Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
TRÖLLEYKID
Þegar Desmond Bagley lést fyrir
tveim árum kom á daginn aö
hann átti nokkur handrit í fórum
sínum. í fyrra kom út í nætur-
villu, sem seldist upp viku fyrir
jól, en hefur verið endurprentuö í
takmörkuðu upplagi.
Nú kemur Trölleykið, sem
dregur nafn af feiknastóru farar-
tæki, sem er notað til flutninga í
Nyala, ríki í V. Afríku.
í Trölleykinu nær Desmond
Bagley hámarki í frásagnasnilld
sinni; hraða í frásögn, baktjalda-
makki og unnum sigri.
Trölleykið er hörkuspennandi
Bagleybók.
SUÐRI
Hagfræðingur í bandaríska samgöngu-
ráðuneytinu um People Express:
Hefur ekki sýnt
áhuga á flugi
til Luxemborgar
Frá Jóni Ásgeiri Sigurdssyni, frétUriUra MorgunblaósinB í Bandnríkjunum.
BANDARÍSKA flugfélagið Peoples ríkjunum annars vegar
Express hefur ekki óskað eftir sér-
stakri heimild til að fljúga á milli
Bandaríkjanna og Lúxemborgar, en
raun að öllum líkindum fá hana
fyrir 6. febrúar nk., sem hluta af
almennri heimild til að fljúga til
Evrópulanda. J. Kevin Kennedy,
hagfræðingur hjá bandaríksa sam-
gönguráöuneytinu, sem hefur með
slíkar umsóknir til flugmáiayfir-
valda að gera, sagði fréttaritara
Morgunblaðsins að Peoples Express
hafi ekki gefið neina vísbendingu
um sérstakan áhuga á leiðinni milli
Bandaríkjanna og Lúxemborgar.
Umsókn um almenna
heimild
Peoples Express sótti 17. apríl
1985 um almenna heimild til
bandarísku flugmálastjórnarinar
til að flytja fólk, eignir og póst
milli hvaða staða sem er i Banda-
og
Nioht I )ratimamir rætast
&Dav 1 & Day
SænaurfatnRður í
Sængurfatnadur í
* hæsta gæöaflokki
% “ , *
Kaupfélógm um allt land M|kligarður. Torgið, Dobius ©g Fatat\
hins
vegar Channon-flugvallar á ír-
landi, hvaða staða sem er i Belgíu,
Sambandslýðveldinu Þýskalandi,
Lúxemborg og Sviss.
Bandaríska flugfélagið, sem er
orðið það 5. stærsta í Bandaríkjun-
um, fór fram á að þessi heimild
yrði sameinuð heimild sem Peoples
Express hefur þegar til að fljúga
milli New Ark í New Jearsy-fylki
og London í Englandi.
Bandaríkska flugmálastjórnin
verður samkyæmt lögum frá 1958
að leggja allar umsóknir um slíkar
almennar heimildir fyrir forseta
Bandaríkjanna til staðfestingar
eða synjunar. Forsetinn kannar
hvort umsóknin samræmist örygg-
is- og öðrum hagsmunum Banda-
ríkjanna og gefur til kynna innan
61 dags ákvörðun sína um sam-
þykki eða synjun.
Það var 5. desember sl. sem
bandaríska flugmálstjórnin sendi
Bandaríkjaforseta tillögur sínar
um almenna heimild til handa
Peoples Express til að fljúga milli
áðurnefndra staða, þannig að
Ronald Regan tekur ákvörðun
fyrir 6. febrúar 1986. Að sjálfsögðu
getur forsetinn tekið þessa ákvörð-
un hvenær sem er áður en frestur-
inn rennur út.
Undanþágur
En þótt Peoples Express hafi
sótt um flugieiðina milli Banda-
ríkjanna og Brussel innan al-
mennu heimildarinnar, er flug-
félagið þegar byrjað að fljúga til
Brussel í Belgíu. Ástæðan er sú
að flugfélagið hefur orðið sér úti
um undanþágur fyrir flug á þrem-
ur leiðum. Peoples Express sótti
um New Ark-Ziirich 2. júlí 1985
og fékk heimild til að fljúga þang-
að fram til 31. maí 1986. Um leiðina
New Ark-Brussel sótti flugfélagið
26. ágúst 1985 og fékk heimild til
að fljúga á henni til 1. ágúst 1986.
Loks sótti Peoples Express um
leiðina SanFransico-Brussel þann
8. nóvember sl. og fékk heimild til
að fljúga á þeirri leið fram til 16.
október 1986.
Flugmálastjórnin bandaríska
hefur heimild til að veita flug-
félögum undanþágur frá lagaá-
kvæðum eða reglugerðum, ef
umsækjandi þykir sýna fram á að
beiðnin sé í almannaþágu. Peoples
Express gerði sér grein fyrir að
umsóknin um almenna heimild
tæki nokkra mánuði, en vildi hefja
millilandaflugið fyrr. Af þeim
ástæðum lagði flugfélagið rök-
semdir sínar fyrir þörf á flugi á
áðumenfdum þremur flugleiðum
fyrir bandarísku flugmálastjórn-
ina og fór fram á undanþágur.
Þessa dagana aulgýsir Peoples
Express verð aðra leiðina á flug-
ieiðinni milli Bandaríkjanna og
Brussel fyrir 99 dollara frá 7.
janúar nk., í stað 149 dollara núna.
Undanþágurnar voru veittar
nokkrum dögum eftir að beiðni
barst hverju sinni, og leyfið um
flug milli New Ark og Brussel var
veitt munnlega fyrst og síðan stað-
fest. Enn sem komið er hefur
Peoples Express ekki gefið til
kynna neinn áhuga á undanþágu
vegna flugs til Lúxemborgar, en
J. Kevin Kennedy sagði fréttarit-
ara Morgunblaðsins hins vegar, að
formlega séð geti Peoples Express
sótt um slíka undnanþágu í dag
og fengið á morgun, að því gefnu
að umsóknin yrði samþykkt.