Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 19.12.1985, Blaðsíða 47
!- MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESEMBER1985 47 rísa nýtt skipafélag hér. Þeir segja að möguleikinn á nýju félagi og samkeppnin frá þeim aðilum sem fyrir eru sé þeim nægjanlegt að- hald. Starfsmannafélag Hafskips hef- ur nú óskað eftir því að það verði kannað hvort hægt er að rifta þeim hlutafjárloforðum, sem einstakir starfsmenn fyrirtækisins gáfu í febrúar sl. Er Útvegsbankinn nú með þessa ósk félagsins til at- hugunar. Fjölmargir aðrir hlut- hafar og viðskiptavinir Hafskips eru einnig mjög óánægðir með þá stefnu, sem málið hefur tekið, og nú á eftir að reyna á það hvað þeir gera. Munu þeir stofna til nýs ævintýris strax á næsta ári, eins og sumir þeirra eru þegar farnir að ræða innan sinna raða eða munu þeir að megninu til beina viðskiptum sínum til Eimskips? Einn viðmælandi minn, sem tapað hefur talsverðu fé vegna gjald- þrots Hafskips, sagðist ekki í nokkrum vafa um að nýtt skipafé- lag yrði stofnað. Hann sagði að mikillar óánægju gætti í röðum Hafskipshluthafa með þá stöðu sem nú væri komin upp. Margir þeirra gætu alls ekki hugsað sér að taka upp viðskipti við Samband- ið, og aðrir væru þegar farnir að finna fyrir því að Eimskipsmenn væru farnir „að breikka í stólun- um“. Nú þýddi ekki lengur að segja „Ég hef nú fengið þetta á þessum kjörum hjá Hafskip". Einokun Eimskips á markaðnum væri þeg- ar orðin að veruleika, sem mætti ekki verða viðvarandi. Gengur ekki svo langt aö segja að hann hafi verið blekktur Þessi athafnamaður sagðist óán- ægður með það hvernig staðið var að hlutafjáraukningunni í febrúar sl. þó hann segðist ekki vilja ganga svo langt að segja að hluthafarnir hefðu beinlínis verið blekktir. Hann sagði að mikið af upplýsing- um hefði vantað, til þess að hlut- hafar gætu tekið málefnalega af- stöðu til þess hvort þeir ættu að leggja fé í hlutafjáraukninguna. Því hafi verið borið við að erfiðlega og seint gengi að fá upplýsingar frá Bandaríkjunum, en slikar við- bárur væru einfaldlega ekki nógu sterk röksemdafærsla árið 1985, þegar tölvuvæðing fyrirtækja væri orðin að raunveruleika. Forsvarsmenn Hafskips segja það fráleitt að halda því fram að þeir hafi vísvitandi blekkt hlut- hafa á hluthafafundinum. Vekja þeir athygli á því að stjórnar- hópurinn og fyrirtæki þeirra áttu 75% hlutafjáraukningarinnar. Það sé einfaldlega sorgleg stað- reynd, að menn hafi ekki vitað betur, þar sem svo mikið hafi skort á að upplýsingar um kostnað lægju fyrir. Fjölmargir sem sætta sig hvorki við Eimskip né SÍS Einn viðmælandi minn segist vera í hópi þeirra fjölmörgu sem sætti sig hvorki við viðskipti við Eimskip né SÍS og því muni hann ásamt öðrum nú á næstunni hefja undirbúning að stofnun nýs skipa- félags. Það segi sína sögu að Skipa- deild Sambandsins, með um 20% flutninganna, virðist hafa þokka- lega afkomu og þá ætti nýtt félag, með um 30% flutninganna, ekki síður að geta náð slíkri afkomu. Stofnun nýs félags þurfi mikinn og góðan undirbúning, og þurfi að Ibyggjast á sterkum mönnum, sem hafi fjármagn, en þurfi sem minnst að leita eftir bankafyrir- greiðslum. Stærsta áhyggjuefnið sem þeir sem hugi að stofnun nýs félags hafi, sé það hvort Eimskip takist að tryggja sér einokunarað- stöðu sína um ókomna framtíð, með því að fá með í kaupunum hafnaraðstöðuna í austurhöfninni I Reykjavík og útiloka þar með möguleikann á því að nýtt skipafé- lag geti athafnað sig í Reykjavík- urhöfn. Hann telur að slíkt mark- mið hafi verið höfuðástæða þess að Eimskip vildi kaupa Hafskip. Þessi maður segist að sjálfsögðu harma það hvernig fór fyrir Haf- skip, en engu að síður finnist honum fyrir neðan allar hellur hvernig alþingismenn hafi hagað sér í þessu máli, og velt sér upp úr því. Hann bendir á að Hafskip hafi tekið áhættu, og tapað. Hlut- hafarnir hafi margir hverjir tapað stórfé, en það hafi verið áhætta sem þeir voru fúsir að taka, til þess að reyna að tryggja eðlilega samkeppni á flutningamarkaðnum hér. Bendir hann á að þingmenn mættu líta sér nær, þegar þeir eru að tala um hvað Hafskipsævintýr- ið kosti hverja fjölskyldu í landinu. Þeir tali ekki um þjóðarskatt þegar minnst sé á Kröfluævintýr- ið, sem hafi kostað þjóðina millj- arða. Það ævintýri, ásamt Krísu- víkurskólaævintrýi og fjölmörgum öðrum, hafi verið pólitísk ævintýri ákveðið af alþingismönnum og þjóðin muni þurfa að greiða fyrir þá sóun langt fram á næstu öld. Hafskip var þann 5. desember sl. tekið til gjaldþrotaskipta, eftir að kaupsamningi íslenzka skipafé- lagsins hafði verið rift. Höfðu forsvarsmenn félagsins þá um nokkra hríð þráast við að biðja fógeta um gjaldþrotaskipti. Eim- skip hafði þá gert bindandi tilboð í eigur Hafskips að upphæð 9,3 milljónir dollara. Framlengdi Eimskip tilboðinu þrisvar sinnum, nú síðast þriðjudaginn 17. desem- ber, en það átti að renna út þann dag kl. 17. Veitti Eimskip skipta- ráðanda frest til 6. janúar 1986 til þess að aðrir hugsanlegir kaupend- ur gætu haft tíma til þess að skoða eigur þrotabús Hafskips og gera kauptilboð. Vildarkjör á greiðslum Ljóst er að tilboð Eimskips nú er mun lægra en það sem upp- haflega var rætt um í haust. Út- vegsbankinn hefur fyrir sitt leyti samþykkt að taka tilboði Eim- skipafélags íslands, en ekki mun liggja fyrir fyrr en í desember- mánuði hvort skiptaráðandi tekur tilboðinu. Allt þykir þó benda til þess í dag að tilboðinu verði tekið. Vildarkjör eru á greiðslum, eink- um þeim sem fram eiga að fara fram í íslenskri mynt. Liðlega helming andvirðisins á Eimskip að greiða Útvegsbankanum í er- lendri mynt, með erlendum bank- avöxtum, og greiðist sú fjárhæð upp á 10 árum. Fyrsta afborgun er hins vegar ekki fyrr en í árs- byrjun 1988. Það sem eftir er greið- ir Eimskip í íslenskri mynt á 15 árum og byrjar sömuleiðis að greiða það eftir 2 ár. Kjörin á því láni eru þannig að það er verð- tryggt, en vaxtalaust. Meta menn þetta svo að þessi kjör jafngildi a.m.k. 2 milljónum dollara til lækkunar kaupverðinu. Eimskip sé því að kaupa á yfirverði, án þess þó að þurfa að borga það yfirverð. Það komi Útvegsbankan- um betur að fá bókfærðar 9,3 milljónir dollara í söluverð, eða um 393 milljónir króna, heldur en t.d. 300 milljónir króna. Tap bank- ans sé þegar svo stórt. Banka- stjórnin segir að tap bankans vegna viðskiptanna við Hafskip sé um 350 milljónir króna, en ljóst er að það verður talsvert umfram það og 400 milljónir er líklega síst of lág tala. Til dæmis liggur fyrir að bankinn getur ekki fengið í sinn hlut allt kaupverðið, því forgangs- kröfur eins og sjóveðskröfur og launakröfur eru kröfum bankans sterkari. Bankinn á í eigið fé um 530 milljónir króna, en þegar þetta dæmi er endanlega uppgert gæti sú tala verið í kringum 100 milljón- ir króna. Það liggur því beint við, nú eftir að tillögur um sameiningu bankanna hafa séð dagsins ljós, að bankinn sameinist á næstunni annað hvort Verzlunarbankanum og Iðnaðarbankanum eða Búnað- arbankanum, eins og valkostir nefndarinnar gera ráð fyrir. Hvort nýtt skipafélag á svo eftir að líta dagsins ljós á næsta ári eða í náinni framtíð og hvar það fær bankafyrirgreiðslu getur tíminn einn leitt í ljós. Jólasaga og litabók fyrir börn ELLÝ, Ulli og Bananajólasveinagildran heitir jólasaga og litabók, sem gefin hefur verið út í tilefni af ári æskunnar 1985 og er tileinkuð börnum á íslandi. Höfundar textans eru Brynjar Ragnarsson og Margrét Kristín Björnsdóttir, teikningar eru eftir Brynjar og Ásgeir Bergmann. Sagan segir frá systkinunum Ellý og Úlla, sem kvöld nokkurt skömmu fyrir jól eru ein heima og fá þá hugdettu að veiða jóla- sveininn. Þau ákveða að noca til þess bananagildru. Þetta ráða- brugg heppnast og síðan segir sagan af því sem gerist hjá þeim systkinum og Jóla. í hverri opnu eru myndir, sem börnin geta litað og aftast eru auðar síður, þar sem börnin geta bæði teiknaö og litað það, sem sagan blæs þeim í brjóst. ELLÝ. ÚLU OG mMmnm HUGUÚFJÓLASAGA OG UTABÓK Tapaði brúnu veski FÖSTUDAGINN 13. desem- ber varð eldri maður fyrir því óláni að týna brúnu seðlaveski í miðbænum. I veskinu voru peningar og skilríki. Mjög bagalegt er fyrir manninn að týna vesk- inu og peningunum svona rétt fyrir jólin og er skilvís finnandi beðinn að hringja í síma 30224 eða 82380. Morgunblaðið/Björn Guðmundsson Jólaföndur í Ólafsvík NÝLEGA var haldinn jólafondurdagur í grunnskóla Ólafsvíkur á vegum Foreldra- og kennarafélagsins. Var þar allt efni til fondursins skaffað í skólanum, einnig voru seldar veitingar, spiluð jólatónlist og fl. Þarna ríkti sannkölluð jólastemmning og höfðu allir mjög gaman af, jafnt fullorðnir sem börn. ÚRVALS AMERÍSK HEIMILISTÆKI GENERAL ELECTRIC HEIMILIS- OG RAFTÆKIADEILD IhIHEKLAHF LAUGAVEGI 170 172 SIMAR 11687 • 21240
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.