles-borg. Á myndunum má sjá Meiissu eins og hún lítur út í dag og eins og hún var í sjónvarpsþáttunum. Á þriðju myndinni er hún með kærast- anum sínum, Rob. Samstarfs- andinn hefur blómstrað undan- farna daga hjá flug- mönnum og flug- virkjum Arnar- flugs, en þeir ásamt deildarstjóra inn- anlandsdeildar, tóku sig til, drifu sig í málningar- galla og fóru að skrapa og mála Twin Otter-vél fé- ' lagsins, bæði að innan og utan. „Venjulega eru fengnir fagmenn í málningarvinnuna, en eins og allir vita Þorgeir Haraldsson, (lugmaður hjá Arnarflugi, undirbýr hér annan vænginn fyrir málningu. er Arnarflug lítið félag svo að allir verða að leggja sitt af mörkum svo að reksturinn gangi vel,“ sagði Sighvat- ur Blöndahl, blaða- fulltrúi Arnarflugs, í samtali við Morg- unblaðið. Tíu starfsmenn félagsins taka þátt í verkinu, sem unn- ið er í frítíma og í sjálfboðavinnu. Vélin hefur verið óslitið í notkun í allt sumar, og er nú einnig verið að skipta um annan hreyfilinn á henni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.