Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 48

Morgunblaðið - 19.12.1985, Page 48
48 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR19. DESBMBER1985 Góða skapið skemmir ekki Ragnhildur Helgadóttir, heilbrigóisráðherra, lætur hvorki skammdegi né þingannir skyggja á hinar jákvæðu hliðar tilverunnar, ef marka má þessa svipmynd frá Alþingi Fjármálaráðherra: Barnabótaauki — vaxtafrádráttur húsnæðislána Þorsteinn Pálsson fjármálaráð- herra mælti í fyrradag fyrir tveimur stjórnarfrumvörpum: um barnabóta- auka og um vaxtafrádrátt húsnæðis- skulda. Barnabótaauki f febrúar 1984 féllst ríkisstjórn- in á að greiða tekjutengdan barna- bótaauka til þess að liðka fyrir samningum milli ASf og VSÍ. Rétturinn til barnabótaaukans var bundinn við það að tekjur og eignir fari ekki yfir ákveðið mark. Þessi háttur gilti 1984 og 1985 og sam- kvæmt þessu frumvarpi einnig á næsta ári. Þannig var stuðlað að því að þeir, sem erfiðasta afkomu hafa, njóti aukans. Auk þess er stefnt að því að barnabótaaukinn bæti að einhverju leyti þá kjara- skerðingu, sem þeir tekjulægstu hafa orðið fyrir, sagði fjármála- ráðherra. Tekjuskattur 1986 3.150 m.kr. Fjármálaráðherra mælti einnig fyrir vaxtafrádrætti húsnæðis- skulda við útreikning tekjuskatts. Vextir og verðbætur af sjálfskuld- arábyrgðum til húsnæðismála njóta sama réttar og veðlán. Frá- dráttartímabil vaxta lengist úr 3 og 6 árum í 4 og 7. Horfið er frá öflun viðbótar- tekna til ríkissjóðs í formi hækk- aðs vörugjalds. Ekki þótti fært að hækka þann veg framfærslukostn- að í upphafi nýs samningatímabils á vinnumarkaðinum. Lagt er til að skattvísitala 1986 verði 136 stig miðað við 100 1985. Samkvæmt því er ráðgert að nettó- tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti 1986 verði 3.150 m.kr. MÞin Stuttar þingfréttir Krafla seld Landsvirkjun Þriðja umræða fjárlaga á morgun Það var þungur straumur í þing- störfum í gær. Lög afgreidd nánast á færibandi. Meðal laga sem sam- þykkt vóru má nefna: 1) Nala Kröfluvirkjunar til Landsvirkjunar; 2) Hitaveita Suðurnesja (skipting hlutafjáreignar o.fl.), 3) Lög um iðnráðgjafa (gildistími framlengdur til ársloka næsta árs); 4) Lög um sóknargjöld; 5) Lög um almanna- tryggingar (fæðingarorlof/fleirbura- fæðing); 6) Lög um sjúkratrygging- argjald (framlenging gildistíma). Líkur stóðu til að lagagildi hlytu á kvöldfundi: A) Tímabundið vöru- gjald (framlengdur gildistími) B) Lög um staðfestingu viðbótarsamn- ings við Alusuisse; C) Lög um verð- jöfnunargjald á raforku og D) Lög um skráningu skipa. Deilumál Á dagskrá efri dcildar var þing- mannafrumvarp um þrengingu heimilda til fóstureyðinga, fyrsta umræða í fyrri þingdeild. Á dag- skrá neðri deildar var stjórnar- frumvarp um varnirgegn kynsjúk- dómum, það er að alnæmi skuli skrá sem kynsjúkdóm, framhald fyrstu umræðu í síðari þingdeild. Skoðanir eru skiptar um þessi má! og má búast við nokkrum umræð- um. Möguleiki er þó talinn á því að síðara þingmálið geti orðiö að lögum fyrir jólahlé. “Nýtt Víðishús“ Ólafur Þ. Þórðarson (F-Vf) vék að því — í umræðu um málefni aldraðra — að framkvæmdavaldið gangi freklega á rétt fjárveitinga- valdsins. Nefndi hann til ákvörðun menntamálaráðherra um kaup á húsi Mjólkursamsölunnar í Reykjavík fyrir 110 m.kr., án þess að málið væri borið upp við fjár- veitinganefnd eða Alþingi. Jafnvel þeir sem „standa blóðugir upp að öxlum í niðurskurði" taka sér slíkt eyðsluvald, sagði Ólafur. Svavar Gestsson (Abl.-Rvk.) sagði „nýtt Víðishús“ komið til sögunnar. Upptaka ólöglegs sjávarafla Á árabilinu 1980—1985 hafa verið kveðnir upp samtals 678 úr- skurðir um upptöku ólöglegs sjáv- arafla, samkvæmt svari Halldórs Ásgrímssonar, sjávarútvegsráð- herra, við fyrirspurn Skúla Alex- anderssonar (Abl.-Vl.). Samtals nemur fjárhæð, samkvæmt þess- um úrskurðum, rúmum 15 m.kr., þar af eru 8 m.kr. útistandandi, aðallega frá yfirstandandi ári. Ráðstöfun fjár úr upptökusjóði í ár (1985) er sem hér segir: 1) Hafrannsóknastofnun, tækjakaup 1 m.kr., 2) Tölvuvæðing vegna veiðieftirlits 612 þúsund og Vinna við landgrunnskort 94 þúsund. Fjárlög á morgun Þriðja umræða frumvarps að fjárlögum komandi árs fer fram á morgun, föstudag. Þingstörfum fyrir jólahlé lýkur með fjárlagaaf- greiðslu. Bjartsýnismenn telja að þingmenn fari í frí á föstudags- kvöld. Aðrir telja líklegra að at- kvæðagreiðslu, eftir þriðju um- ræðu fjárlagafrumvarðs, verði frestað fram á laugardagsmorgun. Eggert Haukdal Eðlilegt er, sagði Eggert, að minnka útflutningsbætur búvöru í áföngum, við núverandi aðstæð- ur. Niðurgreiðslustig innanlands má hinsvegar ekki minnka. Þvert á móti þyrfti það að hækka. Kjöt- sala til Keflavíkurflugvallar greiddi oggötu landbúnaðarins. Aðalatriðið er að ríkisstjórnin og stuðningslið hennar nái góðu sambandi við þjóðina. Það þarf að eyða ágreiningi í samstarfinu. Við þurfum að láta verkin tala — betur. Heiðurslaun listamanna 1986: Tillaga um fimmtán einstaklinga FIMMTÁN listamenn fá heiðurs- laun á næsta ári samkvæmt breyt- ingartillögu við fjárlagafrumvarp, sem þrettán þingmenn úr öllum þingflokkum flytja. Fyrsti flutn- ingsmaður er Halldór Blöndal, (S-Ne.). Heiðurslaun listamanna samkvæmt tillögunni verða sam- tals 4.125.000 og koma kr. 250.000 í hlut hvers. Listamennirnir sem heiðurs- launa njóta á næsta ári eru: Finnur Jónsson, Guðmundur Daníelsson, Halldór Laxness, Hannes Pétursson, Indriði G. Þorsteinsson, Jóhann Briem, Jón Helgason, Jón Nordal, María Markan, Matthías Johannessen, Ólafur Jóhann Sigurðsson, Snorri Hjartarson, Stefán fs- landi, Svavar Guðnason, Valur Gíslason. Tízkuverslunin Betty NÝLEGA var opnuð tískuverslunin „Betty“ á Skólavörðustíg 12 í Reykjavík. Verður þar boðið upp á kvenfatnað frá vestur-þýska fyrir- tækinu „Betty Barclay". í fréttatilkynningu frá eigend- um verslunarinnar, sem eru Ragna Kemp Guðmundsdóttir og Elín Reynisdóttir, segir að fyrirtækið „Betty Barclay" framleiði einnig fatnað undir merkjunum „Gil Bret“ og „Vera Mont“. Hjá „Gil Bret“ er aðallega boðið upp á káp- ur, jakka og dragtir, en „Vera Mont", sem staðsett er í Frakk- landi, sérhæfir sig í samkvæmis- fatnaði. Eggert Haukdal um fjárlögin: Látum verkin tala betur falli niður TVEIR þingmenn Sjálfstæðis- flokks, Halldór Blöndal og Björn Dagbjartsson, hafa flutt breytingartillögu við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1986, þess efnis, að gjaldaliðurinn Menn- ingarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, falli niður. Bæði Bandaríkjamenn og Bret- ar hafa sagt skilið við þessa stofnun, en starfsemi hennar hefur verið umdeild hin síðari árin. Eggert Haukdal (S.-SI.) gagnrýndi sitt hvað við fjárlagagerð í fjárlaga- umræðu. Ekki sízt að niðurskurðar- hnffnum væri einkum beint að framkvæmdahlið fjárlaga. Síður væri tekið á rekstrarhliðinni, til dæmis hjá heilbrigðis- og mennta- málaráðuneyti, sem taki til sín stærstan hluta fjárlagadæmisins. Eggert Haukdal spurði efnislega: Er ekki lyfjanotkun hér á landi úr hófi? Er ekki kostnaður við sér- fræðinga of hár miðaö við laun láglaunafólks, t.d. í heilbrigðis- þjónustu? Er ekki hægt að draga úr miðstýringu í skóla- og mennta- kerfinu? Er víst að ekki megi færa til betri vegar hjá Lánasjóði náms- manna? Er ekki hægt að nýta mun betur fyrirliggjandi lánsfé í hús- næðiskerfinu — með breyttum reglum? Frumvarp til fjárlaga: Framlag til UNESCO Ræðumaður vék að sveiflum í atvinnu- og efnahagslífi, sem væru tíðar og miklar. Ef ríkisstjórnin telur nauðsynlegt að færa út tekju- öflun ríkissjóðs, sagði þingmaður- inn, verður hún að leita þangað sem fjármunir eru fyrir. Ekki þýð- ir að íþyngja framleiðslunni eða blóðmjólka launþega. „Þá vil ég láta koma fram þá skoðun mína“, sagði Eggert, „að tiltölulega fáar milljónir til hækk- unar á helztu framkvæmdaliðum, svo sem skóla, sjúkrahúsa, hjúkr- unarheimila og hafna hefðu sætt menn betur við niðurstöður fjár- laga án þess að skipt hefði sköpum í búskap ríkisins." Við höfum rætt of mikið um fiskveiðistefnu en of lítið um af- komumál sjávarútvegsins að öðru leyti, sagði þingmaðurin. Fast- gengisstefnan er tvíeggjuð. Lækk- un vaxta og endurskoðun á grund- velli verðtryggingar er eitt brýn- asta hagsmunamál atvinnuveg- anna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.