Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
3
Morgunblaði/RAX
Jón Þórðarson og Valdimar Gunnarsson standa við kerið þar sem lúðan er
alin.
Tilraunir með lúðueldi
KISKELDISSTÖDIN íslandslax hf. í Grindavík hefur nýlega hafið tilraunir
með lúðueldi í samvinnu við Hafrannsóknastofnun og Kannsóknastofnun
fiskiðnaðarins. Um 120 smálúðu, að meðaltali eitt og hálft kfló að þyngd,
eru komnar í eldisker og „er meiningin að reyna að ala kvikindin eitthvað
áfram, jafnvel tii þriggja ára,“ að sögn Jóns Þórðarsonar stöðvarstjóra hjá
ísiandslaxi.
Valdimar Gunnarsson sjávarút-
vegsfræðingur, sagði, að sér vitan-
lega hefði ekki verið reynt annars
staöar að ala svo stóra lúðu. Úti-
lokað væri að segja til um það
fyrirfram hvort tækist að fá lúð-
una til að taka tilbúið fóður, það
yrði einfaldlega að koma í Ijós.
En ef vel gengi gæti hér verið um
arðvænlegt eldi að ræða, því
þriggja ára lúða getur verið allt
upp í 15 kíló að þyngd.
Sauðárkrókur:
Hreinn Sigurðsson
tryggir sér vatns-
réttindi í Heiðarlandi
HREINN Sigurðsson, sem vinnur
að því að koma á fót á Sauðárkróki
verksmiðju til átöppunar á vatni til
útflutnings, hefur gert samning við
eiganda jarðarinnar Heiði í Göngu-
skörðum, Agnar Búa Agnarsson, um
vatnsréttindi í landi hans til 43ja
ára. Samningnum hefur verið þing-
lýst. Landamerki jarðanna Heiði og
Veðramóts liggja saman, og hefur
Sauðárkrókskaupstaður vatnsrétt-
indi í Veðramótslandi. Hreinn hafði
áður gert samning við Sauðárkróks-
kaupstað um rannsóknir og kaup á
vatni í Veðramótslandi. Sá samning-
ur rann út í ágúst sl. og neitaði
bærinn að endurnýja hann.
“Ég hef nú tryggt mér réttindi
á jafn góðu landi til 43ja ára og
mér stendur til boða fjármagn frá
erlendum aðilum, svo ég mun
halda ótrauður áfram því starfi
sem ég hef verið að hugsa um I
10 ár,“ sagði Hreinn Sigurðsson.
©
INNLENT
Jón Helgason for-
sætisráðherra í
fjarveru Steingríms
JÓN Helgason, dóms- og landbúnað-
arráðherra, gegnir embætti forsætis-
ráðherra í fjarveru Steingríms Her-
mannssonar.
Steingrímur fór utan síðdegis á
þriðjudag til að sitja fundi á vegum
Norðurlandaráðs og taka þátt í
fagnaði Finna í tilefni þess að þrír
áratugir eru liðnir frá því þeir ósk-
uðu setu í Norðurlandaráði. Með
honum í förinni eru Halldór Ás-
grímsson, sjávarútvegsráðherra,
Páll Pétursson, alþingismaður, sem
er forseti Norðurlandaráðs, og
Snjólaug Ólafsdóttir, starfsmaður
íslandsdeildar ráðsins.
írsk nunna í klaustr-
ið í Hafnarfírði
— fyrir eru 14 pólskar nunnur
ÍRSK nunna hefur bæst í hóp systranna í Karmelítaklaustrinu í Hafnar-
firði, en þar voru fyrir 14 pólskar nunnur, sem komu hingað á sl. ári.
Að sögn Hinriks Frehen, biskups kaþólskra á tslandi, hefur írska
stúlkan, sem er 28 ára gömul og heitir Terry Butler, verið hér á
landi í eitt ár og unnið fyrir kaþólsku kirkjuna. „Hún heillaðist
mjög af starfi nunnanna í Hafnarfirði og sótti um að komast
þangað. Hún fór í klaustrið 7. desember sl. og hefur hún þrjú ár
til að gera upp hug sinn. Að þeim tíma liðnum stengir hún sérstakt
heit við reglu karmelíta og verður þá ekki aftur snúið úr þvi hlut-
verki sem hún hefur kosið sér.“
Hinrik sagði að auðvitað væri munur á pólsku nunnunum og
þeirri írsku hvað varðar venjur, siði, tungumál og menningu, en
hún virtist sætta sig við þann mun og væri tilbúin að eyða lífi
sínu í klaustrinu. „Nunnurnar í Hafnarfirði fara aldrei út fyrir
veggi klaustursins heldur helga þær lífi sínu algjörlega bænagjörð-
um, auk þess sem þær gera nokkuð af handavinnu í fjáröflunar-
skyni. Þær hafa sérstakan starfsmann sem verslar inn fyrir þær.“