Morgunblaðið - 08.11.1985, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 08.11.1985, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. NÓVEMBKR 1985 37 Gaf spítölum 140 lítra af móðurmjólk óðurmjólkin hefur löng- um verið talin nauðsynleg fyrir ungabarnið fyrstu ævimán- uðina enda rík af efnum sem kornabarnið þarf á að halda. Sisko Lyngmo sem er finnsk hafði nóga mjólk í brjóstum sínum fyrir litlu dóttur sína sem hún fæddi í byrjun ársins og einnig fyrir ótalin lítil börn á spítölum sem ekki áttu kost á móðurmjólkinni. Alls lét hún frá sér 140 lítra fyrstu sjö mánuðina eftir barnsburðinn. Sisko segir um þetta að gleðin sé þvílík að geta nært sitt eigið barn og jafn- framt hjálpað öðrum að hún geri þetta fúslega í næsta skipti sem hún fæði. INGVAR GUNNARSSON ÚTVARPSÞULUR Gerði lítið gagn fyrstu dagana og var afskaplega taugaóstyrkur w Utvarp Keykjavík, nú veróa sagðar fréttir. Imlur er Ingvar Gunnarsson. Eitthvaó á þessa leið hljómar daglega í eyrum hlustenda ríkisút- varpsins. Fyrir stuttu mátti heyra nýja rödd kynna og er þar á ferðinni Ingvar Gunnarsson. „Það var nú eiginlega tilviljun háð að ég komst f þetta starf. Ég sá auglýsinguna í sumar og fór svona af rælni niður í útvarp þar sem ég las nokkrar klausur inn á band. Svo leið tíminn og beið og seinna hringdi starfsmannastjórinn í mig og bauð mér starfið. Þetta hefur verið virkilega skemmtilegt, en ég neita því ekki að fyrstu dagana gerði ég lítið gagn, mikið af skekkjum og var afskaplega taugaóstyrkur. í raun er það hægara sagt en gert að komast hjá byrjunarskekkjum frammi fyrir alþjóð, því það er engin æfingaaðstaða önnur en í upptökunni sjálfri. Þegar tækniörðugleikarnir voru gengnir yfir og maður var farinn að ráða við þetta þá fór hjartað að slá á eðlilegum hraða. Ég man þegar ég var að byrja þá kom að fjögur fréttunum og þær eiga þulir ekki að kynna. þetta vissi ég ekki og Gerður G. Bjarklind er mætt þegar ég byrja. Hún baðar náttúrulega út öllum öngum og ég fipast, segi að klukkan sé tvö, nei orðin fjögur og nú séu fréttir næst á dagskrá. Þetta er það pínlegasta sem hefur komið fyrir mig þarna.“ Við hvað vannstu áður en þú byrj- aðir sem þulur? Ég hef verið við nám í háskólanum í sagnfræði undanfarin ár og stefni að kandidatsprófi með þularstarfinu. Ég hef svo verið í hinu og þessu og meðal annars kennt um árabil. Ingvar Gunnarsson útvarpsþulur. COSPER — Lögtaksmennirnir náðu í legubekkinn, sem mamma þín svaf á, og ég fékk mig ekki til að vekja hana. Meistarafélag húsa- smiða og Bjarkirnar halda sameiginlega árshátíö, laugar- daginn 9. nóv., aö Skipholti 70. Hátíöin hefst kl. 19.00 meö sameig- inlegu boröhaldi. Aögöngumiöar seldiráskrifstofunni kl. 1 —5áföstu- dag. Skemmtinefndirnar Viðtalstími borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík________________ i Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins verða til viðtals í J Valhöll, Háaleitisbraut 1,álaugardögumfrákl. 10—12. ■ Er þar tekið á móti hverskyns fyrirspurnum og ábend- J ingum og er öllum borgarbúum boöið að notfæra sér ■ > viðtalstímaþessa. I Laugardaginn 9. nóvember veröa ■ til viötals Ingibjörg J. Rafnar, for- ■ maöur félagsmálaráös og hafnar- ■ stjórnar og Július Hafstein for- a maöur íþróttaráðs Reykjavíkur og ■ samstarfsnef ndar um feröamál. ALLTAF Á LAUGARDÖGUM i.Fgpng UNDRABARNSEM KOMIÐ ER ÁTOPPINN Grein um Anne-Sophie Mutter, fiölusnill- inginn unga, sem væntanleg er til islands ogmun leikahér. FIMM í PERÚ Sagt f rá ævintýraför fimm félaga úr ís- lenzka alpaklúbbnum, en þeir fóru aö klífa hæstu f jöll í Perú, yfir 6 þús. metra há. HJÚSKAPUR OG KONUMISSIR i tilefni 150 ára afmælis Matthíasar Joch- umssonar er gripiö niður í endurminningar hans, Sögukaflar af sjálfum mér. HEIMAVAR TÖLUÐ DANSKA Helga Krabbe rifjar upp gamlar Reykjavik- urminningar. Vönduð og menningarleg helgarlesning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.