Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
17
\
\
l
Þjóðtrú og þjóðfræði
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Jón Hneflll Adalsteinsson:
Þjóðtrú og þjóósagnir.
Iðunn, Reykjavík, 1985.170 bls.
í formálsorðum höfundar nefn-
ist þetta rit „fræðirit fyrir almenn-
ing“. Hann telur þjóðfræði ganga
„öllu nær kviku mannlífsins en
velflestar aðrar fræðigreinar.
Umfjöllunarefni hennar verða því
gjarnan nákomin flestum mönn-
um“. Augljóst er að fræðirit um
þau efni þurfa að vera aðgengileg
sem flestum. Sé einungis litið til
íslendinga er vitað að geysimiklar
þjóðfræðibókmenntir eru nú í
höndum manna og sennilega meira
lesnar af öllum almenningi en
margt annað sem hiliur prýðir.
Þjóðfræðaefni er því mörgum
mjög vel kunnugt og kært. Af þeim
sökum einum er mjög gagnlegt að
út er gefið ljóst og vel skrifað
fræðirit, sem flestir ef ekki allir
þjóðfræðaunnendur geta notið.
Það ætti að stuðla að því að gera
lestur manna meira íhugandi,
skipulegri og betur menntandi.
Rit þetta skiptist í sex aðalkafla
eða þætti: Þjóðfræði, Þjóðfræði á
íslandi, Þjóðtrú, Þjóðtrú í fornöld
og nútíð, Þjóðtrú í strjálbýli og
þéttbýli, Þjóðfræðirannsóknir.
í fyrsta kafla er þjóðfræði skil-
greind sem „vísindagrein sem fæst
við rannsókn þjóðmenningar".
Þjóðfræði er heildarhugtak sem
spannar yfir þrjú aðalsvið: þjóð-
sagnafræði, þjóðhætti og þjóðlíf,
eða „andlega, verklega og félags-
Jón Hnefill Aðalsteinsson
lega þjóðmenningu“. Þjóðtrú er
svo fjórða efnisatriðið, sem gegn-
sýriröllhin þrjú.
í sérstökum undirþáttum er
síðan fjallað um aðalsviðin þrjú,
auk þess sem undirþáttur er um
tengsl þjóðfræði við aðrar fræði-
gremar.
f næsta þætti er grein gerð fyrir
þróun þjóðfræðL á fslandi og sér-
staklega fjallað um þjóðsagna-
fræðina.
Þá koma þrír þættir er gera
þjóðtrúnni skil og bókin endar
síðan á sýnishorni um þjóðfræði-
rannsókn.
Eins og þessi upptalning ber
með sér er ritið skipulega og fræði-
mannslega samið. Það er þó fjarri
því að vera þurrt eða strembið, því
að hvort tveggja er að stíll er lipur
og léttur og málfar afar skýrt. Þá
gerir það og bókina skemmtilega
aflestrar að mikið er um skýring-
ardæmi, t.a.m. þjóðsögur. Teknir
eru upp hlutar úr inngangsorðum
þekktra þjóðfræðinga. Gerð er
skilmerkilega grein fyrir frum-
kvöðlum þjóðfræða bæði íslensk-
um og erlendum. Samanburður á
þjóðfræðaminnum á ólíkum tím-
um er hinn athyglisverðasti. Síð-
asti kaflinn sem er könnun á til-
drögum alkunnrar íslenskrar vísu
og hver muni vera höfundur henn-
ar er allrar athygli verð.
Þetta ágæta rit dr. Jóns Hnefils
Aðalsteinssonar þjónar að mínu
viti tilgangi sínum mæta vel. Það
er einkar áhugaverður lestur öllum
þeim sem þjóðfræðum unna. Og
þeir eru með vissu margir. Það er
prýðilega góð leiðsögubók í skólum
þar sem fjallað er um þjóðfræði.
E.t.v. getur það stuðlað að því að
þessum mikilvæga þætti menning-
ar vorrar verði betur sinnt í skól-
um en ég hygg að nú sé gert. Varla
orkar það tvímælis að fátt er betur
til þess fallið en t.a.m. þjóðsögur
að glæða málkennd, örva hugar-
flug og veita innsýn í hugarheim
þjóðar, óskir hennar og vonir, ótta
hennar og geig, með öðrum orðum
nema samhljóm okkar við þjóðar-
eðlið, svo að hátíðlega sé að orði
komist.
Jólagjöf fjölskyldunnar
töku- og sýningarvélin frá
Gefðu þér gjöf, sem gleður þig og þína árum saman. Gefðu
þér Nordmende töku- og sýningavélina, taktu jólin upp á
myndband og síðan getur þú yljað þér við minningu þeirra
árum saman. Löngu eftir að börnin eru uppkomin og farin
að heiman, getur þú horft á þau eins og þau voru í bernsku
og skemmt þér yfir gamalkunnum uppátækjum þeirra.
Tækniatriði: Nordmende töku- og sýningavélin (video-
movie) er með sjálfvirkt ljósop og faststillingu á því við
erfið birtu skilyrði. Hún er útbúin með rafknúna aðdrátt-
arlinsu, sem stækkar 6-falt og ,,macro“ sem gerir þér
kleift að fókusa á hluti sem eru mjög litlir eða nálægt lins-
unni, t.d. blóm eða skordýr. Ljósnæmnin er 15 lux, sem þýð-
ir að vélin ræður við sömu birtuaðstæður og mannlegt auga.
„White-balance“ tryggir 100% myndgæði. Vélin er afar -
einföld í notkun og hentar hverjum sem er,
og er útbúin með rafhlöðu, svo þú getur notað hana hvar
og hvenær sem er.
VIÐ TÖKUM VEL
SSSE ipHJ
lli®!
Fylgihlutir: hleðslutæki, rafhlaða, handfang, snælda,
hljóðnemi og taska með hólfi fyrir hvern hlut.
Allar nánari upplýsingar um þessa einstöku vél færðu hjá
sölumönnum okkar.
Vegna sérstakra samninga gátum við lækkað verðið á vélinni
úr kr. 96.500,- í kr. 86.900.- og staðgreiðsluverðið er þá -
79.900.- útborgun 15.000.- Eftirstöðvar á 8 mán.
SKIPHOLTI 19
SÍMI 29800
A M0TI ÞER
i