Morgunblaðið - 19.12.1985, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
Töluð orð
Bókmenntir •
Sigurjón Björnsson
Andrés Björnsson: Töluð orð.
Áramótahugleiðingar 1968-1984.
Bókaútgáfa Menningarsjóðs,
Reykjavík 1985.219 bls.
Það er gömul hefð að æðstu
embættismenn tali til þjóðarinnar
á merkisdögum: gamlárskvöldi,
nýársdegi, 17. júní. Að vonum eru
ræður þessar misjafnar. Á stund-
um eru þær leiftrandi snjallar,
andríkar, vel samdar og á fögru
máli. Oftar en hitt er þó mál þess-
ara mætu manna fremur flatt og
böggulslegt. Og ekki er grunlaust
um að stundum hafi aðrir hlaupið
undir bagga. Einhvern veginn
segir mér hugur um að þessi hefð
fari brátt að syngja sitt síðasta
vers. Nýir siðir fylgja nýjum herr-
um og val til æðstu trúnaðarstarfa
tekur lítt mið af því hversu vel
menn eru máli farnir og hversu
djúpur skilningur þeirra er á ís-
lenskri menningararfleifð. Líkleg-
ast telst þetta núorðið til fremur
smávægilegra aukaatriða og gott
ef ekki gamalmennanöldur. Víst
mætti rökstyðja þess háttar mat,
ef sú væri ekki raunin að J>eir sem
vel eru máli farnir og tala af þeirri
hógværð og mannskilningi að eft-
irminnilegt er, reynast einatt far-
sælir í ábyrgðarstöðum.
Andrés Björnsson, sem nýlega
hefur látið af starfi útvarpsstjóra,
er einn þeirra sem reynst hefur
afar farsæll embættismaður og
áunnið sér virðingu og vinsæidir.
Hann er jafnframt einn þeirra fáu
manna, sem getur staðið fyllilega
undir því að láta gefa út áramóta-
ræður sínar fyrir öll 17 embættisár
sín, óstyttar og óbreyttar. Mér
kæmi ekki á óvart þótt nokkuð
mætti bíða jæss að annar embætt-
ismaður fari í fötin hans í þessu
tilliti, svo að hann væri vel sæmd-
ur af. Það er mat mitt að þessar
ræður njóti sín jafnvel betur nú,
þegar unnt er að lesa þær í næði
en þegar þær voru fluttar í glaumi
áramótanna.
Ræður Andrésar eru ekki ein-
hæfar, og endurtekningasamur er
hann ekki. Engu að síður eru þær
allar bornar uppi af einni megin
hugsun, þróttmiklu stefi sem
hverfur ekki frá lesanda fyrr en
kveðjuorðin hafa verið sögð. Það
er umhyggja höfundar fyrir mann-
ingum, gildi hans og velferð.
Andrés er sannur mannhyggju-
maður.
„Hinir miklu landvinningar í
ríki efnisins, rannsóknir og upp-
finningar, tækni og vísindi, virðast
þó ekki veita manninum allt sem
hann þráir mest. Hann verður æ
hungraðri því meir sem hann etur
af skilningstrénu. Hann skilur
Andrés Björnsson
ekki sjálfan sig.“
Svo mælir hann í fyrstu ræðu
sinni, þegar árið 1968 er að kveðja.
Og 17 árum síðar segir hann:
„Það er nokkurn veginn ljóst að
kröfurnar til manna um félags-
þroska á þessum fjölbyggða hnetti
hafa ekki orðið samstiga risaskref-
um tækniþróunar."
Það er sem Andrés Björnsson
lfti á mannlífið úr nokkrum
fjarska, spurulum augum og af
nokkrum kvíða. Hann ann mann-
lífi án þess að láta blekkjast af
ásýnd þess. Hann horfir á víxlspor
mannskepnunnar án þess að
hneykslast. Hann kann vel að
meta hagræði tæknilegra fram-
fara, en varar við að menn ánetjist
þeim. Hann horfir til æðri mæta,
þess sem varanlegra er. Sjálft
manngildið er honum ofar í huga.
Hann er ekki bjartsýnn á framtíð
mannkyns, en ekki heldur bölsýnn.
Það er sem sú spurning sé honum
ávallt efst í huga, ósögð að vísu:
lHvert er ferðinni heitið?
Andrés er vissulega innhverfur
hugsuður, djúpskyggn en jafn-
framt raunsær. Ræða hans er
aldrei hástemmd eða hlaðin, en
hún ber í sér alvörufullan þunga.
Því lengur sem maður staldrar við
orð hans því dýpri verður merking
þeirra. Því hygg ég, að þeir sem
kunna að njóta góðra bóka muni
hafa þetta litla kver í hávegum og
lita oft í það. Enda þótt það hafi
að geyma „tækifærisræður",
skylduverk embættismanns, er það
engar dægurflugur.
Andrés Björnsson er svo kunnur
löndum sínum sem útvarpsmaður
að óþarft er að fara orðum um tök
hans á íslensku máli. Þessi bók ber
kunnáttu hans og smekk fagurt
vitni. Viðhorf hans til móðurmáls-
ins kemur og skýrt fram í síðustu
ræðu hans. Fer vel á að enda þess-
ar hugleiðingar á hvatningu hans.
„íslensk tunga er efalaust mikil-
vægasta og dýrmætasta sameign
okkar. Hún geymir alla okkar sögu
og sjálfa þjóðarsálina. Virðing
okkar allra fyrir móðurmálinu á
að vera heilög skylda. Um þá
skyldu eiga ungir og aldnir að taka
saman höndum."
Kvótarnir
að fyllast
á Dalvík
Dalvík, 14. desember.
BJÖRGVIN EA 311 kom á fimmtu-
dag til hafnar úr síðustu veiðiferð á
árinu og landaði um 80 tonnum af
skrapfiski. Björgúlfur kom til hafn-
ar fyrir nokkrum dögum úr siglingu
þar sem hann seldi um 180 tonn
fyrir rúmar 9 milljónir króna og
hefur hann einnig fyllt sinn afla-
kvóta á þessu ári.
Að undanförnu hefur mikið
borist á land af rækju til Söltunar-
félags Dalvíkur og var um tíma
unnið í verksmiðju félagsins á
vöktum allan sólarhringinn. Þessi
mikli rækjuafli hefur borist af
skipunum Dalborgu, Blika, Sólfelli
og Sæljóni. Dalborg landaði síðast
26 tonnum af stórri og góðri rækju
eftir 5 daga veiðiferð. Skipið er
nú í sinni síðustu veiðiferð á rækju
og er fyrirhugað að hún ljúki við
þorskkvóta sinn fyrir áramót og
ráðgerð sigling og sala í byrjun
næsta árs.
Þá hefur og borist til Dalvíkur
all góður afli af stórufsa af bátum
Grímseyinga og hefur hann verið
verkaður í salt. Til Dalvíkur kom
í síðustu viku nýr stálbátur, 100
lestir að stærð, Sænes EA 75. Þessi
bátur' hefur átt hér heimahöfn
áður, en var nú keyptur frá Siglu-
firði. Eigandi er Utgerðarfélagið
Rán hf. og er þetta annar bátur
fyrirtækisins. Fyrir á það Sæljón
EA 55. Skipstjóri er Gunnþói
Sveinbjörnsson Fréttaritarar.
Tirunij
HAMRABORG 3, SÍMI. 42011, KOPAVOGI
Veronika-stóll kr. 4.230 Cafe-stóll kr. 3.180 með Agústa-stóll kr. 3.590
meósessu. sessu. meósessu.
Doca-kommóða, massíf
fura.kr. 10.970.
2ja sæta sófar úr
svampi sem má
breyta í rúm.
Nokkrar gerðir.
Sally-furusófasett
kr. 19.700 = 3f 1+1
kr. 21.600 = 3+2+1
Massíft furuskrifborð. Nokkrar gerðir. Skrif-
borðsstóllkr. 2.580.
M
Barnakörfustóll
kr. 1.380.
Fururúm, margar gerðir. Breiddir: 90 cm, 120 cm, 140
cmog150cm.