Morgunblaðið - 19.12.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
37
Horfumst
í augu
við ljósið
Bókmenntir
Jóhanna Kristjónsdóttir
Páll H. Jónsson: Blindálfar
Útgefandi Vaka - Helgafell 1985
Páll H. Jónsson hefur skrifað
margar bækur og gefið út, leikrit,
ævisögur, greinasöfn og síðast en
ekki sízt barnabækur og það er
skömm frá því að segja, að Blind-
álfar er það fyrsta sem ég hef lesið
eftir hann.
Hér segir frá skáldinu Ara Jóns-
syni sem býr í bæ úti á landi.
Hann varð blindur fyrir fjórum
árum og hefur ekki sent frá sér
bók. Þörfin hefur blundað í honum
en hann er ekki reiðubúinn að
takast á við skriftir fyrr en nú, í
bókarbyrjun. Hann ræður til sín
stúlkuna Rúnu Björk, sautján ára
stúlku, líklega að sunnan. Hún
hefur bæði ör á sál og líkama og
hefur búið um sig inni í harðn-
eskjulegri skel. Óttast manneskj-
urnar sem henni finnst hæða sig
og spotta fyrir lýti þau sem blasa
við.
Með stúlkunni og skáldinu tekst
afar fallegt og ljúft samband. Þeim
tekst að komast á rekspöl með bók
Ara, en það skiptir kannski megin-
máli að Ara lánast að ná stúlkunni
út úr þeirri sálarsjálfheldu sem
hún er í. Og þau gefa hvort öðru
og standa uppi ríkari að lokum,
þó svo að Rúna Björk ákveði að
fara til mannsins sem hún hefur
verið að bíða eftir. Og Ari ákveði
að fara á blindraheimilið sem hann
hafði reynt í lengstu lög að forðast
til að verða ekki upp á aðra kom-
inn.
Páll segir vel frá og persónu-
sköpun þeirra beggja, stúlkunnar
og skáldsins, verður mjög skýr.
Sömuleiðis er konan Þrúða, hjálp-
arhella beggja, ágætlega dregin.
Styrkur Páls fannst mér liggja
í samtölunum. Hann hefur ótví-
rætt og áreynslulaust vald yfir
þeim. Hann hefur einnig næmt
auga fyrir ýmsu smálegu í mann-
legum samskiptum, sem dýpkar
frásögnina.
Það er enginn bægslagangur í
þessari bók, en hún skilur eftir
áhrif sem eru ákaflega þekkileg,
vegna meðferðar Páls á efni og
persónum. Eftirminnileg saga sem
verðskuldar athygli og lestur.
Höföar til
.fólks í öllum
starfsgreinum!
Afmæliskringla.
Uppskriftin er á
Gluten Blue Star
umbúöunum.'
Gluten Blue Star er náttúrulegt,
óbleikjaö hveiti. Heimabaksturinn fær
þess vegna fallegan, gullinn blæ.
Gluten Blue Star er danskt hveiti sem
blandað eramerísku mjöli. Hátt htutfall
sterkju (gluten) tryggir frábæra
bökunareiginleika og fallegan bakstur.
Prófaðu uppskriftirnar á umbúðunum.
í versluninni þar sem þú kaupir Gluten
Blue Star færðu einnig bækling með
uppskriftum að girnilegum kökum
og tertum
Gluten Blue Star. Danskt hveiti
blandað amerísku mjöli.
Biðjið um hveitið með bláu stjörnunni.
Hvíldarstaður í hádegi höll að kveldi