Morgunblaðið - 19.12.1985, Side 1
96 SIÐUR B
STOFNAÐ1913
287. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 19. DESEMBER 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Afríkuhjálpin bjargaði
3 milhónum manns
Sameinudu þjóóunum, 18. desember. AP.
i þjóóunui
ÞREMUR milljónum mannslífa var
bjargað í Afríku á árunum 1984—85
með aöstoðinni sem þangaö barst,
en hún er metin til nær þriggja
milljaröa Bandaríkjadala, aö sögn
yfirmanns Afríkuhjálpar Sameinuöu
þjóðanna, Bradford Morse. Hann
Filippseyjar:
Óttast um líf 200
eftir ferjuslys
Manila. Filippaeyjum, 18. desember. AP.
FERJU með 200 manns innanborðs
hvolfdi og var óttast um líf allra
nema þriggja sem bjargast höfðu
þegar síðast fréttist. Björgunarskip
á vegum strandgæslunnar er á leið-
inni á slysstað um 160 kílómetra
suður af höfuðborginni Manila, við
Mindoro-eyjar. í hafinu þar er mik-
ið af hákörlum.
Þeim þremur sem lifðu tókst að
bjarga um borð í strandgæslubát
sem var á þessu svæði og hugsan-
legt er að fleiri hafi verið teknir
upp í önnur skip, þó engar fregnir
hafi borist þar um. Ferjan Asun-
cion var á leið til Palawan-eyjanna.
sagði jafnframt að einn milljarð
dala þurli á næsta ári, auk sjóða til
þess að færa matvæli frá þeim
svæðum Afríku, þar sem meira en
nægur matur er til þeirra þar sem
hungrið er landlægt.
545 milljónir dala fóru beint til
matarkaupa á síðustu tveimur
árum, en afgangur peninganna fór
til kaupa á sáðfræi, tækjum til
landbúnaðar, til að grafa vatns-
brunna, samgangna, lyfja- og
læknisáhalda og fleira. Morse
sagði á fundi með fréttamönnum
að sex af 20 löndum sem aðstoðar
hefðu þurft, ættu ennþá við alvar-
leg vandamál að stríða. Þau eru:
Angóla, Botswana, Cape Verde,
Eþíopía, Mósambique og Súdan.
Samtals eru það 19 milljónir
manna í þessum löndum sem þurfa
aðstoðar við.
„Það er nægur matur í Afríku
til þess að fæða alla Afríkubúa,"
sagði hann, en bætti við að það
vantaði fjármagn til kaupa á korni
og dreifingu þess. í Kenýa, Níger
og Zimbabwe er til dæmis til meira
korn en þarf til lífsviðurværis íbú-
anna.
Sagði hann að Afríkuhjálpin
hefði tekist framúrskarandi vel.
Tekið utan af
frelsisstyttunni
New Y’ork, 18. desember. AP.
Verkamenn hófust handa um að
taka vinnupalla utan af frelsis-
styttunni, sem verið hefur í við-
gerð að undanförnu. Viðgerð að
utan er nú lokið, en enn er talsverð
vinna eftir að innanverðu. Byrjað
var á að taka utan af kyndli frelsis-
styttunnar.
AP/Símamynd
Tillaga ailsherjarþings Sameinuðu þjóóanna:
Viðskiptabanni gegn
Nicaragua verði hætt
— ísland greiddi tillögunni atkvæði sitt
SamrinuAu þjoóunum. 18. deuember. AP.
Allsherjarþing Sameinuðu þjóð-
anna samþykkti með 91 atkvæói
gegn 6 áskorun á Bandaríkin um
AP/Símamynd
Mitterrand, Frakklandsforseti, og Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands,
á sameiginlegum blaðamannafundi ( Elyseehöíl f gær. Leiðtogarnir ræddu
í tvær klukkustundir um varnarmál.
Þjóðverjar taka þátt
í geimvarnaáætlun
Bonn, Ventur—Þýsknlnndi. 18. denember. AP.
VESTUR-ÞÝSKA ríkisstjórnin ákvað í dag að leyfa þarlendum fyrirtækjum
að semja við Bandaríkjamenn um þátt Vestur-Þjóðverja í geimvarnaáætlun-
inni. Helmut Kohl, kanslari, útnefndi í gær Martin Bangemann, viðskipta-
ráðherra (FDP), stjórnanda samningaviðræðna fyrir hönd fyrirtækjanna og
heldur hann til Bandaríkjanna í byrjun næsta árs.
Gert er ráð fyrir að viðræður
um hlut vestur-þýskra fyrirtækja
í geimvarnaáætluninni hefjist í
janúar og kvað stjórnin í Bonn
skýrt á um það að ekki yrði um
niðurgreiðslur að ræða til hlutað-
eigandi fyrirtækja. Vestur-þýsk
stjórnvöld myndu aðeins reyna að
tryggja rétt fyrirtækjanna og
sjá til þess að þau fengju einkaleyfi
á eigin uppfinningum, upplýsingar
um tækniatriði og aðgang að nauð-
synlegum upplýsingum.
Erich Honecker, leiðtogi Aust-
ur-Þýskalands, sagði í dag, að
þátttaka Vestur-Þjóðverja myndi
hafa áhrif til hins verra á sam-
skipti grannríkjanna, en ekki
standa þeim með öllu fyrir þrifum.
Sovéska fréttastofan TASS for-
dæmdi í dag ákvörðun Vestur-
Þjóðverja um að heimila fyrir-
tækjum aðild að geimvarnaáætl-
uninni.
Ákvörðun stjórnarinnar um að
taka þátt í geimvarnaáætluninni á
ugglaust eftir að vekja miklar
deilur heima fyrir og hafa meira
að segja þingmenn stjórnarflokk-
anna, CDU/CSU og FDP, varað
við því að vestur-þýsk fyrirtæki
gengju til samstarfs við Banda-
ríkjamenn um geimvarnir.
Fram til þessa hafa aðeins Bret-
ar ákveðið að taka þátt í geim-
varnaáætluninni. Frakkar hafa
gagnrýnt þátttöku Evrópuríkja
harðlega. Helmut Kohl, kanslari,
er um þessar mundir staddur í
Frakklandi til viðræðna við Fran-
cois Mitterrand. Leiðtogarnir hafa
ákveðið að efla samstarf í hernað-
armálum, en þeir eru ekki á eitt
sáttir um geimvarnaáætlunina.
að hætta viðskiptaþvingunum
gegn Nicaragua. Sjö vestrænar
bandalagsþjóðir Bandaríkjanna,
þar á meöal ísland, greiddu
áskoruninni atkvæði sitt. Auk ís-
lands voru það Ástralía, Dan-
mörk, Frakkland, Grikkland,
Nýja-Sjáland og Spánn. 49 þjóðir
sátu hjá við atkvæðagreiösluna,
þar á meöal flestallar aðrar vest-
rænar þjóðir.
Með Bandaríkjunum voru á
móti tillögunni Gambia,
Grenada, fsrael, St. Cristopher
og Nevis. Á Bandaríkin var ekki
minnst í tillögunni, en þar sagði
að allsherjarþingið harmaði ný-
legar viðskiptaþvinganir og aðrar
þvinganir gegn Nicaragua.
Sendiherra Nicaragua hjá
Sameinuðu þjóðunum sagði við-
skiptaþvinganirnar vera óréttlát-
ar, ólöglegar og fáránlegar. Sagð-
ist hann vonast til þess að álykt-
unin yrði til þess að ríkisstjórn
Bandaríkjanna íhugaði þau al-
varlegu mistök sem hún væri að
gera, ekki aðeins hvað varðaði
þessar viðskiptaþvinganir, held-
ur hvað snerti alla stefnu hennar
gagnvart Nicaragua, sem ein-
kenndist af árásargirni, hvort
sem litið væri til viðskipta eöa
hernaðar.
Mýs hlaupa
fyrir björg
Tel Atíy, 18. desember. AP.
HUNDRUÐ músa drepa sig
daglega með því að hlaupa fyrir
björg ( Gólanhæðum að sögn
vísindamanna ( ísrael. Segja
þeir skýringuna á þessu vera
eðlislæg viðbrögð þeirra við of-
fjölgun.
Um 150 dauðar mýs voru
taldar fyrir neðan hæð eina og
vísindamaður frá náttúrufræði-
stofnun í Israel segist hafa séð
hópa músa ganga fyrir björg
annars staðar i Gólanhæðum.
Sagði hann skýringuna senni-
lega vera þá að ekki væri næg
fæða né lífsrými fyrir þær 250
milljónir músa sem taldar eru
lifa í Gólanhæðum. Fjöldi músa
þar hefur minnkað mikið und-
anfarna mánuði til mikillar
ánægju fyrir bændur á svæð-
inu. Hins vegar eru taldar líkur
á því að uglustofninn þar muni
þjást vegna þessa, en mýs eru
helsta lifibrauð uglunnar.