Morgunblaðið - 19.12.1985, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 19.12.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 29 + Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Hugsaðu um yfirsjón þína fyrri hluta nætur þegar þú vakir, en um yfirsjónir náungans seinni hluta nætur er þú sefur. — Kínversk lífsspeki — Hugföst má hafa þessi heilræði við heitstrengingar á nýja árinu. Hefðir genginna kynslóða, virtar og haldið við af nýjum kynslóðum, hafa gert meira til að rækta þjóðern- istilfínningu þjóða en flest annað. Glatí þjóð siðum formæðra sinna og forfeðra, glatar hún sérkennum sínum og verður sem blóm án róta. Hér á landi tengjast hefðir og siðir hátíðum. Nú á allra síðustu árum hefur orðið ánægjuleg endurvakning margra þeirra er tengjast málsverð- um. Má þar nefna laufabrauðsgerð á jólaföstu og skötu á Þorláksmessu. Fiskkaupmenn undirbúa Þor- láksmessu vel og hafa á boðstólum hæfilega salta skötu og einnig kæsta skötu fyrir þá sem það vilja. Vil ég eindregið hvetja ungt fólk sem ekki hefur kynnst þessum sið að taka hann upp, svo honum verði við haldið. Hann er eins nauðsyn- legur hluti af jólaundirbúningi og hangikjöt er í málsverð á jóladag. Meðlæti með skötu eru soðnar kartöflur og svo er ómissandi hamsatólg eða vestfirskt mörflot sem fá má í flestum fiskverslun- um. Ef þið eruð að hugsa um kólest- erólið í tólginni, má gjarnan hafa það hugfast að forfeður vorir og formæður lifðu af þessu meðlæti góðu lífi og urðu mörg hver háöldr- uð. Svo látið ykkur bara verða gott af svona einu sinni á ári. Fyrir þá sem ekki geta kyngt þessu fylgir hér fyrirtaks fiskupp- skrift. Þetta eru að sjálfsögðu ís- lenskar fiskibollur 500 gr hakkaður fiskur 1 laukur 'Æ bolli hveiti 2—3 egg 2 tsk. salt mjólk 1. Laukinn má hakka með fiskin- um eða hann er rifinn niður i fiskhakkið. Hrærið saman (í hrærivél) fisk, lauk og hveiti. Bætið síðan eggjunum við einu í einu og hrærið vel í á milli. Ef notuð eru tvö egg þá bætið við mjólk. Eggin gera bollurnar léttar og þéttar í sér og eiga þau að koma í veg fyrir þær verði seigar. 2. Mótaðar eru bollur úr fiskdeig- inu (bregðið skeiðinni í vatn á milli) og eru þær brúnaðar vel í feiti á pönnu. 3. Vatni, ca. 1 Vfe —2 bollum er bætt á pönnuna ásamt 2 ten. af kjúklingakrafti til að gera sósuna bragðmeiri og eru boll- urnar soðnar í soðinu í nokkrar mín. Suðutíminn fer eftir hve lengi bollurnar hafa verið steiktar. 4. Sósan er jöfnuð með hveiti og sósulitur settur út í, eða það sem mér finnst betra; hveitið er hrært út með mjólk, sósan er jöfnuð og bragðbætt með W tsk. af karrý. Uppskriftin gefur 14 góðar boll- ar. Þær geymast vel frystar. Gleðilega jólahátíð. V^terkurog k/ hagkvæmur auglýsingamiöill! VIÐIR í Hátjðar atinn! . Nýreyktur Hamborqara Kjúkiíngar nryqáur aT.,ns a rvr’Txro ^ ák 498 Jóla Hangikjödð Daglega úr reyk: Lærí 2«0 í lofttæmdum M ^ umbúðum Pekingönd i innQkrift fwloir ^—* útsala á fullu AÐEINS. .00 pr. kg. 199 Glæsilegt úrval í kjötborðinu. . Lúxuskonfekt 400 gr. AÐEINS 245.oo Hnífasett 1.598.- 9 stk. hnífar, misstorir öl AÐEINS 39 .80 Stór dós Jóla markaður Sælgæti í feikna úrvali á sannkölluðu ÚRV/ALSVERÐI <HUsort; W* E>|S" uppskrift fylgir .00 pr-kg. .00 pr. kg. uppskrift fylgir AÐEINS .00 pf.kg. Jólaöl á Jólatilboði aðeins ■ ^Tfl B.OO^ lítrar 159"s Niðursoðnir ávextir: Avaxta markaður Ferskjur Perur Aprikósur n™- oe ferskir Nvtt 59 ;,!1 69,:1!íf 59-f'íl ávextir granmeti bemt fra Ferskjur Aspas Ananas 24;E 98 Z69 .00 1/1 dós New York í flugi Jólatrés- og grenisala: Kertamarkaður Opið til kl.18.30 í Mióddinni og Austurstræti en til kl. 18 í Starmýri AUSTURSTRÆT117 — STARMÝRI 2 Cfilg) STÓRMARKAÐUR MJÓDDINNI 4-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.