Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 35 per & Lybrand treysti sér ekki til að sjá um endurskoðun fyrir Haf- skip (USA) vegna þess, að þar var svo mikið um sérkennilega við- skiptahætti, sem birtist í bók- haldinu og ekki virtist standast verulegar endurskoðunarreglur." Svar: Vegna auk'innar starfsemi skrifstofu Hafskips (USA) þurfti fyrirtækið á verulegri tölvuþjón- ustu að halda og aukinni bókhalds- þjónustu. Útibú Cooper & Lybrand hafði ekki veitt umbeðna þjónustu nógu fljótt og horfur á hraðri afgreiðslu vegna ársins 1984 ekki góðar. Var því samið við fyrirtæki löggiltra endurskoðenda í New York, sem heitir Jabions, Siansky and Sullivan. Cooper & Lybrand voru reiðubúnir að halda áfram störfum fyrir Hafskip (USA). Þetta er staðfest í skeyti til aðal- skrifstofu Hafskips í Reykjavík 28. nóvember 1984. „Lúxusferðalög, þúsund dollara hótelsvítur á sólarhring, hótel- reikningar upp á tæpar 800 þús. krónur og Concord-flugferðir." Svar: Félagið kannast ekki við þúsund dollara svítur né neitt í líkingu við það, hvað þá heldur einstaka 800 þúsund króna hótel- reikninga (18 þús. USD). Víst hafa ferðalög margra starfsmanna Hafskips verið tíð og tekið tíma. Hjá slíku er ekki hægt að komast í rekstri hjá fyrirtæki, sem stund- ar viðskipti erlendis og rekur eigin skrifstofur í 6 löndum auk víðtæks umboðsmannakerfis. Einu sinni hafa verið keyptir tveir flugmiðar hjá British Airways (með Con- cord-þotu). I því tilviki voru for- stjóri og stjórnarformaður Haf- skips staddir í Englandi og þurftu að fara til viðræðna við aðila í Bandaríkjunum vegna Rainbow- málsins. „Golfferðalög forráðamanna Hafskips, sér-smíðaðar golfkúlur." Svar: Engar golfferðir voru farnar á vegum Hafskips. Það er þekkt venja hjá fyrirtækjum að nota í auglýsingaskyni merkta hluti, svo sem dagbækur, penna, kveikjara. Sama gilti um Hafskip (USA). Fyrirtækið dreifði til stærri viðskiptaaðila 3 golfkúlum í plastumbúðum og voru þær með merki félagsins, en fjöldafram- leiddar af Spalding-goíffyrirtæk- inu. „800 þúsund króna mánaðarlaun forstjóra og stjórnarformanns Hafskips." Svar: ítrekað hefur í fjölmiðlum verið fjallað um launamál for- stjóra og stjórnarformanns Haf- skips. Meðallaun þeirra á síðasta ári voru kr. 160 þúsund á mánuði. Þegar þeir réðust til starfa hjá félaginu 1977/78 var gerður við þá starfs- og kjarasamningur. Tengdist hann m.a. hugsanlegri bættri afkomu félagsins, sem þá hugðist vinna sig út úr gjaldþrota- stöðu, og var að hluta hugsaður sem eftirlaunaávinningur. Nú er ljóst, að mikill hluti þessa 8 ára samnings tapast og verður eftir atvikum að teljast málefna- legt. „Skúffufyrirtækið Georgia Ex- port Import mjólkaði Hafskip um tugi þúsunda dollara, sem forráða- menn Hafskips högnuðust á.“ Svar: Samkvæmt m.a. upplýs- ingum endurskoðunarfyrirtækis Hafskips (USA) eru greiðslur frá Hafskip (USA) til Georgia Export Import þessar: 1982/83 $ 13.000 1984 $ 23.157 1985 $ 14.000 Greiðslur þessar eru að meðal- tali um 600 þúsund íslenskar krón- ur á ári. Fyrirtækið var rekið af forstöðumanni Hafskips (USA), áður en hann tók til starfa hjá félaginu. Hér var m.a. um greiðsl- ur að ræða fyrir aukastörf við afgreiðslu á skipum félagsins í New Jersey. Engar greiðslur frá Georgia Export Import hafa geng- ið til forsvarsaðila eða starfs- manna Hafskips hf. á íslandi. „Dauðaleit að 100 gámum Haf- skips. Interpol komið í málið." Svar: Hér er látið að því liggja, að alþjóðalögreglan Interpol leiti nú vörugáma Hafskips. Ljóst er, að eitthvað mun hafa skolast til í þýðingu og heimildum. Mun al- þjóðalögreglunni vera ruglað sam- an við gámafyrirtækið Interpool, sem Hafskip átti viðskipti við. „Lánsfé Útvegsbankans tekið og millifært í önnur fyrirtæki." Svar: Ekkert fjármagn hefur verið tekið úr rekstri Hafskips hf. og millifært til stofnunar eða reksturs annarra fyrirtækja. í þessu sambandi hefur fyrirtækið Reykvísk endurtrygging oftast verið nefnt. Er vísað til yfirlýsing- ar fyrirtækisins um mál þetta. Rétt þykir að benda á, að auk starfsemi sinnar hér á íslandi rak Hafskip hf. eigin umboðsfyrirtæki í 6 löndum, þar með talið í Banda- ríkjunum. Flestar aðdróttanir í máli þessu eru þó frá Bandaríkjun- um komnar og virðast sprottnar af samskíptaörðugleikum á skrif- stofu Hafskips (USA) og Cosmos í New York. Niðurlag Það er að sjálfsögðu mikið hryggðarefni, hvernig til tókst og að hin nýja sókn félagsins til bjargar og tekjuauka skuli hafa snúist upp í martröð í íslensku skammdegi. Það var trú forsvarsaðila allt fram í október, að koma mætti í veg fyrir gjaldþröt með sölu hinna einstöku rekstrarþátta og við tæki þá í versta tilfelli nauðarsamn- ingaleið. Hröð og óvenju harðskeytt at- burðarás gerði vonir þessar að engu. Hér er vakin athygli á því, að hjá félaginu starfaði margt gott fólk og starfsandi var að ýmsu til fyrirmyndar. Viðskiptafyrirtæki félagsins og margir aðrir farmflytjendur virð- ast hafa kunnað að meta framlag félagsins til samkeppni, aukinnar þjónustu og hagkvæmni á undan- förnum árum. Þessi fyrirtæki ásamt öðrum aðilum atvinnulífsins eru nú hvött til að veita atvinnumiðlun starfs- manna Hafskips hf. þá aðstoð, sem frekast er möguleg í snörpu átaki tilúrláusnar. Er að því stefnt, að fyrrverandi stjórn Hafskips hf. muni styðja við bakið á sérstöku atvinnumiðl- unarátaki næstu vikur og mánuði og mun það kynnt sérstaklega innan tíðar. Sjúkraliða- nám er eitt ár VEGNA fréttar í Morgunblaðinu sunnudaginn 15. desember óskar Sjúkraliðaskóli fslands eftir að koma á framfæri eftirfarandi athugasemd um sjúkraliðanám: „Sjúkraliðaskóli íslands, Fjöl- brautaskólinn í Breiðholti og Verkmenntaskólinn á Akureyri útskrifa sjúkraliða. Sjúkraliðanámið tekur 1 ár. Inntökuskilyrði í Sjúkraliðaskóla íslands eru, að umsækjandi þarf að hafa lokið prófi úr 2. bekk í samræmdum framhaldsskóla (fjölbrautaskóla) eða hlotið hlið- stæða menntum." VZterkurog hagkvæmur auglýsingamióill! Gódai og vandadai bœkui Árni Óla Reykjavík f yrri tíma II Tvœr aí Reykjavíkuibókum Áma Óla, Skuggsjá Reykjavíiui og Horft á Reykjavík endurútgeínai í einu bindi. Saga og sögustaðir verða ríkir aí lííi og írá síðum bókanna geíui sýn til íortíðai og íramtídai - nútímamaðurinn öðlast nýjan skilning á höíuðborg landsins og íorverunum ei hana byggðu. Eíni bók- anna er íióðlegt, fjölbreytt og skemmti- legt. Fjöldi mynda írá Reykjavík íyrri tíma og aí persónum sem mótuðu og settu svip á bœinn prýða þessa vönd- uðu útgáfu. Birtan að handan Saga Guörúnar Sigurðardóttur írá Torfuf elli Sveiríi Pálsson skiádi Guðrún Siguiðaidóttii var landsþekkt- ui miðill og héi er saga hennai sögð og lýst skoðunum hennar og lílsvið- hortum Hún helgaði sig þjónustu við aðra til hjálpar og huggunar og not- aði til þess þá hœtileika sem henni vom geínii í svo ríkum mœli skyggni- gáíuna og miðilshœíileikana. Petta ei bók, sem á erindi til allra. Pétur Zophoníasson Víkingslœkjarœtt II Þetta er annað bindið í endurútgálu á hinu mikla œttíiœðiriti Pétuis, niðjatali hjónanna Guðríðar Eyjólísdóttui og Bjama Halldórssonar hreppstjóia á Víkingslœk. í þessu bindi em niðjai Höskulds, Brands, Eiríks, Loíts og Jóns eldia Bjamasona. Fyista bindið kom út 1983, en œtlunin er að bindin verði alls íimm í þessu bindi eins og því íyrsta, em íjölmargar myndii aí þeim sem í bókinni em neíndir. PÉTUR ZOPHONÍASSON VfKINGS LQqARÆITII NKUATAL GUÐRlDAR EYJÓLFSDOTTUR OG BMHNAHALI.OÓRSSONAR HREPPSTJORA A VlKINGSLÆK Ásgeii Jakobsson Einars saga Guðfinnssonar Þetta er endurútgáía á œvisögu Einars Guðíinnssonar, sem verið hefui óíáanleg í nokkur ár, en hlaut óspart lot er hún kom fyist út 1978. Þetta er baráttusaga Einars Guðíinnssonar íiá Bolungarvík og lýsir einstökum dugnaðarmannt sem barðist við ýmsa eríiðleika og þuiíti að yíirstíga margai hindianir, en gaíst aldrei upp; vai gœddui ódiepandi þrautseigja kjarki og árœði. Einnig er í bókinni mikill íróðleikur um Bolungarvík og íslenzka sjávarútvegssögu. SKUGGSJA - BOKABUÐ OLIVERS STEINS SF.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.