Morgunblaðið - 19.12.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985
39
Almanak
Þroskahjálpar
ÚT ER komið happdrættisalmanak
Landssamtaka Þroskahjálpar fyrir
árið 1986. Aimanakið er gert í sam-
vinnu við félaga í fslenskri grafík
og prýða það 13 grafíkmyndir eftir
íslenska listamenn, ein fyrir hvern
mánuð, auk litmyndar á forsíðu.
Sami háttur var hafður á sl. ár og
mæltist vel fyrir; almanakið seldist
upp.
Eins og nafnið bendir til er
almanakið jafnframt happdrætt-
ismiði og eru vinningar tveir bílar,
Toyota Corolla, og tíu sjónvarps-
tæki af Orion-gerð, samtals að
verðmæti 1,1 millj. kr. Verður
dreginn út vinningur mánaðarlega
allt árið.
Landssamtökin Þroskahjálp
voru stofnuð 1976 f því skyni að
sameina í eina heild þau félög sem
vinna að máiefnum fatlaðra sem
ekki geta barist fyrir hagsmunum
sínum sjálfir. Eru nú í samtökun-
um 26 aðildarfélög sem starfa um
land allt, bæði foreldra- og styrkt-
arfélög og fagfélög þeirra sem hafa
sérhæft sig í kennslu og þjálfun
fatlaöra. Þroskahjálp er í senn
baráttuaðili fyrir rétti fatlaðra og
samstarfsaðili við ríkisvaldið um
málefni þeirra og á ótvíræðan þátt
í þeirri ánægjulegu uppbyggingu
sem orðið hefur i þjónustu við
fatlaða undanfarin ár.
Auk þess sinna samtökin
fræðslu- og útgáfustarfsemi,
standa m.a. að fræðslunámskeið-
um fyrir aðstandendur fatlaðra
barna og ungmenna og gefa út
tímaritið Þroskahjálp sem kemur
út fjórum sinnum á ári. Þá rekur
Þroskahjálp gistiheimili í Kópa-
vogi fyrir foreldra utan af landi
sem þurfa að sækja til höfuð-
borgarinnar með fötluð börn sín
til rannsókna eða meðhöndlunar.
Almanakshappdrættið er megin
fjáröflunarleið Þroskahjálpar og
vænta samtökin þess að fólk taki
vel á móti sölumönnum þeirra
næstu vikurnar. nemendur í 6.
bekk Verslunarskóla Islands og
Söngsveitin Fílharmónía munu
annast sölu á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu, ásamt félagsmönnum. í
boði er glæsilegt listaverkaalman-
ak og veglegir happdrættisvinn-
ingar.
(FrétUUIkynning frá landssamtökunum
Þronkahjálp.)
• ISLENSK
BÓKAMENNING
ER VERÐMÆTI •
FODURLAND VORT
HAíFT ER HAHD
LÚÐVÍK KRISTJÁNSSON:
ÍSLENSKIR SJÁVARHÆTTIR IV.
Fyrri bindi þessa mikla ritverks komu út 1980,1982 Meginkaflar þessa nýja bindis eru:
og 1983 og eru stórvirki á sviði íslenskra fræða. BEITA OG BEITING, VEIÐAR MEÐ HANDFÆRI,
§ VEIÐAR MEÐ LÓÐ OG ÞORSKANETUM, LEND-
| Bókin er 546 bls. með 469 myndum þar af eru 35 ING-UPPSETNING-FJÖRUBURÐUR, SKIPTI-
I prentaðar í litum. VÖLLUR-AFLASKIPTI, LANDLEGUR, VER-
GÖGN, HAGNÝTING FISKIFANGS, ÞORSK-
HAUSAR OG SKREIÐARFERÐIR OG FISKI-
FANGSVERSLUN.