Morgunblaðið - 16.11.1985, Side 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR16. NÓVEMBER1985
Becker aldrei betri
VESTUR-ÞÝSKA tennisstjarnan
Boris Becker, segir að hann sé í
betri æfingu nú en þegar hann
vann Wimbledon í júli. Hann
keppir nú é Benson og Hedges-
mótinu í tennis, sem fram fer á
Wembley-íþróttasvæðinu í Lond-
on í þessari viku og lýkur á sunnu-
dag.
„Ég hef mun meira sjálfstraust
nú. Slæ boltann fastar og er fljótari.
Ég hef einnig lagt áherslu á fóta-
buröinn," sagöi Becker, sem er
aöeins 17 ára og hefur veriö talinn
undrabarniö í tennisíþróttinni.
Becker hefur verið mikiö í sviös-
Ijósinu eftir aö hann varö sigurveg-
ari á Wimbledon-mótinu í tennis í
júli í sumar. Hann er yngsti tennis-
leikarinn sem unniö hefur þennan
eftirsóttatitil.
Becker mun á laugardag mæta
Svíanum Anders Jarryd í undanúr-
slitum. Ivan Lendl, sem talinn er
besti tennisleikari heims í dag,
mætir Larry Stefanki frá Bandaríkj-
unum.
Óskaúrslitaleikur keppninnar er
viöureign Beckers og Lendl. Beck-
er vann Lendl í keppni landsliöa
Vestur-Þýskalands og Tókkó-
slóvakíu í síöasta mánuöi.
HSÍ færi bensínpeninga
Þóröur Ásgeirsson, forstjóri OLÍS, afhendir Jóni Hjaltlaín Magnússyni, formanni HSÍ, ávísun að fjárhæð
kr. 150.000.-
Hér er um að ræða fyrstu greiðsluna af sex sem HSÍ fær vegna þess að OLÍS greiðir í landsliðs-
sjóð 0,05 kr. fyrir hvern bensínlítra sem selst á bensínstöðvum OLÍS á tímabilinu 1. október 1985 til
19. mars 1986. Veröi bensínsala OLÍS svipuö og á sama tíma í fyrra fær HSÍ þannig alls 800-900 þús-
und krónur en aukist bensínsala OLÍS kemur það HSÍ til góða.
Vorum að fá sendingu af Nor-hillu-
samstæðum á kr.JASOO stk.
Það kallar maður svefnbekksverð.
Einnig: Stólar frá kr. 1.500, sófaborð frá kr.
3.500, leðurskemlar frá kr. 1.500, speglar frá
kr. 1.000 og síðast en ekki síst svefnbekkir á
stólaverði aðeins 6.000 kr.
Sendum í póstkröfu um allt land.
Opið um helgina til kl. 17.00.
bólsírun
GUÐMUNDAR
Nöiinugötu 16, Re'i’k]a\ík, s. 22890
Meistaramótið í
Shotokan-karate
f DAG fer fram í íþróttahúsi
Gerplu í Kópavogi meistaramót í
Shotokan karate. Þetta er í þriöja
sinn sem slíkt meistaramót er
haldiö en eins og kunnugt er þá
er karate ung íþrótt hér á landi.
Mótið hefst klukkan 11 árdegis
og búist er við aö úrslitin hefjist
um klukkan 14.
Karatefélagiö Þórshamar í
Reykjavík hefur sigraö á þeim mót-
um sem haldin hafa veriö til þessa
en nú hafa hin fjögur félögin sem
þátt taka fullan hug á aö gera ein-
hverja breytingu þar á.
Þaö eru rúmlega 50 karatemenn
sem taka þátt i þessu móti og koma
þeir frá fimm karatefélögum, Þórs-
hamri, Breiöabliki, Gerplu, Selfossi
og fráSindra í Höfn í Hornafiröi.
Meöal keppenda eru allir okkar
bestu karatemenn og má þar nefna
Ævar Þorsteinsson úr Breiöabliki
sem stóö sig svo vel á Noröurlanda-
mótinu sem fram fór í Laugardals-
höll fyrr í haust. Karl Sigurjónsson,
Gísli Pálsson og Kristín Einarsdóttir
keppa öll en þau lentu í fjóröa sæti
áNM.
Þrír úr GR
á Evrópumótum
j NÆSTU viku hefst á Aloha-vell-
inum í Marbella á Spáni Evrópu-
keppni félagsliða í golfi.
Þar sem Golfklúbbur Reykjavtk-
ur sigraöi í sveitakeppni GSi sl.
sumar, þá mun sveit klúbbsins
keppa í mótinu fyrir islands hönd.
Sveitin veröur þannig skipuö:
Hannes Eyvindsson, Ragnar Ólafs-
son og Siguröur Pétursson. Liös-
stjóri veröur Björgúlfur Lúövíksson.
Hannes og Björgúlfur héldu utan í
gær, föstudag, en Ragnar og Sig-
uröur eru erlendis viö æfingar. Mót-
iö hefst á mánudag meö æfinga-
dögum, en keppnin sjálf á miöviku-
dag til laugardags.
Flutt í Br&utarholt 3
JL.
nr
(MJÖLNISHOLT 14)
Sýning á nýjum
INVTTA innréttingum laugardaginn
16. nóv. kl. 10 — 17 og sunnudaginn
17. nóv. kl. 13-17.
ELDASKÁLINN
Nóatún
BRAUTARHOLTI 3 e NYTT SIMANUMER: 621420