Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 38
38
MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
Gyllenhammarnefndin sitjandi frá vinstri: Poul J. Svanholm, Ulf Sundquvist, Georg Paulsen, Tor Moursund og Sören Mannheimer. Standandi frá vinstri:
Kari Karimao, Torvild Aakvaag, Erlendur Einarsson, Percy Barnevik og dr. Pehr G. Gyllenhammar.
Gyllenhammar-nefndin skilaði lokaskýrslu í Helsinki í gæn
Vill tryggja velmegun og auka
áhrif Norðurlanda út á við
Gyllenhamarnefndin afhenti í gær
í Helsinki forsætisráðherrum Norð-
urlanda lokaskýrslu sína, en nefndin
átti upphaflega að kanna ýmsa
möguleika á norrænu efnahagssam-
starfi, útfæra tiliögur, sem þegar lágu
fyrir, í samvinnu við fyrirtæki og
stofnanir sem hlut áttu að máli, og
marka langtímastefnu á ýmsum
mikilvægum sviðum í því skyni að
stuðla að viðtækum framförum í
efnahagslífi á Norðurlöndum.
Um verkefnið sagði í yfirlýsingu
forsætisráðherra Norðurlanda frá
29. febrúar 1984: „Ráðherrarnir
álíta að samstarfsnefnd, skipuð
fulltrúum sem gegna leiðtogahlut-
verki á öllum helztu sviðum við-
skipta og framleiðslu — nefnd sem
starfi sjálfstætt utan opinberra
norrænna samtaka — geti stuðlað
að markvissri þróun í efnahags-
legu samstarfi meðal Norðurlanda
með víðtækri reynslu sinni og
frumkvæði. Hin almenna stefnu-
yfiriýsing varðandi norrænt efna-
hagslegt samstarf, sem samþykkt
var af forsætisráðherrum og ráð-
herranefndinni í desember 1981,
gæti skoðast sem upphafsgrun-
dvöllur að væntanlegum störfum
vinnuhópsins."
í útdrætti úr lokaskýrslu Gyll-
enhammernefndarinnar segir
m.a.: „Við álítum að samstarf
meðal Norðurlandaþjóðanna hljóti
að verða þeim öllum til hagsbóta.
Unnt er að nýta sameiginlegar
auðlindir þeirra betur en nú er
gert. Ef við brytjum niður
„múrana" sem enn aðskilja þessi
lönd, ykist styrkur þeirra og hag-
kvæmni í framleiðslu, viðskiptum
og stjórnun. Við getum tekið hönd-
um saman um að sinna gagnlegum
verkefnum í rannsóknum og
fræðslu. Með samstarfi getum við
tryggt betur velmegun okkar og
látið meira að okkur kveða á al-
þjóðlegum vettvangi. Þetta myndi
ennfremur hlúa að sameiginlegu
gildismati. Norðurlandabúa, þ. á
m. skoðunum þeirra á mannlegri
virðingu, samstöðu og friði.
Við álítum að áform norrænu
fjármálaráðherranna, hvað snert-
ir efnahagslegt samstarf Norður-
landa á breiðari grundvelli, séu
traust undirstaða að aukinni
samræmingu í efnahagslegri
stefnumörkun.
Við teljum að unnt sé að bæta
hag Norðurlandaþjóðanna en bætt
þróunarskilyrði munu leysa aukna
atorku úr læðingi. Forsendurnar,
sem hér mætti nefna til, snerta
t.d. samræmingu á löggjöf um fjár-
magnsmarkað, viðskipti, niður-
greiðslur, byggðastefnu, samgöng-
ur og fræðslumál."
Um vinnuhætti nefndarinnar
segir, að samstarfsnefndin hafi
lagt megináherzlu á að skilgreina
og útskýra grundvallarforsendur
norræns samstarfs í efnahagsmál-
um. Ennfremur hafi vinnuhópur-
inn leitast við að benda á vanda-
mál, sem hafa takmarkað efna-
hagslegt samstarf Norðurlanda.
Nefndin hvetur einnig til frum-
kvæðis og framtaks á ýmsum svið-
um efnahagslífsins.
Talsvert af starfinu hefur átt
sér stað utan vinnuhópsins. Ann-
ars vegar var um að ræða verkefni
sem nefndin fól öðrum, en hins
vegar kom til framtakssemi aðila,
sem fengu hvatningu af hug-
myndum og umræðum nefndar-
innar.
Skoðanakönnun var gerð fyrir
tilstilli nefndarinnar og hún sýndi
að um 46 af hundraði þeirra sem
svöruðu álitu að samstarfi Norður-
landaþjóðanna væri of þröngur
stakkur skorinn. Þeir sem töldu
samstarfið ganga of langt námu
aðeins einum af hundraði."
Um aðgerðir nefndarinnar segir
á sviði efnahagslífs, skipulagning-
ar og samræmingar, að í samvinnu
við Norræna fjárfestingarbank-
ann hafi nefndin falið „Institute
of Industrial Economics" að fram-
kvæma rannsóknir á sviði norræns
samstarfs í einkarekstri, mögu-
leika þess og vandamál, rar.nsókn-
ir á útflutningskerfi Norðurlanda
og á samstarfi í viðskiptum og
eignaraðild að fyrirtækjum á
Norðuriöndum.
Þá hefur Iðnþróunarstofnun
Norðurlanda — Industrial Deve-
lopment Foundation" verið endur-
skipulögð sem samnorræn stofnun
og stofnaður hefur verið fjárfest-
ingasjóðurinn „Euroventure
Nordica" í samvinnu við „Euro-
venture".
Tillögur hafa verið lagðar fram
um stofnun norrænnar upplýs-
ingatæknistofnunar „Norit“ og
tillaga hefur verið lögð fram um
samnorrænan háskóla í tilrauna-
skyni.
í samgöngumálum Norðurlanda
hefur nefndin ýtt úr vör verkefn-
inu „Scandinavian Link“, sem
miðar að því að stytta um helming
ferðatíma milli helstu borga á
Norðurlöndum landleiðis — og
eins að tengja Norðurlönd betur
við aðra hluta Evrópu (ísland er
að sjálfsögðu undanskilið).
Framkvæmd var skoðanakönn-
un meðal Norðurlandabúa um álit
þeirra á þessum bræðraþjóðum,
stofnuð var vinnumiðlun fyrir
Norðurlandabúa, „Nordjobb", sem
útvegar ungu fólki störf í fríum
og haldin var ráðstefna um stöðu
kvenna og framtíðarhorfur.
f menningarmálum er nú í gangi
undirbúningur að norrænni menn-
ingarhátíð, sem áformað er að
halda í Gautaborg árið 1989 og
frumkvæði var veitt að fyrstu
norrænu æskulýðshátíðinni, sem
haldin var á breiðum grundvelli.
Um framtíðarverkefni í löggjög
telur nefndin að undirbúa þurfi lög
um samnorræn fyrirtæki og nema
þarf úr gildi lög, sem tiltaka Norð-
urlandabúa sem „útlendinga"
hverja hjá öðrum. Þá vill nefndin
auka frjálsræði á samnorrænum
fjármagnsmarkaði með óhindruðu
fjármagnsstreymi milli landanna,
frjálsræði í fjárfestingu og eignar-
aðild að fyrirtækjum og auknu
frjálsræði í viðskiptum á þjónustu-
sviði svo og samræmingu á lögum
þar að lútandi.
Þá telur Gyllenhammarnefndin
að aflétta þurfi viðskiptamismun-
un svo sem eins og takmörkunum
á vöruflutningum milli landanna,
mismunu á töxtum og skilmálum
almennra vöruflutninga, misræmi
í stöðlun og reglugerðum varðandi
viðskipti, beinum styrkjum til
óarðbærra fyrirtækja og ríkis-
styrktum lánafyrirgreiðslum í
viðskiptum milli Norðurlandanna.
Þá vill nefndin gera ráðstafanir
til þess að auka samkeppnishæfni
norræns útflutningsiðnaðar,
ásamt aukinni innbyrðis sam-
vinnu, lánafyrirgreiðslu og stofn-
un Norræns þróunarsjóðs —
„Nordic Development Fund“.
Loks vill nefndin skoða stefnu í
fræðslumálum sem samnorrænt
verkefni og afla gagnkvæmrar
viðurkenningar á lærdómsgráðum,
tryggja að háskólar og rannsókna-
stofnanir á Norðurlöndum njóti
alþjóðlegrar viðurkenningar, hefja
samvinnu og umræðu í því skyni
að laga háskólamenntun að
breyttu skipulagi í efnahagslífinu,
leggja áherzlu á almenna kunn-
áttu, rannsóknir og tækifæri til
menntunar á þeim sviðum þar sem
slíku er ábótavant á Norðurlönd-
um og gera menntakerfið sveigjan-
legra.
f Gyllenhammarnefndinni eru
eftirtaldir menn: dr. Pehr G. Gyll-
enhammar, formaður Volvo AB,
Svíþjóð, formaður, Ulf Sundqvist,
bankastjóri Finlands Arbetar-
sparbank, Finnlandi, varaformað-
ur, og aðrir nefndarmenn: Percy
Barnevik forstjóri ASEA AB Sví-
þjóð, Erlendur Einarsson forstjóri
Sambands íslenzkra samvinnufé-
laga fslandi, Kari Kariamo for-
stjóri OY Nokia AB Finnlandi,
Sören Mannheimer borgarráðs-
maður í Gautaborg Svíþjóð, Tor
Moursund bankastjóri Cristiania
Bank og Kreditkasse Noregi, Ge-
org Paulsen formaður Dansk Met-
alarbejderforbund Danmörku,
Poul J. Svanholm, aðalfram-
kvæmdastjóri De Forenede Brygg-
erier A/S Noregi.
Erlendur Einarsson um starf GyUenhammar-hópsins:
Margt getur komið okkur
vel í tillögum nefndarinnar
„ÞAÐ ER æði margt, sem gæti
komið okkur ísiendingum vel, ef
tillögurnar næðu fram að ganga,
auk þess sem vissar framkvæmdir
hafa verið ákveðnar," sagði Erlend-
ur Einarsson, forstjóri SÍS, um
tillögur Gyllenhammar-nefndar-
innar, en hann hefur átt sæti í
nefndinni frá því er hún var skipuð.
Sem svar við spurningunni,
hvernig gætu tillögur nefndar-
innar komið íslendingum til
góða, nefndi Erlendur, að ýmsum
hindrunum á sviði viðskipta og
samstarfs í iðnaði eða öðrum
viðskiptum yrði rutt úr vegi —
næðu tillögurnar fram að ganga.
Þar nefndi Erlendur einnig, að
flutningur fjármagns milli Norð-
urlandanna yrði frjálsari en nú
er og samræming á ýmsum lög-
um og reglugerðum er snerta
verzlun, framleiðslu og viðskipti
myndi eiga sér stað. Þá myndu
ýmsir ríkisstyrkir verða sam-
ræmdir eða felldir niður t.d. í
iðnaði og öðrum viðskiptum.
Erlendur kvað Island geta
orðið aðila að norrænum útflutn-
ingssjóði og útflutningstrygging-
um, en I þessum efnum væru
íslendingar gjörsamlega út úr
kortinu ef svo mætti segja. Þá
gætu íslendingar einnig orðið
aðnjótandi sameiginlegs nor-
ræns átaks í tæknimenntun, en
Norðurlönd væru eftirbátar
annarra þjóða á þessu sviði.
Tæknimenntun væri undirstaða
þátttöku íslands í tækniiðnaði
og á því sviði værum við mjög
skammt á veg komnir, þótt
nokkrir sprotar hafi fest rætur
á sviði rafeindatækni.
Erlendur Einarsson kvað Is-
land ekki vera aðila að Scandi-
navian Link-áætluninni, en mjög
þýðingarmikið væri fyrir okkur
að ná meiri framleiðni í flutn-
ingamálum. Sé litið til aðalfram-
leiðslu þjóðarinnar, sem er fisk-
urinn, þá er flutningskostnaður
gífurlega mikill þáttur í verð-
myndun fisksins. Sjálf væru
veiðiskipin flutningatæki. Mörg
aðföng þyrfti að flytja um langan
veg, hvort sem er til útgerðar eða
vinnslu og síðar verður að flytja
fiskinn á markað — oft um mjög
langan veg á borð neytenda.
Erlendur Einarsson sagði:
„Eins og fram kemur í fréttatil-
kynningu frá okkur í Gyllen-
hammar-hópnum, þá er ákveðið
að koma á fót sjálfstæðri iðn-
þróunarstofnun í Stiftelsen af
Industriutvikling í Norden, sem
verður staðsett í Osló. Þessi
stofnun, sem verður í eigu fyrir-
tækja á Norðurlöndum, er óháð
ríkisafskiptum, á að vinna sér-
staklega að því að koma í fram-
kvæmd samvinnu í iðnaði, versl-
un eða þjónustu milli fyrirtækja
á Norðurlöndum eða hjálpa fyr-
irtækjum sem eru með álitlegar
hugmyndir á þessum sviðum að
gera þær að veruleika. Þá verður
sett á stofn sérstakur fjárfest-
ingarsjóður — Euroventure
Nordica, en sjóður þessi á að
geta lagt fram áhættufjármagn
í minni fyrirtæki, sem talin eru
hafa góða rekstrarmöguleika.
NORIT, menntastofnun á sviði
upplýsingatækni, verði einnig
sett á stofn."
Þá gat Erlendur einnig um
Norræna listahátíð, sem ákveðið
er að halda í Gautaborg í júlí-
og ágústmánuðum 1989. „Verður
hún meiri að umfangi en nokkur
slík listahátíð, sem áður hefur
verið haldin á Norðurlöndum,"
sagði Erlendur Einarsson.
Að lokum sagði Erlendur Ein-
arsson: „Ég vil að lokum láta í
Ijós þá skoðun að aukin norræn
efnahagssamvinna getur átt
mikla möguleika í framtíðinni,
ef ráðamenn hafa þor og dug til
að ryðja úr vegi ýmsum hindrun-
um, sem takmarka þessa sam-
vinnu nú. Við íslendingar verð-
um að gæta þess vel að einangr-
ast ekki um of. Vegna smæðar
okkar þurfum við nánara sam-
starf við þær þjóðir, sem standa
okkur næst þjóðernis- og menn-
ingarlega. Aukið norrænt efna-
hagssamstarf á að geta treyst
efnahag okkar og reist fleiri
stoðir undir atvinnulífið á Is-
Iandi.“