Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 36

Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 JILSANDER hefur sigraó heiminn undirstrikar persónuleika þinn SARA Bankastr. Rvk CLARA Laugaveg Rvk MIRRA Hafnarstr. Rvk. NANA Fellagörðum Rvk SNYRTIHÖLLIN Garðabæ VÖRUSALAN Akureyri ANETTA Keflavik BYLGJAN Kópavogi SNYRTIVORUBUÐIN Laugaveg 76, Rvk SNYRTIVÖRUBÚÐIN Glæsibæ Rvk GJAFA & SNYRTIVÖRUBÚÐIN Suðurven, Rvk NINJA Vestmannaeyjum NAFNLAUSABÚDIN Hafnarfirði Gæði, góö verö Nýkomnir fataskápar, hillusam- stæöur og barnahúsgögn er sam- eina góö gæöi og betra verö. Fataskápur nr. 304. 100/197 cm m/3 skúff- um. Verö kr. 7.225,- 1 -4:- i i i JL • Fataskápur nr. 302. 100/197 cm. Fataskápur nr. 309. 150/197 cm meö 5 skúffum. Verö kr. 9.980,- Fataskápur nr. 303 150/197 cm. Verð kr. 4.995,- Verð kr. 8.150,- Hillusamstæða nr. 20, hnota. Verö kr. 27.172,- Borðstofuborð í úrvali Vönduö sófasett frá kr. 31.000.- Leöursófasett frá kr. 60.000.- Þýsk framleiðsla, þýskur gæðastimpill. c§3 Nýborg Sími 82470. Skútuvogi 4, viö hlíöina á Barðanum. Gullöld Bókmenntir Steinar J. Lúövíksson Skagamenn skoruðu mörkin II Höfundar: Jón Gunnlaugsso, Sig- tryggur Sigtryggsson og Sigurður Sverrisson Útgefandi: Hörpuútgáfan 1985 Þremenningarnir Jón Gunn- laugsson, Sigtryggur Sigtryggsson og Sigurður Sverrisson hafa nú lokið við að skrifa sögu Akranes- liðsins allt frá því að það tók að láta til sin taka í ísienskri knatt- spyrnu til ársins 1984. Vel kann að vera að einhverjum þyki það nokkur ofrausn að skrá sögu knatt- spyrnuliðs í tveimur bindum sem samtals eru vel á fimmta hundrað blaðsíður. En ef einhverjir hugsa þannig þá er óhætt að segja við hina sömu að slíkt sé misskilning- ur. Saga knattspyrnuíþróttarinnar á Akranesi er í raun ævintýri, ekki bara vegna þess að frá Akra- nesi hafa um langt skeið komið margir af bestu knattspyrnu- mönnum landsins heldur líka vegna þess að knattspyrnumenn Akraness hafa komið þessu fá- menna byggðarlagi á heimskortið. Frá því er sagt í bókinni að þegar Skagamenn drógust á móti heims- þekktum liðum í Evrópubikar- keppninni þá fannst útlendingum það nánast lélegur brandari þegar sagt var frá því hversu fámennt byggðarlagið var. En þegar út á völlinn var komið henti það oftar en ekki að brosið stirðnaði á and- litum andstæðinganna og þeir máttu hafa sig alla við, jafnvel þótt sumir þeirra fengju meira í árslaun fyrir að leika knattspyrnu en allir leikmenn Akranesliðsins fengu fyrir vinnu sína. Akurnesingar geta verið stoltir af knattspyrnumönnum og knatt- spyrnuliði sínu og eru það líka. Það kemur vel fram í bókinni að að nýju knattspyrnumennirnir standa ekki einir. Þeir hafa alla bæjarbúa á bak við sig og víst er að í gegnum árin hefur einstök stemmning verið í kringum þetta lið. Að unn- um sigrum hefur ríkt þjóðhátíðar- stemmning á Akranesi og oft hefur það gerst að stór hluti bæjarbúa hefur safnast saman til þess að fagna hetjunum sínum. Bæjarbúar hafa mikinn metnað fyrir hönd knattspyrnumanna sinna og það er kannski einmitt vegna þessa andrúmslofts að hver stjarnan af annarri hefur kviknað á Akranesi. Atvik sem einn leikmanna Akra- nesliðsins lýsir í bókinni segir mikið um þann hug sem Akurnes- ingar bera til knattspyrnumanna sinna. Sá var rekinn af leikvelli í bikarúrslitaleik og átti von á þvi versta frá áhangendum liðsins. En hvað gerðist? Akurnesingarnir í stúkunni stóðu upp og klöppuðu fyrir honum. „Það var stórkostleg tilfinning að vita að áhangendur okkar sneru ekki baki við mér, heldur veittu mér ómetanlegan stuðning. Þeir gáfust ekki upp, þótt á móti blési og því áttum við leikmennirnir að gefast upp?“ Stundum er talað um tvö gull- aldarskeið í knattspyrnunni á Akranesi. Hið fyrra var er þeir voru upp á sitt besta Þórður Þórð- arson, Ríkharður Jónsson, Þórður Jónsson, Sveinn Teitsson og fleiri. Seinna tímabilið var er Englend- ingurinn Kirby þjálfaði og stjórn- aði liðinu og þá voru meðal aðal- manna liðsins synir þeirra leik- manna er gerðu garðinn fyrst frægan: Teitur Þórðarson, Karl Þórðarson og Árni Sveinsson. Síð- ustu árin hafa einnig verið sann- kölluð gullár á Akranesi en þá hefur liðið leikið undir stjórn Harðar Helgasonar sem tvímæla- laust er mjög hæfur þjálfari. Annað bindi „Skagamenn skor- uðu mörkin" fjallar um seinni Ekkert íslenskt knattspyrnulið hefur eignast eins margar „stjörnur" og Akranesliðið. Sigurður Jónsson var síðastur Skagamanna til að leggja út í atvinnumennsku. gullár Akranesliðsins. Þar er sagt frá mörgum skemmtilegum og eftirminnilegum atvikum. Leik- menn, forystumenn og þjálfarar eru leiddir fram og látnir segja frá ýmsu frásagnarveröu sem gerðist bæði hér heima og erlendis. Bókarhöfundum hefur tekist ein- staklega vel að lýsa þeirri stemmn- ingu sem er í liðinu og kringum það. Frásagnir bókarinnar eru ágætlega skrifaðar, lýsingar af leikjum og atvikum ljóslifandi og viðtölin við leikmenn þannig að bókarhöfundum tekst að ná mörgu skemmtilegu fram hjá þeim. Bækurnar „Skagamenn skoruðu mörkin" eru mikill fengur fyrir knattspyrnuáhugamenn og þá ekki síst Akurnesinga þar sem þær hafa að geyma frásagnir af því sem hefur verið snar þáttur í bæjarlíf- inu þar í áratugi. Bókin er líka kennslubók í því hve íþróttalíf getur haft mikið að segja fyrir bæjarbrag og hversu snar þáttur það getur orðið í uppeldi og mótun æskufólks ef vel er á málum hald- ið, eins og Akurnesingar hafa jafn- an gert. Fróðleiksbrotabrot Bókmenntir Jóhanna Kristjónsdóttir Guðmundur A. Finnbogason: í bak og fyrir, frásagnir af Suðurnesjum. Útgefandi: GAF1985 íslendingar hafa löngum verið gefnir fyrir þjóðlegan fróðleik svokallaðan, frásagnir af liðnum tímum, búskaparháttum, mannlífi og svo framvegis. Margir höfundar hafa sent frá sér og senda frá sér afar misjafnlega skemmtilegar bækur um þetta efni. En áhuginn er þeim öllum sameiginlegur. I bók Guðmundar A. Finnboga- sonar er lengsti kaflinn nefndur Hjónin í Króki: Eyjólfur Þorgeirs- son og Guðný Jóhannsdóttir og ættfólk þeirra, nær þessi kafli yfir sextíu síður. Höfundur segir að Eyjólfur hafi verið vel þekktur um Suðurnes og víða um land fyrir kveðskap sinn. I stað þess að fræða okkur um kveðskapinn er farið út í að rekja ættir Eyjólfs og er það gert ítarlega og hressilega í marga ættliði með tilheyrandi útskýring- um. Fyrir ættfræðiáhugamenn, ég tala nú ekki um þá sem einhvers staðar koma inn í allar þær upp- talningar er þetta ugglaust Ijóm- andi skemmtilegt. En verður úr, fyrir venjulegan leikmann séð, einum og mikið af því góða og skal þó nákvæmnin ekki löstuð. Síðla kaflans eru svo birt sýnis- horn úr kveðskap Eyjólfs í Króki, sem vitnar um nokkra hagmælsku, en margt hefði mátt missa sín, að mínum dómi. Ýmsir kaflar bókarinnar eru snoturlega skrifaðir, þótt einhvern veginn verði höfundi minna úr efninu en manni hefði fundist ástæða til. Þar mætti geta kaflans um Rósu Jónsdóttur, síðustu manneskjuna í Njarðvíkum er sett var niður á sveit. Stuttar en hugn- anlegar frásagnir Jórunnar Jóns- dóttur eru ágætar og sama máli gegnir um kaflann Ýmsar sagnir, skráðar eftir frásögn Finnboga Guðmundssonar. Guðmundur A. Finnbogason. Töluvert er af myndum í bók- inni, margar til prýði og sóma. Höfundur er ágætlega ritfær og greinilega grúskari, en afrakstur- inn verður ekki sérlega mikill, til þess eru flestir þættirnir of magr- ir. Leyndardómar fortfðarinnar Bókmenntir Sigurjón Björnsson LEYNDARDÓMAR FORTÍÐAR- INNAR Höfundur: Anke De Vries Þýðandi: Álfheiður Kjartansdóttir Prentverk: Prentsmiðjan Hólar hf. Útgefandi: Iðunn Þessa bók var gaman að fá í hendur, því hún er eins og ungl- ingabækur gerast beztar. 18 ára unglingur, hollenzkur, fær þann starfa að gera upp hús í útjaðri Magnan, fransks þorps. Þar hafði búið auðkvinnan frú Stevenson með syninum William. Voðaat- burðir ske, frúin heldur í burt og ár eftir ár stendur húsið autt. Slík er ógn þorpsbúa af þessu húsi, að þeir verða hljóðir er minnst er á það, stígarnir þangað gróa upp, á þeim finnur Markús ekkert spor, nema mjúklega bældan gróður eftir meyjarfót, Lísju. Þau kynn- ast, og saman taka þau að ráða gátur dulúðarinnar. Ekki aðeins um húsið, heldur líka um þá skelf- ingu er Markús ber í brjósti, tætir hann og rífur. Lausnir finna þau skötuhjúin á hvoru tveggja, klær óttans í brjósti drengsins réttast upp, — og sektin, sem dulúðin um húsið óf, er rofin. Höfundur segir þessa sögu lista- vel, kann þau tök, að lesandinn sleppir bókinni ógjarna, fyrr en sagan er öll. Höfundur hefir boð- skap að flytja og hæfileika til þess að tjá hann, enda verðlaunaður höfundur og löngu víðfrægur. Þýðing Álfheiðar er mjög góð, málið lipurt ogh fagurt. Þú hefir alls ekki á tilfinningunni að þú sért með erlenda bók í höndum, og ef nöfnin á sögupersónunum væru ekki svona framandleg, þá gæti sagan hafa gerzt í íslenzku þorpi. Prentverk allt er vel og sam- vizkusamíega unnið. Hafi útgáfan þökk fyrir af- bragðs góða bók. Sigurður Haukur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.