Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
Börnin leggja sitt afmörkum
Söfnuninni „Brauð handa hungruðum heimi“ barst óvænt framlag í gær þegar 10 ára börn úr Seljaskóla í
Breiðholti gáfu andvirði jólapakka, sem þau gefa hvert öðru og kalla „ruglupakka" til söfnunarinnar. Að sögn
Guðmundar Einarssonar framkvæmdastjóra Hjálparstofnunar kirkjunnar hafa safnast rúmar 8 milljónir króna
í söfnunina, sem nú stendur sem hæst.
Borgarráö:
Hafnar beiðni Sendibfla hf.
um framlengingu leyfís
Þjófar ógnuðu
öryggisvörðum
ÖRYGGISVERÐIR Securitas komu
að tveimur innbrotsþjófum í húsi
Golfklúbbs Reykjavíkur í Grafar-
holti í fyrrinótt og ógnuðu þjófarnir
vörðunum með kylfum og sluppu út
í náttmyrkið. En undankoma þeirra
var skammvinn — lögreglan í
Reykjavík handtók annan þeirra við
Rauðavatn skömmu síðar og leitar
nú hins.
Verðir fóru upp I Grafarholt
eftir að viðvörunarkerfi Securitas
gaf merki um óboðna gesti. Þar
sáu þeir bifreið þjófanna og að
hurð á golfskálanum hafði verið
brotin upp. Lögreglu var umsvifa-
laust gert viðvart og voru þjófarnir
inni í skálanum. Þeir höfðu brotið
upp hurðir og reynt að gera örygg-
iskerfi skálans óvirkt, en ekki
tekist. Þjófarnir brugðu hart við
og ógnuðu vörðunum með kylfum
og sluppu út í náttmyrkið.
Lögregla kom skömmu síðar á
vettvang og hófst umfangsmikil
leit að þjófunum, sem leiddi til
þess að annar þeirra var hand-
tekinn upp við Rauðavatn. Um
helgina handtók lögreglan í
Reykjavík sjö menn í Skeifunni
þar sem þeir hugðu á innbrot.
Öryggisverðir Securitas urðu varir
við grunsamlegar mannaferðir og
gerðu lögreglu viðvart og leiddi
það til handtöku mannanna. „Þessi
tilvik sýna mikilvægi þess að hlúa
að góðu samstarfi lögreglu og
öryggisfyrirtækisins," sagði Jó-
hann Óli Guðmundsson, forstjóri
Securitas, í samtali við Morgun-
blaðið.
BORGARRÁÐ hefur hafnað beiðni
Sendibíla hf. um framlengingu leyfis
til reksturs bflastöðvar í Hafnar-
stræti 2. Samþykt var með 4 sam-
hljóða atkvæðum í borgarráði, að
með tilvísun til bréfs umsjónarnefnd-
ar leigubifreiða treysti borgarráð sér
ekki til að framlengja umbeðið leyfi.
í bréfi Umsjónarnefndar leigu-
bifreiða er meðal annars vísað til
reglugerðar þar sem segir m.a.:
„Enginn bifreiðastjóri má reka
leigubifreið, allt að 8 farþega, til
mannflutninga, nema hann hafi
afgreiðslu á félagssvæði Frama,
og hafi öðlast atvinnuleyfi sem
Nýr framkvæmda-
stjóri BSRB
GUÐRÚN Árnadóttir meinatæknir
hefur verið ráðin framkvæmdastjóri
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja frá og með 1. febrúar á næsta
ári. Hún tekur við starfinu af Har-
aldi Steinþórssyni, fyrrum varafor-
manni BSRB, sem lét af störfum I.
desember sl.
Guðrún var ein fjögurra um-
sækjenda en áður, ráðningin kom
til afgreiðslu stjórnar bandalags-
ins á mánudag höfðu tveir um-
sækjendanna dregið umsóknir
sínar til baka. Annar þeirra óskaði
nafnleyndar en hinn var Björn
Arnórsson, hagfræðingur BSRB.
Þriðji umsækjandinn var Svan-
hildur Halldórsdóttir, fræðslufull-
trúi BSRB.
Guðrún Árnadóttir átti sæti í
stjórn BSRB frá 1979 og þar til á
þingi bandalagsins í haust. Hún
var formaður verkfallsstjórnar
BSRB í verkfallinu á fyrra ári og
var talin koma mjög sterklega til
greina sem varaformaður banda-
lagsins í stað Haraldar Steinþórs-
sonar. Þegar til kom gaf hún ekki
kost á sér, eins og fram hefur
komið í blaðinu.
Guðrún Árnadóttir.
EM unglinga í skák:
Davíð Ólafs-
son vann
DAVÍÐ Olafsson sigraöi i'rann Kill-
ian Hynes í 33. leikjum í 1. umferð
Evrópumóts unglinga í skák, sem
hófst í Groningen ■ Hollandi í gær.
Hann mætir svissneska skákmann-
inum Pascal Horn í 2. umferð. 30
skákmenn taka þátt í mótinu, sem
lýkur 2. janúar næstkomandi og
verða tefldar þrettán umferðir.
Stigahæsti keppandi mótsins er
frá Sovétríkjunum, Khalifman, og
hefur hann 2.490 Elo-stig. Hann
er talinn sigurstranglegastur en
næstur honum að stigum er Piket
frá Hollandi með 2.400 stig. Davíð
Ólafsson er með 2.290 Elo-stig og
er 13. í röðinni.
leigubifreiðastjóri á svæðinu.“
Vekur nefndin athygli á að síðan
1. apríl 1985 hafi aðeins einn leyfis-
hafi til mannflutninga verið í
afgreiðslu á þessari stöð og aki
hann sendibifreið, sömu gerðar og
aðrir bílar Sendibíla hf. Þá segir
í bréfi umsjónarnefndar leigubif-
reiða að mikil brögð séu að því,
að sendibílar Sendibíla hf. aki fólki
eins og um venjulegan leigubif-
reiðaakstur sé að ræða til jafns
við vöruflutninga. Nefndin beindi
því þeim tilmælum til borgarráðs
að fella úr gildi áðurnefnt leyfi.
SVR:
Breytingar á leiða-
kerfí 6 og 7
VIÐ opnun brúar á Bústaðavegi
yfir Kringlumýrarbraut varð breyt-
ing á akstri vagna SVR, sem aka á
leiðum merktum 6 og 7.
í fréttatilkynningu frá SVR
segir, að vagnarnir aki nú um
nýju brúna, en ekki um Suðurhlíð
og Sléttuveg, eins og var fyrir
opnun brúarinnar. Hins vegar er
ekið að Borgarspítala, frá Bú-
staðavegi, í hverri ferð.
Útgáfustjóm Þjóðviljans:
Vill ræða stofnun nýs
fjölmiðlafyrirtækis
- en hafnar sameiningu Alþýðublaðsins, NT og Þjóðviljans
ÁLYKTUN frá stjórn Útgáfufélags
Þjóðviljans þar sem segir, „að stjórn-
in sé andvíg því, að Þjóðviljinn verði
lagður niður eða gerður að hluta af
nýju dagblaði, sem ýmsar stjórn-
málahreyfingar ættu aðild að, eins
og hugmyndir eru uppi um“.
Hins vegar lýsir stjórnin yfir
vilja sínum til að taka þátt í við-
ræðum um stóraukna samvinnu
dagblaðanna, sem eiga aðild að
Blaðaprenti og lýsir jafnframt
þeim vilja sínum „að taka þátt í
viðræðum við aðstandendur NT og
Alþýðublaðsins um stofnun nýs
fjölmiðlafyrirtækis, sem hafi fjöl-
miðlun í víðtækum skilningi á
verkefnaskrá sinni“.
Steingrímur J. Sigfusson alþingismaður:
Ég tel eðlilegar að leysa
bankastjórnina frá störfum
Athugasemd vegna frétta Morgunblaðsins um atkvæðagreiðslur í
framkvæmdastjórn Alþýðubandalagsins
Hr. ritstjóri.
Vegna frétta í Morgunblaðinu í
dag, miðvikudaginn 18. desember,
um atkvæðagreiðslur í framkvæmda-
stjórn Alþýðubandalagsins vil ég
koma eftirfarandi leiðréttingu á
framfæri:
Nokkurs misskilnings eður rugl-
ings virðist gæta hjá blaðinu um
afgreiðslu tillagna í framkvæmda-
stjórn Albýðubandalagsins um
bankaráð Utvegsbankans og skip-
an í bankaráð. Hið rétta er að
samþykktar voru tvær tillögur.
Önnur um að óeðlilegt væri að
endurkjósa fráfarandi bankaráð
Utvegsbankans. Þeirri tillögu var
undirritaður andvígur. Ekki vegna
þess að bankaráð Ctvegsbankans
hafi staðið sig svo vel að sérstök
ástæða sé til að endurkjósa það,
heldur vegna þess að ég taldi til-
löguna gallaða. Eðlilegra hefði
verið að álykta fyrst og fremst um
að bankastjórn Ctvegsbankans,
sem -lögum samkvæmt ber hér
mesta ábyrgð, skyldi leyst frá
störfum og fleira mætti síðan
nefna.
Hin tillagan fjallaði um þá
meginreglu að þingmenn sitji ekki
í bankaráðum en einnig var þar
fjallað um sameiningu banka,
bankaleynd o.fl. Þeirri tillögu var
ég efnislega og í aðalatriðum
sammála og greiddi henni því
atkvæði mitt. Því gagnstæða er
hins vegar haldið fram á baksíðu
Morgunblaðsins í dag.
Því kem ég blaði þínu til hjálpar
hr. ritstjóri svo hafa megi það sem
sannara reynist, ekki síst á útsíð-
um.
Gleðilegjól.
Steingrímur J. Sigfússon